Morgunblaðið - 06.02.1966, Blaðsíða 23
Sunnurctagur 6. febrðar 1%6
MORGUNBLAÐIÐ
23
Baldur Bjarnason, oddvifi:
Ljdkum vegagerð með-
fram Djdpbyggðum
Skötuíjörður í ögurhreppi
komst inn í sviðsljós íslenzkra
daglblaða í Re y k j aví ku rb rétf i
Morgunblaðsins þann 3. ökt. sl.
Höfundur bréfsins ræðir vanda
mál landbúnaðarins og þær um-
ræður, sem um hann hafa farið
fram að undanförnu. Kemst hann
að þeirri niðurstöðu að veiga-
mikið atriði í því sambandi sé
einfaldlega það, að á fjölda
jarða, sem búið sé á, sé í raun og
veru alls ekki búandi, á þann
hátt að þar verði lifað „mann-
sæmandi lífi“, eins og höfund-
ur kemst að orði. Sem dæmi upp
á þessa staðhaefingu sína, tekur
hann svo Skötufjörð í Ögur-
hreppi, þar sem bæirnir „hangi
utan í stórgrýttum fjallshlíðum“
og hafi enga möguleika til að
þar verði lifað „mannsæmandi
lífi“. Það fólk, sem þama búi,
sé þama eiginlega af gömlum
vana, af tryiggð við fornar slóðir.
Þessu fólki þurfi samfélagið að
'koma til hjálpar, og aðstoða það
við að komast burt úr þessu
ömurlega umhverfi til búsældar-
legri heimkynna, þar sem það
geti lifað eins og fólki sæmir.
Svo mörg eru Þau orð.
Vegna hinna fjölmörgu, sem
eru alls ókunnugir í þessum hluta
landsins, og einnig vegna þeirra
sem búa í Skötufirði, fann ég
mig knúinn til að laggja nokkur
orð í belg við þessar umræður.
Ég tel mig vera nokkuð kunn-
ugan bú- og landsháttum í Skötu
firði, a.m.k.. á borð við höfund
þessa Reykjavíkurbréfs, sem í
mesta lagi einu sinni hefir Skötu
fjörð augum litið. Ég vil þess
vegna mótmæla því, sem fram
kemur í þessari ritsmíð, vegna
þess að þar er talað af fáfræði
og ókunnugleika.
Höfundur, sem ekki mun vera
í hópi þeirra, sem vanalega rita
Reykjavíkurbréf, slær því föstu,
að á aðeins tveim bæjum af átta,
sem eru í Skötufirði, séu ein-
hverjir ræktunarmöguleikar.
Fróðlegt hefði verið að sérfræð-
ingurinn hefði nefnt þessa bæi.
Það liggur nefnilega alls ekki
Ijóst fyrir Skötfirðingum sjálf-
um, eins og honum, hvaða tvo
bæi gæti verið um að ræða, þar
sem ræktunarmöguleikar væru
svipaðir.
Það er fjarri mér að fara að
halda því fram að Skötufjörður
sé eitthvert gósenland frá nátt-
úrunnar hendi. Það er vitað
mál, að þar eru ekki landkostir
á borð við það, sem gerist í
fjöldamörgum sveitum á íslandi.
Sama má náttúrulega segja um
ýmsa firðina okkar hér við
Djúp, að þeir skáka ekki beztu
góðsveitum landsins. En ég vil
mótmæla Því að þessi byggð,
sem allt frá landnámstíð hefur
staðið fyrir sínu, sé allt í einu
dæmd óbyggileg, og það af
mönnum sem litla þekkingu hafa
til brunns að bera í þessum
©fnum.
Mér er ekki kunnugt um að
nein athugun hafi farið fram á
því, hve mikið ræktanlegt land
sé í Skötufirði. Við fyrstu sýn,
þegar farið er eftir firðinum,
sjóleiðina, kunna hinar grýttu
fjallshlíðar að draga frekar að
sér athygli ferðamannsins en
ræktanlegu blettirnir, en þegar
allt kemur til alls má óefað
fullyrða að á flestum eða öllum
bæjum í Skötufirði megi rækta
það stór tún, að nægja muni til
þess að hægt sé að reka þar
sæmilegan sauðfjárbúskap.
„Það er fleira matur en feitt
kjöt“ segir máltækið. Skilyrðin
til búskapar eru ekki alla stað-
*r hin sömu og þurfa heldur
ekkl að vera það. Þar sem
mjólkurframleiðsla er stunduð
er óhjákvæmilegt að hafa mikla
ræktun og gott og nærtækt beiti-
land. Sauðfjárraektin krefst aft-
ur á móti ekki eins mikillar
túnræktunar, en því meira beiti
lands.
