Lögmannablaðið - 01.03.2006, Page 27
benti Róbert á að forsendur í dómi
Hæstaréttar gerðu beinlínis ráð fyrir
því að slíkt væri ekki útilokað. Ákveð-
in skilyrði yrðu þó að vera uppfyllt og
taldi Róbert þau vera hugsanlega þessi:
1. Frumkvæðið þurfi að vera í hönd-
um starfsmannsins og skýr viljaaf-
staða hans um að láta að störfum
þurfi að liggja fyrir.
2. Stjórnvaldið þurfi að fullnægja
leiðbeiningarskyldu sinni um rétt-
arstöðu starfsmannsins, einkum
um þær réttaröryggisreglur sem
tryggja eiga hagsmuni starfs-
mannsins.
3. Starfsmaðurinn þurfi að fá svig-
rúm til að leita sér ráðgjafar.
4. Stjórnvaldið þurfi að tryggja að
öll atvik séu skjalfest.
Í erindi sínu rakti Viðar Már þróun
skaðabótaábyrgðar hins opinbera og
benti á að verulegar breytingar hefðu
orðið á síðustu tíu til fimmtán árum,
bæði í skaðabótarétti og stjórnsýslu-
rétti. Dómar um skaðabótaábyrgð
hins opinbera væru reistir á sakarregl-
unni. Henni væri þó oft beitt með
þeim sérstaka hætti að láta nægja að
staðreyna að tjóni væri valdið með
ólögmætum hætti, svonefnt reglufest
saknæmi. Viðar Már benti á að Hæsti-
réttur hefði komist að þeirri niður-
stöðu að ráðherra hefði brotið gegn
tveimur meginreglum stjórnsýslurétt-
ar. Miðað við dómaframkvæmd síð-
ustu ára hefðu slík réttarbrot leitt til
skaðabótaábyrgðar að því gefnu að
fjártjóni og miska hefði verið valdið.
Því næst tók Viðar Már til skoðunar
niðurstöðu Hæstaréttar um miskabæt-
ur samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga.
Rakti hann nokkra fyrri dóma réttar-
ins og dró þá ályktun af þeim að ef ekki
væri farið að lögum, og gætt eðlilegrar
tillitssemi við ráðningarferli eða ráðn-
ingarslit, gæti falist í því ólögmæt
meingerð við starfsmann sem öðlaðist
þar með rétt til miskabóta. Heildarnið-
urstaða Viðars Más var því sú að mið-
að við dómaframkvæmd síðustu ára
yrði ekki sagt að niðurstaða Hæstarétt-
ar í málinu hafi verið óvænt heldur
væri hún í samræmi við réttarþróun
síðustu ára. Hann taldi á hinn bóginn
afar ólíklegt að niðurstaðan, og rök-
stuðningurinn fyrir henni, hefði orðið
sú sama fyrir tuttugu árum síðan eða
fyrr.
Tómas Eiríksson
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2006 > 27
Það var fullt út úr dyrum á fundi Lagastofnunar um Valgerðardóminn, svokallaða.