Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2010, Qupperneq 2
2 fréttir 20. september Mánudagur
Helgi Hróbjartsson játaði fyrir fagr-
áði um kynferðisbrotamál innan
kirkjunnar að hafa framið kynferð-
isbrot gegn þremur ungum piltum.
Fólust brotin annars vegar í kyn-
ferðislegu ofbeldi og hins vegar í
kynferðislegri áreitni. Brotin framdi
hann fyrir 25 árum en hann gekkst
við þeim þegar sakir voru bornar á
hann og lýsti því yfir í kjölfarið að
hann myndi ekki starfa framar fyr-
ir kirkjuna eða önnur samtök henni
tengd. Helgi var staddur í Eþíópíu
þegar málið kom upp þar sem hann
var að ljúka skammtímaverkefni
og var á heimleið þegar hann var
boðaður á fund fagráðsins. Til stóð
að hann færi síðan til Noregs, sem
hann og gerði. DV hefur leitað allra
leiða til þess að ná í Helga en án ár-
angurs.
Málið var mönnum sem til hans
þekkja mikið áfall, enda hefur Helgi
ekki verið þekktur fyrir annað en
óeigingjarnt starf og hefur ósérhlífni
hans vakið eftirtekt, hér heima sem
og erlendis. Helgi er 73 ára. Hann
er prestur en hefur lengst af starf-
að sem kristniboði á vegum norsku
kristniboðasamtakanna, aðallega í
Eþíópíu en líka í Senegal. Fyrir störf
sín var Helgi mikilsvirtur og var tal-
að um hann sem þriðja guðinn í Eþ-
íópíu.
Í guðatölu
Á Þorláksmessu árið 2001 birt-
ist grein eftir norskan blaðamann
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins um Helga. Þá hafði Helgi verið
meðal múslima á Sómalíu-svæð-
inu í Suður-Eþíópíu í næstum þrjá-
tíu ár. Þar sagði meðal annars: „Boð-
un hans er ekki mikið í orði, en
hann nýtur mikillar virðingar vegna
verka sinna. Múslimarnir við landa-
mæri Sómalíu kalla hann einfald-
lega „númer þrjú“. Allah er fyrstur
og fremstur, þá kemur Múhameð
og því næst Helgi. Íslendingurinn
Helgi Hróbjartsson er sá eini sýni-
legi í þessari þrenningu og dags-
daglega hafa þeir sterkust tengsl við
hann.“ Í greininni var einnig tekið
fram að Helgi gegndi lykilhlutverki
fyrir bæði norska og íslenska kristni-
boðasambandið í Suður-Eþíópíu en
auk þess að starfa við neyðarhjálp
bar hann ábyrgð á eftirliti og stuðn-
ingi við staðbundna trúboða í Filtu,
Haja Suftu, Dollo, El Kere og Wadra.
Þá bar hann einnig ábyrgð á frum-
herjastarfi í Neghelli og á Borana-
sléttunni þar sem hann sinnti hjálp-
arstarfi samhliða trúboði. Auk þessa
hafði hann eftirlit með starfi í heil-
brigðisþjónustu í El Kere.
Í Glerárprestakalli í vor
Helgi var með æskulýðsstarf í Þor-
lákshöfn áður en hann var vígður til
þjónustu í Hríseyjarprestakalli 30.
september 1984. Þar þjónaði hann
frá 1. október 1984 til 1. ágúst 1986.
Á þessum árum áttu kynferðisbrot-
in sem fagráðið fjallaði um sér stað.
Gunnar Rúnar Matthíasson, for-
maður fagráðsins, staðfestir að ein-
hver brotin áttu sér stað fyrir norðan
en þó ekki í Hrísey og ekki öll. Árið
2004 sinnti Helgi afleysingaþjónustu
í Neskirkju í tvo mánuði, árið 2005
var hann í afleysingum hjá söfnuði
Íslendinga í Noregi í sjö mánuði, aft-
ur í tólf mánuði árið 2006 og hálft ár
árið 2008. Síðast starfaði Helgi fyr-
ir íslensku Þjóðkirkjuna í vor þegar
hann leysti af í Glerárprestakalli í
þrjá og hálfan mánuð.
Bænaraugu barnanna
Helgi fór fyrst til Eþíópíu árið 1967.
Í fyrrnefndri grein Morgunblaðsins
var vísað í heimildarmynd um Helga
sem sýndi að hann lifði áhættusömu
lífi en væri ekki lagið að segja frá því
sem hann tæki sér fyrir hendur, hon-
um léti betur að láta lítið fyrir sér fara
og endaði greinin með þessum orð-
um: „Þarna heyrðum við margvís-
leg hljóð og fundum alls konar lykt,
en bænaraugu barnanna sem biðja
um hjálp sitja fastast í minningunni.