Að þessu leyti tel ég að Skötu-
fjörður standi vel að vígi. Enda
þótt brattlent sé þar og ríða
grýtt, er Þar ágætt stuðland og
víðáttumikið, víða skógankjarr,
grösin kjarngóð og oftast snjó-
létt á vetrum. Á tveimur yztu
bæjunum í Skötufirði gengur féð
aðallega í Hestfirði á sumrin, en
þar er viðurkennt að vera eitt-
hvert bezta sauðland á landi hér.
Það er líka svo að yfirleitt er
sauðfé á Þessum slóðum afurða-
gæft og heldur létt á fóðrum.
Það má segja að sauðkindin
sé í rauninni eina tækið, sem við
höfum til þess að nýta hinar
miklu víðáttur landsins, sem ella
myndu ónotaðar með öllu.
En ræktunina verður samt að
auka mikið í Skötufirði, og það
er verið að því þrátt fyrir veg-
leysið, sem staðið hefur allri
ræktun og öðrum framförum í
Skötufirði fyrir þrifum. Með ærn
um kostnaði og fyrirhöfn hafa
þó nokkrum sinnum verið flutt
stórvirk ræktunartæki sjóleiðina
í fjörðinn og nú í haust var flutt
þangað skurðgrafa í fyrsta sinn.
Vann hún þar í nokkrar vikur
og hefur ekki enn lokið verki
sínu í firðinum.
Það er varla hægt að minnast
svo á Skötufjörð, að ekki sé
minnzt á þann þátt sem sjór-
inn hefur átt I afkomu manna
þar. Fyrr á árum mátti segja að
hann væri þeirra hálfa líf, eins
og raunar mátti segja um flesta
bændur hér við Djúp á þeim
tímum. Fjörðurinn var fisksæll
með afbrigðum. Þorskur, ýsa og
annað góðfiski gekk einatt inn
á fjarðarbotn að ógleymdri síld-
inni og smokknum, og færðu
mikla björg í bú. Nú er þetta
breytt orðið, því miður. Fisk-
urinn gengur ekki lengur inn á
fjörðinn svo neinu nemi, en sild-
in og smokkurinn koma þangað
enn sem fyrr, og geta enn orð-
ið til búdrýginda, enda þótt erf-
iðara sé um vik nú en Þegar
fólkið var fleira á bæjunum.
Yfirleitt held ég að segja megi
að í Skötufirði hafi ekki verið
verr búið en annars staðar hér
við Djúp, enda þótt byggðin
hafi goldið þess á síðustu árum
að vera ekki aðnjótandi þeirra
tæknilegu framfara, sem fylgja
í kjölfar veganna, nema að mjög
takmörkuðu leyti.
Það má benda höfundi Reykja
víkurbréfsins og öðrum þeim,
sem álíta Skötufjörð „óalandi og
óferjandi" sakir skorts á land-
kostum, að hann er sá fjörður-
inn hér við Djúp, sem bezt hef-
ur staðið sig í baráttunni við
landseyðinguna. Þar hafa allir
bæirnir, átta að tölu verið í
byggð, þar til í haust að Kálfa-
vík fór í eyði. Kleifar; sem ver-
ið höfðu í eyði um nokkurra
ára bil byggðist aftur fyrir
fimmtán árum. Það færi betur
að sem flestar sveitir á íslandi
gætu sagt sömu sögu. Og þetta
skeður þrátt fyrir það, að eng-
inn vegarspotti er í firðinum og
allir flutningar á smáu og stóru
verða að fara fram á sjó. Er
ekki ástæða til að ætla að fjörð-
urinn hafi einhverja þá kosti upp
á að bjóða, sem fólkið þar kann
að meta, svo sannarlega væri
það ekki ósennilegt.
Enda þó nokkuð hafi nú verið
rætt hér um landkosti í þessum
firði, hefur ýmislegt ekki verið
nefnt enn. Innarlega í firðinum
og á botni hans renna vatns-
miklar og straumþungar ár, sem
vafalaust bjóða upp á mikla
virkjunarmöguleika. Þær eru
einnig veiðiár og mætti án efa
koma þar upp laxveiði til ó-
metanlegs styrks og hlunninda
þeim bændum, sem land eiga að
ánum. í botni Skötufjarðar er
þó nokkurt undirlendi, og mikið
af Því ræktanlegt land. Skógur
er þar og berjaland afbragðs
gott, sem oft hefur orðið góð
búbót af. Viðbrugðið er náttúru
fegurð í botni Skötufjarðar, og
sumarfallegt mjög.
