Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 27

Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ooooo<xxxxxx>oooooooooooooooooooooooooooo Þegar teknar verða hjer upp almennar, nákvæmar hagfræði- legar athuganir á búrekstri manna, liggur beint við að stíga það skref, sem ekki verður um- flúið, að athuga gaumgæfilega hvaða sveitir lands vors sjeu í reyndinni bestar til búsældar á hinni upprennandi jarðræktar- öld, og hvaða afskektar sveitir sjeu betur til þess fallnar, að vera notaðar sem beitilönd ein- vörðungu. Dreifibygð landsins er víða úrelt jafnskjótt og jarð- ræktin er komin í viðunandi horf. Hún er til þess eins, að gera mönnum óeðlilega erfiðleika. Kveinstafir manna yfir því, að afdalir leggist í eyði, og fólk flýi fjallakot, eru algjörlega ó- rjettmætir, og bera vott um lít- inn skilning á kröfum og stefnu tímanna. • Eins og borgir sem ört vaxa, þurfa á skipulagi að halda, sem farið er eftir um langa framtíð, eins þarf sem fyrst að gera sjer grein fyrir, hvernig bygð sveit- anna verði sem best fyrir komið í framtíðinni, hvar leggja skuli mesta stund á stofnun nýbýla og með hverjum hætti, og hvai sje minna um vert þó bygð þverri. Jafnframt þarf að gera sjer grein fyrir því, hvernig bú- skapnum sje b st hagað í sveit hverri, hvar leggja eigi mesta stund á mjólkurafurðir til út- flutnings, og hvar og hvernig kjötframleiðslan eigi að vera að- al tekjugreinin. I allri forgöngu búnaðarmál- anna verða menn að hafa það hugfast, að þjóðin hefir að mestu fram til þessa alið hjer aldur sinn, án þess að leggja hönd á plóg. Að búskapur landsmanna hefir verið ránbú- skapur. Að bændur hafa mann fram af manni nytkað jarðir sínar án verulegrar ræktunar. Að menning íslenskra sveita hefir engin jarðræktarmenning verið. Að hin íslenska bænda- menning hefir frá fornu fari verið á þeim villigötum, að hún hefir alið upp þann hug, að ,,bókvit“, þekking, „verði ekki látin í askana“, komi bóndanum ekki að notum í atvinnurekstri hans. Forgöngumenn íslenskra bún- aðarmála verða á næstu árum að sameina jarðræktarmenn- ingu við ísl. sveitamenningu, gera jarðræktarstörfin, nýyrkj- una, að órjúfanlegum þætti í lífi hvers bónda. Og þeir verða að fá- í þjónustu sína íslenska vísindamenn, sem alúð leggja við að rannsaka skilyrði og framfaramöguleika ísl. land- búnaðar. Með aðstoð vísinda- legrar sjerþekkingar geta ísl. bændur lært að notfæra sjer gæði lands síns til fulls. Með vísindalega sjerþekkingu sjer við hlið, nema þeir landið að nýju. Filþing hið forna og íslensk menning. Eftir Sigurö Horöal prófessor. Þegar þess er gætt, að flest- allir meiri háttar menn þjóðar- innar og auk þess fjöldi annara manna, oft svo að þúsundum hefir skipt, riðu til Alþingis á hverju sumri, og sumir þeirra voru alt að sex vikum í ferðinni („úr Fljótsdal eru 17 dagleiðir á Þingvöll“, segir í Hrafnkels sögu), — þá liggur í augum uppi, hvílíkur meginþáttur þing- ið forna var í lífi íslendinga. Það var ekki einungis löggjafarsam- Sigurður Nordal. koma og dómþing, heldur líka þjóðfundur, þjóðhátíð og þjóðhá- skóli. Þó að uppsaga og rétting laganna, málaferli og dómstörf, væri umgerð og þungamiðja þingsins, fór því fjarri, að allir væri önnum kafnir við þau störf, enda var nógu öðru að sinna. Höfðingjar sóttu hverir aðra að máli til liðsbóna og ráðagerða. Þeir gengu á einmæli út í hraun, upp í Almannagjá, upp á efri gjárbrún. Þeir sátu að drykkju í búðum sínum við spakleg öl- mál og gamanrúnir. Þeir gátu orðið aldavinir, þó að þeir sæj- ust aldrei nema á Alþingi. Ung- ar höfðingjadætur fjölmentu til þingsins, sátu á palli í búðum feðra sinna og biðu biðla, eða gengu í flokkum urrii þingstað- inn, hlustuðu á tölur manna eða horfðu á leika. Ungir menn þreyttu með sjer íþróttir. Var metnaður mikill milli fjórðunga og leikamir sóttir