Morgunblaðið - 15.01.1966, Qupperneq 5
Laugardagur 15. janúar 1966
MORCU NBLAÐIÐ
5
FRETTIR
Eyfirðingafélagið í Reykjavík
heldur sitt árlega Þorrablót að
Hótel Sögu, föstudaginn 21. jan-
úar n.k. og hefst blótið kl. 17:30.
Félagsmenn eru beðnir að fylgj-
ast með auglýsingum í dagblöð-
um bæjarins og Útvarpinu næstu
daga. — Félagsstjórnin.
Nessókn. Prófessor Jóhann
Hannesson flytur biblíuskýring-
ar í félagsheimili kirkjunnar
þriðjudaginn 18. jan. kl. 9. Allir
velkomnir. Bræðrafélagið.
Fíladelfía, Reykjavík. Guðslþjón
usta sunnudag, kl. 8:30. Ræðu-
menn Árni Eiríksson og Ásgrím-
ur Stefánsson.
Reykvíkingafélagið heldur
skemmtifund að Hótel Borg mið
vikudaginn 19. jan kl. 8:30.
Björn Pálsson flugstjóri sýnir
litmyndir af landinu. Málverk ai
séra Bjarna sýnt á fundinum.
Happdrætti, dans Félagsmenn
fjölmennið og takið gesti með.
Stjórnin.
Skagfirðingafélagið í Reykja-
vík biður Skagfirðinga í Reykja-
vík og nágrenni, 70 ára og eldri,
&ö gefa sig fram vegna fyrir-
Ihugaðrar skemmtunar við eftir-
talið fólk: Stefana Guðmunds-
dóttir, sími 1&836, Hervin Guð-
mundsson sími 33085, Sólveig
Kristjánsdóttir, sími 32853.
Óháði söfnuðurinn. Kvenfélag-
ið og Bræðrafélagið halda sam-
eiginlegan nýjársfagnað í Kirkju
bæ sunnudaginn 16. janúar að
lokinni messu, sem hefst kl. 2.
Allt safnaðarfólk velkomið.
Kristileg samkoma verður I
samkomusalnum Mjóuhlíð sunnu
dagskvöldið 16. jan kl. 8. Allt
fólk hjartanlega velkomið.
K.F.U.M. og K#í Hafnarfirði
heldur almenna samkomu á
sunnudagskvöld kl. 8:30. Kon-
ráð Þorsteinsson talar. Allir vel-
komnir.
Austfirðingafélagið í Reykja-
vík heldur fund sunnudaginn 16.
janúar kl. 8:30 að Hótel Sögu
(hliðarsal). Spiluð verður félags
vist. Stjórnin.
Árnesingafélagið í Reykjavík
heldur skemmtifund í Lindarbæ
uppi í kvöld kl. 8:30. Til skemmt
unar verður félagsvist, mynda-
sýning Dans og fleira. Skemmti-
nefndin.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
hefur nýárs-'
fagnað í Sjálf
6tæðis'húsinu
kl. 8:30 á
imánudags-
kvöldið 17.
janúar. Frú
Auður Auð-
uns, forseti
borgarstjórnar flytur ávarp. Síð-
an verður spilað Bingó, og marg
ir ágætir munir, þar á meðal
vetrarferð með Gullfossi til
Kaupmannahafnar. Bingóið er
fyrir allt sjálfstæðisfólk, konur
og karla Mætið vel og stundvís-
lega á þessu fyrsta bingóspili
félagsins.
Frá Vetrarhjálpinni. Síðasta
úthlutun á notuðum fatnaði vel'ð
ur mánudaginn 17. jan. og þriðju
dag 18. jan. frá kl. 13:30—17
báða dagana að Laufásvegi 41.
Kvenréttindafélag fslands held
ur fund kl. 8:30 á Hverfisgötu 21,
þriðjudaginn 18. janúar. Fundar-
efni: Anna Sigurðardóttir flytur
erindi: Nýir þjóðhættir og fjöl-
skyldulíf.
Félagskonur fjölmennið og tak-
ið með ykkur gesti.
Kvennadeild Borgfirðingafé-
lagsins heldur fund í Hagaskól-
anum M. 8:30 á þriðjudagskvöld
18. jan.
Kristileg samkoma verður
haldin í Breiðagerðisskólanum á
mánudaginn 17. jan. kl. 20:00.
Allir hjartanlega velkomnir Jón
Holm og Helmut Leiohsnering
tala.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag
kl. 11 og 20:30 Almennar sam-
komur. Foringjar og hermenn
taka þátt. Allir velkomnir Kl.
14:00. Sunnudagaskóli.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar.
