Vísir - 30.04.1933, Page 38
VtSIR
\
á því láni aS fagna, að hafa nm mörg nndanfarin
ár, ekki einasfa att eina ísi nska vlkn, meðai landS'
nianna, lieldur hefir jiað árlega átt:
52 íslenskar
og væntir að svo megi verða um langan ókominn tíma.
SIRIUS- gosdryklcip, sódavatn,
líkjöpar, 5 teg., saft eru alt jijóðkunnir
drykkir, sem ávalt ná meiri og meiri
vinsældum neytenda. —
íslenskn vikuna drekka menn því annað hvort EQILS-ÖL eða SIRIUS-DRYKKI.
H.f. Ölpröio Egill Skallagrímsson
ReykjaYík,
Sími: 1390*
i
mikil, og fyrir atbeina hennar lagð-
ist grundvöllurinn undir þá miklu
sjótSi, er félagiö á nú, er nema
alls um 640 þús. króna. — 1930
keypti félagið verslttnina Liverpool,
og hóf þásmásöluverslun.ogerhún
í tveim deildum, matvörudeild og
búsáhalda- og glervörudeild.
Kornmylna Mjólkurfélagsins
var stofnsett 1927 í vörugeymslu-
húsi féiagsins viö Vatnsstíg, ert
stórum aukin og fullkomnuö 1930,
er hiö mikla hús féiagsins við
Hafnarstræti.Grófina ogTvvggva-
götu var bygt. Fékk félagi'5 þá
einnig véiar til þess aö mala oltu-
f kökur og aðrar til þess að blanda
fóöurvörur. Framleiöslan hefir
aukist ár frá árí og eru nú mala'ð-
ar þar um 1600 smálestir af korn-
vöru. Fóðurvélarnar blanda nú um
1000 smál. á ári.
Mjólkurfélagið hefir einnig haf-
iö vísi aö efnagerö sem eflaust
á sér framtíð t höndum þess. Sem
iöjustarfsemi félagsins má einnig
geta þess, aö úr mjólk þeirri, sem
afgangs veriSur sölu til neytenda,
vinnur þatS skyr og smjör, sem
hvorttveggja er viðurkent .fvrtr
gætSi.
Stjórnandi félagsins er Eyjólfur
Jóhannsson. Hefir hann sýnt frá-
bæran dugna’5 og fyrirhyggju t
starfi sínu. Fasta starfsmenn hef-
ir félagið á annaö hundraö.
Hf. Sjóklæðagerð íslands
er stofnuö í ársbyrjun 1929, í
þeirri mynd sem hún er nú. Til-
drögin aö þeirri starfsemi vorti
þau, að Hans Kristjánssonfékkdá-
lítinn styrk til þess að kynna sér
sjóklæðagerð erlendis 1923—1924.
Byrjaði hann þá þegar á þessari
starfsemi í litlum húsakynnum við
Höfn í Reykjavík; fluttist þó
bráölega þaðan suður að Skild-
inganesi, þar sem Sjóklæðagerðin
er nú. Upp úr þessari ófullkomnu
byrjun hefir vaxið h.f. Sjóklæða-
gerð íslands, sem er orðið allvold-
ugt fyrirtæki. Framíeiðslan hefir
Jón Þórðarson.
farið stöbugt vaxandi, enda hefir
varan Iíkað vel, reynst fullkom-
lega samkepnisfær við erlenda
vöru, bæði hvað verð og þá ekki
síður hvað gæði snet;tir. Vinna
þar nú um 35 manns. F.r alt útlit
fyrir að Sjóklæðagerðin muni
bráðlega geta fullnægt þörfum
landsmanna í þessari grein. For-
stjórar eru: Hans Kristjánsson,
Hans Kristjánsson.
fæddur 1891 í Súgandafirði. Var
hann frumkvöðull að því að þessi
starfsemi hófst hér, eins og áður
er drepið á. Jón ÞórÖarsön, fæddur
1893 á Auðúlfsstöðum í Húna-
vatnssýslu. Var við verslun á
Sauðárkróki fram að tvítugu, þá
nokkur ár i Ameríku og hefir svo
starfað hér við kaupsýslu,
Mjólkurbú Flóamanna
Þann 5. desember 1927 stofnuðu
bændur úr Flóanum og íleiri sveit-
um þar eystra félag með sér, til
þess að reka mjólkurbú. BúiS tók
}>ó ekki til starfa fyr en 5. des.
