Þjóðmál - 01.03.2009, Síða 50
48 Þjóðmál VOR 2009
Hjörtur J . Guðmundsson
Spillt skriffinnskubákn
Flest á að færast til betri vegar ef Ísland gengur í Evrópusambandið ef marka má
talsmenn þess að slíkt skref verði tekið . Gott
ef veðrið á ekki að stórbatna ofan á allt annað .
Sæluríkið er dásamað í hvívetna svo minnir
óþægilega á fagnaðarerindi sanntrúaðra
Sovétsinna á tímum kalda stríðsins .1 Þar
gerist ekkert slæmt, þar hafa það allir gott .
Þar fara bankar ekki í þrot og ef þeir lenda í
einhverjum vandræðum fá þeir ríkulega aðstoð
frá Evrópusambandinu . Það er þó verst fyrir
Evrópusambandssinna að boðskapur þeirra á
sér ekki mikið meiri stoð í raunveruleikanum
en fagnaðarerindi Sovétsinnanna hér áður
fyrr .
Eitt af því sem á að stórbatna hér á landi gangi
Ísland í Evrópusambandið er stjórnsýslan .
„Þótt embættismenn séu fyrir ferðarmiklir í
[Evrópu]sambandinu, eru þeir ekki vanhæfir
eins og þeir íslenzku . Þeir evrópsku kunna
stjórnsýslu, en íslenzkir embættismenn kunna
ekkert í henni,“ ritaði Jónas Kristjánsson,
1 Nú síðast talaði Björgvin G . Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, um Evrópusambandið sem
„framtíðarlandið“ í umræðum á Alþingi 17 . marz 2009
sem rímar óþægilega við áköll íslenzkra Sovétsinna á
tímum kalda stríðsins eftir SovétÍslandi . Nú er það ESB
Ísland sem kallað er eftir . „Ekki viljugur í stjórn með VG til
frambúðar“, mbl .is 17 . marz 2009 .
fyrrv . ritstjóri, á vefsíðu sína haustið 2007 .2
Og þetta sjónarmið hefur heyrst víða í
málflutningi Evrópusambandssinna á liðnum
árum . En er Evrópusambandið raunverulega
fyrirmynd þegar kemur að góðri stjórnsýslu?
Það er skemmst frá því að segja að langur
vegur er frá því að svo sé .
Skriffinnskubákn
Evrópusambandið er miðstýrt skriffinnsku bákn eins og þau gerast verst .
Þessu harðneita auðvitað Evrópusam
bands sinnar á Íslandi og hafa gert lengi en
jafnframt eru nokkur ár síðan forystu menn
sambandsins sjálfs fóru að gangast við því
að um gríðarlegt og vaxandi vandamál væri
að ræða í þessum efnum sem koma þyrfti
böndum á .3 Samkvæmt niðurstöðum
rann sóknar brezku hugveitunn ar Open
Europe, sem birtar voru í marz 2007, taldi
lagasafn Evrópusambandsins þá hvorki
meira né minna en 170 .000 blaðsíður .4
2 „Þjóðin áttar sig á Evrópu”, Jonas .is 11 . september 2007 .
3 Sjá t .d .: „Large deregulation campaign needed, Barroso
says“, Euobserver .com 14 . september 2005 .
4 „EU rulebook leaves a paper trail 32 miles long“,
Telegraph .co .uk 3 . febrúar 2007 .