Vísir - 30.04.1933, Qupperneq 18
VÍSIR
fyrir hendi, blómgast og dafn-
að vonum framar í ýmsum
iðjugreinum. Er það óblandið
gleðiefni öllum þeim, sem
unna vexti og viðgangi inn-
lendrar efnahagsstarfsemi, og
hvatning fyrir þá, er brotið
hafa isinn. Þó að markmiðið
hjá oss geti ekki, af nefndum
ástæðum, verið stóriðja, þrátt
fyrir það, að landið á nægan
orkuauð í vatnsföllum sínum
til þess háttar iðjustarfsemi,
eru ekki síður þess vegna næg-
ar ástæður fyrir hendi, að
vinna öllum árum að eflingu
þess iðjureksturs, sem á hér
lífvænlegan jarðveg, ekki sist,
þar sem hinn erlendi markað-
ur bregst nú fyrir margt af út-
flutnmgsvörum þjóðarinnar.
Nú er hér, sem betur fer,
vaknaður almennur skilning-
ur á þessum hlutum, og er þvi
alls hins besta að vænta í því
efni á komandi tímum. Hlutverk
neytendanna, velvild þeirra og
viðskiftalegur stuðningur til
hinnar innlendu framleiðslu
er jafnvel eins veigamikið fyr-
ir framtíðarþroska hinnar
innlendu iðju, eins og starf
sjálfra framleiðendanna. En
framleiðendurnir mega sist af
öllu misnota þessa velvild og
þjóðernislegu samúð með því
að láta nokkurs ófreistað um
vöndun varanna, því að ekki
her að gleyma, að á þeim þing-
um, sem nefnast markaðsvið-
skifti, ræður þó hinn frjálsi
atkvæðisréttur kaupeyrisins
mestu um úrslitin.
Eg ætla ekki að lýsa hér
frekara iðnaði og iðju Islands
á vorum dögum. Öllum, sem
komnir eru til vits og ára er
liún kunn í höfuðatriðum. Um
þróun og núverandi fyrirkomu-
lag hinna einstöku fyrirtækja
fræðir auk þess þetta blað í
ríkum mæli, bæði í máli og
myndum. Hvergi gefst betra
tækifæri til að kynnast frá-
gangi og fjölbreytni hinnar ís-
lensku iðnaðar- og iðjufram-
leiðslu en á sýningu þeirri,
sem nú liefir verið stofnað til
með mikilli kostgæfni. Þarf
ekki að efa, að allir, sem hafa
áhuga fyrir framleiðslu og
viðskiftastarfsemi, fylgist vel
með öllu því, sem þar er að
sjá, éf þeir eiga þess kost, og
þá liafa allir aðiljar náð hin-
um rétta tilgangi.
Ritfregn.
Búnaðarsamband Vestfjarða.
Tuttugu og firrun ára starf.
Þetta er allmyndarlegt rit,
gefið út, eins og nafnið segir
til um, i tilefni af 25 ára af-
mæli sambandsins. Efni ritsins
er þetta: Búnaðarsamhand
Vestfjarða 1907—1932. Erindi
flutt af Sigurði Sigurðssyni
ljúnaðarmálastjóra á 25 ára
minningarsamkomu sambands-
ins 7. maí 1932. — Búnaðar-
samband Vestfjarða 1907—
1932. Eftir Kristinn Guðlaugs-
son. — Landbúnaður á Vest-
fjörðum. 25 ára yfirlit. Eftir
Kristján Jónsson frá Garðs-
I stöðum. „Skrúður“, eftir síra
Sigtr. Guðlaugsson. Tvær stefn-
ur. Eftir Hannes Jónsson dýra-
lækni. — Ennfremur skýrslur
og reikningar og félagaskrá.
' í grein sinni bendir Sigurð-
ur búnaðarmálastjóri á það,
að Vestfirðir hafi mátt heita
óræktaðir fram að síðustu
aldamótum. Frá landnámstíð
hafi menn lifað af þeim gæð-
um, sem landið hafi haft að
bjóða, bæði í þessum fjórðungi
landsins og öðrum, en nú hafi
þetta eigi lengur dugað, ný-
yrkju og aukinni ræktun hefði
þurft að ryðja braut. Þetta
hefði stofnendur samhandsins
séð. Og hver er svo árangurinn
af starfi sambandsins og Vest-
firðinga á þessum 25 árum?
