Skírnir - 01.01.1980, Blaðsíða 123
SKÍRNIR
121
REVÍUR í REYKJAVÍK
Taflan miðast að sjálfsögðu við íslenskar revíur. ,Revue“ er erlendis
með allt öðrum formlegum einkennum og er það breytilegt frá landi til
lands.
3 Ádeila og skop eru erfið orð. Með ádeilu er í þessari grein átt við satíru:
meinlegt skop en ekki hátíðlega gagnrýni. Skop, þá sjaldan það orð er
notað, skil ég sem saklaust gaman.
■í Á þessu tímabili tíðkaðist að gefa revíur út í bók. Spánskar nætur eftir
Pál Skúlason, Magnvis Jochumsson og Morten Ottesen var gefin úr 1923.
Haustrigningar eftir Pál Skúlason og Gústaf A. Jónasson var gefin út
1925. Allt í grænum sjó eftir Andrés Björnsson, Sigurð Sigurðsson og
fleiri var gefin vit 1926. Eldvfgslan eftir Pál Skúlason og Gústaf A. Jón-
asson var gefin út 1926.
Allar þessar revíur voru prentaðar. Auglýsingar frá ýmsum fyrirtækjum
eru í útgáfunum. f Haustrigningum er auglýsing frá Smára-smjörlíki
bæði ofan og neðan við textann á hverri síðu.
Allar tilvitnanir í ofangreinda texta eru úr þessum útgáfum.
s Frá árabilinu er aðeins til ein revía á prenti, Fornar dyggðir eftir Harald
Á. Sigurðsson og fleiri, Reykjavík 1939. Aðrar revíur eru varðveittar 1
handritasafni Alfreðs Andréssonar hjá Ríkisútvarpinu og einnig i Ijósrit-
um í handritadeild Landsbókasafnsins.
6 Lífið í Reykjavík. Ritsafn s. 371. Reykjavík 1927.
7 Sjá Heimi Þorleifsson: Saga Menntaskólans í Reykjavík II, s. 122—124.
Reykjavík, 1978.
8 Eiginhandarrit Einars að leiknum er varðveitt í handritasafni Lárusar
Sigurbjörnssonar sem er í vörslu ekkju hans, Sigríðar Arnadóttur.
9 ísafold 12.1. 1895.
10 Þjóðólfur 11.1. 1895.
u Gunnþórunn Halldórsdóttir segir í viðtali við Valtý Stefánsson: „Auk
starfsins við Leikfélagið aðstoðaði ég oft við ýmsar skemmtanir. Söng t. d.
gamanvísur. Þær voru mjög algengar á tímabilinu (þ. e. fyrstu áratugum
aldarinnar, innskot PB), þó að fáar af þeim væru prentaðar. Það sem
þótti kímilegt í bæjarfélaginu og það scm aflaga fór var tekið til með-
ferðar í gamanvísum. Ýmis skáld ortu þá gamanvísur, svo sem Einar
Benediktsson, Þorsteinn Gtslason, Jónas Máni, Þorsteinn Erlingsson o.fl."
Valtýr Stefánsson: Þau gerðu garðinn frægan, s. 84. Reykjavík, 1956.
12 Andrés Þormar hefur tekið saman í fjölriti ýmislegt um leikinn: „Leitað
fanga um Allt í grænum sjó“, Reykjavík, 1978.
13 Bókun bæjarfógetans í Reykjavík. Eftir „Leitað fanga. .s. 14.
14 ísafold 13.5. 1913.
15 Uppkast Andrésar Björnssonar að fyrirlestrinum er í vörslu Andrésar
Þormar.
16 Indriði Einarsson: Séð og lifað s. 408. Reykjavik, 1972.
11 Morgunblaðið 20.2. 1923.
18 Morgunblaðið 14. 3. 1926.