Morgunblaðið - 03.11.1965, Qupperneq 3
Miðviku<?agttT,,1?. nóv. 1965
M0RGUN8LAÐIÐ
3
:«gg;
Frá fundi forsæfisráöherra
*
HELSINKI, 30. okt. (AP).
Myndin hér að ofan var
tekin á fundi forsætisráð-
herra Norðurlanda, sem
haldinn var í Imatra í Finn
landi. — Fyrir miðju sitja
þeir Bjarni Benedikts-
son, forsætisráðherra, Guð-
mundur Benediktsson,
deildarstjóri, og Sigurður
Bjarnason, forseti Norður-
landaráðs.
Neðri myndin var tekin
er ráðherrarnir gengu á
fund Urho Kekkonen,
Finnlandsforseta, í Hels-
inki, er fundinum var lok-
ið. Myndin sýnir Tage Er-
lander, forsætisráðherra
Svíþjóðar, og Jens Otto
Krag, forsætisráðherra
Danmerkur, ásamt Urho
Kekkonen, forseta Finn-
lands.
fslandsdagskrá í
siónvarpi í USA
MIÐVIKUDAGINN 27. októ-
ber var sjónvarpað í Banda-
ríkjunum kvikmynd, sem Hal
Linker tók á íslandi sl. sumar,
er hann var hér ásamt Höllu
. — Hann ók
Framhald af bls. 1.
- 1 fyrri atrennunni ók Breed-
love með 876 km. hraða, en í
þeirri seinni rúmlega 911 km.
Fyrra heimsmetið átti landi
hans, Art Sarfons, og var það
863,750 km.
Breedlove gerði tilraun til að
hnekkja heimsmetinu í síðasta
xnánaði Var hann kominn upp
í 965 km. hraða þegar framendi
bifreiðarinnar tókst á loft og
fór út af brautinni. Breedlove
sakaði ekki, en hann lét setja
vængi framan á bílinn til að sag
an endurtæki sig ekki. v
konu sinni vegna 15 ára stúd-
entsafmælis hennar og 15 ára
brúðkaupsafmælis þeirra
hjóna. Er þetta klukkutíma
sjónvarpsþáttur, og er utan
við hiiyi vikulega hálftima
þátt þeirra hjóna í sjónvarp-
inu. Kvikmyndin frá íslandi
er í litum og var henni sjón-
varpað kl. 8.30—9.30 e.h.
í þættinum kynnir Halla ætt
land sitt, landið og þjóðina.
M.a. er sýnd flugferð yfir
Surtsey og hina gjósandi
Syrtlu, íslenzk glíma, skoðun-
arferð um Reykjavík o. fl. Og
þau hjónin ræða hið nýfram-
komna Vínlandskort og fara í
kvikmyndinni á Skólavörðu-
holt að styttu Leifs Eiríksson-
ar, sem Bandaríkjamenn gáfu
íslendingum árið 1930. Þessi
sjónvarpsþáttur er 14. sjón-
varpsþátturinn, sem þau Hal
og Halla Linker hafa um fs-
land í Bandaríkjunum.
I þessum sama sjónvarps-
þætit er sagt frá nýrri bók
eftir Höllu Linker, „íslenzk
ævintýrabrúður", sem er að
koma út hjá Skuggsjá á ís-
lenzku ,en enska útgáfan kem-
ur ekki út fyrr en á næsta
árL
Halla Linker kynnir
ættland sitt í sjón-
varpskvikmynd, sem
maður hennar tók á
IslandL
SIAKSTH^AR
Fiam&óknarstefnan
sigrai í
Bandaríkjunum
Framsóknarmenn á Islandi
eiga ekki sína líka í veröldinni.
Þeir eru sérkennilegt fyrirbæri,
sem vaxið hafa upp vegna ein-
angrunar Islands og hnýtt sig
svo rækilega aftan í öflug al-
manna- og kaupsýslusamtök, að
landsmenn hafa ekki getað losað
sig við þá, þótt öllum sé ljóst,
að þeir tilheyra öðrum timúm en
síðari hluta 20. aldarinnar.
Kannski er það einmitt vegna
uppruna síns sem Framsóknar-
menn hafa alltaf verið svo um-
svifamiklir í stjórnmálum ann-
arra ríkja. Þeir hafa í örvænt-
ingu leitað eftir stjórnmála-
flokkum í öðrum löndum sem
eitthvað líktust þeim. Sú leit
hefur lítinn árangur borið nema
á síðum Tímans. Síðasta dæmi
þess mátti sjá í blaðinu sl. sunnu
dag, en þá var þessi undirfyrir-
sögn á grein eftir Walter Lipp-
mann: Er framsóknarstefna
tryggð í Bandaríkjunum til fram-
búðar?
Miklir menn
Framsóknarmenn eru miklir
menn. Svo sem kunnugt er hafa
þeir nýverið unnið mikla kosn-
ingasigra í Noregi og Þýzkalandi
en skv. skrifum Tímans eru það
framsóknarmenn þeirra í Noregi
og Þýzkalandi, sem unnu nýaf-
staðnar kosningar. Per Borten
er auðvitað Framsóknarmaður.
Að vísu var honum ekki sýndur
sá heiður fyrr en hann var út-
nefndur forsætisráðherra en
fram að því hafði Tíminn gert
sér dælt við Röiseland, sem tal-
inn var Iíklegastur forsætisráð-
herra Norðmanna. Erhard og
Schröder eru auðvitað líka fram
sóknarmenn. Það verður spenn-
andi að sjá, hver af helztu leið-
togum heimsins hlýtur þennan
titil næst/ Kannske De Gaulle?
Hvað segir Johnson?
En hvað skyldi Johnson karl-
inn segja við því að hr. Jónsson
leiðtogi demókrata uppi á is-
landi eigni sér allan heiður af
störfum löggjafarþings Banda-
ríkjamanna. Johnson er nú ekki
mikið gefin fyrir að þakka öðr-
um, það sem hann telur vera sín
verk og sjálfsagt er honum því
ekkert um tilraunir demókrata
á islandi að stela skrautfjöðrun-
um hans. Annars er margt líkt í
fari Johnsons og Eysteins en
ósagt látið hvort sú samlíking er
jákvæð eða neikvæð fyrir Ey-
stein. En hvort sem við tölum um
framsóknarmenn í Bandarikjun-
um og demókrata á islandi eða
demókrata í Bandarikjunum og
framsóknarmenn á íslandi geta
fylgismenn Johnsons, — sem eru
auðvitað kátir yfir löggjafar-
starfi Bandaríkjaþings nú, en
eru samt svolítið hræddir um, að
allar hugmyndir séu uppurnar
og litið verði hægt að leggja
fyrir næsta þing, — yljað sér við
þá óumdeilanlegu staðreynd, að
hér uppi á islandi er flokkur
manna, sem nefnist Framsóknar
flokkur. Þar rikir mikil hug-
myndaauðgi og þeim verður ekki
skotaskuld úr að sjá Johnson fyr
ir stefnumálum á næsta þingi.
„Framsóknarstefnan verður því
vafalaust tryggð til frambúðar"
í Bandaríkjunum en mikil er
gæfa islands að ólukkufuglar
Framsóknarflokksins eru svo.
önnum kafnir vestan hafs. Þeir
láta islendinga þá í friði á með-
an.