Morgunblaðið - 26.06.1930, Side 49
^ooooo<xkxxxx>ooooooo<i>ooí>oooooooooooooooo< MORGUNBLAÐIÐ oó<xxxx^c«>c><><><><><>o<x><>ö<c>o<><xxxxxxxxxx><><xxx>
>
Togarafjelagið Geir & Th. Thorsteinsson
R e y k j a v í k.
Geir Thorsteinsson.
Togarasameignarfjelagið Geir & Th. Thorsteins-
son, Reykjavík, var stofnað árið 1919 af Th.
Thorst insson, kaupmanni, og syni hans Geir Thor-
steinsson, er hefir verið freimkvæmdastjóri fjelagsins
frá byrjun þess. Fjelagið fekk fyrsta togara sinn
nýsmíðaðan frá Englandi árið 1920, og á það nú
tvo togara, »Karlsefni« og »Braga«.
Th. Thorsteinsson, er andaðist árið 1924, byrjaði
hjer verslun sína og skipaútgerð 1896, í fyrstu með
þilskipum, sem hann brátt fjölgaði, en síðar, ásamt
öðrum, með togurum.
Árið 1899 byrjaði Th.
Thorsteinsson fiski-
verkun á fiskverkunar-
stöðinni á Kirkjusandi,
og er það fyrsta ný-
tízku stöðin semkomið
var á fót hjer í Rvík.,
og er hún enn með
afkastamestu stöðvum
hjer og er nú starfrækt
af ofannefndu togara-
fjelagi.
Nokkiir fiskhúsanna á Kirkjusandi.
Togarinn Bragi kemur isaður og fullhlaðinn til Reykjavikur á vetrarvertið.
Stálkur að fiskþvotti á Kirkjusandi.
REYKJAVÍKUR APÓTEK.
Afgreiðslusalurinn í ReyJcjavíkur Apóteki.
Saga þessa fyrirtækis er eldri en nokkurrar
unnarar stofnunar, er við verslun er riðin á íslandi
nú, enda hefir hún algera sjerstöðu. Lyfjaverslun
er svo nátengd læknastarfseminni, að eins má telja
lyfjabúðirnar til heiibrigðisstofnana eins og við-
skiftaf yrirtæk j a.
1 upphafi var líka Jæssi starfsemi í höndum
landlæknis hjer á landi. Bjarhi Pálsson var skip-
aður landlæknir og jafnframt gert að skyldu að
reka lyfjabúð á heimili sínu, gegn nokkurri þókn-
un. Þetta var árið 1760. Sat Bjarni í Nesi við Sel-
tjörn og hjelt lyfjabúðina nærfelt tíu ár, en þá
tók við henni Björn Jónsson, aðstoðarmaður hans.
Yar þetta eina lyfjabúðin á landinu i þá daga og
hafði einkarjett á allri meðalasölu. Björn vildi fá
3eyfi til að flytja apótekið til Reykjavíkur, en var
neitað um. Dó hann árið 1799, en næstur tók við
Magnús Ormsson, en hjelt því aðeins tvö ár.
Guðbrandur Vigfússon tók við apótekinu 1801
■og á því sama ári fjekst leyfi til að flytja það til
Reykjavíkur. En þó sat Guðbrandur kyr í Nesi
alla sína tíð, til 1822, enda var hann orðinn heima-
vanur þar, því hann hafði verið við lyfjastörf í Nesi
frá árinu 1788. Eftir dauða hans tók Qddur Thor-
arensen við lyfjabúðinni (1823) og er hann hafði
rekið hana tíu ár í Nesi, fluttist hann til Reykja-
víkur og bygði húáið við Austurvöll, þar sem apótek-
ið hefir verið síðan, þangað til það fluttist í Póst-
hússtræti í febrúar s. 1. ^
Oddur átti apótekið aðeins skamma stund, því 1836
seldi hann það J. G. Möller, og fluttist til Akureyrar.
Hefst nú danska tímabilið í sögu lyfjabúðarinnar og
stendur í 83 ár, eða til ársins 1919, að núverandi eig-
andi hennar, Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, kaup-
ir af P. 0. Christensen lyfsala. Á þessu tímabili voru
lyfsalar þessir: J. G. Möller 1836—50, Randrup lyf-
sali 1850—77, Kruger 1877—90, E. H. Tvede 1890—
—98, Olesen 1898—99, Michael Lund 1899—1911 og
P. O. Christensen 1911—19.
Sagt er, að þegar Qddur Thorarensen, sem var
hinn fyrsti lyfsali, sem rak fyrirtækið sem eigin eign,
seldi Möller, hafi hann tekið 80 dali fyrir lyfsölu-
leyfið, en húseignina seldi hann á 10.000 dali. Árið
1877 var lyfjabúðin (húseign og rjettindi) seld á
50.000 kr., 1890 á 85 þús. kr., 1898 á 115 þús. kr.,
ári seinna á 120 þús. kr. og 1911 á 180 þús. kr., en
nú síðast á 300 þús. kr.
Stærsta stökkið í sögu þessarar gömlu stofnunar
var það, er það flutti yfir Austurvöll inn í hjarta
bæjarins, þar sem það er nú. Þorst. Scheving Thor-
steinsson keypti hið mikla stórhýsi á horni
Pósthússtrætis og Austurstrætis í fyrra og hefir lát-
— 49 —
ið breyta því neðan úr grunni og upp í mæni. Mest
kveður þó að breytingunni á stofuhæð, þar sem
nú er lyfjabúðin sjálf. Er tilhögun hennar eftir
nýjustu tísku og einkum lögð stund á að haga
geymslustöðum þannig, að alt það sem grípa þarf
til sje sem næst hendinni. Enda er skúffufjöldinn
ótrúlega mikill á ekki stærra svæði en hjer er um
að ræða. I herbergjunum bak við lyfjasöluna eru
stofur lyfjafræðinganna, en annars vegar inn-
göngudyranna er sjerstök deild fyrir hjúkrunar-
vörur allar og hreinlætisvörur þær, sem lyfjabúð-
ir selja. Frágangur allur á hinni nýju lyfjabúð er
með afbrigðum smekklegur, og mun hún búa lengi
að þeirri gerð, sem hún hefir fengið nú á hátíðar-
árinu.
Á efri hæðum hússins voru áður skrifstofur
kaupsýslumanna. En í fyrra tók bæjarstjórn
Reykjavíkur alla fyrstu hæðina á leigu og er þar
rúm fyrir skrifstofur bæjarins flestar. Á næstu
hæð fyrir ofan er meðal annars Röntgenstofan og
lækningastofur ýmsra lækna og hefir lyfta húss-
ins verið höfð svo stór, að hún rúmar sjúklinga á
sjúkrabörum, og eru það ómetanleg þægindi.
Með Reykjavíkur Apóteki og íslenskri verslun yf-
irleitt eru mörg skyldJeikamerki. Á sama hátt og ís-
lensk verslunarstjett hefir fært verslunarmál í betra
horf en áður var, svo hefir og hinn fyrsti íslenski
eigandi Reykjavikur Apóteks síðan 1823 komið því
í algert nýtískuhorf og sett það á besta stað borgar-
innar. En hinsvegar segir þroski Reykjavíkur Apó-
teks líka aðra sögu, sem veit að læknisskipuninni í
landinu. Meðalanotkun vex með fjölgun lækna og
fullkomnun læknisvísindanna og lyfsöluleyfið var
metið þusund sinnum hærra 1919 en 1836.