Það er því víðs fjarri að Skötu
fjörður hafi ekki annað til að
bera en „stórgrýttar fjallshlíð
ar“> eins og bréfritarinn lætur
í veðri vaka. Fjörðurinn hefur
marga kosti og „mörg er þar
matarholan", enda þótt hann eða
íbúar hans hafi ekki verið bá-
súnaðir um allar jarðir.
Hvítanes í Skötufirði var á
tímabili mesta garðræktarstöð á
Vestfjörðum, meðan dugnaðar-
maðurinn Vernharður Einars-
son bjó þar. Bændur í Skötu-
firði voru með þeim fyrstu hér
við' Djúp til þess að tileinka
sér rafmagnið. Á þremur bæj-
um voru snemma settar upp
dieselrafstöðvar sem nægja til
Ijósa og venjulegra heimilsnota.
Á einum bæ hefur vatnsaflið
verið virkjað og á hinum bæj-
unum eru mótorrafstöðvar með
hjálparvélum. Skötfirðingar
hafa líka komizt upp á lag með
að hjápa sér sjálfir í ýmsu til-
liti, enda eru þar hagleiksmenn
margir, bæði á smíðar, rafmagn,
vélaviðgerðir og margt fleira.
Höfundur Reykjavikurbréfsins
stingur upp á þvi að þessu fólki
verði hjálpað til að flytjast til
búsælli staða.
Ég tel vafalaust, að mér sé
fyrir hönd Skötfirðinga, óhætt
að. afþakka þetta vel'hugsaða
boð. Aftúr á móti tel ég full-
víst að þeir yrðu þakklátir fyrir
hverja þá aðstoð, sem þeim yrði
í té látin, og miðaði að Því að
gera þeim fært að búa áfram á
jörðum sínum. Þeir myndu
fagna hverri þeirri rödd, sem
styddi kröfu þeirra um bættar
samgöngur á landi og annað sem
gerði þeim sókniV til bættra
lífskjara léttari.
Það eru óefað vegamálin sem
mest aðkallandi eru í dag fyrir
íbúa Skötufjarðar, eins og áður
hefur verið drepið á. Það er
staðreynd, að vegasamband er
eitt þeirra frumskilyrða, sem
uppfylla þarf nú á dögum til
þess að hægt sé að lifa mann-
sæmandi lífi. f dreifbýli, eins og
hér er um að ræða, gjörbreytir
það bókstaflega öllu lífi fólks,
bæði atvinnulega séð, og þá ekki
síður í félagslegu tilliti. ögur-
hreppur má heita klofinn í tvo
hluta, nokkuð jafna. Innri hlut-
inn að Skarði þar sem vegur
er kominn á hvern bæ, og svo
Skötufjörðurinn. Það þarf ekki
að útskýra það, hve mikill
hnekkir og dragbítur það er á
allt starfslíf í hreppnum að að-
stæðurnar eru þannig.
Þess vegna er það skýlaus
sanngirniskrafa þeirra, sem
hlut eiga að máli, að vegalagn-
nigunni inn með Skötufirði verði
hraðað meira hér eftir en hing-
að til.
Vegaáætlunin nýja, sem fékk
gildi á sl. ári varð Skötfirðing-
um mikil vonbrigði, og eigi sið-
ur öðrum Djúpmönnum. Þar var
alltof naumt skammtað af fjár-
veitingavaldinu, þar sem í hlut
átti byggðarlag, sem svo langt
átti í land með að komast í
vegasamband.
Við næstu endurskoðun vega-^
áætlunarinnar eftir eitt ár verð-
ur Þetta að breytast. Það nær
ekki nokkurri átt að á sama
tíma sem tugum milljóna er var-
ið í nýja vegi meðfram vegum
hingað og þangað á landinu, skuli
fjárframlög til þessa vegar skor-
in svo við nögl, sem raun er
á, og það fólk sem hlut á að
máli sett skör lægra en aðrir
landsmenn. Það eru heldur ekki
eingöngu Skötfirðingar sem
hér eiga hagsmuna að gæta, held
ur Djúpmenn allir, í sveitum og
við sjó. Þeim er það mikil nauð-
syn að akfært verði sem allra
fyrst til ísafjarðar, svo mjög
sem þeirra viðskipti eru bund-
in honum. Gæti ekki einnig skap
azt sama ástand hér við Djúp
og í Strandasýslu á sl. vetri,
þegar hafísinn lokaði öllum sjó-
leiðum? Hvar væru mjólkur-
framleiðendur hér við Djúp þá
staddir?
