Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Blaðsíða 22
30 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997 Vissir þú. • • □ að á fyrri hluta aldarinnar voru til hér á landi sem annars staðar í veröldinni svokallaðir líkamningamiðlar sem höfðu þann fágæta en afar merkilega hæfileika að geta búið til líkama hins framliðna alveg eins og viðkomandi var áður en hann lést, og að þetta fyrirbæri er sjá- anlegt, áþreifanlegt og Ijósmyndanlegt og hefur verið rannsakað af herskara vísindamanna? (Svona miðlar eru til erlendis í dag.) □ að fyrri tíma og nútímasálarrannsóknir hafa sýnt fram á með yfir- gnæfandi líkum að líf sé eftir líkamsdauðann? Og að í öðrum heimi bíði framhaldslíf allra lífvera, jafnt manna, dýra og plantna? □ að hér á jörðinni er allstaðgóð þekking til um þessi mál eftir meira en 150 ára rannsóknir spíritismans á þessum hlutum þótt aldrei sé minnst einu orði á þá, í opinbera menntakerfinu sem kostar skatt- greiðendur yfir 20 milljarða á ári hér á landi? □ að á íslandi er vandaður Sálarrannsóknarskóli fyrir almenning sem býður upp á vandaða fyrirlestra og fræðslu um öll þessi handan- heimamál og hversu raunverulega mikið er vitað um þessa heima og samband okkar við þá sem og um drauga, afturgöngur, álfa og huldu- fólk, um starfsemi miðla og önnur hin ólíkustu dulræn mál? Fyrstu bekkir haustsins byrja bráöum. Námið er i formi fræðslu- erinda og kennslu eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi f viku fyrir hófleg skólagjöld - fyrir alla sem áhuga hafa. - Hringdu og fáðu aliar nánari upplýsingar um skemmtilegasta skólann sem f boði er f dag. - Yfir skráningardagana er svarað í sfma skólans alla daga vikunnar, kl. 14 til 19. Sálarrannsóknarskólinn, - mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2, s. 561 9015 & 5886050 r////////////////////// m staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi Smúauglýslngar birtingarafsláttur ■A 1006000 Mazda 626 2500 ‘93, ssk., 4 d„ grænsans. ek. 68 þús. km. V-6, leður- vínrauöur, ek. 124 þús. km. spoiler o.fl. Verð 1.360 þús. ssk., 4 d„ dökkblár, ek. 185 þús. km. Bllalán fylgir. Bíll með öllu. Verö 1.950 Pontiac Transsp. 3300 ‘96, ssk„ 5 d„ grænsans. ek. 64 þús. km. 7 manna. Verö 2.650 þús. Cherokee ssk„ 5 d„ hvítur, ek. 70 þús. km. Verö 1.550 þús. beinsk., 3 d„ hvítur, ek. 74 þús. km. Verö 790 þús. BÍLASALAN BÍLFANG BORGARTÚNI 1b SÍMI 552-9000 Útvegum bílalán. Fréttir __ Nýstofnað Poppminjasafn íslands: Eins og að ganga inn í röntgenvél - segir stórpopparinn Rúnar Júlíusson Rúnar Júlíusson verður með sína muni á sýningunni. Hér er hann í frakka frá 1971 og með gítar sem var sérsmíðaður fyrir Rúnar 1976 i London. Mál- verkið er eftir Svölu. DV-mynd Ægir Már DV, Suðurnesjum: „Það er mjög gaman að standa í þessu og fá að kafa með þessum hætti inn í fortíðina. Það er eins og að ganga inn í röntgenvél og sjá sjáifan sig i samhengi við aðra. Ég hef heimsótt samstarfsmenn frá fyrri tíma og heilsað upp á þá og sótt ýmsa muni,“ sagði keflvíski stórpopparinn Rúnar Júlíusson í samtali við DV. Nýstofnað Poppminjasafn íslands efnir til sinnar fyrstu sýningar í október í veitingahúsinu Glóðinni í Keflavík. Viðfangsefnið er Keflavík á árunum 1963-1976 og þær fjöl- mörgu hljómsveitir og tónlistar- menn sem þaðan komu. „Það gengur sæmilega að safna munum frá þessum tíma. Við erum nú þegar búnir að fá ýmsa muni. Má nefna gítara, bassa, föt, plötu- umslög, gullplötur, textablöð, nótur, fullt af myndum, málverk, gömul tímarit og skartgripi. Við vonumst til að fá fleiri muni frá þessum tíma og hvetjum afla, sem eitthvað eiga í fórum sínum, tfl að hafa samband