Morgunblaðið - 21.10.1965, Síða 3
: 'iv>Uv';Í0 ■ r ( v v í. i f - • TVfVii- í
Fimmtudagur 21. október 1965
MORGUNBLAÐIÐ
Pop - hattar og geimhjalmar
I KV'OiLD sýnir þekktasti
hattateiknari Norðurlanda,
Jörgen Krarup, hattatízku að
Hótel Sögu í tilefni af fjár-
öflunarskemmtun þeirri er
Soroptimistaklúibbur Beykja-
víkur gengst fyrir.
Fréttamaður og ljósmynd-
ari Mbl. brugðu sér á fund
Krarups og lögðu fyrir hann
nokkrar spurningar, ef vera
mætti að upplýsingar hans
gætu aðstoðað íslenzku kven-
þjóðina í þrotlausri leit henn-
ar að hentugum höfuðfötum.
Við hefjum viðtalið með hinni
sígildu spurningu:
— Hvernig finnst yður ís-
lenzkt kvenfólk klæða sig?
— Því get ég ekki svarað
strax, því að síðan ég kom í
gær hefur verið stanzlaus rign
ing og aliir í regnkápum. En
það sem ég hef séð af kven-
fólki hér er allt mjög fallegt
og elegant.
— Hvenær byrjuðuð þér að
teikna hatta?
fró Bítlunum. Einnig hef ég
teiknað regnhatta með hlið-
sjón af hjálmum þeim, sem
geimfarar nota. Hann er með
gegnsæju plasti framan á
hattbarðinu og á að skýla enni
og augum konunnar. Höfuð-
skilyrði í hattateiknun er að
fyigjast vel með öllum nýjung
um. [
— Er þá að lokum ekki ein-
hver ráðlegging, sem þér getið
gefið íslenzkum konum varð-
andi hatta?
Jörgen Krarup og Guðrún Jörundsdóttir sýna okkur „teen-
ager“-hatt.
— Ég hef alltaf haft áhuga
fyrir hattateiknun og módel-
teiknun yfirleitt og þessvegna
byrjaði ég mjög snemma, eða
18 ára gamall. Þá vann ég í
hattagerð í vinnustofu i Kaup-
mannahöfn og var það
skemmtileg reynsla. Síðan fór
ég til Parísar og starfaði hjá
Gilbert Oecell og Claude St.
Ceyr, frægum hattateiknur-
um. Þar næst lagði ég leið
mína til London og vann um
skeið hjá Arthur Lucas firm-
anu þar, sem er brautryðjandi
í hattagerð til útflutnings til
Ameríku.
— Hvað ber einkaniega að
hafa í huga, þegar hattur er
teiknaður?
— Hvað konan vill. Nú á
dÖgum vill hún ekki einungis,
að hatturinn klæði hana vel,
heldur einnig að hann skýli
henni gegn regni og vindum.
Það er hlutverk hattateiknar-
ans að reyna að samræma
þessi tvö sjónarmið. |
— Teiknið þér eingöngu
kvénhatta? |
— Já, enn sem komið er.
En næsta vor ætla ég að
teikna karlmannahatt og þá
ætla ég að hafa hann í sam-
ræmi við tíðarandann. Hatta-
teiknari verður að fylgjast
vel með nýjungum í list, eink-
um málaralist. Nú, auk þess
hef ég gaman að „pop-músik“
og hef teiknað hatta fyrir
ungar stúlkur undir áhrifum
— Já, það er þá fyrst, að
hatturinn verður að fara vel
við kjól konunnar í hvert
skipti. Hún getur einnig verið
með mjög áberandi hatt, en
þá verður hún líka að gæta
þess, að klæðast kjól með ein-
földu sniði. Auk þess, ef hárið
er nýlagt er hattur kannske
ekki nauðsynlegur, en ef svo
er ekki getur viðeigandi hatt-
ur gefið konunni mikinn per-
sónuleika. Og það er alls ekki
rétt að vera aldrei með hatt,
enda held ég að skandinavisk-
ar stúlkur séu farnar að gera
sér þess Ijósa grein, og kemur
það meðal annars fram í
strangari kröfum og stórauk-
inni eftirspurn.
Jörgen Krarup,
hattateiknari.
Sakar CIA um hryðfu-
verk ■ Viet Nam
Washington, 20. okt. — AP
BANDARÍSKl öldungadeildar-
þingmaðurinn Stephen M. Young,
sem er úr flokki demókrata, hef-
ur sagt opinberlega, að starfs-
menn bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, hefðu framið hryðju-
verk í Víetnam í því skyni að
koma óorði á Víet Cong menn,
með því að láta líta svo út, sem
það hefðu verið hinir síðarnefndu
er hefðu framið þau. Þessari stað
hæfingu var hinsvegar neitað i
dag, bæði af demókratanum
Cornelius E. Gallagher, öldunga-
leidarþingmanni frá New Jersey,
en hann er meðlimur utanríkis-
málanefndar þingsins, • svo og
bandarísku leyniþjónustunni.
Talsmaður bandarísku leyni-
þjónustunnar, sem spurður yar
um álit hans á þessum ummæl-
um, sagði að þau væru algjör-
lega röng, en Gallagher sagði að
fullyrðing Youngs væri skelfileg
og sýndi, að hann hirti ekki um
réttar staðreyndir. Hefði fréttin
að líkindum upphaflega verið
komin frá Víet Cong manni, sem
þótzt hefði vera starfsmaður CIA.
