Morgunblaðið - 12.05.1965, Side 32
106. tbl. — Miðvikudagur 12. maí 1965
Long stœrsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Eltingaleikur við brezkan landhelgisbrjót
Siglir til hafs með fjóra varðskipsmenn
Varðskipið og togarinn
komnir langt á haf út
Selfoss er nýkominn frá New
York, og flutti m.a. nýja bála
á dekki. Á leiðinni gekk sjór
yfir þilfarið og skemmðust
6—8 bílar mikið. Þessi mynd
sem ljósmyndari blaðsins tók
í gser, í vörugeymslu, sýnir
skemmdirnar á einum þessara
UM miðnætti í gærkvöldi elti
varðskipið Þór brezkan tog-
ara, sem hafði 4 af varðskips-
mönnum um borð, út af Aust-
fjörðum, en skipstjórinn á tog
aranum hafði allan síðari
hluta dags neitað fyrírmælum
varðskipsins. Þoka var út af
Sólfari afla-
hæstur með
1000 tonn
AKRANESI, 11. maí. — 80
tonn víir þorskafli báta hér
í gær. Nú eiga aðeins fjórir
ótekin upp þorskanetin.
Sólfari landaði í dag 15
tonnum og er hættur. Vertíðar
afli Sólfara er orðinn þúsund
tonn. Er hann aflahæsta skip
á þessari vertíð og við Suð-
vesturland. Skipstjóri er Þórð
ur Óskarssoni. Sólfari er 400
tonnum fyrir ofan næsthæsta
bát hér í bæ.
Sigurborg landaði í dag tæp
um 16 tonnum og Anna 10,5
tonnum. Suðvestan bræla var
hjá síldarbátunum í nótt og
því ekki veiðiveður.
— Oddur.
Austfjörðum, og því erfitt um
eftirförina, en eftir miðnætti
var að hirta upp.
Fyrir hádegið í gær staðsett
varðskipið Þór brezka togarani
Aldershot frá Grimsby við ólög
| legar veiðar 1,5 sjómílur innai
| við fiskveiðitakmörkin út a
Vopnafirði. Talið var að togarini
hefði höggvið á vörpuna og hó
varðskipið eltingaleik við togar
ann. Lauk honum m.a. fyrir að
stoð útgerðarfélags skipsins, Con
solidated í Grimsby, þannig ai
fjórir varðskipsmenn fóru un
borð og toigarinn lagði af stai
með varðskipinu í átt til land
eða þess staðar, þar sem togarini
hafði losað sig við vörpuna.
Nokkru síðar snerist skipstjór-
inn á brezka togaranum skyndi-
lega þvert við öllum fyrirmæluir
varðskipsins og sigldi til hafs
með varðskipsmennina fjóra urr
borð. Fylgdi varðskipið og var
allan daginn reynt að telja skip-
stjóra AldeShots hughvarf, bæði
frá varðskipinu og með skeyta-
sendingum frá útgerðarfyrirtæki
hans í Bretlandi, en það hafði
ekki tekizt kl. hálf eitt í nótt.
Seinni hluta dags var þoka út
af Austfjörðum og erfitt um eftir
för, en um miðnætti var að birta
upp. Þá voru skipin stödd langt
úti í hafi út af miðjum Aust-
fjörðum.
Ekki er vitað hver skipstjórinn
er, en togarinn mun hafa verið
tekinn að ólöglegum veiðum einu
sinni áður.
Um 900 þreyta
nú landspróf
Próf byrjuð i 34 skólum
1 GÆR byrjuðu landspróf. Rúm
lega 900 nemendur eru skráðir
til prófs í ár, og gengu þeir
gegnum fyrstu eldraunina, lesna
stærðfræði, í gærmorgun. Meiri
blutinn á eftir að sleppa í gegn
með fullgilt próf, en einhverjir
verða fyrir vonbrigðum, ef að
venju lætur. Runólfur Þórarins-
son, fulltrúi í fræðslumálaskrif-
stofunni, tjáði blaðinu að á und-
arcförnum árum hefðu um 70%
þeirra sem reyndu við landspróf
náð fullgildum réttindum til að
setjast í menntaskóla eða kenn-
araskóla eða einkunnina 6. —
Landsprófi ná þó þeir einnig,
sem fá einkunnina 5.
32 ■ embættis-
prófum
PRÓF standa nú sem hæst við
Háskóla íslands. Þar þreytir nú
miktJl fjöldi stúdenta áfanga-
prótf í hinum ýmsu deildum.
í lokaáfanga eða embættis-
prótfum eru 32, þ.e. 7 í guðfræöi,
7 i iaeknisfræði, 16 í lögfræði, 3
1 við6kiptafræði, 3 í íslenzkum
fræðum og auk þess er um tylft
•túdenta að ljúika BA-prótfi.
Landsprótfin fara fram í 34
skólum víðsvegar um land, þar
af 7 í Reykjavík og fara fram
samtímis prótf í hverri grein.
Trúnaðarmenn á hverjum stað
sjá um framkvæmd prófsins.
