Þjóðmál - 01.03.2009, Side 51
Þjóðmál VOR 2009 49
Síðan ráðamenn í Brussel fóru að gangast
við vandamálinu hefur margoft verið til
kynnt um aðgerðir til þess að reyna að draga
úr reglugerðaframleiðslu Evrópusambands
ins sem engu hafa þó skilað enn . Síðast var
Edmund Stoiber, fyrrum forsætisráðherra
Bæjaralands, fengið það verkefni árið
2007 að koma með tillögur að umbótum
á regluverki sambandsins . Stoiber skilaði
tillögunum af sér í maí 2008 og var sagt að
tekin yrði afstaða til þeirra fljótlega . Síðan
hefur ekkert verið gert .5
Sennilega er skýringuna á þessu aðgerða
og sinnuleysi ekki sízt að finna í ummælum
Günthers Verheugens, ráðherra iðnaðar
og frumkvöðlamála í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, sem hann lét falla
haustið 2006 . Þar sagði hann einfaldlega
að allar tilraunir til að koma böndum
á reglugerðafargan sambandsins hefðu
fram að því verið gerðar að engu af
valdamiklum embættismönnum sem
störfuðu fyrir framkvæmdastjórnina og
sem teldu slík skref ekki þjóna sínum eigin
hagsmunum .6
Margir vonuðust til þess að stækkun
Evrópu sambandsins til austurs og suðurs
um tíu ný ríki vorið 2004 myndi stuðla
að því að miðstýring innan þess myndi
dragast saman og valddreifing um leið
aukast . Talað var um að samfara aukinni
fjölbreytni innan sam bandsins yrði varla
stætt lengur á allri þessari miðstýringu .
Skemmst er frá því að segja að þær vonir
hafa að engu orðið og raunin þvert á
móti orðið sú að völd og vægi stofnana
Evrópusambandsins hafa aukizt stórlega á
kostnað ríkja sambandsins .7
5 „Red tape unit lashes out at Charlie McCreevy“,
Montesquieuinstitute .eu 23 . september 2008 .
6 „Personal view: It’s official . The Single Market costs out
weigh the benefits“, Telegraph .co .uk 24 . október 2006 .
7 „European Commission made stronger by enlargement“,
Euobserver .com 27 . febrúar 2007 . Samkvæmt
niðurstöðum rannsókna Jonas Tallberg, prófessors í
Það er ljóst að Evrópusambandið
ræður ein fal dlega ekki við vandann . Það
er eðli mið stýrðra skriffinnskubákna að
þenja sig sífellt meira út með tilheyrandi
reglugerðafargani . Þetta er þó vitaskuld
engan veginn bundið við Evrópusambandið
en sambandið er engu að síður eitthvert
versta, og ekki ósennilega hreinlega versta,
dæmið sem fyrirfinnst um slík fyrirbæri .
Regluverk sambandsins er eins og snjóbolti
sem rennur niður snævi þakta fjallshlíð sem
engan endi hefur . Hann stækkar stöðugt og
enginn virðist vilja eða geta stöðvað hann .
Bókhaldshneyksli ESB
En Evrópusambandið er ekki aðeins skriffi nnskubákn heldur er það
sömuleiðis ger spillt . Fjöldi alvarlegra
spillingarmála hef ur komið upp í stjórnkerfi
sambandsins á liðn um árum og virðist sem
þeim hafi frekar farið fjölgandi en hitt .
Alvarlegasta málið er vafalaust sú staðreynd
að endurskoðendur Evrópu sam bandsins
hafa ekki treyst sér til þess að samþykkja
bókhald sambandsins samfellt í 14 ár eða
allt frá árinu 1994 . Ástæðan hefur iðulega
verið sú sama, ekki er vitað með neinni
vissu í hvað mikill meirihluti útgjalda þess
fer, eftir að þeim fjármunum hefur verið
úthlutað til ríkja sambandsins . Um hefur
verið að ræða allt að 90% útgjaldanna og í
sumum tilfellum rúmlega það .8
Málið varð fyrst opinbert í byrjun árs
2002 þegar þáverandi yfirmaður endur
skoð endastofnunar Evrópusambandsins,
Marta Andreasen, vakti athygli fjölmiðla á
stjórnmálafræði við Stokkhólmsháskóla, sem birtar voru í
byrjun apríl 2007, hafa stærstu ríki Evrópusambandsins,
Þýzkaland, Frakkland og Bretland, aukið mjög völd sín í
kjölfar stækkunar sambandsins til austurs og suðurs . „Study
Says Big States Gaining Power in EU“, Businessweek .com
9 . apríl 2007 .
8 „EU budget: the missing €6 billion“, Ukip .org 10 .
nóvember 2008 .