Ljóðormur - 01.06.1990, Side 64
62
■^s
Um höfundana
Seamus Heaney, f. 1939. írskt ljóðskáld fæddur á Norður-írlandi.
Áður háskólakennarí i Belfast en er nú búsettur í Dublin. Hann
þykir fremstur þeirra skálda sem kennd eru við norður írska
skólann svokallaöa.
Wole Soyinka, f. 1934. Nígeríumaður. Skrifar á ensku. Hefúr
starfaö sem bókmenntaprófessor, m.a. á Englandi. Sat ( fangelsi
í tvö ár eftir að hafa reynt að miðla málum í Bíafrastríðinu.
Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1986.
Katúllus. Sjá formála þýðanda.
René Depestre. Sjá eftirmála þýðanda.
Igor Holín. Sjá eftirmála þýðanda.
Genrikh Sabgír. Sjá eftirmála þýðanda.
Tomas Tranströmer. Sænskur, f. 1931 í Stokkhólmi. Starfar sem
sálfræðingur í VQsterás. Hann hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráös í ár.
Sylvia Plath. Bandarísk, f. 1923 í Boston. Bjó lengi í Bretlandi og
svipti sig lífi þar árið 1963. Fróðir menn í Plathfræðum segja
skáldskap hcnnar nálgast mörk mannlegrar tilveru, hvað sem
þeir eiga nú við með því.
Heinz Czechowski. Sjá cftirmála þýðanda.
Yves Bonnefoy. Sjá eftirmála þýðanda.
Johann R Tammem, f. 1944. Þýskt skáld og einn af ritstjórum
bókmenntatímarítsins „Die Horen“. Hefur gefið út nokkrar
ljóðabækur.
Reiner María Rilke, 1875-1926. Ei« áhrifamesta skáld Evrópu á
öndverðri 20. öld.
Halldóra Briem, f.1913. Flutti til Stokkhóims 1936, lærði þar
arkítektúr og heftir lengst af starfað við þá grein. Ijóð þessi
munu vera fyrstu ljóð sem birtast eftir hana opinberlega.
Henrik Nordbrandt, f. 1945. Gaf fyrst út bók 1966. Hann hefúr
lengi búið í Grikklandi og Týrklandi og sækir gjama yrkisefni
sín þangað.
Kápan er eftir Elínu Pjet. Bjamason. Hún er fædd á Akureyri árið
1924 en fluttist til Kaupmannahafnar árið 1945 þar sem hún lærði
við listaakademíuna og hefur fengist við myndlist síðan.