Alþýðublaðið - 24.12.1945, Side 47

Alþýðublaðið - 24.12.1945, Side 47
Jólablað Alþýðublaðsins »n——n »nn—bb« 47 stöðu'gt brimrót, — hversu gott sem veðrið kann að vera. Skip franna bar að hálendri eyju. Helgisagan nefnir ekki, hvar írarnir gengu á land. En á norður- strönd Selju er staður, sem nú heitir Hællmiarvika, — í gö.mlum skjölum Heilagramannavík. Það er lítil .vík sem sjórinn gengur inn í aðeins við flóð. Ekki er ólíklegt, að einmi.tt þarna hafi Sunneva valið sér landgöngustað. Helgisagnir um St. Brandanus og hinar æfintýra- legu sjóferðir hans, — sem skráðar eru á norsku, einhvern tíma á þrettándu öld, — segja frá eyjum einhvers staðar úti í hafi, þar sem St. Brandan O'g fylgdarlið hans hitti hunda, er stigiið var á land, sem vísuðu þeim leið til móttökuhallar einnar, þar sem biðu tilreidd borð með matföngum. Síðan kom St. Brandan til evja, þar sem trén virtust hvít, sokum þess, að á greinum þeirra sat rnergð hvítra fugla, sem allir voru himneskir sendiboðar. Ekki var Selja jafn aðlaðandi eyja sem þessar, en á þessum tíima var hún ekki eins igróðurrýr og hún er nú. Þar hefur áður verið fagur skógur, nóg af fersku vatni, fiskur í sjónum umhverfis og mergð fugla við ströndina. Hinir írsku einbúar, sem' snemma á miðöldum tóku sér ból á ýmisurn eyjuim, hvarvetna um Atlantshaf, allt norður til Færeyja og íslands, höfðu víða við krappari kjör að búa en þau í Selju. Á vesturströnd Selju, þar sem brattir hamirar liggja svo að segja frarn að sjónuim, — en örlí.til grasrönd er miilli þeirra og fjörunnai, — voru stórir hellar. Sunneva og fylgdarlið hennar settist að í þessum hellum. Og þar dvaldi þetta fólk uim langan aldur, segir sagan, og þjónaði guði í auðmýkt og með hvers konar mein- lætalifnaði. Á þessum tíma voru engir íbúar fyrir á Selju, en bæirnir á Statt og meðfram Moldefirði notuðu eyj- arnar á flóanum sem beitilönd fyrir hesta og fé. Þégar fólkið varð vart við það, að ókunnugir höfðu tekið sér bólfestu á Selju, hélt það, að þar væru ráns- menn á ferð sem ætluðu sér að lifa á fénu, sem var í eynni. Skilaboðum var því komið til Hákonar jarls þess efnis, að víkingar væru komnir til Selju, og þeir hefðu ger.t stórskaða á sauðfé, sem þar væri, —- því um leið og bændurnir urðu hræddir um fé sitt, gengu þeir út frá því sem vísu, að rán víkinganna myndi hafa ill áhrif á gjörvallan búskapinn í byggð- inini. Jarlinn kom á vettvang, vopnum búinn, eins og hann væri að leggja til orruistu gegn erlendum víkingum, og sigldi þegar til Selju til þess að hafa hendur í hári víkinganna. Síðan stendur í sögunni eftirfarandi: ,,En þegar hinir góðu guðs vinir á eynni sáu þá koma, þóttust þeir vita, að nú myndi á þá ráðizt. Þeir gengu inn í hella sína og báðu almáttugan guð um, að hann vildi 'gefa sálum þeirra eilífa sælu, hvernig sem dauða þeirra annars bæri að höndum, og einnig báðu þeir guð úm, að þeir hlytu greftrun, svo að heiðingj- arnir færu ei höndum um lík þeirra.“ — Hvern- ig varð. svo dauðdagi þeirra? — Það voru menn og kon- ur og smá- börn í hópn- um. Þetta fólk, sem hafði gefið sig Atlants- hafinu á vald, var ekki hrætt við dauðann, en það var hrætt við það, sem- vitað var að myndi eiga sér stað áöur en dauöinn sjálfur kæroi, ef bað félli í hendur heið- ingjunum. Hver er viss um að þola það, að sjá illa farið með ■konu sína, systur eða dóttur? Er nokkur móðir viss um að geta verndað og viðhaldið trú sinni á guð, ef hún sér vonda menn misþyrma barninu sínu? Gat jómfrú Sunneva treysti drottni til að láta allt snúast einmitt á betra veg? En hvernig sem því annars var varið, — fólkið bað guð um áð veita sér kristilegt andlát, ,;hvernig svo sem það bæri að hönd'um", og að líkamir þeirra féllu ekki í hendur stríðsmanna Hákonar jarls, hvorki lífs nédiðnir. í sömu svipan féll grjótskriða fyrir hellismunn- ann og enginn komst út eða inn. Menn Hákonar jarls gengu á land, en þeir fundu enga sál á_ eynni. Nú leið skammur tíimi. Þá er það, að tveir stór- bændur úr Firðafylki sigldiu til Þránd'heims og og ætl uðu á fund Hlaðajarls. Þeir sigldu norður með strönd inni. Og nótt eina, er þeir héldu kyrru fyrif skammt utan við Selju, sáu þeir undarlegan bjarrna yfir eynni. Svo virtist sem hann kæmi frá himn,um, og lýsti á sjóinn. Sognverjarnir tóku báit og réru í land, — og þar sem ljósið hafði fallið á ströndina, lá haus-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.