Morgunblaðið - 21.10.1965, Page 17

Morgunblaðið - 21.10.1965, Page 17
Fimmtudagur 21. október 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 þróttmikið atvinnulíf ó Anstnrlnndi Várkjun Lagarfoss - Aukin ræktun Hienntaskóli á Egilsstöðum - Lt- flutningsverzlun Austurlands - 3tætt við Sverri Hermannsson, varaþingmann Sjálfsfæðis- flokksins á Austurlandi SVERIIA Hermannsson, vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Austurlandskjörlæmi, er Hiýlega kominn úr langri ferð um Austurland, en þar heim- sotti hann flest héruð og byggðir nema Öræfasveit. í ferð þessari ræddi Sverrir við mikinn fjöida manna, og kann- aði helztu vandamál, sem við er að etja á Austurlandi um þessar mundir. Morgunblaðið ræddi nýlega við Sverri Her- mannsson um ástandið, og horf ur á Austurlandi, og fer það viðtal hér á eftir. Uppgangur við sjávarsíðuna „Við sjávarsíðuna er geysi- legur uppgangur í öllum at- vinnumálum", segir Sverrir, „mikil fjármunamyndun og fjárfesting. Hinsvegar er ég Iþeirrar skoðunar, að þótt fjár- íesting sé mikil, þó ekki ílend- ist þar eystra eins mikið, fé af f jármunamynduninni s j á 1 f r i eins og vera bæri. Síldariðnað- ur hefur mjög eflzt á Aust- fjörðum á undanförnum árum. Nú eru síldarverksmiðjur í Djúpavogi, Breiðdalsvík, Fá- skrúðsfirði, Reyðarfirði, Eski- firði, Neskaupstað, Borgarfirði, Vopnafirði, Bakkafirði og tvær verksmiðjur eru á Seyðisfirði. Ennfremur er áformað að byggja verksmiðjur á Stöðvar- firði og Höfn í Hornafirði. Þá eru tugir síldarplana á þessum stöðum og víðar, svo sem á Stöðvarfirði og Mjóafirði. Þessi gífurlega fjárfesting í framleiðslufyrirtækjum kallar ó mikinn afla, en einnig bættar samgöngur, stóraukna orkuþörf og hafnarbætur. Varðandi hafn arbætur hafa miklar fram- kvæmdir átt sér stað á Reyð- arfirði, Eskifirði, Neskaupsstað og Borgarfirði og áformaðar eru framkvæmdir við hafnir á Seyðisfirði, Breiðdalsvík, Bakka firði og Höfn í Hornafirði. Skipastóll Austfirðinga hefur einnig aukizt gífurlega mikið á síðustu árúm. í sambandi við sjávarútveginn hlýtur brýn- asta verkefnið í náinni framtíð að vera frekari vinnsla sjávar- afurða, herzla lýsis, frekari vinnsla síldarmjöls, niðurlagn- ing síldar o. fl. En til þess, að svo megi verða, þurfa ákveðin skilyrði að vera fyrir hendi, t.d. nægileg orka. Orkuframleiðsla á Austurlandi er í lágmarki, og fjarri því að viðunandi ástand sé í þeim efnum.“ Landbúnaðurinn „Um landbúnaðinn er það að segja“, sagði Sverrir Hermans- son, „að á Héraði og þar um slóðir, hafa bændur um langt árabil orðið fyrir miklum skakkaföilum. Þar hefur gróð- ur brugðizt í nokkur ár í röð, og nú í sumar hafa bændur orðið fyrir miklu tjóni vegna kals á stórum svæðum, svo með ólíkindum er. Hinsvegar er víða vel búið á Austfjörðum, og landskostir víða ágætir. Eftir að hin nýja stefna í verðlagningu landbúnaðarvara var upp tekin, hefur sauðfjár- rækt verið aukin á Austur- landi, enda virðist hún henta austfirzkum bændum einna bezt. þótt margt annað komi til greina, svo sem holdanauta- rækt. Það, sem nú skortir mest á í landbúnaði á Austurlandi, er aukin ræktun. Það er mín í þeim efnum dregizt aftur úr öðrom, þar vantar ræktun, og skoðun, að Austfirðingar hafi ástæðan er náttúrulega fyrst og fremst það afturhald, sem virð- ist hafa ríkt í öllum framfara- málum um áratuga skeið í þessum landshluta. Hinsvegar vil ég taka fram, að öðru máli gegnir um Austur- Skaftafellssýslu. Þar hafa mikl- betra sambapd við akvega- kerfi landsins. Þar er um að ræða ágætt vegastæði, en vant- ar upphlaðinn veg. Eins eru ör- uggar samgöngur yfir Fjarðar- heiði og til