Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 72

Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 72
fgréður erjuffi Setri þessum ástæðum brutust aftur út átök innan sexmannanefndar árið 1965 þegar fulltrúa Alþýðusambandsins var nóg boðið og sambandið dró sig úr samstarfinu, í þetta skipti fyrir fullt og allt. fðecrsni annanej~n <£-sicjfir i ótrarnf Til að jafna hallann af útflutmngnum ákvað Framleiðsluráð, árið 1965, að taka 50 aura af verði hvers innvegins mjólkurlítra til bóndans.14 Sú ákvörðun varð til þess að Alþýðusamband Islands dró fúlltrúa sinn úr sexmannanefnd í annað sinn en fleira hafði komið til. Sambandið benti á að stöðug hækkun á verðlagi landbúnaðarafurða væri afleiðing af verðbólgustefnu stjómvalda. Högum bænda væri svo komið að ekki væri hægt að leysa brýnustu vandamál þeirra með verðlagningu landbúnaðar- afúrða einni saman og sexmannanefnd hefði ekki vald til að fjalla um stefnuna í heild. Þá væri munurinn á verðinu sem bændur fengu fyrir framleiðsluvöm sína og því sem neytendur þurftu að greiða orðinn svo stórkostlegur að ógerlegt væri fyrir fulltrúa neytenda að bera ábyrgð á söluverðinu nema málið væri rannsakað ofan í kjölinn. Undir ríkjandi skipulagi væm það hvorki framleiðendur né neytendur sem réðu verðinu í raun. Heldur væri það ríkisstjómin vegna niðurgreiðslnanna og því þætti aðkoma verkalýðssamtakanna að verðákvörðununum beinlínis röng.15 Að lokum hafði sú staðreynd, að forráðamenn Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar gengu í Vinnuveitendasamband Islands vorið áóur, dregið mjög úr vilja fólks í Alþýðusambandinu til að halda samstarfinu áfram. Verið væri „að skipa þýðingarmiklum hagsmunasamtökum bænda í andstæðingaraðir verkalýðssamtakanna ,..“16 í ritum forsvarsmanna bænda var ákvörðun Alþýðusambandsins lýst sem lögbroti sem svipti bændur samningsrétti um launakjör sín.17 Til að hægt væri að semja um verðlagið fyrir veturinn samþykkti ríkisstjómin bráðabirgðalög sem fólu þriggja manna nefnd að fara með aðalhlutverk sexmannanefndar, verðlagninguna. Mennimir sem skipaðir vom í þá nefnd vora ráðuneytisstjóri landbúnaðarráðuneytisins, forstjóri Efnahagstofnunarinnar og framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins.18 Ljóst var að endurskoða þyrfti lögin og til þess kallaði landbúnaðarráðherra saman sjö menn í nefnd sem kölluð var sjömannanefnd. ar aðrar fefðir tafcfarýœrar Landbúnaðarráðherra skipaði menn í sjömannanefndina og tengdust allir nefndarmenn landbúnaðarkerfinu á einhvem hátt. Sumir höfðu setið í framleiðsluráði en aðrir í sexmannanefnd.19 Nefndarmenn fengu í hendur mikið af gögnum til skoðunar. Eftir að hafa farið yfir gögnin komst meirihluti nefndarinnar að þeirri niðurstöðu að þrjár leiðir gætu verið færar til að breyta verðlagningarfyrirkomulaginu. Sú fyrsta væri að setja nánari tilmæli í lögin um við hvaða stéttir ætti að miða kaup bóndans, auka upplýsingaöflun um raunveralegan framleiðslukostnað og vinnutíma bóndans og fela útreikningana opinberam stofnunum eins og Hagstofunni eða Efnahagsstofnuninni.20 Önnur leið væri að bændur ákvæðu verð á vöranum sjálfir en ríkið gerði sérstakar ráðstafanir til að halda verði þeirra í skefjum, svo sem þær að leyfa innflutning erlendrar búvöra með ákveðnum tolli.21 Nefndin taldi þá leið að gera bændum frjálst að ákveða verðið einhliða en gefa innflutning frjálsan í staðinn ófæra vegna þess að verðhækkanir yrðu svo miklar til að byrja með aö það yrði dýrara fyrir ríkið en spamaöurinn sem af þeirri breytingu hlytist. Þar að auki skapaðist hætta af búíjár- og plöntusjúkdómum og því taldi nefndin sig ekki geta mælt með þessari leið.22 Þriðja leiðin sem rædd var í nefndinni var að bændur semdu beint við ríkisvaldið um búvöraverðið. Meirihluti nefndarmanna taldi sig ekki geta stutt þá leið af ýmsum ástæðum. Hann taldi ríkisvaldið of sterkan viðsemjanda fyrir bændur. Þar sem hlutverk þess væri bæði að gæta hagsmuna framleiðenda og neytenda átti það ekki að vera fulltrúi annars gegn hinum. Meirihlutinn var líka hræddur um að miklu meiri ófriður yrði um búvöraverðið ef samningamir yrðu á milli ríkis og bænda. Síðast en ekki síst töldu þeir meiri líkur á því að bændur fengju laun á við aðrar vinnandi stéttir ef fulltrúar vinnandi stétta tækju þátt í að ákveða tekjumar.23 Þar sem engin þessarra leiða þótti fær taldi sjömannanefndin óhjákvæmilegt að endurreisa sexmannanefndarfyrirkomulagið. 