S. S. bendir á það, að árin
1905—1907 hafi að meðaltali
verið unnin 6699 dagsverk, en
árin 1929—1931 66680 dags-
verk. „Fyrsta búnaðarfélag á
Vestfjörðum var stofnað 1882.
Nú eru þau 33 talsins. Fram
að 1908 hafa þau unnið 67141
dagsverk, en frá 1907—1931
450018 dagsv., samtals 517159
dagsverk." — „Töðuaflinn var
á Vestfjörðum 1905—1907 að
meðaltali árlega 48954 hestar,
en 1928—1930 að meðaltali
93537 hestar. Útheysaflinn var
1905—07 121813 hestar, en 1928
—30 97739 hestar. Jarðepla-
uppskeran var 1905—07 að
meðaltali árlega 1016 tn., en
1928—30 2505 tn., rófnaupp-
skeran 1905—07 341 tn., en
1928—30 1234 tn.“
Þá er einnig fróðlegt að at-
liuga búpeningseign Vestfirð-
inga. Hún var sem hér segir:
Tala sauðfénaðar var að með-
altali árlega 1905—07 53779,
en 1928 70768, nautpenings
2455 1905—07, en 2556 1928—
30, hrossa að meðaltali árlega
1905—07 3050, en 1928—30
2967. Árin 1905—07 var ekkert
geitfé á Vestfjörðum, en að
meðaltali árlega 1928—30 255.
Hæns eru heldur ekki talin
1905—07, en 1928—30 að með-
altali árlega 3735. —
Greinarhöf. bendir á að töl-
ur þessar sýni að á þessum ár-
um hefir mikið verið unnið að
nýyrkju á Vestfjörðum, að
„jarðargróður hefir aukist um
meira en lielming og sauðfé
fjölgað að verulegum mun.“
Hins vegar megi ætla, að þeim,
sein að búnaði vinna, hafi
fækkað. Hina auknu framþró-
un megi að miklu leyti þakka
Búnaðarsambandi Vestfjarða.
Þvi næst ræðir greinarhöf. um
framtíðarstörfin, verkefnin
sem biða, og er sem vænta má
hjartsýnn um framtíð sam-
bandsins og Vestfjarða. — Rit-
gerð Kristins Guðlaugssonar
er ítarlegt yfirlit yfir sögu
sambandsins, fróðlegt og vel
skrifað. Sýnir yfirlit þetta
glögglega hve viðtæk starfsemi j
sambandsins hefir verið. Grein
Kristjáns Jónssonar um land-
búnað á Vestfjörðum er og
næsta fróðlegt yfirlit. — Þá er
skemtileg frásögn um „Skrúð“,
gróðrarreitinn fræga, sem síra
Sigtrj'ggur Guðlaugsson kom
upp á Núpi i Stekkjarlág svo
kallaðri, „ofurlitlu hvolfi und-
ir Núpnum i minni Núpsdals,
ca. V-2. km. frá bænum.“ Var
undirbúningsstarfið erfitt og
reitnum gefið nefnið „Skrúð-
ur“ þ. 9. ágúst 1905, en þann
dag munu hafa verið rétt 150
ár frá því fyrst voru gróður-
settar kartöflur i íslenskri
mold. Tilgangurinn var að
„sjá og sýna hvað þrifist gæti
af nytsemdar og fegurðar-
gróðri i vestfirski jörð, er
brugðið hefir verið um órækt-
areðli. Og þessi hugsun styrkt-
ist, er jafnframt tókst að koma
upp skólakenslu á staðnum.