Neskaupsstaðar með göngum í gegnum Oddsskarð mjög mikilvægar fyrir Aust- firðinga. Afar slæmur vegur er frá Breiðdalsheiði allar götur suður á Lónsheiði. Þá hefur akvegurinn milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar löngum ver ið hinn versti farartálmi en nú er verið að leggja veg fyrir Vattarnes. Vonir standa nú til, að vegur yfir Hellisheiði, milli Jökulsárhlíðar og Vopnafjarðar, verði fær á næstunni. Mikið hefur verið unnið að brúa- smíði víðsvegar um Austur- land, en betur má ef duga skal. í samgöngumálum hefur stór átak verið gert í flugsamgöng- um. Flugvöllurinn á Egilsstöð- um er með hinum betri á land- inu og lokast mjög sjaldan. Allmargir smærri flugvellir erú á Austfjörðum. Síðasta stór- átakið í þessum efnum var gert í sumar, þegar byggðar voru tvær flugbrautir í Árnanesi við firðingar hafi látið trufla um of fyrir sér í langan tíma með þessi mál. Annars vegar með umræðum um tengingu við aðalorkuveitu eins og Laxár- virkjun, og hinsvegar með lausnum í smærri stíl, eins og Grímsárvirkjun, sem alls ekki hefur orðið viðunandi árangur af. Austfirðingar hefðu átt að leggja áherz’lu á að reyna stóra virkjun frá upphafi, t. d. við Lagarfoss, og það er sú virkjun, sem leggja á höfuðáherzlu á, að gerð verði hið fyrsta. Teng- ing við aðalorkuver getur svo komið síðar, þegar stundir líða fram. Ég vil gjarnan að það komi fram, að sýnt hefur verið fram á, að virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði hefði verið stór- um hagkvæmari virkjun en Grímsá. Hefur mikill áhuga- maður um þessi rhál á Austur- landi, Gestur Jóhannesson frá Seyðisfirði, ritað merkilegar greinar um þetta mál. Iðnaður Á sama hátt og rætt er um iðjuver til frekari nýtingu sjávarafurða, eru möguleikar einnig miklir á frekari vinnslu landbúnaðarafurða og eru Eg- ilsstaðir eðlilegur staður til að reis.a slík iðjuver á. Þar er flugvöllur, skammt til hafnar á Reyðarfirði, og þar liggja um allir aðalvegir á Austurlandi. í þessu sambandi má benda á sútunarverksmiðju, spunaverk- smiðju, garnaverksmiðju, niður suðu á kjöti til útflutnings og m. fl. En það er svo með verk- smiðjur til fullnýtingar hrá- efnis til lands eða sjávar, að þær þurfa á mikilli orku að halda, og orkuleysið á Austur- landi er mikill þröskuldur í vegi fyrir uppbyggingu slíkra Síldarsöltunarstöðin Ströndin á Seyðisfirði. ar framfarir orðið í landbún- aði. Merkast er þó hið nýja landnám þar, sem orðið hefur til vegna brúunar stórfljóta og hleðslu varnargarða í samlbandi við brýrnar. Þar hafa Horna- fjarðarfljót verið brúuð, einnig Steinavötn, og Jökulsá á Breiða merkursandi verður brúuð á næstu árum. í ár voru brúaðar þrjár ár á Öræfum, Gljúfursá, Kotá og Svínafellsá. Bygging brúar á Jökulsá á Breiðamerkursandi mi|n taka tvö ár, og um leið verður Hrútá brúuð.“ Samgöngumál og raforkumál „Annars eru það atSallega tvö mál, sem þrengja kosti Aust- firðinga, samgöngumál og raf- orkumál. Mikið hefur verið framkvæmt í þeim efnum á undanförnum árum, en meira skal til ef vel á að vera. Samgöngur á sjó eru í megn- asta ólestri, og einnig skortir Hornafjörð, sem nú hafa verið teknar í notkun. Áður fyrr þurfti að sigla yfir Hornafjarð- arfljót á flugvöllinn, sem þar var á melnum, og var slíkt oft hið mesta erfiði og hættuspil að vetrarlagi og í vondum veðrum. Þessar ferðir yfir á gamla flugvöllinn hafa að vísu alla tíð gengið slysalaust, og er það tvímælalaust að þakka frábærum dugnaði og árvekni þeirra feðga, sem um þessa flutninga hafa séð, Sigurðar Ól- afssonar og Þorbjarnar sonar hans“. Um raforkumálin er það að segja, að ástandið í þeim efnum er mjög slæmt. Heil