I SKÖRP veðraskil voru í gær
j yfir Breiðafirði og þaðan norð
I austur og suðvestur. Austan
vi|i þau var 15—17 stiga heitur
laufvindur á Norðurlandi, en
aðeins 3 stig í Látravík á Horn
ströndum og snjókoma á Hala
| miðum. Mikil rigning var í
fyrrinótt og fyrradag, 110 mm
yfir sólarhringinn á Hveravöll 1
um, 76 mm á Hæli, 63 mm á
Þingvöllum, 49 mm í Stykkis
hólmi og 36 mm í Reykja-
víó. Mest var hvassviðrið á
Hveravöllum, 10 vindstig kl. 9.
Stúlkurnar 5 úr Keflavík, s em gáfu Skálatúnsheimilinu
peningagjöf.
Færðu Skélotúns
heimilinu 2500 kr.
SUNNUDAG einn í september
síðastliðnum komu fimm litlar
stúlkur frá Keflavík í heimsókn
að barnaheimilinu í Skálatúni
í Mosfellssveit. Færðu þær börn
unum þar 2500 krónur að gjöf
í sundlaugarsjóð hælisins. Þess
ir peningar voru ágóði af hluta-
veltu, sem þær höfðu haldið í
heimabæ sínum. Foreldrar
Skálatúnsbarnanna og aðrir að-
standendur eru innilega þakk-
látir, ekki einungis fyrir gjöf-
ina, heldur þann hug sem
fylgdi henni. Stúlkurnar ós'kuðu
ekki eftir að láta geta um nöfn
sín, en leyfðu hins vegar, að
þessi mynd væri birt, en hún
er tekin rétt eftir að þær af-
hentu gjöfina.
Þorsteinn
Pétursson í
vinnutímanefnd
Á FUNDI Sameinaðs Alþingis í
gær var Þorsteinn Pétursson
kjörinn í vinnutímanefnd í stað
Eggerts G. Þorsteinssonar félags
málaráðherra.
STAKSTFIi\AR
Hvað verður um-
Eystein
MJÖG er nú bollalagt nm það,
hver verði viðbrögð flokksmanna
Eysteins Jónssonar eftir ræður
þær, sem hann hefur flutt að
undanförnu um tvö meiriháttar
mál, stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn
arinnar og fjárlagafrumvarpið.
Almennt eru’menn á einu máli
um, að ffammistaða Eysteins
Jónssonar H þessum umræðum
hafi verið með slíkum hætti, að
erfitt verði fyrir flokksmenn
hans og samþingmenn í Fram-
sóknarflokknum, að sætta sig
öllu lengur við forustu hans fyr-
ir flokknum. I báðum þessum
ræðum kom það glögglega í Ijós,
að Eysteinn Jónsson hefur ná-
kvæmlega ekkert fram að færa i
stjórnmálabaráttunni. Hann not-
ast við gamalt og úrelt orða-
skak og gerir sér þess ekki grein,
að nú á tímum kref jast menn *
meir af stjórnarandstöðuflokki,
en að hann sé alltaf á móti.
“Hin leiðin" •
Það eina sem Eysteinn hefur
fram að færa er „hin leiðin“, án
þess að skilgreina nokkru nánar
upp á hvað „hin leiðin“ hefur að
bjóða. Kjósendur, sem eiga að
velja á milli, annarsvegar skýrr-
ar stefnu ríkisstjórnarinnar, sem
nýlega hefur verið mörkuð í
stefnuyfirlýsingu hennar á Al-
þingi, og gerir ráð fyrir margvis-
legum og fjölþættum nýjungum
á flestum sviðum þjóðlífsins, og
hinsvegar ógreinilegs hugtaks
sem kallað hefur verið „hin
leiðin“, eiga af skiljanlegum
ástæðum erfitt með að sjá,
að hér sé um nokkuð að velja.
— Stjórnarflokkarnir hafa
að baki 6 ára farsæla stjórn á
landinu. Framsóknarflokkurinn
hefur enga stefnu markað, en
talar um „hina Ieiðina“, án þess "
að skilgreina það nokkuð nánar.
Nánustu samstarfsmenn Eysteins
Jónssonar í Framsóknarflokkn-
um gera sér fullkomlega grein
fyrir, að hverju stefnir fyrir
flokk þeirra, ef ekki verður hér
breyting á. Þeir gera sér grein
fyrir því, að formannsskipti eru
flokknum nauðsynleg, ef hann á
að hafa nokkra möguleika til að
ná sér upp úr þeirri niðurlæg-
ingu sem hann er nú í. Þess
vegna hafa hinar tvær ræður Ey-
steins að undanförnu vakið upp
á ný miklar umræður innan
Framsóknarflokksins um nauð-
syn þess að breyta til um for-
ustu.
Sundrung
En það er ekki nóg fyrir Fram-
sóknarmenn, að sannfærast um
nauðsyn á foringjaskiptum, þeir
verða líka að geta komið sér
saman um nýjan foringja, og
greinilegt er af því ástandi, sem
ríkir í flokknum og bezt hefur
komið fram nýlega í sambandi
við aðalfund Félags ungra Fram-
sóknarmanna í Reykjavík, að
klofningurinn í flokknum er orð-
inn miklu djúpstæðari og alvar-
legri en menn almennt hafa gert
sér grein fyrir, og í hæsta máta
ólíklegt að nokkuð samkomulag
takizt um nýjan formann. Fyrir
andstæðinga Framsóknarflokks-
ins er þetta út af fyrir sig ekk-
ert hörmungarmál. Áframhalð- —
andi forusta Eysteins Jónssonar
er trygging íyrir því, að flokk-
urinn verður að mati kjósenda i
landinu óhæfur til þess að takast
forustuhlutverk á hendur í stjórn
landsins, og þess vegna má lík-
legt telja, að um varanlega úti-
vist sé að ræða hjá þeim, sem
„telja sig fædda til að stjórna",
eins og blaðamaður eins hins virt
asta blaðs í Bretlandi komst að
orði fyrir nokkrn
«