Morgunblaðið - 06.02.1966, Qupperneq 2
r
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnurdagur 6. febrúar 196Í
„Reisa mætti mjðl-
verksmiðju á íslandi"
— fréttaritari IVibl. í K-höfn ræðir við
H. IVi. Ehlers, sem hafið hefur framleiðslu
á lyktar- og bragðlausu fiskimjöli
Frá fréttaritara Mbl. í
Kaupm.höfn. G. Rytgaard.
„Það er ábyggilegt, að
uppfinningin mín á fiski-
mjöli, sem hvorkir lyktar
né bragðast eins og fisk-
ur, á eftir að valda straum
hvörfum í þeim löndum,
þar sem matvæli eru af
skornum skammti“.
Þannig kemst danski .verk
fræðingurinn H.M. Ehlers
að orði, en fyrir nokkrum
dögum kunngerði hann upp
finningu sína. Hefur hún
þegar vakið mikla athygli,
einkum meðal ráðamanna
matvælastofnunar ^amein-
uðu þjóðanna, FAO.
Bhlers segir ennfremur:
„Við höfum nú reist verk-
smiðju hér í Danmörku, og
framleiðir hún um eitt tonn
af mjöli á klukkustund. Fram
leiðslugetan er því ekki mikil,
enn sem komið er, en ósk
okkar nú er að geta aukið
framleiðsluna. Það yrði mér
mikil ánægja, ef ísiendingar
hefðu áhuga á uppfinning-
unni. Framleiðslan á að fara
fram, þar sem nóg er um hrá-
efni. Óskf einhverjir íslending
ar eftir að, kynna sér upp-
finninguna nánar, þá geta
þeir skrifað beint til mín.
Ég bý í Stepping í Suður-
Jótlandi (Sönderjylland).“
— Svíar og Norðmenn hafa
þegar látið orð falla um upp-
finningu yðar. Nokkrir þeirra,
þ.á.m. vísindamenn, halda því
fram, að framleiðsluaðferðin
sé ekki ný. Hana hafi menn
þekkt um langt skeið, en hún
sé hins vegar of dýr.
„Mér er vel kunnugt um
þessi ummaeli“, segir Bhlers.
„Ég vil aðeins segja, að að-
ferð mín er ný af nálinni, og
ég er þeirrar skoðunar, að
grundvöllur sé fyrir fram-
leiðslu í stórum stíl. Við skul-
um taka dæmi: Til fram-
leiðslu á 1 kg. af mjöli fara
5 kg. af fiski. Sé kostnaðar-
verð hráefnisins dregið frá,
má reikna með, að hvert kg.
mjöls kosti 30—35 aura
(danska). Hveiti kostar um 1
kr. hvert kg. (dansika) hér í
Danmörku. Þess vegna ætti
fiskimjölið ekiki að verða
mjög dýrt, og í því sambandi
verður að hafa í huga, að
næringargildi fiskimjölsins
er 10 sinnum meira en nær-
ingargildi hveitis. Fiskimjöl-
ið innilheldur um 80% af
eggjahvítuefnum, auk amínó
sýra. Mannslíkaminn verður,
eins og allir vita, að fá eggja
hvítuefni úr dýraríkinu.
Verð fiskimjölsins verður
auðvitað mest undir því kom
ið, hvert verð hráefnisins er
á hverjum tíma. Á þeim grund
veli verður að leggja dóm á,
hvert gildi mjölið hefur."
— Hvaða fistegundir á
helzt að nota íil mjölfram-
leiðslunnar?
„Bæði þorsk og sild.“
— Er hugsanlegt að nota ti'J
framleiðslunnar verðminni
hluta fisksins?
„Þeir eruð sennilega að
hugsa um, hvort hægt er að
selja fiskiflökin sér? Nei, það
er ekki hægt. í Evrópu, a.m.k.
er svo mikil'l Skortur á
minnkafóðri, að fiskúrgangur
er í svo háu verði, að notkun
hans yrði ekki sérlega hag-
kvæm. Eigi árangur að nást,
verður að hagnýta allan fisk-
inn.
í þessu sambandi verð ég að
benda á, að fiskimjölsfram-
leiðs\una verður að skipu-
leggja nákvæmlega. Nota verð
ur ferskan fisk. Hafi fiskurinn
legið í 6 stundir, án þess, að
sérstakar ráðstafanir hafi ver
ið gerðar til að skýla honum,
hefur orðið efnabreyting, sem
gerir hann óhæfan til mjöl-
framleiðslu.“
— Er um einhverjar sér-
stakar varúðarráðstafanir að
ræða, í því samibandi?
