Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 110
Tímarit Máls og menningar „Við komumst þá aldrei upp í fjöllin," sagði ég. Andlit Winníar var hvítt og sviplaust í myrkrinu og röddin var þreytuleg: „Skiftir það nokkru,“ sagði hún. „Skiftir það nokkru máli hvort þú og ég sjáum þessi fjöll.“ Hildigunnur Hjálmarsdóttir þýddi Danski rithöfundurinn H. C. Branner (1903 —’66) er ekki mjög þekktur hér á landi þótt hann sé af mörgum talinn merkastur samtímahöfunda sinna danskra, þeirra er rituðu á árunum laust fyrir heimsstyrjöldina síðari og næstu tvo áratugi á eftir. Hann fékkst við allar tegundir bókmennta nema ljóðagerð og var jafnvígur á öll form. List hans er þó talin rísa hæst í smásögunum. Helstu verk hans eru: skáldsögurnar Legetöj (Barnagull) 1936, Drömmen om en kvinde (Draumur um konu) 1941, Rytteren (Reiðmaðurinn) 1949 og lngen kender natten (Enginn þekkir nóttina) 1955, leikritin Söskende (Systkin) 1952 og Thermo- pyle 1958, smásagnasöfnin Om lidt er vi horte (Á bráðfleygri stund) 1939 og To minutters stilhed (Tveggja mínútna þögn) 1944, auk útvarpsleikrita og margra ritgerða. Fyrsta skáldsaga hans Legetöj aflaði honum þegar frægðar, en þegar Rytteren kom út varð uppi fótur og fit í danska bókmenntaheiminum og bókinni var fagnað sem öndvegisriti, þótt ýmsar hugmyndir sem þar koma fram yllu deilum. Hróður hans jókst með hverju nýju verki og voru mörg skáldverk hans þýdd á erlendar tungur. Ekkert hefur þó verið þýtt eftir hann á íslensku. í verkum sínum fjallar Branner um vandamál er snerta tilveru mannsins og um stöðu hans í nútímaþjóðfélagi. Einsemd, hamingjuþrá, leyndardómar kynlífsins, frelsi og ábyrgð eru algeng yrkisefni hans. Hann áfellist falskt verðmætamat og eftir því sem líður á rithöfundarferil hans verða bækur hans dulrænni, því skynsemin getur einungis túlkað raunveruleikann sem brjálsemi, og vanmáttur einstaklingsins gegn sterkum, ópersónulegum öflum í lífinu er alger. Stríð túlkar Branner sem margfeldi þess illa sem býr í einstaklingnum. Þótt mannleg viðhorf séu ætíð undirstaða verka Branners, telur hann hvorki æskilegt né mögulegt að móta sér óumbreytilega lífsskoðun, því kyrrstaða jafngildi stöðnun. H. C. Branner kom til íslands í boði Dansk-íslenska félagsins í nóvember 1959 og flutti þá fyrirlestur í Háskóla Islands um hlutverk listarinnar og listamannsins í þjóðfélagi nútímans. Sagan hér á undan er úr smásagnasafninu Tveggja mínútna þögn. (Þýð.) 508
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.