'Séráfit fiFanni/jafs oy cjajnrýni &%fjoýðus atnfiancfsins Hannibal Valdimarsson sat í sjömannanefnd fyrir hönd Alþýðusambandsins en skilaði einn nefndarmanna séráliti. I álitinu ítrekaði hann rökstuðning sambandsins fyrir því að fyrirkomulagið væri úrelt, ekki síst vegna þess að slæmt væri fyrir bændur að fjallað væri um verðlagsmálin á öðram vettvangi en almenna stefnu í landbúnaðar- málum. Þetta sliti í sundur málefni bænda og gerði heildarstefnumótun í málefnum þeirra ómögulega. Slíkt þekktist ekki í öðram löndum. Ástandið sem skapast hefði kallaði á heildarstefnumótun.24 Hann benti líka á að uppbætumar væra greiddar sem hlutfall af hverjum lítra af mjólk eða kílói af kjöti, þannig að smábændur fengju ætíð smábætur en stórbændur obbann af ríkisstyrkjunum. Mjólkurframleiðsla hefði minnkað í nágrenni Reykjavíkurþví allirhagará Suðurlandsundirlendinu sem ótvírætt lægi best við mjólkurframleiðslu væra fullsetnir sauðfé. Nauðsynlegt væri orðið að skipta landinu í framleiðslusvæði og hvetja til hagkvæmrar framleiðslu.27 Þá væri sexmannanefndarstarfið byggt á „allsendis ófullnægjandi upplýsingum um framleiðslukostnað, vinnutíma bænda, og þó alveg sérstaklega um vinnslu-, dreifingar- og sölukostnað landbúnaðarvara."26 Loks lýsti Hannibal yfir þeirri skoðun sinni að hann, sem fulltrúi stéttar með óskoraðan samningsrétt, væri fylgjandi því „að bændur fengju óskoraðan samningsrétt gagnvart ríkisvaldinu um launamál sín og lífskjör, ásamt rétti til framleiðslustöðvunar, ef samningar tækjust ekki og mikið bæri á milli.'"27 Tillögur Hannibals til úrbóta vora þær að komið yrði á stofn kjara- rannsóknamefnd sem skipuð yrði fulltrúum Stéttarsambands bænda og ríkisstjómarinnar. Bændum yrðu með lögum tryggðar lágmarkstekjur sem væra ekki lægri en meðaltekjur opinberra starfsmanna og Stéttarsamband bænda fengi óskoraðan samningsrétt við ríkisstjómina um afúrðaverð og launakjör.28 Þrátt fyrir að tillögumar fælu í sér tryggingu frá ríkinu um lágmarkstekjur bænda fengu þær ekki hljómgrann hjá öðram nefndarmönnum. LILaq afireytincj ar Afrakstur nemdarstarfsins var framvarp sem lagt var fram á Alþingi og varð nær óbreytt að lögum. Breytingar á skipulagi landbúnaðarmála vora litlar en bragðist var við kreppunni sem skapast hafði innan kerfisins á tvennan hátt. Sömu aðilar höfóu áfram rétt til að tilnefna fúlltrúa í sexmannanefnd, þrátt fyrir ítrekaðar óskir Alþýðusambandsins um að vera leyst undan ábyrgðinni. Félagsmálaráðherra var aftur á móti falið að tilnefna fúlltrúa í nefndina ef einhver hinna nýtti sér ekki tilnefningarrétt sinn. Þannig var tryggt að sexmannanefnd yrði ætið fúllskipuð og starfhæf. Hvað aðgerðir til að greiða upp halla af útflutningi varðaði var kveðið á um að framleiðsluráði væri heimilt að ráðstafa fé úr verðmiðlunarsjóði ef uppbæmr frá ríkinu dygðu ekki til.29 Það mátti m.ö.o. láta bændur sjálfa borga tapið af umframframleiðslunni. Með það að markmiði að bæta tekj ur bænda vora settar í lögin nánari skilgreiningar á því við hvaða vinnandi stéttir ætti að miða. I því sambandi var 4. gr. laganna breytt og bætt við að tekjumar skyldu vera „til samræmis við kaupgjald verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna.""30 Að auki voru gerðar ýmsar smávægilegar breytingar á lögunum sem virðist hafa verið ætlað að færa þau til nýrra tíma. Verðlagsgrandvöllur skyldi t.a.m. gilda í tvö ár en ekki eitt eins og áður, næðust samningar um verð.31 Þá fengu Kaupmannasamtök Islands kost á því að senda fúlltrúa, með málfrelsi og tillögurétt, til að sitja fundi sexmannanefndar þegar rætt var uin álagningu búvöra í smásölu.32 Árið 1966, um mitt kjörtímabil Viðreisnarstjómarinnar, vora því samþykkt lög á Alþingi sem festu ríkjandi kerfi í sessi án nokkurra grandvallarbreytinga. \rtríf(£í innan rifxsstjérnarinnar /ítao er að mikil átök vora um landbúnaðarmálin í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, enda oddviti Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gíslason, svarinn andstæðingur kerfisins.33 En öll umíjöllun um hvað lá að baki ákvarðanatöku innan stjómarinnar er erfið vegna þess að samkomulag var á milli stjómarflokkanna um að halda þeim ágreiningi utan opinberrar umræðu.34 Um þá ákvörðun að taka upp útflutningsbætur sagði Ingólíúr Jónsson, sem bar ábyrgð á stefnunm sem landbúnaðarráðherra stjómarinnar alla tíð, í ævisögu sinni, að JO Saytiir 2.006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.