Morgunblaðið - 21.10.1965, Page 31
Fimmtudagur 21. oktober 1965
MÖRCUNBLAÐIÐ
31
Nýjar aðferðir í bar
áttunni gegn hungri
Ályktun Stúdentaráðs Háskóla Islands
Fólksfjölgunarvandamálið í
heiminum hefur á síðari árum
orðið æ alvarlegra með hverju
órinu. Sé aukning matvælafram
leiðslu borin saman við aukn-
ingu fólksfjölda síðustu 15 árin
víðs vegar í heiminum, sést, að
fjÖlbyggðasti heimshlutinn,
Asía, og sömuleiðis Afríka, drag
ast stöðugt aftur úr hlutfalls-
lega í matvælaframleiðslu mið-
að við Evrópu og Norður-Amer-
íku. Nú er talið, að um 72%
íbúa jarðar búi í vanþróuðum
ríkjum. Jafnframt er talið að
helmingur íbúa jarðar þjáist af
hungri og vannæringu. Þá er
talið, að fjórfalda þurfi mat-
vælaframleiðslu vanþróuðu ríkj
anna fyrir næstu aldamót, eigi
að vera hægt að sjá öllum íbú-
um þessara ríkja um það leyti
fyrir nægilegri fæðu. Margur
mundi vafalaust gizka á, að
t>etta væri með öllu óframkvæm
anlegt. En sérfræðingar eru á
öðru máli. En markinu verður
að ná með samstilltu átaki.
Eigum við Islendingar að
leggja fram okkar skerf í þess-
ari viðleitni? Vitanlega. Við get
um ekki skorizt úr lek. Með
þátttöku okkar í starf Samein-
uðu þjóðanna og öðru alþjóðlegu
samstarfi skuldbindum við okk-
ur til að gefa gaum að velferð
meðbræðranna, jafnvel þótt í
fjarlægum heimsálfum séu. Og
raunar er nokkuð um liðið síð-
an við komum auga á þessa
skyldu okkar. En hvað hefur
verið gert? Sendar hafa verið
öðru hvoru nokkrar lýsisflöskur
eða skreiðarbaggar til Indlands
eða Kongó. Það er allt og sumt
að segja má. Aðrar þjóðir hafa
líka haft í frammi svipaða hjálp
arstarfsemi, þ.e.a.s. sent mat-
væli.
Allir, sem hafa kynnt sér
þetta stórkostlega vandamál,
hungurvandamálið, eru nú farn-
ir að sjá, að þessar matvæla-
sendingar, þótt góðar séu svo
langt sem þær ná, leysa ekki
vandann. Eins og fram kemur
hér að framan liggur nú ljóst
fyrir, að það, sem gera þarf, er
að auka matvælaframleiðsluna í
hinum vanþróuðu löndum sjálf-
um. Má segja, að það hafi ekki
verið vonum fyrr, sem menn
komu auga á þessa lausn.
Æskulýðssamband Íslands hef
ur nú ákveðið að taka þátt í
þessari hjálparstarfsemi með
því að skipuleggja hérlendis
Herferff gegn hungri og verður
þar um fjársöfnun að ræða.
Helzta málið, sem hin íslenzka
Herferff gegn hungri hefur í
hyggju að beita sér fyrir, er að-
stoð við fiskimenn, sem búa við
Alaotra-vatnið, en það er
stærsta stöðuvatnið á eylandinu
Madagaskar við austurströnd
Afríku. Við vatn þetta sem er
mjög auðugt af fiski, búa um
100 þúsund manns, sem lifa m.a.
á fiskveiðum, en hafa mjög
frumstæða veiðitækni og léleg-
an útbúnað. Ef þessir fiskimenn
fengju betri veiðarfæri og væri
kennt að nota þau, myndu þeir
ekki einungis geta framfleytt sér
sjálfum miklu betúr en nú er,
heldur einnig séð næstu héruð-
um, en þar ríkir nú mikill nær-
ingarskortur, fyrir fæðu. Þetta
mál er sennilega m'jög heppilegt
verkefni fyrir hina íslenzku
Herferff gegn hungri, því að
eins og kunnugt er ráðum við
yfir einna beztu tækni sem
þekkist við fiskveiðar.
Stúdentaráð Háskóla íglands
skorar á alþjóð að bregðast vel
við, og láta sem mest af. hendi
rakna, þegar hin íslenzka Her-
ferff gegn liungri hefur fjársöfn-
un sína.
Lax- og silungsrækiar-
stöð á Snæfellsnesi
SL. ÞRIÐJUDAGSKVÖLD var |
undirbúningsfundur að stofnun
hlutafélags um lax- og silungs-
ræktarstöð í Lárvaðli, Eyrarsveit,
Snæfellsnesi, haldinn í Oddfell-
owhúsinu í Reykjavík.
