Tíminn - 24.12.1958, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.12.1958, Blaðsíða 3
★ JQLABLAÐ TÍMAN5 195B ★ 3 með tilliti til þess, hvort vináttan er endurgoldin. Sumum kynni aö koma til hugar, hvort hér gæti ekki verið um að ræöa skjall, sem ætti aö mýkja reiöi hins volduga manns og milda skap hans. Það er til i fornum skjölum nóg af bænarskrám til kon unga og höföingja, þar sem bréf- ritarinn annaö hvort af kurteisi eöa smjaöri heldur stóroröa lof- ræöu um vald og ágæti viötakand- ans. En þeim, sem les Fílemoirs- bréfiö og hefir allar ástæður í huga, getur ekkert slíkt komið til hugar í alvru. Til þess er allur stíll bréfs- ins of persónulegur og innilegur. Og heföi Páll haft nokkuö slíkt í huga, er ósennilegt, að hann hefði byrjað' surna kafla bréfsins svo óskynsamlega aö fara einmitt aö skirskota til síns eigin valds og myndugleika, sem hann þó ekki vill hagnýta sér í þessu máli. Fer bónarveginn í stað þess að néyta hins postul- lega valds, sem hann seglst annars geta beitt af fullri djörfung, enda þótt -hann sé fangi í f jarlægu iandi, kýs hann að fara bónarvegiun, og meö þvi flytur hann málið yfir á allt annan vettvang, — eða annaö plan ,ef ég má nota slíkt orð. Hann segir: j „Því er þaö, aö þótt ég gæti meö fullri djörfung vegna samfélagsins viö Krist, boöið þér að gera það, . sem skylt er, þá fer ég þó helclur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú. Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hefi getið í fjötrum mínum, hann ónesimus, sem áður var þér óþarfur, en nú er þarfur, bæöi mér og þér. Sendi ég hann nú samt til þín aftur, og er hann þó . sem hjartað í brjósti mér“. i_ Oríaleikur Menn eru haria óvanir þeirri . hugsun, að til sé kýmni eða gietni í Nyja-testamentinu, og þó mun i hana vera þar að finna á fleíri stöðum en vænta mættí. Og víst er . um það, að bréfið til Fiiemons verö . ur ekki skýrt né skiiið, nema af . þeim, sem hefir tilfinningu fyrir hnittnum oröaleikjum, sem laða . brosið eins og ósjálírátt fram á . varirnar, Það er eins og Páll segi . við Filomon: „Ég gæti talað við þig með postullegum myndugleik, en nú skalt þú ekki hugsa um mig t sem postula. Sá, sem við þig talar, . er hann Páll gamli, sem þú þekkir t svo vel írá'fyrri tíð, og nú orðirm í bandingi Krists Jesú, — þ.s.a.s. . bundinn maður í bókstafiegum , skilningi, en einnig bundinn af vilja Krists Jesú“. Hinir köldu járn- , fjötrar keisarans minna Pál eins . og ósjálfrátt á, að það er til annar , höfðingi, sem hefir lagt á hann , fjötra sína, og vér finnum bjarrn- ann af gleði Páls yfir því, að vera i þeim fjötrum. Og í þessum tvenn- , um fjötrum hefir hann eignast barn, hann Ónesímus, og bendir , það til þess, aö Ónesmíus hafi öðl- , ast endurfæðingu til kristinnar , trúar fyrir áhrif Páls og ef til vill , tekið skirn af honum. Þegar Páll nefnir nafn þessa ástfólgna bams , síns, kemur honum í hug', hvað þetta nafn merkir. Ónesímus þýðir , þarfur, gagnlegur, enda mun það hafa verið nokkúð algengt nafn á þrælum í Grikklandi. Og Páli verð- ,. ur hugsað til þess, að hinn ungi , þræll hafði verið allt annað en þarfur húsbónda sínum, svo aö hamx minnir hann á, að nú sé breytt um, því að reynsla sín sé sú, að Ónesímus hafi verið sér svo þarfur, að hann elski hann ; hjartað í brjósti sér. Létt gaman og sár alvara Það er unclravert, eins og á stend ur, hve létt Páll tekur á hlutunum. Hann svo að segja hendir gaman að persónu sjálfs sin, aldri sínum og postulavaldi. Það er svo sem ekki af miklu að státa, eða mikil ástæða til þess, að Fílemon taki það alvarlega, þótt þessi gamli bantl- ingi beri fyrir brjósti strokuþræl, sem ekki hafði þá heldur reynzt sem þarfastur. — En samfara hin- um léttu tónum kýmninnar kveða við hinir þungu tónar sárrar al- vöru, djúprar viðkvæmni, angur- værðar og trega. Páll hugsar iil þess meö söknuði, að hann missi frá sér vin, sem hafi reynst honum trúr og þarfur. En honum er allt amiað en glens í huga undirniðri. Næstu setningarnar sýna, hvers vegna hann getur ekki haldið vini sínum hjá sér. „Feginn vildi ég hafa haldig