Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 79

Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 79
fjör og þrótt úr þeim. TTeíigusfcÍattur á ijsíandi 1ÖJ2 -IJZl Arið 1874 fengu Islendingar stjómarskrá frá Dönum og fjárhagslegur aðskilnaður á milli Isiands og Danmerkur var staðfestur. Islendingar stofnuðu þá landssjóð og alveg fram til ársins 1920 naut hann styrkja ffá danska ríkinu. Styrkurinn átti upphaflega að vera fastur en í reynd fór hann lækkandi fyrstu árin á meðan útgjöld landssjóðs jukust jafnt og þétt.2 A fyrsta löggjafarþingi sem haldið var á Islandi árið 1875 var í fyrsta sinn tekin fyrir nauðsyn nýrra skattalaga. Menn vom sér vel meðvitaðir um nauðsyn þess að sett væm ný skattalög sem væm sanngjamari en þau lög sem fyrir væm. Bænaskrár höfðu einnig borist þinginu þess efnis að ný og sanngjamari skattalög yrðu sett.3 Lántökur íslenska ríkisins urðu ekki almennar fyrr en nokkm eftir aldamót. Stefnan var ekki að eyða því fé sem ríkinu áskotnaðist heldur var það sparað til að geyma til mögm áranna. Reyndar var fyrsta erlenda lánið ekki tekið fyrr en 1908 þegar verið var að setja á stofn ritsímann.4 Landshöfðingi skipaði haustið 1875 þriggja manna milliþinganefnd sem skyldi útbúa fmmvarp til nýrra skattalaga og vom henni ætlaðar 3000 krónurafíjárlagaframvarpiáranna 1876-1877 tilþessaverkefnis.5 í nefndinni áttu sæti þeir Magnús Stephensen yfirdómari, en hann var formaður nefndarinnar, Halldór Kr. Friðriksson, yfirkennari við Lærða skólann, og Jón Sigurðsson frá Gautlöndum.6 Stjómin lagði frumvarp fyrir Alþingi 1877 sem byggðist því sem næst á óbreyttu áliti nefndarinnar. Fyrstu lögin um tekjuskatt hérlendis vom samþykkt af Alþingi árið 1877 og hlutu þau staðfestingu konungs þá um haustið en komust fyrst til framkvæmda árið 1879.7 Nefndin hafði gert tillögur um þrjá skatta sem skyldu mynda samfellt skattakerfi landsmanna. Kerfið átti að hvíla á öllum tekjum af hvers konar atvinnu og eignum fólks. Aftur á móti virðist tekjuskatturinn hafa nær eingöngu verið lagður á tekjur af verslun, iðnaði, launatekjur almennings og aðrar eignir en hús en á þeim var sérstakur húsaskattur. 8 Því náði skatturinn ekki til landbúnaðarins og sjávarútvegsins, aðalatvinnuvega landsmanna. fcattan eýti cfcir Sérstakar skattanefndir vom skipaðar í hvetjum hreppi og kaupstað. Sá háttur var hafður á að hreppstjórar vom að jafnaði formenn nefhdanna í sveitum en formenn bæjarstjóma vom formenn í kaupstöðunum. Einnig var ein yfirskattanefhd skipuð í hverri sýslu og í hverjum kaupstað.9 Skattanefndimar höfðu það verkefni að skrá tekjur skattgreiðenda eftir að eyðublöð höfðu verið send til allra skattskyldra einstaklinga til að þeir sem skyldu gjalda skatt á hverju ári gætu gefið upp tekjur sínar, bæði laun og aðrar tekjuliói. Ef skattanefhdunum þótti pottur brotinn í upplýsingum sínum um gjaldandann eða útsvarsgreiðandann, þá gat hún kallað hann til sín og heimtað af honum, auk eiðsvarins framburðar, sannanir eins og kvittanir eða skírteini til að reyna að finna út raunvemlegar tekjur viðkomandi.10 Fólki var síðan heimilað að áfrýja úrskurðum skattanefndarinnar til yfirskattanefndarinnar. Sjálfsagt hafa ekki