Fundarboðendur, Jón Sveins-
son, rafvirkjameistari, og Ingólf
ur Bjarnason, forstjóri, gerðu
grein fyrir framkvæmdum í Lár- :
vaðli m.a. stíflugerð við ós Lár-
vaðals.
Kom fram í framsögn þeirra fé
laga, að kostnaður við fram-
kvæmdir væri nú þegar orðinn
um 4,8 millj. þ.rn.t. jarðakaup
og aliseiði, en heildarkostnaður
skv. áætlun myndi nema um 7
milljónum króna. Væri hugmynd
in að ljúka öUum framkvæmdum
við ræktunarstöðina þegar á
næsta sumri.
í framsögu Jóns Sveinssonar
kom fram, að miklir möguleikar
eru tengdir við stöð þessa og
ágóðavon mikil að þrem árum
liðnum.
Kom og fram, að skv. tilraun-
um Bandaríkjamanna, sem starf-
rækja 21 ræktunarstöð við svip-
aðar aðstæður og í Lárvaðli, þ.e.
a.s. þar sem möguleikar væru á
sjóblönduðu vanti, þá hefði árang
ur orðið meiri en í ferskvatns-
stöðvum.
Samkvæmt reynslu Bandaríkja
manna hafa þeir talið, að hægt
væri að hafa 12.500 seiði á hvern
hektara í fersku vatni, en um
25 þúsund í' sjóblönduðu vatni.
Þess skal getið, að góð aðstaða
tii sjóblöndunar vatns verður í
Lárvaðli.
Svavar Pálsson, löggiltur end
urskoðandi, geiðí grain fyrir
kostnaði við framkvæmdir í Lár
vaðli svo og rekstraráætlun fyr-
ir timabilið 1965—1969. í rekstr
aráætlun þessari, sem samin hef
ur verið á hógværasta hát,t er
gert ráð fyrir tekjum fyrst á ár-
inu 1967, að fjárhæð kr. 900.000,00
1968 kr. 2.050.000,00 og 1969 2,8
milljónir. Rekstrarkostnaður
væri talinn verða 270 þús. 1965,
1.380 þús. 1966, 1400 þús. 1967,
1475 þús. 1968 og 1585 þús. 1969.
Hafsteinn Sigurðsson, hrl.,
gerði grein fyrir drögum að stofn
, samningi og samþykktum vænt
anlegs hlutafélags, en gert er
ráð fyrir 5 milljón króna hlutafé,
sem heimilt væri að auka um aðr
ar 5 milljónir. Hlutabréf koma til
með að vera að upphæðum kr.
| 5.000,00, 10.000,00 og 25þúsund
og væri hluthöfum frjáls meðferð
þeirra hvað sölu og veðsetningar
snerti.
Nú þegar hafa komið fram lof
orð fyrir hlutafé að upphæð kr.
2,9 milljónir.
Á fundinum var kosin undir-
búningsnefnd, og í henni eiga
sæti Ingólfur Bjarnason, forstj.;
Jón Sveinsson, rafvirkjameistari;
Svavar Pálsson, lögg. endurskoð-
andi; Gunnar Helgason, fulltrúi;
Tryggvi Þorfinnsson, skólastjóri
og Guðmundur J. Kristjánsson,
formaður Landssambands stang-
veiðimanna.
Áskriftarlistar fyrir hlutafjár-
loforð liggja frammi hjá ofan-
greindum nefndarmönnum og í
sportvöruverziunum borgarinn-
Húsiff byrjar aff hrynja.
Bókhaldið brann ekki a!!t
Ií FRAMHALDI af frétt
þeirri um bruna kaupfélags-
hússins í Ólafsvík, er birtist
í Mbl. í gær, upplýsti Ás-
geir Sigurðsson kaupfélags-
stjóri að verzlunarhúsið og
vörubirgðir þess hefðu versð
vátryggð fyrir 7 milljón
kr. Verzlunin verður nú
flutt yfir í byggingurvöru-
deild kaupfélagsins, sem er
staðsett í gömlu húsi við
hliðina á því sem brann.
Verður sett upp matvöru-
deild á efri hæð hússins, en
byggingarvörur verða se'dar
á neðri hæðinni eins og hing
að til. Vefnaðarvörudeildin,
sem brann með gamla liús-
inu, verður ekki endurnýjuð
á næstunni, að því er Árgeir
tjáði blaðinu.
Húsið sem brann var orð-
ið 120 ára gamalt, og hafði
verið endurbætt fyrir nokkr-
um árum. Ekki hefur verið
endanlega ákveðið ' hvort
byggja skuli upp nýtt hús-
næði fyrir starfsemi kaupfé-
lagsins, en ákvörðun um það
verður tekin á stjórnarfundi
félagsins í dag eða á morgun.
Ásgeir tjáði blaðinu einnig,
að bókhald verzlunarinnar
hefði ekki tapast allt, unnt
hefði verið að bjarga nokkr
um hluta þess undan eldin-
um og væri verið að vinna
út því núna.