af kappi. „Það gerist eitt sumar á alþingi, að í Fangabrekku gengust menn að sveitum, Norðlendingar og Vestfirðingar“, segir í Víga- Glúms sögu. Fróðir menn spurð- ust frjetta og báru sig saman um sögur og ættvísi. Var varla sá fróðleikur um íslensk efni, er eigi mátti nema þar sem slíkt mannval var saman komið. En íregnir utan úr löndum brast heldur ekki. Þingið var einmitt á þeim tíma, sem sigling var mest til landsins, og skamt til þing- staðarins frá sumum helstu lend- ingarstöðum farmanna, Eyrum og höfnunum við Faxaflóa. Á þinginu var hinn besti kostur fyrir þá menn, sem utan höfðu farið, að hitta frændur og vini, segja frá frama sínum og af- rekum og sýna skartklæði þau og góða gripi, er þeir höfðu eign ast í utanförinni. Með þessum hætti bárust frjettir frá útlönd- um greiðlega til Alþingis og það- an út um alt land. Menn voru fúsir að heyra tíðindi. Þegar Magnús biskup Einarsson kom utan frá vígslu (1134), tók hann. land í Eyjafirði, en reið þegar til þings. En er menn vissu, að hann var kominn, hurfu allir frá dómum og heim til kirkju. „En biskup gekk síðan út á hlaðið fyrir kirkju og sagði þá öllum mönnum þau tíðindi, er gjörst höfðu í Noregi, meðan hann var utan, og þótti öllum mönnum mikils um vert málsnilli hans og skörungsskap“. (Hungurvaka). Menn sögðu og frá eldri tíðind- um. Halldór Snorrason sagði á mörgum þingum útfararsögu sína til Miklagarðs með Haraldi harðráða, svo að maður einn nam hana og skemti síðar með henni hirð konungs og honum sjálfum. Fanst konungi mikið til um, hve rjett var frá sagt. Þau Gunnar á Hlíðarenda og Hall- gerður langbrók kyntust fyrst með þeim hætti, að hún gekk til hans á Alþingi, er hann var ný- kominn utan, og spurði hann tíð- inda úr ferðum hans. Á þessum hálfa mánuði milli voranna og heyanna, þegar nótt- in er björt sem dagur og veður að öllum jafnaði þurt og milt, var sem þjóðin varpaði af sjer öllum búsáhyggjum og lyfti lífi sínu á æðra stig í svalandi fjalla- lofti hins fagra og tígulega þing- staðar. Fornmenning Islendinga, sem í einu er frábær að sjálf- stæði og víðsýni, ber menjar hvors tveggja, fjölbreyttrar reynslu og mikillar einveru. Á aðra hlið eru utanfarir til margra landa og þjóða, víking, l aupfarir og dvöl við hirðir kon- unga. Hins vegar fásinnið í' strjálbygðum sveitum, langir vetur og langar kvöldvökur. En Alþingi tengir þessar andstæður saman. Þeir, sem riðið höfðu til þings síðasta sumar og ætluðu þangað aftur að sumri, fundu eklci dofa einangrunarinnar fær- ast yfir sig, því að inn í hana var ofið minningum frá síðasta þingi og tilhlökkun til næsta þings. Þeim var hugfró að rifja ijpp þessar minningar, og með þeim hætti lagði bjarma af þing- inu líka til þeirra, sem heima höfðu setið. W. P. Ker hefir einu sinni gert þá laukrjettu athug- un, að líf íslendinga í fornöld hafi verið líkara því, að þeir ætti heima í borg en strjálbygðu landi. Norðlendingar og Sunn- lendingar, Austfirðingar og Vestfirðingar vissu eins mikil deili hverir á öðrum og íbúarnir í útjöðrum Aþenuborgar eða Flórenz vissu um samborgara sína. 1 andlegu lífi íslendinga skapaði Alþingi samskipun og samneyti, sem er furðanlega andstætt hinni stjórnarfarslegu tvfstrun. Islendingar áttu í forn- öld samfelda og sjálfstæða menningu, skýra hugsun og sjálfsvitund, sem vekur undrun og aðdáun nútíðarmanna á svip- aðan hátt og fommenning Grikkja. I sagnalist og sagna- ritun er ekki um einangraða höfunda eða einangraða skóla að ræða, heldur eina og sömu stefnu um land alt, sem ræður visindaaðferðum, list og stíl og tekur hvarvetna svipuðum breyt- ingum á sama tíma. Þetta er því að þakka, að þjóðin átti sér höf- uðstað, þar sem Alþingi var. Það var einmitt slíka höfuðstaði, sem germanskar þjóðir skorti á fyrra hluta miðalda, til þess að menn- ing þeirra þroskaðist