1929. Var þá fenginn danskur sér-
fræðingur, Carl Jörgensen (f. árið
1900), til þess að veita búinu for-
stöðu. Með stofnun og starfrækslu
Carl Jörgensen.
mjólkurbús þessa var bætt úr brýnni
þörf bænda þarna eystra, til ]>ess
að koma mjólkurframleiðslunni í
verð. Má best marka það af því,
að búið tekur nú við ca. 6000 Iítr-
um. af mjólk á dag til jafnaðar,
vann á síðastliðnu ári úr 1.800.000
kg. mjólkur og framleiddi 30 tonn
af smjöri og 65 tonn af osti. Er
það rúmlega helmingi meiri fram-
leiðsla en fyrsta árið, sem búið
starfaði. Framleiðsluvörur búsins
(aðallega smjör og ostur) þykja á-
gætar; einktun eru ostar þess orðn-
ir þekktir fyrir gæði. Mun þess
fráleitt langt að biða, að vörur þessa
bús og annara góðra mjólkurbúa
útrými algerlega útlenduin vör-
um sömu tegundar, enda selur
það alla sína framleiðslu innan-
lands. Auk mjólkurvinslunnar rek-
ur búið svínarækt nokkura og hef-
ir hún gefist mjög vel, svínin dafn-
að ágætlega og gefið af sér mikið
cg gott kjöt, þó ekki séu þau þung
á fóðrunum. Kjötið er alt selt hér
i Reykjavík. Mjólkurbú Flóamanna
hefir 16 fasta starfsmenn, karla og
konur, í þjónustu sinni. Byggingar
þess eru hinar vönduðustu og vél-
ar allar af nýjustu gerð.
Guðmundur Grímsson,
húsgagnasmiður, Laugaveg 60.
Hann er fæddur 15. des. 1905, að
Gröf í Laugardal. Nítján ára gam-
all hóf ha'nn trésmíðanám hjá
Gunnari Stefánssyni húsgagnasmið
hér í bæ og var hjá honum öll
námsár sin. Árið 1928 lauk hann
sveinsprófi og tók þá við smíða-
Guðmundur Grxmsson.
stofu meistara sins og hefir rekið
hana síðan. Hefir honum farnast
vel og hefir nú að jafnaði 4 menn
í vinnu. Guðnmndur er þegar kom-
inn í gott álit sem húsgagnasmið-
ur, enda hefir hann ætið ærið nóg
að starfa í iðngrein sinni. Láta menn
hið besta yfir vinnu þeirri, er hann
leysir af hendi, enda er Guðm. hag-
ur vel og smekkvís.
Hjálmar Þorsteinsson
húsgagnasmíðameistari, er fædd-
ur 1886 að Hvarfi í Víðidal. Lærði
iðn sína hjá Sigurjóni Ólafssyni í
Reykjavík. Að námi loknu vann
hann sem sveinn á ýmsum vinnu-
'stofum, en stofnaði eigin húsgagna-
vinnustofu 1912, og hefir rekið
sjálfstæðan atvinnurekstur síðan.
Árið 1929 bygði hann hús mik-
ið fyrir atvinnurekstur sinn, við
Klapparstíg 28. Er unni'ð þar á 2
hæðum; á annari hæðinni er véla-
salur, þar sem eru 7 vélar af nýj-
ustu og fullkomnustu gerð, og á
hinni er aðeins framkvæmd sam-
setning húsgagna og önnur handa-
vinna; eru áhöld þar einnig hin
bestu. Flatarmál vinnusala er sam-
tals 262 fermetrar, og er því ein-
hver stærsta og fullkonmasta hús-
Hjálmar Þorsteinsson.
I
gagnavinnustofa landsins. Efnis-
birgðir eru í kjallara, og geymsla
fyrir húsgögn á 3. Iofti. Alt er hús-
ið upphitað og efniviður þurkaður
\áð miðstöðvarhitun. Um 30 starfs-
menn hafa unnið hjá vinnustofunni.
er flestir voru.
Smíðuð eru hverskonar húsgögn
úr ýmsum viðartegundum, einktim
harðvið; má sérstaklega benda á
samanskurð spóns á húsgögnum,
sem smekkvíst sérkenni vinnustof-
unnar. Auk þess er þar framkvæmd