Lögmannablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 32
Jólafundur
32 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2006
Hefur dómurinn áhrif á hvað
íslenskir ostar mega heita?
Hugmyndin að greinarstúf þessum
kviknaði við hugleiðingar um hversu
margvísleg fordæmisáhrif dómar Evr-
ópudómstólsins geta haft hér á landi
og var í upphafi þeirri spurningu
hreyft hvort Evrópusambandið gæti
virkilega skipt sér af því hvað íslensk-
ir ostar heita. Svarið við því er raunar
bæði já og nei. Reglugerð ESB nr.
2081/92 um verndun landfræðilegra
merkinga og upprunatákna fyrir land-
búnaðarafurðir og matvæli er ekki
hluti EES samningsins og samsvar-
andi löggjöf um vernd landfræðilegra
tilvísana hefur ekki verið sett hér á
landi. Það að Grikkjum hafi verið
veitt skráning á orðinu feta sem land-
fræðileg tilvísun á grundvelli framan-
greindrar reglugerðar hefur því ekki
bindandi áhrif hér á landi. Á hinn
bóginn njóta landfræðilegar tilvísanir
verndar skv. vörumerkjalögum nr.
45/1997, en skv. 2. tl. 1. mgr. 14. gr.
laganna er m.a. óheimilt að skrá vöru-
merki ef það er til þess fallið að villa
fyrir um uppruna vöru.2 Ákvæðið
kemur þannig í veg fyrir að skráð séu
sem vörumerki heiti sem njóta vernd-
ar sem landfræðilegar tilvísanir, nema
þær komi sannanlega frá uppruna-
landinu.3
Sú staðreynd að fetaostinum hefur nú
verið veitt vernd sem landfræðileg til-
vísun mun því leiða til þess að hafna
beri skráningu á vörumerkinu feta
fyrir ost, nema um vöru upprunna í
Grikklandi sé að ræða. Þess verður því
kannski ekki lengi að bíða að í salati
Marðar verði magur Léttfeti í stað
fetaosts löðrandi í olíu, sem er eflaust
hið besta mál, enda löngu tímabært
að hann fari að huga betur að matar-
æði sínu.
2 Í ákvæði 3. mgr. 14. gr., er jafnframt að finna
ákvæði sem varðar vernd landfræðilegra heita á vín-
um og brenndum drykkjum sérstaklega. Ákvæðið
var sett vegna skuldbindinga Íslands skv. TRIPS
samningnum.
3 Sbr. t.d. ákvörðun Einkaleyfastofunnar frá 22.
desember 1997, í andmælamáli nr. 20/1997, þar
sem umsókn hollensks fyrirtækis um skráningu
vörumerkisins CHAMPAGNE fyrir ilmvötn var
hafnað á þeim grundvelli að það teldist villandi um
uppruna vörunnar.
Gylfi Birgisson hdl., Sigríður Laufey Jónsdóttir hdl.
og Jón Haukur Hauksson hdl.
Heiðursgestur
var Þór Vil-
hjálmsson.
Dís Sigurgeirsdóttir lögfræðingur, Jónas Jóhanns-
son héraðsdómari og Björn Þorri Viktorsson hdl.
Valborg Snævarr hrl., Magnús Guðlaugsson hrl. og Elvar Örn
Unnsteinsson hrl.
Hinn árlegi jólafundur Lögmannafélags Íslands, Dómarafélags Íslands
og Lögfræðingafélags Íslands var haldinn í Iðusalnum, Lækjargötu,
fimmtudaginn 8. desember 2005. Þessi viðburður er ávallt vel sóttur
af félagsmönnum og svo var einnig að þessu sinni. Þór Vilhjálmsson,
fyrrverandi prófessor, hæstaréttardómari og dómari við Mannrétt-
indadómstól Evrópu var heiðursgestur fundarins.