Sjö manns unnu í gamla
verzlunarhúsnæðinu og mun
starfsfólkið verða flutt yfir
í hina nýju matvörudeild.
Viff rústirnar af kaupfélagshúsinu í Ólafsvík.
Hið isl. biblíufélag fékk Dæla úr Vest-
Guðbrandsb. og 20 þÚS. mannaeyjaholunni
AFMÆLI Hins íslenzka
bibliufélags var minnst með há-
| tíð í Dómkirkjunni á sunnudags
kvöld, og var hún mjög fjölsótt.
Biskup flutti þar ávarp. Jóhann
Hafstein, kirkjumálaráðherra,
flutti félaginu hamingjusókir og
afhenti því að gjöf Guðbrands-
| biblíu ljósprentað eintak. Fer
i hún í hið nýstofnaða bókasafn
félagsins.
Kveðjur frá Háskóla íslands
flutti próf. Björn Magnússon,
kveðjur frá Sameinuðu-
biblíuféiögunum, sem eru heims
— Leikrit
Framh. af bis. 1.
til Svíþjóðar 1939.
Leikritið sýnir, hvernig fórn-
arlömb nazistastjórnarinnar
voru pynduð og drepin — allt
frá komu þeirra til Auschwitz,
unz fangarnir létu líf sitt í gas-
klefunum. Styðst leikritið fyrst
og fremst við framburð vitna úr
réttarhöldum þeim, sem lauk í
Frankfurt í fyrra og höfðu þá
staðið í 20 mánuði. Leikritið
hefst með lýsingu á komu fang-
anna til Ausehwitz, þangað sem
þeir voru fluttir með yfirfullum
lestum alls staðar að úr Evrópu
og því lýkur með þeim þætti,
sem fjallar um hina ógeðslegu
líkofna í Auschwitz, þar sem
3—4 millj. manna létu lífið. í
lokaatriðinu sakar eitt vitnanna
þýzku þjóðina um að bera í
heild ábyrgð á fjöldamorðunum.
samtök, flutti dr. Béguin, frá
Brezka og erlenda biblíufélag-
inu sr. J. Williams og kveðju
frá Skozka biblíufélaginu mr.
D. Mogavin, en þessir erlendu
fulltrúar komu til landsins í til-
efni af afmæli félagsins.
Fáll Kolka, fyrrv. héraðslækn
ir flutti erindi um biblíuna og
menninguna. Dr. Páll ísólfsson
lék einleik á orgel og stjórnaði
sögn Dómkirkjukórsins og al-
mennum söng.
Á afmælishátíðinni tilkynnti
biskup, að Sjóvátryggingarfélag
íslands hefði gefið 20 þús. kr.
í afmælissjóð, sem stofnaður var
í tilefni þessara tímamóta með
tilliti til þeirra miklu verkefna,
sem standa fyrir dyrum hjá fé-
laginu.
Tónleikar
á ísafirði
ísafir’ði, 20. okt.
AÐRIR hjómleikar Tónlistar-
félags ísafjarðar á þessu starfs-
ári voru haldnir í Alþýðuhúsinu
í gærkvöldi. Cello-snillingurinn
Erling Blöndal Bengtson lék með
undirleik Árna Kristjánssonar
verk eftir Boccherini, Bach,
Beethoven og fleiri. Listamönn-
unum var forkunnarvel tkið og
þeir klappaðir fram og urðu a’ð
leika aukalög. — H. T.
Vestmannaeyjum, 20. okt.
Þegar lokið var við að bora
hina 1500 m. djúpu holu hér í
Vestmannaeyjum í fyrra var á-
kvéðið að dæla úr henni til að
kanna hverju vatni hún myndi
skila. Dælun hefir ekki getað
farið fram fyrr en nú. í dag
hófst dælunin fyrst að marki og
er ekki enn hægt að segja hverja
raun hún gefur og verður það
ekki ljóst fyrr en eftir nokkra
sólarhringa, að því er bæjar
stjórinn, Guðlaugur Gíslason
tjáði í dag. — Bj. Guðm.
— Hluti brúar
Framhald af bls. 32.
símastaur sá, er hangir í vatns-
flaumnum ,slítur línuna.
Skógaá undir Eyjafjöllum hef-
ir mjög vaxið og rann vatnið yfir
veginn vestan við brúna og var
hart á að fært væri þar á jeppa
er á daginn leið. Hafizt mun
strax handa um viðgerð á Vegin-
um við brúna. Markarfljót hefir
ekki svo menn muni verið jafn
mikið og nú, en ekki valdið
skemmdum, enda í rénun.
— Markús.
Istanbúl, 18. okt. — AP
HAFT er eftir áreiðanlegum heim
ildum, að Gemal Gursel, forseti
Tyrklands, hafi mikinn hug á því
að láta af embætti sökum heilsu-
brests. Forsetinn fékk heilablóð-
fall fyrir fjórum árum og hefur
ekki gengið heill til skógar síðan.