margir verið svo aumir að þeir hafi ekki viljað vera með á skattskrá en aftur á móti var það hægur vandi að svíkja undan skatti þar sem ekkert raunvemlegt eftirlit var haft með fólki. Eina raunvemlega eftirlitið sem fram fór fólst i því að hópur manna reyndi að finna út, stundum með tómum ágiskunum, hversu mikið hver og einn hafði í tekjur. Skattleysismark einstaklinga var yfirleitt 1.000 krónur á ársgmndvelli. fiennar unarnejndfcfKgyfcjaxifcur cj störj Niðurjöfnunamefhd Reykjavíkur var fyrst stofnsett árið 1872. Henni var ætlað að jafna nióur gjöldum eða að skattleggja íbúa bæjarins eftir efnum og aðstæðum hvers og eins. Nefndarmönnum var frá byrjun skipt í meiri- og minnihluta. Meirihlutann kusu allir bæjarbúar sem höfðu kosningarétt en minnihlutann kusu efnameiri skattgreiðendur einvörðungu. Kosningunum var frá byrjun skipt milli fyrri og seinni hluta ágústmánaðar. Eftir þvi sem bæjarbúum fjölgaði, fjölgaði líka nefndarmönnum. í fyrstu var niðurjöfnunamefndin skipuó sjö mönnum u enincjar eru ajfj>eirra fcfuta semjjera sfcaf en síðasta starfsárið, 1922, vom nefndarmenn orðnir 15 að tölu.11 Sigurbjöm Þorkelsson, oftast nefndur Sigurbjöm í Vísi eða Bjössi í Vísi, sat í niðurjöfnunamefnd Reykjavíkur í 35 ár og var hann einn þeirra sem sat þar lengst. Upphaflega hafði hann þó lent nauðugur í henni, því málum var háttað þannig að menn vora kosnir í nefndina af framboðslistum sem pólitískir fiokkar landsins stóðu að. Mönnum var síðan stillt upp á listana, oft gegn eigin vilja.12 Starf nefndarmanna var ólaunað og var litið svo á að það væri borgaraleg skylda manna að vinna í niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur. Það voru því sterkir vindar stéttskiptingar sem blésu um fundarsal nefndarinnar. Kaupmenn og efri stéttir bæjarins áttu sína fúlltrúa í nefndinni og verkamenn og aðrar lægri stéttir sína. Þegar Sigurbimi var til að mynda stillt upp á lista Sjálfstjómar árið 1917, sem var bandalag Heimastjómarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, var talið nauðsynlegt að skipa hann í nefndina sökum þekkingar hans á högum bæjarbúa, og þá sér í lagi högum alþýðumanna og verkafólks. Hins vegar sat hann í nefhdinni sem fulltrúi verslunarmanna í Reykjavík.13 Stuttu eftir að kosningamar vom afstaðnar hitti einn af pakkhúsmönnum Sigurbjöms hitti hann að máli. Pakkhúsmaðurinn hafði nokkm áður minnst á það við Sigurbjöm að hann ætti að taka sæti í nefndinni vegna þekkingar hans á aðstæðum alþýðufólks í bænum. Sá maður var hins vegar ekki ánægður með að Sigurbjöm skyldi loks hafa tekið sæti í nefndinni, því að honum þótti Sigurbjöm ekki vera á vegum rétts flokks. Lista Sjálfstjómar gætu engir verkamenn kosið eða stutt, samvisku sinnar vegna.14 Eggert Briem Starjseyrii ni<5urjöjnunarnejncfcar Störf nefndarinnar fóm þannig ffam að meðlimir hennar hittust í hliðarsal Alþingis og fúnduðu þar. Eggert Briem óðalsbóndi var formaður nefndarinnar árið 1917. Hann sat við borðsendann en aðrir nefndarmenn sátu út ffá honum, sjö á hvora hlið. Stíf stigskipting réði hvar nýjum mönnum var skipað á bekk. Þeim sem starfað höfðu styst í ‘Saj/nir 2.006 JJ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.