héruð hafa ekki rafmagn, og þar sem raf- magn hefur verið lagt, skortir mjÖg á nægilega orku. Gríms- árvirkjun má óefað telja mikil mistök, því að langt er frá því, að hún geti gegnt því hlut- verki, sem henni var ætlað. Mín skoðun er sú, að Aust- atvinnufyrirtækja. Austfirzk út- og innfiutnings- fyrirtæki Sverrir Hermannsson ræddi siðan ýmis nýmæli í atvinnu- málum Austfirðinga og sagði, „að nú, þegar framleiðsla sjáv- arafurða hefur aukizt svo gíf- urltga, sem ra«n ber vitni um á Austfjörðum, ættu Austfirð- ingar að taka útflutningsmál í ríkara mæli í eigin hendur og stofna útflutningsfyrirtæki. — Austfirðir liggja næst helztu viðskiptalöndum okkar, og þess vegna væri ekki síður ástæða til að stofna innflutningsverzl- un fyrir Austurland. Virðist Reyðarfjörður vera sá staður, sem heppilegastur væri til þess að hafa, sem aðalinn- og út- flutningshöfn Austfjarða. Eim- skipafélagið hefur nú ákveðið að sigla beint frá útlöndum til hafna úti á landi, þar á meðal til Austfjarða.*' Sverrir Hermannsson Menntaskólinn á Austurlandi „Um menntaskólamál Aust- firðinga er það að segja" sagði Sverrir Hermannsson, „að Aust firðingar líta vonaraugum til þess að reistur verði mennta- skóli á Egilsstöðum, því að augljóst er, að í nútímaþjóð- félagi verða menntamálin að ganga fyrir öðru. Enn fremur er ljóst. að ef hægt er að veita ungu fólki menntunaraðstöðu í sínum heimabyggðum, hefur sá landshluti meiri möguleika til að njóta starfskrafta þeirra í framtíðinni. En Austfirðimgar hafa orðið fyrir þungum búsifj- um af því, að ungt fólk þaðan hefur sótt til náms í aðra lands- hluta og flest af því ekki kom- ið aftur. Sumir hafa beitt þeim rökum gegn menntaskóla á Austurlandi, að tiltölulega fáir sæki menntaskóla úr þessum landshluta. Þá er á það að líta, að væri aðstaða á staðnum til slíkrar menntunar, mundi að- sókn ungs fólks til framhalds- náms stóraukast. Annars er mesta vandamálið í mennta- málum, sem leysa þarf nú þeg- ar fyrir austan, í sambandi við gagnfræðastigið. Þar er að vísu ágætur skóli, en fleiri þurfa að koma til og betri aðstaða." Sverrir Hermannsson kvaðst vilja minna á, að á sínum tíma iiefði menntaskóli á Akureyri verið mikið átakamál, og sýnd- ist þá sitt hverjum, en í dag eru allir sammála um, að stofn- un hans htfði verið hið mesta happ fyrir Norðiendingafjórð- ung, og slíkt hið sama mundi verða uppi á teninginn, þegar fram liðu stundir um mennta- skóla á Egilsstöðum. Það er ekki úr vegi að geta þess hér, sem vissulega heyrir undir menningarmál, en það er hið mikla ófremdarástand að víða á Austfjörðum heyrist ekki til íslenzka útvarpsins nema með höppum og glöpp- um. Slíkt ástand er forráða- mönnum Ríkisútvarpsins til skammar og hefi ég raunar lát- ið þá skoðun í ljósi fyrr, að þeim væri nær að gefa öllum landsmönnum kost á að heyra til útvarpsins áður en þeir springa af sjónvarpsmonti. Kjördæmisfundur á Egilsstöðum Ég vil geta hér um fund Kjördæmisráðs Sjálfstæð- isflokksins á Austurlandi, sem haldinn var á Egilsstöðum 12. september sl. Var hann sóttur af svo til öllum fulltrúum úr hinu víðlenda kjördæmi. Ríkti mikill einhugur á fundinum og bjartsýni um viðgang flokksins. Á fundinum var ákveðið að gera heildarúttekt í ölium helztu hagsmunamálum kjör- dæmisins og gerð áætlana um framkvæmdaþörf. Verður sú skýrslu- og áætlanagerð síðan lögð fyrir kjördæmisráðið til umræðu og síðan samþykkt. Fundurinn gerði samþykkt þess efnis, að varað var ein- dregið við rýmkun á reglu- gerð um fiskveiðar í landhelgi fyrir Austurlandi og skorað á Framh. á bls. 19 m. 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.