Þjóðmál - 01.03.2009, Qupperneq 40
38 Þjóðmál VOR 2009
burða rás efnahagslífsins og í umræðu
um fram tíð íslensku þjóðarinnar . Þingið
væri „mátt laust“ eins og einn þingmaður
orðaði það . Ólöf Nordal þingmaður
Sjálfstæðisflokksins sagði hins vegar að það
skipti máli:
„… fyrir þingmenn að taka þátt í
umræðum á þinginu eins og kostur er
jafnvel þótt um sé að ræða fyrirspurnir af
ýmsum toga . Fyrir fólkið í landinu skiptir
verulegu máli að þingmenn séu aktífir í
störfum sínum og ávallt vakandi fyrir því
sem hér er að gerast . Sú umræða sem snúast
mun um framtíð íslensku þjóðarinnar og
þau stefnumið sem þar verða í hávegum
á að fara fram í þessum sal . Til þess erum
við kjörin og undan því skulum við ekki
víkjast .“
Varla er ofsögum sagt að þingmenn voru
því margir hugsandi yfir hlutverki sínu á
þessum örlagaríku haustdögum .
Hver eru meginhlutverk
þingmanna?
Alþingi gegnir í meginatriðum þrenns konar hlutverki:
1 . Þingmenn eru fulltrúar fólksins í land
inu og eiga að endurspegla sjónarmið
þess í umræðum á þinginu . Það felur
m .a . í sér að þingmenn hlusti og leiti
eftir sjónarmiðum borgaranna .
2 . Þingið er aðalhandhafi löggjafarvalds
ins í landinu og hefur það hlutverk að
setja landinu lög, meðal annars þau sem
sett voru til að bregðast við aðstæðum
sem við stóðum frammi fyrir .
3 . Þingið hefur eftirlitshlutverk með
fram k væmdavaldinu sem það getur
gegnt með umræðu í þinginu og
nefndum þings ins og með spurningum
til ráðherra sem æðstu yfirmanna
framkvæmda valds ins .1
Hvernig gegndu þingmenn þessum skyld
u m sínum haustið 2008? Voru þeir beinir
þátt takendur í umræðu og ákvarðana töku
eða voru þeir afgreiðslustofnun fyrir fram
kvæmda valdið eins og hafði verið haldið
fram .
Þingmenn
sem fulltrúar fólksins
Þessa daga mæddi mikið á Geir H . Haarde forsætisráðherra í kjölfar
bankahrunsins . Hann lagði þó mikla
áherslu á að sækja fundi þingflokksins, sem
voru haldnir daglega, jafnvel tvisvar á dag ef
svo bar við og jafnvel um helgar ef á þurfti
að halda .
Fundirnir voru afar mikilvægir til að miðla
upplýsingum til og frá ráðherrum flokksins .
Á þeim fóru fram umræður um stöðu mála,
ákvarðanir, stefnumótun, framtíðarsýn og
síðast en ekki síst misbrest í upplýsinga
miðlun til almennings sem þingmenn
höfðu þungar áhyggjur af .
Strax á fyrstu dögum eftir bankahrunið
tók stjórn þingflokksins ákvörðun um að
skipa öllum þingmönnum flokksins í hópa .
Þeir hefðu fyrst og fremst það hlutverk að
tala við fulltrúa umbjóðenda sinna, hlusta,
koma upplýsingum áfram til þingflokks
og ráðherra ef þörf væri á að bregðast við
með einhverjum hætti . Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins, var
formlegur tengiliður þingmanna flokksins
við ráðherra beggja stjórnarflokkanna til að
fylgja eftir þeim viðbrögðum sem þingflokk
urinn taldi nauðsynleg .
Eftirfarandi hópar voru settir á laggirnar:
1 Gunnar Helgi Kristinsson (2007): Íslenska stjórnkerfið,
bls . 169 .