Ésbrjóturinn eftir auðri
rennu frá íseyjunni
Kemur fil Keflavikur i dag
í GÆRMORGUN þegar ísbrjót-
urinn EDISTO yfirgaí íseyna
ARLIS II, var búizt við að hann
yrði 4—7 daga að brjótast gegn-
um ísinn og komast til tslands,
en í gær opnaðist skyndilega
renna í ísbreiðuna og hann
sigldi skyndilega á fullri ferð
út í auðan sjó og átti að koma
til KEFLAVÍKUR kl. 8 í morg-
un.
í gærmorgun kl. 7:00 var íseyj-
an ARLIS II. yfirgefin, rétt á
heimskautsbaugnum um 190 km.
út af íslandi. Þá var búið að
flytja þaðan, með sleðum, út í
ísbrjótinn Edisto, rúmlega 27
tonn af tækjum aftan í dieselbíl
og traktor og í 20 ferðum með
þyrlu skipsins. Síðastur yfirgaf
staðinn matsveinn og fyrrverandi
stöðvarstjóri Carl Johnston, sem
einnig var á íseynni i upphafi,
árið 1961.
Iseyjan var skilin eftir á 66,35
n.br. og 27.36 v.l. og hafði rekið
43 þúsuiid sjómílur síðan vísinda
stöðin settist þar að á árinu
1961. ísbrjóturinn Edisto lagði
strax eftir lestun af stað til ís-
lands.
Dr. Max Brewer, framkvæmda
stjóri rannsóknarstöðvarinnar á
Barrow-höfða í Alaska, kvaðst
vera mjög ánægður með það
hvernig Edisto hefur leyst af
hendi þetta viðfangsefni að ná
vistum og mönnum við hin
verstu skilyrði. Ástandið í isnum
væri þannig nú, að ef þraut-
seigju isbrjótsins og hans manna
hefði ekki notið við. hefði ísinn
mjög líklega haldið mönnunum
á Arlis II. í langan tíma enn.
Drekkhloðinn sem síldarskip
SKAGASTRÖND, 11. maí —
Vélbáturinn Vísir HU 10, sem
stundað hefur þorskanetaveiðar
um tíma, hefur afla'ð mjög vel
undanfarna daga. Mjög stutt er
á miðin eða aðeins 10—20 mín.
sigling. í kvöld var hann með
metafla eða yfir 20 tonn og var
Maðinn eins og síldarskip og gat
þó ekki dregið öll netin, en hann
er aðeins með 50 net í sjó.
Einnig hefur rauðmaga og gró
sieppuveiði veri'ð ágæt síoustu
viku, en nokkuð hefur ísinn
hamlað að menn gætu vitjað um
netin. T.d. fengu tveir 15 ára
skóladrengir, sem eiga 6 net í
sjó 500—600 rauðmaga í þau í
dag.
íslaust er nú hér fyrir íram-
an okkur, en all mikinn ís að
sjá norður með landinu. —
Eden vildi ekki búa á Islandi!
og norræn að yfirbragði. En i
þetta er stormasamt eldfjalla- 5
land — ég gæti ekki hugsað H
mér að búa þar.“
f NÝÚTKOMINNI þriffju bók
æviminninga Avons lávarðar
— öðru nafni Anthony Edens,
fyrrum forsætisráffherra Bret
lands, — kemur fram, aff hann
átti nokkurra klukkustunda
viðdvöl á íslandi haustið 1944,
á leiff sinni vestur um haf til
Kanada. Um þær mundir stóð
Quebec-ráðstefnan yfir og
hafði brezki forsætisráðherr-
ann, Winston Churchill, gert
Eden, sem þá var utanríkis-
ráðherra, boff um aff koma til
Quebec til fundar við sig. Var
bann hér á ferð snemma morg
uns og þótti þaff, sem hann sá
af landinu, lítt fýsilegt til bú-
setu.—
Eden lagði upp frá London
kl. 5 síðdegis 13. september,
1944 og fór fyrst til Prestwick.
Þar leit svo út um hríð sem
ferðin myndi tefjast vegna
veðurs, — en þegar til kom
var haldið áfram um nóttina
— lagt upp kl. 4 áleiðis til ís-
lands. Um þetta ferðalag vísar
Avon lávarður til dagbókar
sinnar frá deginum 14. sept.
— en þar segir m.a.: „Fór á
fætur kl. 3.46. Fékk kaffisopa
og hélt síðan út í flugvéliná.
Þar var eitt uppbúið rúm en
að öðru ieyti engin þægindi.
Flugið til íslands tók fjórar
klukkustundir og gekk vel. —
Reykjavík er ekki eins ljótur
bær og ég hafði búizt við. Hér
og • þar bregður fyrir fallegu
fjalii og vatni. Ég er lítt hrif-
inn af litunum, sem þar eru
ríkjandi, — fjólubláir og græn
ir litir eins og í lélegri vatns-
litamynd eða oiíuþrykkmynd.
Við ókum inn í bæinn. Þar
sáum við nokkur ungmenni
af báðum kynjum, mjög falleg