hon um hjá mér, til þess aö hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrnm minum vegna fagnaðar- erindisins .En án þíns samþykks vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörningur . þínn skyldi ekki koma eins og nauðung, heldur af fúsum vilja“. Ekki al nauðung, heídur af kærleika Auðvitað var Páli innan handar að halda Ónesímusi kyrruni lijá sér, þvi að ólíklegt hefði verið, að Fílemon hefði fariö aö láta hand- taka hann í þjónustu postulans. Og flestir hefðu í sporurn Páls látið sér nægja að skrifa Fílemoni fyrst, og láta Ónesímus eiga sem minnst á hættu, þangað til svar væri kom- ið. En hefði þessi leið verð farin, hlaut slik varúð af Páls hendi að byggjast á tortryggni í garð Fíle- mons, og jafnvel þótt Fílemon hafði gefið eftir, og látið kyrrt liggja, mátti brégða Páli um það, að hann heföi sjálfur reynt að hafa ráðin i hendi sér og beita nauðung. í þess stað hugsaði Páll þannig, að hér skyldi ekkert gilda, — og ekkert vald annaö koma til gi-eina, en hinn kristilegi kœrleikur einn. Ef Páll afsalaði sér hinu postullega valdboði, þá skyldi hann líka af- sala sér þeirri aðstöðu, sem hann hafði til að beita nauðung. Þetta. tiltæki er svo djarft, að lesanda, sem þekkir til aldarandans og laganna í Rómaveldi á þessum tímum, hlýtur að sundla við til- hugsunina. Hér var teflt á tæpasta vaö, og málið sett yfir á allt annan grundvöll en hinn lagalega, eins og ég áðan gat um. Það verður Ijóst af framhaldí málsgreinarinn ar, sem svo hljóðar: „Því að vísast hefir hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá'að halda honum eilíflega. Ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður, mjög kærum mér, en hve miklu fremur þ óþér, bæði sem manni og kristnum (eöa eins og einuig mætti oröa þaö — í holdinu og i Kristi). Ef þú telur mig félaga þinn, þá tak þú á rnóti honum, eins og þaö væri ég sjálfur. En hafi hann eitthvað gert á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú mér það til reiknings. Ég, Páll, rita með eigin hendi: Eg mun gjalda, — að ég ekki nefni viö þig, að þú ert í skuld við mig um sjálfan þig. — Já, bróðir, unn mér gagns af bér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists“. „Eins og þaí væri ég siálfur“ Þarna er máliö tekið fyrir á hin- um nýja grundvelli. Það er ekkí strokuþræll, undirgefinn róm- Göngum vi8 i krmgum . . , verskri löggjöf, sem Páll er aS senda með bréf til Filemons í Kolossu. Það er bróöir Filemons og staðgengill sjálfs postulans. Það sama, sem mundi koma fram viS Pál, ef hann væri á ferð í Kolossu, á nú aö koma fram við þennan bróður. Páll gerir ráð fyrir, aS þrællinn kunni að vera í skuld viS húsbónda sinn, — hreint ekki ó- mgulegt, að hann hafi stolið ein- hverju frá honum, þegar hann hvarf á brott, þó aö fínt sé fariS í sakirnar. En það eru fleiri skuld- ugir en Ónesímus. Hvernig er því farið með Filemon sjálfan? Er hann ekki í skuld? Hverjum er það að þakka, að hann er oröinn þaö, sem hann er? Er ekki hugsanlegt, að jafnvel grískur efnamaður og góður borgari í Kólossu haxi ein- hvern tírna staðið frammi fyrir herra sinum líkt staddur og aumui’ strokuþræll, sem einskis þarfnaöist fremur en frelsis? Og hvílík var þá skuld hans viö postulann, sem & sínum tírna hafði boðað honuœ fagnaöarerindi kærleikans, sátt við Guö, og elsku til mannanna? Og nú er þaö sá sami postuli, sem býðst til aö borga reikninginn fyrir Ónesímus, ef hann verði l.rafinn um eitthvert lítilræöi, tekiö í heim- ildarleysi. Bréfritarinn lætur við- takanda sjálfan eftir aö draga sín- ar ályktanir. Niöurstaðan er ofur blátt áfram þessi, að bæði hús- bóndinn og þrællinn standa ná- kvæmlega í sams konar sporum gagnvart postulanum. Og lok; bregöur Páll enn einu sinni yfir í einskonar orðaleik: „Unn mér gagns af þér vegna Di’ottins“, segir hann. Gríska sögnin, sem þarna er notuö, er oninemi, að hafa gagn af. Hún er af sama stofni og nafn Onesímusar. Það er eins og Páll vilji segja: Já, bróðir, vertu mér nú sjálfur sannur Onesímus, —< reynztu mér nú eins og Ónesímus

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.