Lögmannablaðið - 01.03.2006, Side 37
Þau stórtíðindi hafa gerst að íslensk
lögmannsstofa hefur í fyrsta skipti
opnað erlendis. LOGOS opnaði úti-
bú við New Broad Street í London í
upphafi árs. Með aðstoð tækninnar
tók Lögmannablaðið viðtal við þá
Gunnar Sturluson, framkvæmda-
stjóra LOGOS, og Guðmund J.
Oddsson, forstöðumann LOGOS í
London, sem ræddi við okkur frá
breska pöbbnum King George þar
sem hann var að gæða sér á fish and
chips ásamt Heiðari Ásberg Atlasyni
hdl.
Hvað kom til að þið ákváðuð þessa út-
rás?
Gunnar: Fyrirtækið ákvað að opna
starfsstöð í London til að mæta brýnni
þörf viðskiptavina sinna og auka
þjónustu við þá sem eru í London.
Við náum líka samkeppnisforskoti
með því að vera með mann á staðn-
um, ef svo má segja.
Var flókið að hefja starfsemi í London?
Gunnar: Nei, starfsemin hófst í byrj-
un janúar með því að Guðmundur
flutti út og byrjaði að vinna. Hann er
eini íslenski starfsmaðurinn en við
deilum skrifstofu með skandínavísk-
um lögmannsstofum sem hafa staðið
saman að rekstri í nokkur ár. Á skrif-
stofunni eru því 5-6 lögfræðingar og 3
starfsmenn. Þar er einnig aðstaða fyr-
ir aðra starfsmenn sem fara út til að
vinna tímabundið fyrir viðskiptavini
okkar.
Guðmundur: Við erum svo heppnir
að ganga inn í tilbúinn ramma með
kollegum okkar og þurfum því ekki
að eyða tíma í uppsetningu skrifstof-
unnar, ráðningu starfsfólks o.s.frv.
heldur getum hellt okkur strax í verk-
efnin.
Hvað með lögmannsréttindi í London?
Guðmundur: Ég starfa einfaldlega
undir okkar íslenska starfstitli og er
hér virðulegur héraðsdómslögmaður!
Almennt starfa erlendir lögmenn
undir sínum starfstitlum hér þó það
þekkist að menn afli sér réttinda til að
titla sig „solicitor“ eða jafnvel „barris-
ter“. Við sjáum ekki hag í þeim rétt-
indum sem stendur heldur munum
halda okkur við okkar ágæta íslenska
titil en jafnframt skrá okkur sem
Registered European Lawyer (REL)
eins og lög gera ráð fyrir. Við erum í
samstarfi við The Law Society, sem er
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2006 > 37
LOGOS opnar útibú í London:
Samkeppnisforskot
að hafa mann á staðnum
Gunnar Sturluson.
Guðmundur J.
Oddsson.