við okkur,“ sagði Rúnar. Þess má geta að Þorkell Jensson, fyrrum dyravörður á Hótel íslandi, verður með úrklippubækur sinar á sýningunni en þær eru á annað hundrað talsins. Svala Þórisdóttir verður með 2 málverk sem hún gerði af Trúbroti þegar hljómsveitin var að æfa í Klúbbnum 1969. Þá fannst nýlega kvikmynd með Hljómum sem var gerð 1965 og heit- ir Úmba Rúmbamba og er 20 mín- útna löng. Myndin fannst í London og er á leiðinni til lands. Hún verð- ur sýnd á sýningunni. „Við héldum að þessi mynd væri týnd,“ sagði Rúnar. „Ég sá hana síðast fyrir 32 árum og það verður mjög gaman að sjá hana aftur eftir allan þennan tíma,“ sagði Rúnar. -ÆMK Aöalfundur Skógræktarfélags íslands á Núpi: Skógar geta drepið niður fjallabylgjur DV ísafirði: Á aðalfundi Skógræktarfélags ís- lands, sem haldinn var á Núpi í Dýrafirði nýlega, voru flutt mörg at- hyglisverð erindi. Einna mesta eft- irtekt vakti erindi Haralds Ólafs- sonar um áhrif af grófu yfirborði lands á vind. Haraldur hefur gert umfangsmiklar rannsóknir á þessu fyrirþæri og naut hann þar aðstöðu og öflugs tölvubúnaðar háskólans í Toulouse í Frakklandi. í tölvunni lét Haraldur reikna út áhrif mis- munandi yfirborðs á landi á vind og hafa niðurstöðumar komiö mörg- um skógræktarmanninum mjög á óvart. Svo virðist sem jafnvel sé hægt sé eyða, meö skógrækt á rétt- um stöðum, fjáflabylgjum eins og al- gengar eru á íslandi og mikið hafa verið í umræðunni að undanfómu. „Erindi mitt fjaflaði annars vegar um áhrif landslags og fjalla á vind, hvernig landslag myndar vind- Haraldur Ólafsson veðurfræðing- ur. Ljósmynd Hörður strengi og skjól," sagði Haraldur. „í öðra lagi fjallaði það um hvemig viðnám dregur úr vindi. Ég kynnti rannsóknir sem sýna fram á að auk- ið viðnám við yfirborð jarðar er mun áhrifaríkara til að draga úr vindi ef um er að ræða vimLsem hefur fengið hröðun af landslagi, þ.e. vindstrengi." - Nú hefur mikil umræða verið um snjóflóðavamir á Vestfjörðum. Er hugsanlegt að taka skógræktar- þáttinn inn í þá umræðu með tilliti tfl niðurstaðna af rannsóknum þín- um? „Þetta er kannski frekar spurn- ing fyrir skógræktarfólkið, hvar mögulegt sé að rækta tré. Vissulega heíði það gífurleg áhrif ef hægt væri að rækta skóg uppi á fjöllunum. Ef hægt er að rækta tré þar sem snjó- söfnunin er er varla nokkur vafi á því að það skiptir máli.“ Skógræktarmenn hafa gripið rannsóknir Haralds fegins hendi og virðast niðurstöðurncir koma til með að breyta miklu um hugmynd- ir manna um skógrækt hér á landi í framtíðinni. -HKr Fimm manna fjölskylda frá Flateyri til Noregs: Ósátt við stefnuna í skólamálum - segir Bryndís Óskarsdóttir DV, Flateyri: „Fyrst og fremst erum við að flytja vegna stefnunnar í skólamál- um sem ég er mjög ósátt við. Ég var til dæmis afar ósátt við framkom- una við Bjöm Hafberg skólastjóra. Að láta hann fara á meðan verið er að ráða ómenntaða kennara að skól- anum,“ segir Bryndís Óskarsdóttir, fyrrverandi íbúi á Flateyri. Bryndís er ásamt Halldóri Guðmundssyni, eiginmanni sinum, og þremur böm- um að flytjast búferlum frá Flateyri tfl Noregs. En hvers vegna Noregur? „Það var ljóst að við færum héðan og úr því að við voram að flytja á annað borð ákváðum við að slá tfl og fara í smáævintýri en Hafldór á skyld- fólk þama úti,“ segir hún. „Það er skritið að ekkert skuli vera gert tfl þess að halda í fólk á þessum stöðum. Yfirvöld reyna bara að finna sökudólga og kenna þeim um sem segja frá ástandinu. Nú á stuttum tíma eru um 40 manns að flytja eða fluttir héðan af staðnum svoleiðis að það er út í hött að hengja boðberann," segir Bryndís. -GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.