Þjóðmál - 01.03.2009, Page 34

Þjóðmál - 01.03.2009, Page 34
32 Þjóðmál VOR 2009 Íþeim efnahagsþrengingum sem þjóðin glímir nú við er ljóst að landsmenn eru áhyggjufullir og neyðast til að færa fórnir . Útsjónarsemi og ráðdeild eru þættir sem fjölskyldur landsins temja sér við fjár hags­ lega erfiðleika, það er einfaldlega ekki annað í boði en að sníða sér stakk eftir vexti . Rík is­ valdið hegðar sér ekki eins . Hið opinbera fjármagnar útgjöld sín með fjár munum fólks og fyrirtækja í landinu í formi skatta . Stjórnmálamönnum þykir gjarn an óþægi legt að orða þessa staðreynd með þessum hætti . Í stað þess að tala um skatta og skatta hækk anir eru notuð orð eins og framlag til sam neyslu og breikkaðir tekju­ stofnar þegar raun veru lega er um að ræða auknar byrðar og skatta hækkanir á lands­ menn sem aftur þýðir að fólk þarf að sníða sér enn þrengri stakk en ella . 41% raunaukning frá 2003 Ásíðustu árum hafa ríkisútgjöld vaxið óstjór n lega . Á næstu bls . er tafla með skipt ingu á fjárlögum ríkisins eftir mála flokk­ um síðustu 6 árin, flokkunin er samkvæmt alþjóð legum staðli Sameinuðu þjóðanna og fengin af heimasíðu fjármálaráðuneytisins . Eins og fram kemur hafa ríkisútgjöld aukist um 41% að raunvirði frá árinu 2003 til ársins 2009 . Á sama tíma jókst fólks fjöldi á Íslandi um 8% . Útgjöld hins opinbera eru á góðri leið með að verða um helmingur af þjóðarframleiðslu . Í gögnum frá Hagstofunni og spám frá Vinnu málastofnun kemur í ljós að fyrir ára­ tug starfaði einn af hverjum fjórum á vinnu­ markaði hjá hinu opinbera en í ár stefn ir í að einn af hverjum þremur geri það . Í sömu gögnum kemur fram að frá því á árinu 2001 hafa orðið til átta þúsund ný störf hjá hinu opinbera en í lok þessa árs stefnir í að störfum í einkageiranum hafi fækkað um heil sautján þúsund á sama tíma! Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2009 er bú ist við að gjöld umfram tekjur ríkis­ sjóðs nemi um 150 milljörðum króna . Ein­ faldar lausnir eins og skattahækkanir munu ekki brúa þennan halla . Samkvæmt tekju­ skattslíkani sem finna má á heimasíðunni datamarket .net má sjá að t .d . 3% tekju­ skatts hækkun og 5% hátekju skatt ur á tekjur yfir 500 þúsund krónum munu í allra mesta lagi skila 25 milljarða auknum tekjum ríkissjóðs . Er þá ekki tekið með í reikn ing inn hversu vinnuletjandi hækkun Haukur Þór Hauksson Útgjaldasprenging! Ráðdeild í ríkisrekstri til lausnar fjárlagahalla

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.