Morgunblaðið - 26.06.1930, Síða 60
gimiiiiiiiiiniiimmiiiiHiiiiiiiimiiiiimiiiiiiniiiiuiiimmiiiinniiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiHiiiiniiiHiiimimimuiiiuuimuiiin: morgunblaðið ..............................................................................................................
MjólkurEjelag Beykjavíkur
Stofnað 1917.
*
Markmið fjelagsins er:
1. Að koma skipulagí á mjólkurafurðasölu
bænda í nærsveitum Reykjavíkur.
2. Að tryggja Reykjavíkurbúum hoila og
góða mjólk og mjólkurafurðir.
3. Að útvega bændum nauðsynjavörur sinar
með sem hagkvæmustum kjörum og þá
sjerílagi
4. að sjá um, að þeir fái hentug fóðurefni
við sanngjörnu verði, svo og önnur efni,
sem nauðsynleg eru i nýtísku landbúnaði.
Svo vel hefir Mjólkurfjelagi Reykjavíkur tekist
að rækja hlutverk sín, að það hefir með hverju
ári eflst að efnum og vinsældum, og hefir nú í ár
fengið aðstöðu til þess að geta þróast og dafnað
eðlilega á næstu árum -— til ómetanlegs gagns
fyrir alla viðskiftamenn sína.
Við Hafnarstræti er reist fyrirmyndar verslun-
arhús. —
Verslunarumsetning Mjólkurfjelags Reykjavík-
ur með GIRÐINGAREFNI hefir farið vaxandi ár
frá ári. Fjelagið hefir til fróðleiks látið gera upp-
drátt á íslandskortið meðfram þjóðveginum frá
Reykjavík norður og austur um land, alt til Ey-
vindarhóla undir Eyjafjöllum.
Mynd af uppdrætti þessum fer hjer á eftir, les-
endum til gamans. Hún ber með sjer, að það vantar
aðeins um 150 km. til þess að girðingin næði með-
fram þjóðveginum kringum alt landið. — Kort þetta
var gert vorið 1929. Síðan hafa 500 km. bæst við.
Girðingarefnisinnkaup fjelagsins hafa oft vak-
ið eftirtekt erlendis, og hefir þeirra verið getið í
erlendum blöðum.
KORNMYLLU bygði Mjólkurfjelag Reykjavík-
ur fyrir nokkrum árum; nú er það komið á daginn
að hún er orðin of lítil. Fjelagið er að flytja hana
í hið nýja verslunarhús sitt við Hafnarstræti. —
Verður hún stækkuð um meira en helming. Sam-
hliða er fjelagið að koma sjer upp í húsinu myllu
til að mala olíukökur. Ennfremur er það að koma
fyrir fóðurblöndunarvjelum í húsinu. Er orðin
mikil þörf fyrir slíkar vjelar hjer á landi. Erlend-
is er sala á fóðurblöndun að ryðja sjer til rúms
meira og meira með hverju ári. Eiftirleiðis lætur
fjelagið blanda kjamfóður sitt undir ríkiseftir-
liti, eins og tíðkast erlendis. Efnarannsóknarstofa
ríkisins hefir eftirlit með blönduninni.
Við Hríngbraut er brátt fullgerð hin fullkomn-
asta mjólkurvinnslustöð. — Hefir fjelagið þar
lagt fram yfir 200 þús. kr., til þess að Reykja-
víkurbúar geti í framtíðinni fengið þar bestu mjólk
og mjólkurafurðir, sem fáanlegar eru.. — Mjólk-
urstöðin getur afkastað 3000 lítrum á klukkustund.
Verslunarhús Mjólkurfjelagsins við Hafnarstræfi.
1 sambandi við þessa stöð verður fyrsta flokks
„íscremmejeri“, það fyrsta, sem til er hjer.
Er það alt önnur og betri vara, sem þar er hægt
að framleiða, heldur en með þeim tækjum, sem
hingað til hafa verið notuð við þá framleiðslu hjer
á landi. —
Fyrir hálfu öðru ári byrjaði fjelagið að gefa
út verðlista í tímaritsformi, er það kallar „Plóg“.
öll stærri samvinnufjelög erlendis gefa út rit í
lílcu formi. En hjer á landi er það fyrsta sam-
vinnufjelagið sem gefur út slíkt rit.
S
Lína þessi sýnir hversu langa fjárhelda girðingu
(úr vírneti eða ðföldum gaddavlr) hefði mátt gera
úr girðingarefni því, sem fjelagið hefir selt síðast-
liðin 4)4 ár. Vegalengdin á slíkri girðingu væri
1300 km.
Verslunarumsetning M. R.
Á síðastliðnu ári var umsetning fjelagsins á er-
leadum vörum kr.. 2.033.588.72, og á mjólk og
mjólkurafurðum kr. 1.008.337.23
Fjelagsmenn J^ngu í ár 10% arð af viðskiftum
sínum við fjelagið með erlendar vörur.
Útkoman á rekstri fjelagsins varð sú, að fjelagið
hafði í ágóða kr. 126.180.92. Þar af notaði það til
að færa niður verð á eignum fjelagsins kr. 22.913.-
50. En eftirstöðvamar, kr. 103.277.42, voru færðar
á sjóði fjelagsins þannig:
Á stofnsjóð ............... kr. 36.223.89
Á skuldatryggingarsjóð .... — 12.500.00
Á varasjóð ................... — 54.554.03
Ennfremur hækkaði tryggingarsjóður á árinu um
kr. 22.983.41.
• Samkvæmt reikningum fjelagsins eru sjóðseignir
þess nú:
Varasjóður ................. kr. 158.606.20
Tryggingarsjóður ............. — 117.883.76
Stofnsjóður .................. — 93.817.23
Skuldatryggingarsjóður . . — 30.406.22
Á reikningum fjelagsins um næstsíðustu áramót
voru sjóðir þess tilfærðir kr. 250.409.54, og hafa
þeir því aukist á árinu um kr. 150.303.87.
........................................................ .............hiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiiiiii...................iiH|i||iiiiiiiiiiiiiii.nnnmm«pmi^
— 60