Mitt á meðal þessara barnaaugna
sjáum við hávaxinn hvítan mann
sem gengur um, nánast eins og eng-
ill þeim til bjargar. Þessar myndir
hugans verða til þess að við bókstaf-
lega tárfellum.“
Lífsbjörg í flóttamannabúðum
Þar sem Helgi bjó voru ættflokka-
átök og matar- og vatnsskortur var
daglegt brauð og reynt var að ráða
hann af dögum. Sjálfur sagðist Helgi
nánast vera orðinn heimamaður á
svæðinu: „Það eru alltaf einhverjir
sem þurfa á hjálp minni að halda og
ég er hér fyrst og fremst til að hjálpa
fólki sem mér þykir vænt um. Þótt
ég sé fæddur á Íslandi finnst mér ég
næstum vera orðinn Eþíópi og flestir
vinir mínir eru Eþíópumenn.“
Þegar hann fór með blaðamann
að fyrsta söfnuðinum sem hann
kom upp í Danessa tóku um fimmtíu
safnaðarbörn fagnandi á móti þeim.
Sagði blaðamaður að eitt stærsta
verkefni Helga væri að bjarga lífi
milli 20.000 og 30.000 manna í
flóttamannabúðum við landamæri
Sómalíu. Herferðin Eþíópía sveltur
varð til þess að hver fjölskylda fékk
daglega 10 lítra af vatni og 25 kíló af
sojamjöli.
Steinsnar frá flóttamannabúð-
unum hafði Helgi keypt lóð og reist
eigin bækistöð, enda starfaði hann
aðallega á eigin vegum síðustu árin.
Kom hann sér einnig upp flugvél,
fjögurra sæta Cessna-vél sem hann
fékk frá Íslandi og kallaði gömlu
frúna. Vélin var áður í eigu Ómars
Ragnarssonar en Helgi notaði hana
í starfi sínu sem trúboði, enda með
flugréttindi. Til þess að láta þann
draum rætast tók hann persónulegt
lán auk þess sem kristniboðsvinir
hans á Íslandi og í Noregi stóðu fyr-
ir söfnun fyrir rekstrarkostnaðinum.
Skipulagði neyðarhjálp
Á ferli sínum sem trúboði sinnti
Helgi alltaf hjálparstarfi auk þess
sem hann stóð endurtekið fyrir
söfnunarátaki til þess að bregðast
við sárri neyð fólks. Árið 1992 var
Helgi einnig einn aðalskipuleggj-
andi neyðarhjálpar í héraðinu El
Kere á vegum Hjálparstarfs kirkj-
unnar í samvinnu við yfirvöld og lút-
ersku kirkjuna þar í landi. Um 9.000
manns bjuggu í þorpinu, bændur
og hirðingjar, og þar sem uppsker-
an brast varð matarskortur. Mark-
mið söfnunarátaksins var að útvega
1.500 börnum, mæðrum með börn
á brjósti og barnshafandi konum
vikulega tveggja kílóa matarskammt
næstu þrjá mánuði.
Íslenskur friðarhöfðingi
Ómar Ragnarsson kallaði Helga ís-
lenskan friðarhöfðingja. Hann fór til
Afríku til þess að fylgjast með störf-
um hans, líkt og Jón Ársæll gerði
fyrir Sjálfstætt fólk. Síðar lýsti hann
því í pistli þegar hann var á ferð um
Eþíópíu með Helga og fékk að vita
að engir erlendir ferðamenn væru
óhultir fyrir ræningjum frá Sómalíu á
þessum slóðum. „Hins vegar breytti
það miklu fyrir mig að vera í för með
Helgi Hróbjartsson prestur játaði kyn-
ferðisbrot gegn þremur piltum. Brotin eru
25 ára gömul. Helgi hefur lengst af starfað
sem trúboði í Eþíópíu þar sem hann vakti
eftirtekt fyrir óeigingjarnt starf og ósér-
hlífni. Heimildarmynd um Helga fékk
nafnið Engill af himnum. Þegar málið
kom upp á dögunum var Helgi kallaður
heim frá Eþíópíu. Hann mun ekki starfa
framar á vegum kirkjunnar.
Var tekinn í guðatölu í eþíópíu
Helgi Hróbjarts-son er hins veg-
ar í svo miklum metum
þarna að líkist því sem
er um helga menn.
inGiBjörG döGG kjartanSdóttir
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Hélt utan HelgistarfaðisíðastfyrirÞjóðkirkjunasemafleysingapresturíGlerár-
kirkju.Hannfóraflandibrotteftirfundinnmeðfagráðinuogdvelurnúámeðalvina
ogvandamannaíNoregi.