Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2010, Page 18
Hræddir alþingismenn halda því til streitu að ekki megi rétta yfir vinum þeirra og flokkssystkin-
um, sem einu sinni voru ráðherrar, af
því að lög um landsdóm og ráðherra-
ábyrgð eru úreld. Þau séu ekki í takt
við þróun lagaumhverfisins hin síðari
ár. Þetta sama fólk og vill ekki fara
að lögum hefur einmitt atvinnu af
því að setja ný lög, breyta lögum og
fella gömul lög úr gildi. Ekkert þeirra
hafði hins vegar haft af því teljandi
áhyggjur að lög um landsdóm væru
enn í gildi. Það er að segja áður en
þau uppgötvuðu að lögin gátu átt við
þau sjálf. Svarthöfði er á því að það sé
nákvæmlega ekkert að því að kalla
saman landsdóm og höfða mál gegn
ráðherrum á þessum forsendum, því
það stendur jú í lögum.
Kannski væru þessir vesal-ings stjórnmálamenn ekki í hinni slæmu klípu að þurfa að mæta fyrir landsdóm ef
þeir hefðu nýtt tíma Alþingis betur og
sýnt því þá virðingu sem það á skilið.
Í stað þess að afnema þessi fornu og
óréttlátu lög um landsdóm úr gildi og
styrkja þannig réttarkerfið á Íslandi
nýttu þeir tímann í að grafa sig ofan
í skotgrafir, þar sem þeir komu sér
huggulega fyrir með vistir sem end-
ast í fjögur ár. Eftir atvikum áfengi
einnig. Langar vökunætur hafa farið
í að flytja níðvísur hver um annan í
ræðustól. Síðan koma menn niður úr
pontu, taka í nefið saman og hlæja að
allri þessari vitleysu.
Alþingismenn hafa einnig karpað dögum saman um stóru málin á borð við hvort Jón og Gunna megi kaupa
bjór í Hagkaupum eða hvort þau þurfi
áfram að fara í ríkið. Þeir hafa einnig
flutt vel á annað þúsund ræður um
Icesave, þar sem 80 prósent þeirra
gerðu álíka gagn og viðrekstur í hljóð-
nemann.
Svona eftir á að hyggja, þá hljóta Geir, Ingibjörg, Árni og Björg-vin G., að klóra sér í höfðinu yfir því að hafa ekki látið af-
nema þessi fjandans lög, sem nú eru
komin til að bíta þau í rassinn. Þau
voru í algjöru dauðafæri, en nýttu það
ekki. Ekki einu sinni hinn lögfróði
Bjarni Ben tók eftir óréttlætinu í tæka
tíð. Ekki aðeins varð gáleysi ráðherr-
anna til þess að Ísland hrundi, heldur
líka til þess að enn eru í gildi lög sem
gerir þjóðinni kleift að refsa þeim fyr-
ir. Tvöfalt gáleysi.
Engin önnur stétt í landinu getur haldið uppi vörn-um alþingismanna. Aldrei gæti blaðamaðurinn sem er
dæmdur til að borga milljón fyrir að
skrifa niður ummæli annarra varið
sig á þeim forsendum að lögin væru
furðuleg. Þau væru ekki í takti við
þróunina í bransanum. Aldrei gæti
ófríska konan sem bíður þess að vera
dregin fyrir dóm fyrir húsbrot á hinu
háa Alþingi varið sig með því að það
sé fáránlegt að fá fangelsisdóm fyrir
athæfið. Jafnvel þó um sé að ræða
eldgömul lög sem aldrei hefur verið
dæmt eftir. Hræddir stjórnmálamenn
reyna hins vegar að komast upp með
þessar varnir. Þeim nægir ekki aðeins
að setja lög sem aðrir eiga að fara eftir.
Sumir þeirra telja einnig að þeir séu
yfir lögin hafnir.
