Vísir - 30.04.1933, Blaðsíða 75

Vísir - 30.04.1933, Blaðsíða 75
VtSIR 30. aprfl 1933. Hafnarstrseli 19 Helgi Magiuússom & co. 8TOFN8ETT 1907 Stærsta «g elsta miðsíöðvartækja- <>g byggingavöruverslun á íslandi Meíir ávalt fyrirliggjandi: MiðstödvarRitunartækl og alt til þeirra, Eldfæri allskonar, Þvottapotta, Eldfastan stein og leir, V atnsleiðslutæki, Hreinlætistæki allskonar, Gasvélar, Eternit, emaill. asbestplötur, Þakjárn, Slétt járn, Þaksaum, Þakpappa, Gólfdúka, Filtpappa, Eátúnsbryddingar o. fi. o. fi. Leitið tilboda hjá okkur áður en þér í’estiö kaup á byggingarvörum annars staöar, því enginn getur boðiö hagkvæmara verö en viö. Meðal annara orða. I. Síðan er kreppan slcall yfir og fjárliagsvandræðin komust i algleyming,' hefir mikið verið um það rætt og ritað, að þjóð- in ætti að búa sem mest að sínu. Stjórnarvöldin hafa leiðst út i þá heimsku, að takmarka og banna nauðsynlega vöru- flutninga til landsins, en leyft hinn versta óþarfa og skaðleg- asta, svo sem áfengi. Hefir ver- ið fvrir því séð með miklum dugnaði, að jafnan væri til nóg áfengi í landinu, svo að menn gæti verið blindfullir dag hvern, þeir er til þess hefði löngun. Þegar verkamenn í kaupstöð- um úti um landið hafa viljað liliðra sér lijá því, að afgreiða skip, sem flytti áfengisbirgðir handa áfengisholum ríkisins í bæjunum, hefir verið gripið til þess ráðs, að flytja áfengið í pósti. Voru að sögn smiðaðir mörg hundruð kassar í þessu skyni, búið um vinflöskur í þeim og öllu dembt í póst. í sumum ferðum Esju höfðu þessir áfengis-„póstkassar“ skift nokkurum hundruðum. Má öilum ljóst vera, af þvi sem nú var mælt, að stjórnar- völdunum muni liafa þótt miklu slcifta, að landslýðurinn gæti verið „samkvæmishæfur“, þ. e. slompfullur, nótt og dag og all- an ársins liring. Þá hefir og tóbak verið flutt til landsins hindrunarlaust. — Menn munu ekki vilja fallast á það, að tóbak sé beinlinis nauð- synjavara, þó að margir eigi bágt með að vera án þess, en stjórnarvöldunum hefir vafa- laust þótt nauðsynlegra, að til væri í landinu mikið af allskon- ar tóbaksvörum, heldur en nýj- um og niðursoðnum ávöxtum, en þeir eru taldir meira og minna nauðsynlegir öllum mönnum og ómissandi sjúkra- fæða. Eln meðan þessu fer fram — meðan rutt er inn í landið slór- lcostlegum birgðum af tóbaki og áfengum drykkjum — er skorað á þjóð og einstakling, að búa sem mest að sínu. Hjá því getur ekki farið, að ýmsum detti i hug, að þær áskoranir sé fram bornar af lit- illi einlægni og alvöru, meðan hrúgað er inn i landið tak- markalaust hinum allra verslu og skaðlegustu vörum. II. Enginn vafi getur á því leik- ið, að þjóðinni sé holt og hag- kvæmt að búa sem mest að sínu. — Þrátt fyrir þau augljósu sanhindi, hefir stefna hinna „leiðandi manna“ yfirleitt ver- ið sú síðustu áratugina, að venja fólkið af því, að „búa að sínu.“ Okkur hefir verið sagt, að við yrðum að semja okkur að sið- um annara þjóða í flestum eða öllum efnum. Annars kostar gætum við ekki talist menning- arþjóð. Það er, alveg rétt, að við getum margt og mikið lært af framandi þjóðum, en ekki er sjálfsagt að gleypa við öllu er- lendu hugsunarlaust og rann- sóknarlaust, og fleygja fyrir borð fornum venjum íslensk- um, þjóðsiðum í þúsund ár. Nú er svo komið, fyrir for- tölur „umbótamannanna“, þ. e. þeirra manna, sem öllu vilja umturna i hugsunarleysi, að ís- lenskir bændur geta ekki sætt sig við, að nota húsdýraáburð á túnin sín. Þeim þykir ekki spretta nógu vel undan honum. Þeir ætti þó að vita, að hvert einasta tún á Islandi, sem nokk- ur sómi hefir verið sýndur, hef- ir sprottið og sprettur prýðilega undan innlendum áburði. Þetta sannar þúsund ára reynsla. — Hitt er annað mál, að mörg tún hafa sprottið illa, svo langt aft- ur í tímann, sem munað verð- ur. Og hver er orsökin? — Hún er langoftast eða æfinlega sú, , að túnin hafa ekki fengið