Lögmannablaðið - 01.03.2006, Page 34
34 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2006
er verið að setja saman dagskrá þar sem blandað verður
saman fróðleik og skemmtun. 90 sæti eru í boði í ferðina
og fyrstir koma, fyrstir fá!
Námskeið vorannar
Í janúar hófst námskeiðavertíðin með skiptastjórn þrotabúa
sem 20 lögmenn sóttu. Einnig hafa verið námskeið í lögum
múslima með Magnúsi Þór Bernharðssyni og notkun excel
töflureiknis við skipti þrotabúa en í þar fengum við Jón
Hauk Jónsson lögmann til að kenna ásamt reyndum kenn-
ara frá tölvuskólanum NTV. Við buðum einnig upp á nám-
skeið í Power point sem þurfti því miður að fella niður.
Námskeiðin eru auglýst með tölvupósti á félagsmenn.
Heimasíða LMFÍ — 100.000 heimsóknir árið
2005
Árið 2005 fóru heimsóknir á heimasíðuna í fyrsta skipti
yfir 100.000 en 33% aukning var á heimsóknum á milli
ára. Þar sækir almenningur upplýsingar um alla starfandi
lögmenn en einnig er hægt að fá upplýsingar um sérhæf-
ingu lögmanna eftir málaflokkum. Á meðfylgjandi súluriti
er fjöldi heimsókna á heimasíðuna síðustu ár.
Á heimasíðu lögmannafélagsins er LÖGMANNALIST-
INN en þar gefst almenningi kostur á að leita að lögmanni
eftir málaflokkum. Eins og fyrr hefur komið fram er listinn
nú á níu tungumálum og bæklingi hefur verið dreift víða
sem kynnir þjónustuna á öllum þessum tungumálum, auk
þess sem hann hefur fengið all nokkra kynningu í fjölmiðl-
um. Lögmönnum sem vilja kynna sér hvernig listinn virk-
ar er bent á að fara á heimasíðu félagsins. Lögmenn greiða
aðeins kr. 1600,- fyrir hvern yfirflokk sem þeir eru skráðir
fyrir svo kynningin á þjónustu þeirra er ekki kostnaðarsöm.
Þetta er auglýsing sem borgar sig.
0
1000
2000
3000
4000
5000
6000
7000
8000
9000
10000
m
ar
s
se
pt
em
be
r
de
se
m
be
r
2002
2003
2004
2005
Ja
nú
ar
Fe
br
úa
r
M
ar
s
Ap
ríl
M
aÍ
Jú
ní Jú
lí
Ág
ús
t
Se
pt
em
be
r
Ok
tó
be
r
Nó
ve
m
be
r
De
se
m
be
r
Félagsdeild LMFÍ efnir til námsferðar til
San Francisco
2. – 9. september 2006
Að þessu sinni verður San Francisco heimsótt með sínu ólgandi mannlífi og stór-
kostlegu umhverfi. Farin verður dagsferð um borgina og hið alræmda Alcatraz
fangelsi heimsótt. Dagsferð verður til vínrækarbænda í Napadalnum og síðasta
kvöldið verður farið í hinn fræga Zinzanni klúbb. Nánari fræðidagskrá verður kynnt
síðar en stefnt að því að kynnast réttarkerfi Kaliforníu, hitta kollega og fleira.
Stgr.verð: m.v. 2 í herbergi m/morgunmat kr. 155.500
m.v. 1 í herbergi m/morgunmat kr. 195.500
Í verðinu er gert ráð fyrir flugi, flugvallarsköttum, ferðum til og frá flugvelli, gistingu með morgunverði, skoðunarferð
um borgina, dagsferð til vínræktarhéraða Napadalsins (án inngangseyris) og „farwell dinner“ í Zinzanni klúbbnum.
Einnig er gert ráð fyrir rútukostnaði vegna fræðaferða og umsýslukostnaði félagsins.
Staðfestingargjald er kr. 30.000,- og greiðist fyrir 1. maí.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um nafn, heimili, kennitölu, síma og hverjir verða saman í herbergi til
Eyrúnar Ingadóttur, eyrun@lmfi.is.
Athugið að LMFÍ hefur takmarkaðan sætafjölda, svo fyrstir koma, fyrstir fá.
Skráning stendur til 15. apríl.
Félagsdeild LMFÍ