Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2011, Blaðsíða 19

Ægir - 01.03.2011, Blaðsíða 19
19 Æ G I S V I Ð T A L I Ð Ingvar Þór Óskarsson, þrítugur Dalvíkingur, sem hefur tekið smábátaútgerðina með trompi og er kominn með þrjá báta: Fullur bjartsýni á framtíðina „Ég ætla að vera bjartsýnn á framtíðina í þessu. Ef ég væri það ekki þá gæti ég alveg eins og hætt strax,“ segir Ing- var Þór Óskarsson, þrítugur Dalvíkingur sem að sönnu má segja að hafi lagt smábátaútgerð fyrir sig. Hann er ungur maður sem hugsar stórt, byggir upp og veltir stöðugt fyrir sér hvar sóknarfæri liggja í útgerðinni. Eiginlega má segja að röð tilviljana hafi ráðið því að hann hóf smábátaútgerð. Og á aðeins rúmum tveimur árum er hann í félagi við fjöl- skyldu sína kominn með þriggja báta útgerð. Grásleppan og strandveiði eru lykilþættir í útgerðinni en tíminn verður svo að leiða í ljós hvernig hún þróast.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.