„Nei, það er alls ekki um
neinar óþekktar ráðstafanir
að ræða. Það þarf einungis
að ísa fiskinn."
— Það þarf þá ekki að
reisa „fljótandi“ verksmðij-
ur?
„Nei. Það þarf aðeins að
fara eftir almennum reglum.“
— Hvernig fer framleiðsla
mjölsins fram?
„Mikilvægur þáttur er notk
un geisla. Ég get af eðlilegum
ástæðum ekki lýst aðtferðinni
í smáatriðum, en þó get ég
sagt, að ekki eru notuð nein
geislavirk efni. Það er notk-
un geislanna, sem greinir
milli minnar uppfinningar og
eldri framdeiðsluaðferða.
Eldri aðferðirnar eru ekki
réttar, og varan þvi hvorki
góð né ódýr.“
— Hafið þér unnið lengi að
þessari uppfinningu?
„Ég hef unnið með fisk um
langan tíma, m.a. að fram-
leiðslu dýrafóðurs. Sennilega
um 12 ár. Fyrir 4 árum fram
leiddi ég fiskimjöl (þorska-
mjöl) til manneldis, en það
var ekki bragðlaust. Einkum
hef ég þó unnið að fram-
leiðslu minka- og svínafóð-
urs. Það var á þeim tíma, að
ég var að því spurður, hvort
ekki væri hægt að framleiða
fiskimjöl til manneldis. Það
þurfti að uppfylla 3 skilyrði.
• í fyrsta lagi varð það
að vera ódýrt.
• í öðru lagi varð það að
vera fíngert, ekki korn
ótt, og uppleysanlegt í
vatni.
• í þriðja lagi varð það
að hafa mikið geymslu
þol.
Mér hefur nú tekizt að
leysa þessi þrjú vandamál.
Við höfum þegar sent nokkur
þúsund tonn til þeirra landa,
sem sérstaka þörf hafa fyrir
eggjahvíturík næringarefni.
FAO hafði milligöngu um
dreifingu mjölsins."
— Þér hafið þegar gert
samning við FAO?
„Ég get ekki rætt um það
í smáatriðum, en ég hef nána
■HKWnMSMMMMM
samvinnu við þýzkt fyrirtæki.
Hins vegar er það ljóst að
FAO er á höttunum eftir
ódýrri matvöru. Sannleikur-
inn er sá að þetta mjöl gefur
alveg ótrúlega mögu’lei'ka til
að bæta úr því hörmungará-
standi, sem ríkir í vanþróuðu
löndunum.
Það er ætlun okkar að reisa
verksmiðju hér í Danmörku,
og senda síðan mjölið til
Bremen, og þar verða síðan
gerðar tilraunir, í samráði
við FAO, til brauðgerðar úr
því. Niðurstaðan verður
sennilega sú, að notað verði
10% af mjöli, en afgangurinn
verði rúg- eða hveitimjöl.
Þannig ætti brauðið að inni
halda um 16% eggjahvítu-
efni, en hingað til hefur
eggjahvítuinnihald brauðs að
eins verið 8%. Það er ekki
hægt að gera brauð af mjöl-
inu einu, en blanda má það
öðru mjöli, sem ekki hefur
eins mikið af eggjahvítuefn-
um að geyma. Amínósýrurn-
ar, sem mikið er af 1 fiski,
eru fyrir hendi í ríkum mæli
í brauðinu, og frá „teoret-
isku“ sjónarmiði séð, má
segja, að hægt sé að lifa af
brauðinu einu' saman.“
E. M. Bhlers, verkfræðing-
ur, sem er fimmtugur að
aldri, hefur reist tilraunastöð
sína í húsakynnum gamals
mjólkurbús, í bænurn Stepp-
ing, í nágrenni Haderslev í
Suður-Jó'tlandi. Þar vinnur
hann einnig að smíði tækja
þeirra, sem notuð verða í
nýrri verksmiðju, sem reist
verður.
„Það verður litil verk-
smiðja,“ segir Elhlers, „en
það er ekki endanlega ákveð-
ið, hvar hún verður reist.
Sennilega þó einhvers staðar
á vesturströnd Jótlands, jafn-
vel í Hanstholm, þar sem nú
er unnið að stórri fiskihöfn.“
■— Hvers vegna hafið þér
leitað eftir stuðningi og fjár-
magni í Þyzkalandi?
