Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2010, Page 15
MÁNUDAGUR 20. september FRÉTTIR 15
Komið hefur í ljós að ríkisdagblað
Egyptalands breytti ljósmynd til þess
að láta líta út fyrir að Hosni Muba-
rak, forseti landsins, væri gestgjafinn
í Hvíta húsinu í viðræðum leiðtoga í
Mið-Austurlöndum um málefni Ís-
raels og Palestínu. Dagblaðið, Al-
Ahram, breytti alþjóðlegri fréttaljós-
mynd af Obama Bandaríkjaforseta,
Mubarak og leiðtogum Ísraels, Pal-
estínu og Jórdaníu þegar þeir geng-
ur eftir rauða dreglinum í Hvíta hús-
inu í Washington. Myndin var tekin á
miðvikudaginn.
Upphaflega var uppstilling leið-
toganna, þar sem þeir ganga saman
í röð sem minnir á oddaflug fugla,
vandlega skipulögð í samræmi við
diplómatískar hefðir. Obama, sem
var í hlutverki gestgjafa og sátta-
semjara, gekk fremstur. Næstir við
hlið hans voru helstu málsaðilar í
deilunni, leiðtogar Ísraels og Pal-
estínu og yst gengu leiðtogar ná-
grannaríkja á svæðinu – Egypta-
lands og Jórdaníu.
Egypska ríkisdagblaðið notaði
töfraforritið Adobe Photoshop til
þess að færa Mubarak fremst á
myndina, svo það liti út fyrir að hann
væri aðalmaðurinn í Hvíta húsinu.
Al-Ahram er eitt elsta dagblað
Egyptalands, stofnað árið 1875. Mið-
Austurlandafræðingar hafa lýst því
sem alvörugefnu blaði sem hafi þó
alltaf fylgt ríkisstjórninni að málum,
enda sé það ríkisdagblað. Forseti
landsins sér sjálfur um að ráða rit-
stjóra blaðsins og það er því kannski
ekki að furða að þeir vilji gera honum
jafn hátt undir höfði og Photoshop-
bragðið sýnir.
Á föstudaginn ritaði Osama
Saraya, ritstjóri Al-Ahram, í leiðara
sínum að myndin sýndi sögulegt
mikilvægi Egyptalands í friðarferl-
inu.
Úrvalsteymi verkfræðinga hjá evrópska þotufram-
leiðandanum Airbus spáir í framtíðina og finnur
upp leiðir til að bæta flugsamgöngur framtíðarinn-
ar. Sumar hugmyndir verkfræðinganna hljóma eins
og vísindaskáldskapur. Yfirmaður hjá Airbus segir að
tæknin sem muni bylta flugsamgöngum í heiminum sé
nú þegar til staðar.
ÓSÝNILEGAR FLUGVÉLAR Í
HÁLOFTUM FRAMTÍÐARINNAR
Flugvélin yrði næstum því að
lifandi veru.
Árið 2093 Fleiri fyrirtæki hafa hönnuði á sínum snærum sem velta fyrir sér flugtækni framtíðarinnar. Hönnuðir hjá finnska
flugfélaginu Finnair hönnuðu þessa flugvél, sem gæti tekið á loft árið 2093. 2.400 farþegar kæmust fyrir í henni. MYND FINNAIR
Vistvæn vél Meira frá Finnair: Þessi bjartsýna tillaga sýnir flugvél sem væri byggð úr endurunnum efnum. MYND FINNAIR
Egypska ríkisdagblaðið Al-Ahram breytti
fréttamynd:
Mubarak
fluttur til
með hjálp
Photoshop
Upphaflega myndin Á þessari mynd Pablo Martinez Monsivais frá Associated
Press sjást frá vinstri til hægri: Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu og Abdullah II, konungur Jórdaníu. MYND AP
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Myndin í Al-Ahram Egypska ríkisdagblaðið færði Hosni Mubarak forseta fremstan á
myndina með hjálp undraforritsins Photoshop.