(Eldri deild.) Fundur í Réttar-
holtsskólanum mánudagskvold
kl. 8:30. Stjórnin.
tJr íslendingasógunum
BÖRKR tekur sverðit af ÞÓRDÍSI.
„Ok um kveldit, er hon bar mat fram, fellir hon niðr spána-
trogit. Eyjólfr hafði lagt sverð þat í milli stokks ok fóta sér,
er Gísli hafði átt. Þórdís kemir sverðit, ok er hon lýtr niðr
eftir spánunum, þreif hon meðalkaflann á sverðinu ok leggr
til Eyjólfs ok vildi leggja á honum miðjum. Gáði hon eigi,
at hjaltit horfði upp ok nam við borðinu. Hon lagði neðar
en hon hafði ætlat, ok kom í lærit, ok var þat mikit sár.
Börkr tekr Þórdísi ok snarar af henni sverðit. I>eir hlaupa
upp allir ok hrinda fram borðum ok matnum. Börkr bauð
Eyjólfi sjálfdæmi fyrir þetta ok gerði hann full manngjöld
ok kvaðst gert hafa mundu meira, ef Berki hefði verr í
farit“
(Gísla saga Súrssonar).
>f Gengið >f
Reykjavík 12. janúar 1966
1 Sterlingspund ...... 120,58 120,68
1 Bandar. dollar ....... 42,95 43,06
1 Kanadadollar .... 39,92 * 40.03
100 Danskar krónur 623,70 625,30
100 Norskar krónur .... 601,18 602,72
100 Sænskar krónur .... 830.40 832,55
100 Finnsk mörk .... 1.335.20 1.338.72
100 Fr. frankar ....... 876,18 878.42
100 Svissn. frankar ... 993,25 995,80
100 V.-þýzk mörk .... 1.070.76 1.073.52
100 Lírur ................ 6.88 6.90
100 Gyllini...... 1.189,34 1.192,40
1(K> Bel.g. frankar .... 86.47 86.69
Njarðvík — Nágrenni
Ódýrar síðbuxur barna
nr. 2—12. Aðeins kr. 195,00.
Peysur ca. kr. 75,00.
Verzlunin LEA, Njarðvík,
sími 1836.
Unglingspiltur
13—15 ára óskast í sveit
strax. Uppl. í síma 35249.
SENDISVEIIMIM óskast
á ritstjórnarskrifstofur okkar.
. Vinnutími kl. 1—6 e.h.
100 Tékkn krónur . 59G.40 598,00 I
100 Austurr. sch.. 166.46 166.88 j
GAMALT oc con
Skipin skullu og árar
skall í hafi bára.
Spakmœli dagsins
Heimurinn er gamanleikur í
augum hugsandi manna, en sorg-
arleikur í hugum hinna tilfinn-
ingaríku. — H. Walpole.
Kláðapestbii
„Kláði hefur færst í aukana í Reykjavik í vetur“. Mbl.
M o t t ó :
„Jeg, fyrir mitt leyti játa það glaður,
að jeg er niðurskurðarmaður".
Hannes Hafstein.
Upp er hér kominn kláðapest,
sem kvað nokkuð mögnuð vera.
Við þekktum hann forðum, þennan gest,
og þá var hér um það rifist mest,
hvort lækna skyldi eða skera.
Það umdeilt mun nú, sem annað flest,
— það er okkar þjóðar-siður.
Ég held þó að verði happamest,
og hallast mun að þvi fyrir rest,
að skera skepnurnar niður.
K e 1 i .
Dnglingstelpa
óskast til sendiferða.
Vinnutími frá kl. 9—12 f.h.
Blýsökkur fyrir
kraftblakkanætur
Samkeppnisfært verð.
Mikið magn. — Sendið tilboð.
Alfred IViiclielsen
Metallvarefabrikk,
Stend pr. Bergen.
Telegramadr.: „Metall“.
LLLARVINNA
Dugleg stúlka eða kona óskast til vinnu við spuna-
vél í verksmiðju okkar að Frakkastíg 8. Á sama
stað óskast einnig röskur karlmaður til vinnu við
kembingarvél. Nánari upplýsingar hjá verkstjóra.
Ullarverksmiðjan FRAMTÍÐIN
Frakkastíg 8.
HOTEL BORG
Kalda borðið kl. 12
Kvöldverður kl. 7
Canapé
—O—
Kjötseyði Royale
eða
Cremsúpa Marie Lauise
—O—
Fiskifile Verdi
—o—
Lambakótelettur Madame Generale
eða
Svínasteik m/rauðkáli
eða
Kjúklingur Washington
—O—
Triffli
eða
Ferskjur Melba
Hljómsveit GUÖJÓNS PÁLSSONAR
Söngvari: ÓÐINN VALDIMARSSON.
OPIÐ TIL KL. 1.