og nyti sín. Höfuðstaður er sem heili manns í samanburði 'við hinar dreifðu taugastöðvar í lægri dýrum. Hann skapar þjóðinni sjálfsvit- und, gefur menningunni heild- arsvip. Höfuðstaður íslendinga hinn forni, var að vísu ekki reist- ur úr steini, nema þeir hamra- veggir, sem náttúran lagði til. Hann var ekki annað en búða- tóftir, sem gerðar voru byggi- legar um stundar sakir, með því að tjalda þær með vaðmálum. Og hann stóð ekki nema hálfan mánuð á ári. En frægðin fer ekki eftir langlífi. Hann var sönn ímynd þjóðlífsins, allar stjettir áttu þar itök, frá lög- sögumanni og allsherjargoða til sverðskriða og ölgerðarmanns, frá spekingnum og fræðimann- inum til ribbaldans og saka- mannsins. Væri tíminn skamm- ur, var hann tvöfaldaður með því að vaka bjarta nóttina með. Væri hann alt of stuttur, með- an hann var að líða, varð hann því lengri í minningunni, oft og einatt viðburðaríkari og fyrir- ferðarmeiri en allir hinir mán- uðir ársins til samans. Unöan og ofan af um íslenskar bókmentir síðari alða. Eftir Einar Ól. 5uein55on magister. Einar Ól. Sveinsson. Á öðrum stað* hefir sá, er þetta ritar, gefið yfirlit yfir ís- lenskar bókmentir eftir siða« skifti. Sú grein er söguleg, rituð til fróðleiks og mikið til eftir kúnstarinnar reglum. Þótti ó- þarfi að endurtaka hjer það, sem þar segir, og þess vegna er hjer aðeins sagt undan og ofan af um þetta efni. - I. Þegar mjer verður hugsað til bókmenta íslendinga tvær ald- irnar næst eftir siðaskiftin, er fyrsta tilfinningin sú, að þar sje' enginn tími til, þær sjeu með einhverjum dularfullum hætti losaðar úr öllum tengslum við tímann. Þegar fyrsti aldarhelm- ingurinn, sjálfur tími byltingar- innar og nýsköpunarinnar, er lið inn, er engu líkara en þjóðin sje komin í eitthvert kyrðará- stand, sem engin erlend áhrif og engar innlendar hreyfingar ná að rjúfa. Því að þótt einstakir menn sjeu mótaðir af hinum er lenda aldarsvip: Endurreisn húmanisma, barok, klassicisma rokokko, bæði í huga og klæða burði, þá megna þeir þó ekk að setja sinn svip á andlegt líf * Sjá Tímarit Þjóðræknisfje lagsins 1929. íslendinga á þessum tímum. — Sama myrka og fátæklega, en djúpa og sterka trúarstefnan rík- ir í sálmum og uppbyggingarrit- um á íslandi allan þennan tima, og á líkan hátt hafa veraldlegu bókmentirnar fastan og óbifan- legan svip.I annálum ogsöguritum er það fróðleikurinn, einangrað- ur og útsýnislaus, í riddarasög- um draumurinn, nakinn og fá- breytilegur af óvirkileik, og loks eru rímurnar þær töfraþulur, sem sefa hugann með hinum ei- lífa tvíliða kliði og óþrotlegum auði dýrra hátta, lægja allan óró- leik og sökkva allri hugsun í djúpan svefn. Slík eru aðalatrið- in í þessu undarlega, merkilega bókmenta-nirvana. Jarðvegur þessara bókmenta er bændamenning. I dimmum torfhýsum sitja veðurteknir menn á löngum vetrarkvöldum og rita með hrafnsfjöður á papp- ír kvæði, rímur, sögur, annála. Ástin á bókum skín í augunum hlý og óslökkvandi. Natnin við að skrifa er óþrjótandi, ýmist er samið nýtt, ýmist afrituð verk annara. Bókihentirnar, eink- um kveðskapurinn, eru svo mikl- ar að undrum sætir, og alt, sem | ekki er guðsorð, breiðist frá I manni til manns, geymist frá ! kyni til kyns í handritum, að- jeins sökum ástar þessa fólks á hinu ritaða orði. Megnið af ritum þessara tíma er alþýðlegt, eign allra manna jafnt, — í þessu efni verður ekki sama breytingin á Islandi og í grannlöndunum, þar sem alþýðleikur siðaskiftanna varð að þoka fyrir latínument lærdóms- aldar. Vitanl^ga var rímnakveð- skapurinn miklu snúnari og tor- skildari en flest, sem ort var á þjóðtungunum erlendis, en það stóð þó ekki fyrir vinsældum rímnanna meðal alþýðu. Þegar Árni Böðvarsson kvað: „Tyggjar kanna tjöldin náðu, tóku Móins Ijósa beS, — 27 —•

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.