Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 RÖGNVALDUR Sig- urjónsson píanóleikari er látinn, áttatíu og fimm ára að aldri. Með honum er genginn einn fremsti tónlistar- maður Íslendinga á síðari hluta 20. aldar. Rögnvaldur Kristján Sigurjónsson var fæddur 15. október 1918 á Eskifirði. For- eldrar hans voru Sig- ríður Þorbjörg Björns- dóttir húsmóðir og Sigurjón Markússon sýslumaður. Rögnvaldur lauk prófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík árið 1937 og nam eftir það píanóleik hjá M. Ciampi í París 1937–1939 og M. Horzovsky og Sascha Gorodnitzki í New York 1942–1945. Þá lauk hann prófi í hljómsveitarútsetningum hjá Vittorio Giannini við Juilliard School of Music í New York árið 1944. Rögnvaldur kenndi píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík á ár- unum 1945 til 1986 og var yfirkenn- ari í framhaldsdeild píanódeildar skólans frá 1959. Hann varð síðan yfirkennari í píanóleik við Nýja tón- listarskólann frá 1986 þar sem hann starfaði það sem eftir var ævinnar. Rögnvaldur hélt marga einleiks- tónleika, kom fram með hljómsveit- um og lék á fjölda útvarps- og sjón- varpstónleika, bæði hér á landi og erlendis, þar á meðal á Norðurlönd- unum, Ameríku og Austur- og Vestur-Evrópu. Telst hann einn víðförlasti tónlistarmaður Íslands. Auk þess lék hann inn á margar hljómplötur. Rögnvaldur starfaði sem tónlistargagn- rýnandi við Morgun- blaðið, Tímann og Þjóðviljann. Eftir að hann hætti opinberum píanóleik vegna hand- armeins gerði hann þáttaröð fyrir útvarp, Túlkun í tónlist, sem varð eitt vinsælasta útvarpsefni sem gert hefur verið á Íslandi. Í þáttunum, sem útvarp- að var á árunum 1985– 1988 fjallaði Rögnvaldur um sígilda tónlist í tali og tónum. Eftir Rögnvald liggja einnig tvær endurminningabækur, Spilað og spaugað og Með lífið í lúkunum, báðar ritaðar af Guðrúnu Egilson. Rögnvaldur gegndi trúnaðar- störfum fyrir íslenska tónlist- armenn og var meðal annars for- maður FÍT frá 1977 til 1983. Hann var einnig forseti Einleikara- sambands Norðurlanda 1979 til 1981. Rögnvaldur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1974 fyrir framlag sitt til menningarmála á Íslandi. Þá hafði hann einnig ver- ið gerður að heiðursborgara Winni- pegborgar árið 1963 auk þess sem hann var heiðursfélagi Félags ís- lenskra tónlistarmanna. Eiginkona Rögnvaldar var Helga Egilson, en hún lést árið 2001. Rögnvaldur og Helga eignuðust tvo syni, Þór og Geir, sem lifa foreldra sína. Rögnvaldur Sigurjónsson látinn LIÐIN helgi var svo sannarlega helgi lands- byggðarinnar í íþróttalífinu. Á laugardaginn fóru fram úrslitaleikir bikarkeppninnar í hand- knattleik. Í kvennaflokki bar lið Vestmanna- eyinga sigurorð af liði Hauka úr Hafnarfirði og í karlaflokki vann lið KA frá Akureyri sigur á Reykjavíkurfélaginu Fram. Var liðunum vel fagnað þegar þau komu til heimabæja sinna á laugardagskvöld. Ekki var gleðin minni í Stykk- ishólmi í gærkvöldi þegar lið Snæfells vann Hauka úr Hafnarfirði 79:69 og tryggði sér deild- armeistaratitilinn í körfuknattleik, þann fyrsta í sögu félagsins. Ríkti taumlaus gleði á áhorf- endapöllunum í leikslok, eins og myndin ber með sér./Íþróttir Morgunblaðið/Brynjar Gauti Landsbyggðarliðin fögnuðu sigri um helgina GERT var hlé á viðræðum Samtaka atvinnulífsins, Starfsgreinasam- bandsins og Flóabandalagsfélag- anna í gærkvöldi til kl. 13 í dag eftir mikil fundahöld yfir alla helgina. Farið er að ræða almennar launa- hækkanir á næsta samningstímabili, lífeyrismál og starfsmenntamál og mun væntanlega skýrast í dag hvort líklegt sé að samningar takist á næstu dögum eða upp úr slitni. Aðalsamninganefndirnar munu fara yfir stöðuna með sínum fé- lagsmönnum fyrir hádegi í dag og kanna baklandið áður en viðræðum verður haldið áfram eftir hádegi. Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar, segir lokasprettinn nú hafinn í viðræðunum. „Hlutirnir gætu geng- ið mjög hratt fyrir sig ef allt gengur saman en þetta getur líka tekið enn þá nokkurn tíma, ef það ber mikið í milli aðila um niðurstöðutölur. Það sjáum við kannski ekki fyrr en á morgun [mánudag] þegar við förum að þreifa á þessu af fullri alvöru,“ sagði hann í gærkvöldi. Ræddu við ríkisstjórn Sl. laugardag áttu forystumenn samtakanna fund með ríkisstjórn- inni vegna mála sem snúa að stjórn- völdum í tengslum við samnings- gerðina og var m.a. rætt um lífeyrismál, atvinnuleyfi vegna út- lendinga og starfsmenntunarsjóði. „Þeir hlustuðu á okkar mál en við höfum ekki fengið nein svör frá þeim og væntanlega mun það ekki gerast fyrr en komið er á endapunktinn. Við lítum svo á, sérstaklega varðandi líf- eyrismálin, að innspil ríkisstjórnar- innar muni skipta verulegu máli,“ segir Sigurður Bessason. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir að mestu lokið að hnýta aðra enda en þá sem varða almennar launabreytingar og lífeyrismál. Við- ræðum um þau mál sem eru á loka- fasa samningagerðarinnar verði haldið áfram í dag. Að sögn Halldórs Björnssonar, formanns SGS, er gerð sérsamninga lokið. Spurður hvort mikið bæri í milli varðandi almennar prósentu- hækkanir launa sagði hann svo vera, a.m.k. væri meiningarmunur þar á. – Samningar eru þá ekki í augsýn? „Ekki eins og staðan er núna en það þarf ekki mikið til að breyta því,“ svaraði Halldór. Unnið hefur verið að gerð nýrrar launatöflu fyrir alla félagsmenn sem skv. kröfugerð SGS verður byggð á sex þrepum. Gengið er út frá að sam- ið verði til fjögurra ára, að því gefnu að takist að semja um nýja launa- töflu og tryggingarákvæði. SGS settu í upphafi fram þá kröfu að taxt- ar hækki um 30% á tímabilinu, al- mennar launahækkanir verði 19% og dagvinnutrygging hækki um 40%. Samninganefndir hafa lokið gerð allra sérsamninga Tekist á um launahækk- anir á endasprettinum Morgunblaðið/Þorkell Arnar Sigurmundsson og Kristján Gunnarssonar handsala samkomulag. NÍNA Ósk Kristinsdóttir, 18 ára gamall framherji í bikar- meistaraliði Vals í knatt- spyrnu, hefur svo sannar- lega slegið í gegn með Hlíðarendalið- inu á undan- förnum vik- um. Nína hefur skorað 20 mörk í fimm leikjum Vals- liðsins á Reykjavíkurmótinu, þar af sjö gegn Íslandsmeist- urum KR-inga í síðustu viku, og í gær skoraði hún sex mörk þegar Valur burstaði ÍBV, 8:2. Nína skoraði alls átta mörk gegn Eyjakonum um helgina en hún gerði tvö mörk í 4:2 sigri Vals á móti ÍBV á laugardaginn. Býr í Sandgerði „Ég er búin að vera sérlega markheppin að undanförnu og vonandi heldur það bara áfram,“ sagði Nína Ósk í sam- tali við Morgunblaðið en hún þykir í hópi efnilegustu knatt- spyrnukvenna landsins. Nína Ósk er Sandgerðingur og lék með Reyni Sandgerði og RKV, sameiginlegu liði á Suð- urnesjum, áður en hún gekk til liðs við Val. Hefur skor- að 20 mörk í 5 leikjum  Nína/B1 Nína Ósk Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.