Skyldi þá ræktun reits þessa
vera ein grein skólastarfsem-
innar, nemendum til lærdóms,
nota og gleði. Var nokkur ár
sá háttur upp tekinn (1910—
1914) að skólanemendur þeir,
er vildu, gróðursettu þar hver
eina trjáplöntu, sér til minn-
ingar. Eru um 50 reynitré i
reitnum, er þannig hera nöfn
nemenda skólans.“ Hæstu
reynitrén í reitnum eru nú 4—
5 metrar. Gulviðir er nokkru
.lægri. Af öðrum tegundum
má nefna: Skandinaviskan
reyni, barrfelli, furu, hlyn,
eplatré, runnategundir ýmsar,
en björk var ekki gróðursett
fyrr en 1926. Þrífst hún sæmi-
lega. — 1 reitnum er mikið af
aðfegnum íslenskum jurtum
og nokkuð af erlendum blóm-
jurlum. Fyrir 2 árum var byrj-
að sá heimafengnu fræi til
reyniviðar. Hafa þær plöntur
lifað sæmilega til þessa. Sum-
arið 1915 voru lagðar vatns-
pipur i reitinn og i sambandi
við þær steyptur dálitill gos-
brunnur. Reiturinn er nú 2000
ferm. Ennfremur er gróðrar-
hús úr steyptum steini og gleri
i reitnum, og loks má geta
þess, að talsvert af steina og
bergtegundum, er safnað liefir
verið sýnishornum af, er
geymt í Skrúð. — Er það
Núpsskólanum vissulega mik-
ill fengur, að eiga þennan
fagra reit. Munu Vestfirðingar
láta sér ant um hann, þvi að
þótt margt hafi verið gert til
framfara og aukinnar menn-
ingar á Vestfjörðum seinustu
25—30 árin, þá er þarna að
finna einhvern fegursta vott-
inn af slíkum störfum þar í
fjörðunum. a.
IIIIIIHIHIIIIIIIIIIIIIIII........
Skipa.smida.stöd Rcykjavikur
Símar: 1076 - 4076.
Magnús Guðmundsson
Símnefni: Skipasmíðastöd.
Byggjum eins og að undanförnu allar stærðir af mótor-
skipum og bátum til fiskveiða og siglinga.
Útgerðarmenn og sjómenn! Kaupið skip bygð af oss, þau
eru hvað styrkleika, lag og útbúnað snertir bygð fyrir sjó og
veðurlag kring um strendur íslands. Vér bygggjum úr eik,
fyrstu tegund, byrðingur úr löngum lengdum; spörum ekki
eikina í ínnviðina eða undirbyggingu fyrir vélarnar og annan
útbúnað skipanna.
Vér vitum hvernig skip fyrir ísienska sjómenn
Jurfa að vera, eftir 25 ára reynslu í skipasmiði.
Látið eigi umboðsmenn fyrir útlendar skipasmíðastöðvar
telja yður á að kaupa ótraust og léleg skip, sem eru bygð
þannig, að þau einungis líta vel út, en vantar styrkleika, þrátt
fyrir það, þótt skipin séu styrkt eftir að þau koma hingað til
lands, verða þau aldrei eins traust, eins og ef þau hefðu verið
hygð vel í fyrstu.
Munið eftir, að vér erum ávalt reiðubúnir að taka skip
yðar á land til hreinsunar og viðgerðar, og að þér fáið hvergi
fljótari afgreiðslu, hvergi betur unnið og hvergi ódýrari við-
gerð en hjá oss.
Skipavagn (slippur) vor er 120 fet á lengd, knúinn raf-
magni og er því ávalt til taks.
Vér höfum skipauppsátur og viðgerðir í Hafnarfirði..
Vér höfum ávalt alt efni til viðgerða fyrirliggjandi og
kaupum og seljum ekki nema fyrsta flokks vörur.
Talið við oss.
Komi það fyrir, að skip yðar sökkvi eða strandi, munum
vér, eins og reynslan hefir sýnt, ekki vera lengi að sækja það,
ef það er annars liægt og gera það sjófært aftur, ef þér snúið
yður til vor í tæka tíð.
Látið oss byggja skip yðar. Látið oss gera við skip yðar.
mm.:
vor í/íertihu jkip
% ■ '-'4%' **'i'f
■: ,■' 'Á
'
'ndzvs
'
►í?
' ' !
■
Látið oss hreinsa og mála skip yðar, það eykur öryggi á sjóferðum yðar.
Virðingarfylst,
Mag'nús Gnðmnndsson.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIHI......IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIHIIIIIIII