Vísir - 30.04.1933, Side 67

Vísir - 30.04.1933, Side 67
vistr 30. apríl 1933. VfPZ í!PtT| ^lguu 'iat® sei4® ettttWMa- ' T ‘Nýjasta tlska. SÍÍOOOOtttííXííJOOÍÍtXSOOOÍiöC & Sumar- S ■ Kjóla- og Káputau, ð Peyaufatasilki, íj Svuntusilki, Alklæði* jJ Reiðfatatau. « P ÍOOOOOOCiöoOOOtÍtÍOCOtiOtiOtiOOOtiC h ' Morgunkjólatau, Náttföt, Silki- g náttkjólar, Skyrtur, Ullar- og p Silki-nærfatnaður, Ullar- og ;; Silki-sokkar, Sokkar, Kjólar, £? Kápur og hattar á börn m. m. fl. f 5 KitiotiooQooQOotxxxioaaoQOOQtiaciit Fullkomnasta gler- og vefnaðapvöruverslun landsins. Hin sívaxandi sala er besta sönnunin fyrir því að Edin- borgarvörurnar svara til þeirra eftirvæntinga sem menn hafa gert sér um ágæti þeirra. í GLERYÖRUDEILDINNI: Sérstakt úrval af Gler- vöru, Kristal, Alum. vörum, Email. vörum, Borðbún- aði og allskonar smávöru. LeggiO leið yðar nm Halnarstræti i Edinborg, gerið þér bestu innkaupin. r Til atliugunar. Eg heyri sagt, að Vísir eigi að koma út í gríðarstóru upp- lagi, nú þegar íslenska vikan hefst, og að hugsað sé til að senda hann út um alt land, bæði í kauptún og sveitir. Dett- ur mér þvi í hug, að biðja hann að flytja landsfólkinu eftirfar- andi línur, ef ske kynni, að þær gæti vakið einhverja til um- hugsunar og orðið að nokkuru gagni. Eg tel víst, að blöðin hafi oft vikið að liinu sama og hér verð- ur gert að umtalsefni, en „sjald- an er góð vísa of oft kveðin“, og sumir eru þeirrar skoðunar, að segja þurfi fólkinu sömu tíð- indin sjö sinnum, til þess að það trúi. Það, sem fyrir mér vakir, er að benda öllum almenningi á eina eða tvær fæðutegundir ís- lenskar, sem eg veit að eru holl- ar og góðar, en því miður neytt í miklu minna mæli, en æski- legt verður að teljast. Harðfiskur. Sú var tíðin, að Islendingar átu mikið af harðfiski og þótti gæðamatur. I ungdæmi þeirra manna, sem nú eru orðnir gamlir, var harðfiskurinn oft ein aðalfæðutegundin á mörg- um sveitaheimilum, að minsta kosti suma tíma árs. Var hvort- tveggja, að mikið var hert af fiski í veiðistöðvunum og selt upp í sveitirnar, og eins keyptu bændur oft nýjan fisk, fluttu heim til sín og hertu. -— Var svo harðfiskurinn borðaður daglega að kalla mátti, meðan birgðir entust, en þegar þær voru þrotnar, var farið til sjáv- arins af nýju og aflað meiri fiskjar. Sumir bændur fóru til kunningja sinna, sjómannanna, og fengu „að fljóta með“, sem kallað var, róður og róður, og höfðu aflann heim með sér. — Var þá sumt af aflanum salt- að og sumt herl, og þó oftast meiri hlutinn hertur, þar sem nóg matvæli voru í búi og ekki brýn nauðsyn, að grípa til fiskj- arins þegar i stað. Á þessum árum vissu menn ekki, að liarðfiskurinn er ein liin besta fæðutegund, að þvi er tekur til næringargildis. Hitt vissu allir, að fólkið þreifst vel af honum og að engum varð mein af harðfisksáti. Og gaml- an mann heyrði eg segja frá þvi (í ungdæmi mínu), að hann vorkendi engum að þrífast og halda holdum, sem fengi ný- mjólkursopa og harðfisksbita ltvölds og morguns, þó að hann fengi ekkert annað. — Hann sagðist ekki verða eins notalega saddur af neinu öðru. Og það væri nú svona með blessaðan harðfiskinn, að hann væri svo einstaklega fjörgandi. Menn yrði einhvern veginn svo fjör- ugir og „léttir í kroppnum“ af honum, sagði gamli maðurinn. Og það er líklega ekki fjarri lagi, að harðfiskurinn sé gædd- ur einhverjum fjörefnum eða bætiefnum, sem líkama manns- ins er betra að hafa en missa. En nú er harðfisksöldin þrot- in, að eg ekki nefni öld hertu þorskhausanna, sem mörgum þótti góðir á bragðið og gaman að glíma við. Eg gleymi því aldrei, hvað kinnfiskurinn var sætur, ef hausinn var mátulega hertur. Harðfiskurinn er þvi miður horfinn af borðum flestra sveitamanna — og kaupstaða- búa lika — og tennurnar í fólk- inu orðnar ónýtar. — Fjöldinn allur gengur nú með gervitenn- ur, en sumir eru tannlitlir eða tannlausir. Unglingarnir eru orðnir tannbilaðir fyrir ferm- ingu og altaf með tannpínu. Og altaf er verið að klastra við þessar skemdu „gemlur“, en loksins verður að taka öll brot- in, hreinsa til i gómunum og fá sér „falskan kjaft“. I mínu ungdæmi, fyrir svo sem 50—60 árum, voru flestir prýðilega tentir fram eftir öll- um aldri og fengu aldrei tann- pínu. Eg man eftir ltörlum og kerlingum um sjötugt, sem „liöfðu heilan munn“ og fundu aldrei til i tönnunum. Hvernig stóð á þessu? — Þetta gamla fólk átti enga tann- bursta eða neitt þess háttar og þvi datt ekki í hug að skola munninn, auk heldur meira, i þvi skyni að hreinsa tennurnar. Það „lét þær eiga sig“ og samt entust þær fram i háa elli. Mér dettur í hug, að harð- fisksátið kunni að hafa átt ein- hvern þátt í þessu. — Það er engum vafa bundið, að liarð- fiskurinn styrkir tennurnar og hreinsar þær um leið. Eg held það væri þjóðráð, að taka harðfisksátið upp af nýju. íslendingar ætti að herða miklu 1 meira af fiski en þeir gera, og þjóðin ætti að borða harðfisk miklu meira en hún gerir. — Hún mundi áreiðanlega græða á þvi — i meira en einum skiln- ingi. — Síld. Seint ætlar þjóðinni að lær- ast síldarátið. Hvað eftir annað hefir verið gerð gangsltör að því, að kenna fólki að matbúa síld, en árangurinn liefir orðið Crætid þcss að vörumerkið regnboginn í eðlilegum litum, sé á liverju boxi er þér kaupið og notið, þá eruð þér þess vissir að málning- in sé bestu tegundar og að íslensk framleidsla sé studd, því hún stendup fyllilega á borö viö erlenda framleiösln. Höfum ávalt til nægar birgðir af allskonar tegundum af máln- ingu svo og málningarverkfæri og iökk. „REfiNBOGINN“ MÍLNING&RVERSLDN (August Hákansson) Laugaveg 19 — Síml 4896 15

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.