nægi- legan áburð. — Það er eftir- teklarvert og hlýtur að vekja athygli aðgætinna manna, að víðast hvar, þar sem túnin spretta lakast undan innlendum áburði, er mest af ónotuðum mykjuhaugum, hesthúshaug- um og öskuhaugum, sem safn- ast hafa sanian og vaxið ár frá ári. Menn hafa ekki hirt um að bera á túnin, en lát- ið áburðarhaugana safnast sanian og liggja ónotaða fyrir dyrum allra eða flestra penings- húsa. — Svona hefir þetta geng- ið. Haugarnir hafa vaxið jafnt og þétt, en túnin verið í hálf- gerðri órækt. Og bændurnir hafa bölvað „harðbalanum“, sem beið eftir áburðinum úr mykju-dyngjunni heima við fjósdyrnar, og þúfunum, sem biðu þess öld eftir öld, að mannsliöndin breytti þeim í kafloðna sléttu. Svo kom útlendi áburðurinn til sögunnar. Bændum var sagt, að nú væri um að gera að breyta til. Það væri margsannað er- lendis, að þessi blessaði áburð- ur væri öldungis ómissandi. Fyrirhöfnin væri svo sem eng- in. Áburðinum væri bara stráð á jörðina og samstundis að kalla þyti grasið upp, grænt og fag- urt og mikið. Þetta væri eitt- hvað annað en mykjan og all- ur þessi kotungs-áburður, sem bændurnir hefði verið að basla við í þúsund ár. — Það væri líka einhver munur, að geta losnað að mestu við alt það mikla erfiði, sem fylgdi hinum innlenda og ómerkilega áburði. Nú þyrfti enginn að standa í þvi framar, ef rétt væri að far- ið, að „aka skarni á hóla“, eins og Njáll gamli á Bergþórshvoli liefði gert forðum og síðan all- ir bændur, alt til þessa dags. — Og nú þyrfti menn ekki að vera að liugsa um taðkvarnir eða annað þess háttar, eða þá að vera að standa í því dag efth dag, að „hreinsa túnið“.og bera af því „afrakið“ — eins og það hefði nú lika verið skemtilegt. — Eiginlega væri hreinasta furða, hvernig alt hefði baslast af í þúsund ár, án hins bless- aða, útlenda áburðar. Og nú væri um að gera, að lcaupa sem allra-allra mest af þessum áburði. Það margborg- aði sig í bráð og lengd og eng- inn gæti sagt með vissu, livílik blessan hlytist af þessari miklu breytingu. — En hún yrði áreið- anlega mikil og sennilega miklu meiri, en nokkurn bónda gæti grunað nú þegar. III. Og bændurnir pöntuðu áburð- inn. Túnin spruttu vel, en jarð- vegurinn fékk enga næringu til frambúðar. Þarna var algerlega „tjaldað til einnar nætur“. — Húsdýraáburðurinn ræktar jörðina, gerir hana hæfa til þess, að spretta ár eftir ár, jafn- vel áratugum saman, þó að engu sé við áburðinn aukið. Það sýna túnkragarnir umliverfis býlin, sem í eyði hafa farið. — Þessi eyðitún eru sigræn ár eft- ir ár, þó að þeim sé enginn sómi sýndur. Mörgum áratugum eft- ir að kotin eru komin i eyði og túnin vitanlega með öllu áburðarlaus, er munurinn auð- sær. Þau grænka fyr að vorinu, en annað land, og verða oft furðu loðin, löngu eftir að hælt er að bera á þau. Þetta sýnir, hversu mjög hinn innlendi áburður bætir jarðveginn í raun og veru. Þar er ekki tjaldað til einnar nætur. íslenska moldin launar allan þann sóma, sem henni er sýndur — launar hann vel og lengi, þegar notuð eru innlend áburðarefni. Þá lieimt- ar hún ekki „borgun út í hönd“, ef svo mætti að orði komast. Tilbúinn, erlendur áburður er annars eðlis. Hann bætir ekki jarðveginn, hvorki hér né ann- ars staðar. — Grasið þýtur upp undan honum' i ár, en næsta vor er jörðin jafn dauð og ónýt, eins og aldrei hefði verið á hana borið. — Þar verður ekki „ilm- ur úr grasi“ að sumri, sem út- Iendum áburði er ausið á jörð- ina í vor, nema leikurinn sé endurtekinn með miklum kostnaði. Þar myndast engar fyrningar. Tilbúinn áburður er augnabliks grasgjafi, rándýr og ef til vill ekki allskostar hættu- laus. Stórfé, sjálfsagt svo miljón- um króna skiftir, hefir farið út úr landinu fyrir útlendan áburð. Þeim peningum hefði verið bet- ur varið til einhvers annars. Hér verður ekki út í það far- 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.