„Ég reyndi árangurslaust
að fá stuðning við hugmynd
mina hér í Danmörku, en eins
og þér vitið, þá liggur fjár-
magn ekki á lausu hérlendis.
Því sneri ég mér til Þýzka-
lands.
Ég hef fengið góðar undir-
tektir í Noregi. Auk þess gæti
ég hugsað, að reisa mætti mjöl
verksmiðjur í Grænlandi, á
íslandi og í Perú, þar sem
gnægð er hráefnis."
— Þeir, sem hafa áhuga á
samstarfi við yður, eiga þá
að snúa sér beint til yðar?
„Já, enn sem komið er, að
minnsta kosti.“
— Rytgaard.
— Verba
Framh. af bls. 1
könnun telur, að meirihluti hans
geti orðið um 6%.
Eftir helgina er búizt við
frekari fregnum um hug stjórn-
arinnar í þessu máli — en í gær
var haft eftir allgóðum heim-
ildum, að Wilson forsætisráð-
herra hefði þegar tekið ákvörð-
un um að láta fara fram kosn-
ingar í lok marz, 24. eða 21.
mars.
Hinsvegar er á það bent, að
hann hefur fram að þessu frem-
ur hallazt að því að bíðg til
haustsins — og helztu ráðgjafar
hans eru alls ekki sammála um
hvað gera skuli. Sumir telja
ekki rétt að taka neina áhættu
fyrr en stjórnin hefur fengið
framkvæmt helztu stefnumál
sín- aðrir telja, að hún eigi sig-
ur vísan fari*kosningar fram nú.
Þá kemur það einnig til greina
það álit ýmissa fréttaritara, að
hinn naumi meirihluti stjórnar-
innar hafi að vissu leyti verið
sterkasta vopn Wilsons til þess
að halda í skefjum vinstri armi
verkamannaflokksins, sem hafi
ekki getað gert honum neina
skráveifu nema með því að fella
stjórnina. Því hafi Wilsqn haft
meira athafnarfrelsi en ella. Og
aukist meiri hluti flokksins veru
lega, geti svo farlð, að vinstri
armur hans fái meira svigrúm
til þess að velgja forsætisráð-
herranum undir uggum.
— Viefnam
Framhald af bls. 1.
flækt í þetta mál hver væri stað-
an þar og hvert væri raunveru-
legt markmið Bandaríkjanna
þar.
Leiðtogi Demokrata í öldunga-
deildinni Mike Mansfield sagði,
er honum bárust fregnir af hin-
um fyrirhugaða Hawai fundi, að
sú hugmynd væri prýðileg og
líkleg til árangurs. Og öldunga-
j deildarþingmaðurinn, George
Aitken, lét svo um mælt, að
sennilega væri það rétt leið hjá
stjórninni að leggja meiri áherzlu
á hina efnahagslegu og félags-
legu hlið Vietnam málsins en
i til þessa hefur verið gert
Képavogur
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa-
vogs heldur fund n.k. miðviku-
dagskvöld kl. 8.30 í Sjálfstæðis-
húsinu í Kópavogi. Geir Hall-
grímsson borgarstjóri talar á
fundinum um skipulagsmál
Reykjavíkur og Kópavogs.
Birgir Kjaran
lalar um Jon
SigurðsstHi
AíNiVAÐ KVÖLD, mánudags-
kvöld, hefst erindaf lokkur Heim-
dallar um liðna stjórnmálaskör-
unga. Birgir Kjaran, hagfr. mun
þá ræða um Jón Sigurðsson,
forseta, Þess er að vænta að
félagsmenn Heimdallar fjöl-
menni enda verður hér vafalaust
um fróðlegt erindi að ræða.
Fundurinn verður í Félagsiheim-
ilinu og hefst kl. 20.30.
Alþingi
kemur saman
ALÞINGI kemur saman til funda
að loknu jólaleyfi á morgun,
mánudag, kl. 2 síðdegis.
Verður þá fundur í Sameinuðu
Alþingi.
Bruni í geymsíu
UM kl. hálfþrjú í gærdag kom
upp eldur í geymsluhúsi við hlið
ina á byggingu Gamla komanís-
ins við Síðumúla 23. Slökkviliðið
varð að rjúfa þekjuna af húsinu
og hliðina á því, til þess að kom-
ast fyrir eldinn. Allmikið tjón
varð af eldi, vatni og reyk á efni,
I vélum og húsgögnum.