GÖMUL OG ÚRELT LÖG
„Nei, alls ekki. Það er einn leikur eftir og
við verðum að klára hann,“ segir
Guðmundur Kristjánsson,
leikmaður Breiðabliks, sem er í
frábærri stöðu í
Pepsi-deild karla
í knattspyrnu
fyrir
lokaumferð
mótsins. Sigri
liðið
andstæðing
sinn í þeim leik
verður það
Íslandsmeistari.
ER bikaRinn í
hÖfn?
„Þá er það ég.“
n Þórhallur Gunnarsson,
fyrrverandi dagskrárstjóri á
RÚV, um að ef einhver einn beri
ábyrgðina á því að Spaugstofan sé ekki lengur á
dagskrá RÚV, þá sé það hann. - DV
„Peningar eru
ekki allt.“
n Herbert Guðmundsson,
sem sér nú lífið í nýju ljósi og er
að senda frá sér lagið Treasure
Hunt. Lagið fjallar um athugavert hugarfar
Íslendinga þegar kemur að peningum og öðrum
veraldlegum gæðum. - DV
„Hvað ertu búin að koma
þér út í?“
n Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála-
ráðherra, um viðbrögð eiginmanns síns eftir að
hún ákvað að taka að sér ráðherrastarfið. - DV
„... augljóst að
dómaranum er
skítsama um að
ég sé að fara að
eiga barn.“
n Ragnheiður Esther Briem, einn
níumenninganna sem ákærðir hafa verið fyrir
árás gegn Alþingi. Hún er ólétt og er sett
skömmu áður en aðalmeðferð málsins á að
hefjast. - DV
„Þvert á móti reyndi hann
að stilla til friðar en
uppskar aðeins hótanir
og svívirðingar.“
n Sveinn Andri Sveinsson, um aðild
skjólstæðings síns, Jóns „stóra“ Hallgrímssonar,
að máli þar sem kúbverskir feðgar flúðu land.
- Pressan
Óvenjuleg einlægni
Jón Gnarr braut blað í stjórnmálasögu Ís-
lands með grínframboði sínu. En það merki-
legasta við Jón er ekki grínið, heldur annars
konar nýjungar í íslenskum stjórnmálum.
Ruglaðar hugmyndir hafa vikið fyrir ein-
lægni, heiðarleika og lýðræðislegu samráði.
Til allrar hamingju fyrir Reykvíkinga virð-
ist Jón ekki ætla að efna fáránlegustu kosn-
ingaloforð sín. Þvert á móti færir hann kjós-
endum það sem þeir báðu um eftir hrunið.
Stærsta krafa kjósenda eftir hrunið var heið-
arleiki og gegnsæi. Hana uppfyllir Jón betur
en nokkur annar stjórnmálamaður á land-
inu.
Enginn annar borgarstjóri hefur deilt
jafnmiklum upplýsingum með kjósend-
um sínum og Jón. Hann segir frá erfiðleik-
um sínum við að hætta að reykja og held-
ur blaðamannafund um ofbeldi, þar sem
hann greinir frá líkamsárás á hendur sér.
Erfitt er að ímynda sér forvera hans opna sig
svo mikið. Þeir voru í besta falli tímabund-
ið opnir í kosningabaráttunni en lokuðu sig
af eftir hana. Og þegar þeir opnuðu sig var
það sjaldnast af einlægni, heldur sýndu þeir
útreiknaða ímynd hins sterka stjórnmála-
manns. Það hæfir ekki ímynd hins sterka
pólitíkusar að vera laminn í miðbænum.
Jón nýtir sér óspart tengslavefinn Face-
book til þess að fá viðbrögð kjósenda við
hugmyndum. Íhaldssamir stjórnmálamenn
líta eflaust á beintengingu Jóns við kjósend-
ur sem popúlisma eða lýðskrum. Þeim þykir
rangt að hlaupa á eftir því sem almenning-
ur vill hverju sinni. Það kom meðal annars
skýrt fram í gagnrýni á Jóhönnu Sigurðar-
dóttur þegar hún svaraði því til að ástæðan
fyrir því að ráðherrar væru dregnir fyrir dóm
væri vilji fólksins.
Jón boðaði grín en færði okkur stökk í
áttina að beinu lýðræði. Engin viðlíka bylt-
ing hefur orðið á Alþingi. Þingmenn blogga
í kosningabaráttu en þagna svo. Tryggvi Þór
Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, gafst til dæmis upp á því fyrir nokkru
að leyfa lesendum að gera athugasemdir við
skrif hans.
Beint samband við kjósendur er erfitt
þegar umdeildar ákvarðanir eru teknar. Jón
Gnarr mun fá óánægjuna beint í æð þeg-
ar hún sprettur upp. Þá fyrst reynir á hvort
beintengingin við kjósendur gengur upp.
Grín getur ekki bjargað honum út úr því,
en ef hann viðheldur einlægninni og forð-
ast fílabeinsturninn gæti fólk þyrmt honum
á grundvelli þess að hann sé mannlegur og
ófullkominn, eins og við hin.
Jón TRaUsTi REynissOn RiTsTJóRi skRifaR. Jón boðaði grín en færði okkur stökk í áttina að beinu lýðræði.
leiðari
spurningin
svarthöfði
bókstaflega
18 umræða 20. september Mánudagur
Vinkonan ráðin
n Ráðning ágústu margrétar
Ólafsdóttur, eiginkonu Lárusar
Welding fyrrverandi bankastjóra,
á dagskrár-
svið Stöðvar 2
sem verkefna-
stjóri mælist
misjafnlega vel
fyrir. Hermt er
að Pálmi Guð-
mundsson sjón-
varpsstjóri hafi
fengið 100 um-
sóknir um starfið og rætt við fjölda
manns. Það flýgur fyrir að hann
hafi ekki verið mjög sáttur við að
ráða Ágústu sem er mikil vinkona
ingibjargar Pálmadóttur, aðaleig-
anda Stöðvar 2.
Lokasprettur árna
n Á Suðurnesjum veðja menn nú
sín í milli um það hve lengi árni
sigfússon bæjarstjóri nái að halda
stóli sínum.
Flest er í kalda-
koli þegar litið er
til fjárhags bæj-
arins og er það
rakið til aðgerða
Árna sem meðal
annars hefur
selt flestar eignir
Reykjanesbæj-
ar til Fasteignar og leigir þær aftur.
Bæjarfélagið er komið hálfa leið í
gjörgæslu vegna fjárhagserfiðleika.
Fari svo að sett verði neyðarstjórn
mun Árni ekki geta setið áfram.
ingibjörg „auLi“
n Mikill óróleiki er innan Sam-
fylkingar vegna áforma um að
draga ingibjörgu sólrúnu Gísla-
dóttur, fyrrver-
andi formann
Samfylkingar,
fyrir landsdóm.
Og þeir leynast
víðar stuðn-
ingsmennirn-
ir því sá gamli
fjandvinur Ingi-
bjargar Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson tekur
slaginn hiklaust og ákveðið með
henni. „Ingibjörg Sólrún er enginn
glæpamaður, og tilraun Samfylk-
ingarinnar til að breyta Íslandi í
leikvang að rómverskum sið er í
senn sorgleg og hlægileg, en aðal-
lega fyrirlitleg,“ bloggar Hannes á
Pressunni en segir þó að Ingibjörg
sé „auli“.
HyLmt yfir með
perra
n Biskupsstofa er í miklum vanda
nú þegar viðurkennt hefur verið
að mál prests nokkurs hafi verið
til umfjöllunar
vegna þriggja
kynferðisbrota.
Starfsmenn hafa
lengst af neitað
að svara spurn-
ingum DV um
málið og sum-
ir þeirra hafa
gengið svo langt
að reyna að fela það. Upplýsinga-
fulltrúinn, steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir, lýsti því aðspurð við
blaðamann að málið væri „slúð-
ur“. Örfáum dögum seinna viður-
kenndi Biskupsstofa að málið hefði
átt sér stað og presturinn játað.
sandkorn
tryggvagötu 11, 101 reykjavÍk
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
umSjón helgarblaðS:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
umSjón innblaðS:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.