Það er talað um miklar vega-
lengjur og erfitt land til vega-
Framhald á bls. 22
Jóhann Hjálmarsson:
PICASSOSAFNIÐ
I BARCELONA
S Á sem hefur í hyggju að
leita uppi nútímalist í sýn-
ingarsölum Barcelónaborgar,
verður ábyggilega fyrir von-
brigðum. í staðinn fyrir að
finna myndir eftir unga
spænska málara, sem okkur
er tjáð að reyni margir hverj-
ir nýjar leiðir og séu lifandi
menn, finnur þú klessuverk
eftir afdankaða karla, lata og
sæla. Þessir gömlu menn hafa
sennilega ekki haft spurnir af
því að neitt hafi gerzt í mynd
list síðan á dögum impress-
jónistanna, eða kæra sig ekki
um að vita það. Listasmekk-
ur spænskrar alþýðu er léleg-
ur ef hún sættir sig við þetta
gutl, en við skulum vona að
margir Spánverjar séu ekki í
andlegu bræðralagi við þessa
málara.
Ég hef áður getið um það í
greinum mínum héðan að
Barcelona sé full af gömlum,
miklum listaverkum, aðallega
trúarlegum, en hver hefur
ekki löngun dl að sjá mynd-
ir af nútíma píslarvottum eft-
ir að hafa átt þess kost að
fylgjast með þeim liðnu mál-
uðum af sannfæringarkrafti,
skaphita og leikni meistar-
anna.
Ungu málararnir? Þeir eru
allir í Madrid, er okkur sagt.
En vegna þess að það tekur
langan tíma að komast til
Madrid, og vió eigum ekki
heimangengt, þá væri ekki úr
vegi að skoða listasafn, sem
Barcelonaborg má vera stolt
af. Þetta listasafn heitir
Picassosafnið, og er nýlega
tekið til starfa.
Picassosafnið er stórt hús,
rúmt og bjart eins og mikil-
væg söfn eiga að vera. Mynd-
irnar búa ekki við nein
þrengsli, þeim er gefið nóg
pláss á veggjunum og þannig
njóta þær sín vel.
Hér eru mörg æskuverk
Picassos og þrátt fyrir hinn
nána skyldleika við myndir
Lautrecs, eru þessar myndir
ekki stælingar, heldur litfag-
ur söngur ungs manns um ver
öldina. Hvernig hefur Piccasso
litið út á þessum árum? Svar-
ið er að finna á sjálfsmynd,
sem sýnir hann síðhærðan
með hattkúf og pípu, stór-
eygðan listamann á torginu.
Hann er alltaf að breytast,
endurnýjast. Hann er tíminn
sem við lifum á, stríðið sem
er liðið, baráttan sem enn á
sér stað á vígvöllunum og í
hjarta mannsins sjálfs. Hann
lærir af fortíðinni, frumstæðri
list, egypzkri; hann tekur allt
það sem hann finnur og breyt
ir því í myndir.
Mest er um svartlist og
teikningar í Picassosafninu.
Þar eru færri málverk. Hér
eru syrpur um Don Quijote
þekkt. Myndir af skáldum.
og Sancho Panza; nautaöt og
konur, sem Picasso hefur
Teikning af skáldinu Antonio
Machado, sem dó í útlegð i
lok borgarastyrjaldarinnar,
þessi teikning minnir á hina
frægu teikningu af Erenbúrg.
Hrjáðir menn á kaffihúsum
inn líða yfir glasi af víni.
Líkt og Matisse getur Picasso
sagt sögu andlits í fáum lín-
um. Línunum fækkar, litur-
inn hverfur. Loksins er aðeins
eftir ein lína. Er það nóg?
Picasso er unglingur. Það er
ekki hægt að hugsa sér hann
gamlan. Það er auðvelt að
álita myndir hans frá seinni
tímum tákn uppgjafar, en það
er ekki hægt að neita tilvist
þeirra. Þær kalla á mann.
Þær eru ofurviðkvæmar,
stundum þungar og líkt og
yfirfullar af smáatriðum, létt-
ar, dimmar. Þannig er Pic-
asso, trúðurinn.
Picasso er mikill auglýs-
ingamaður eins og Dalí. Ef til
vill mun framtíðin telja Dalí
hafa átt meira erindi við sig.
En sem málari, myndlistar-
maður, stendur Picasso föst-
um rótum. Hann er orðinn
tré sem vindarnir leika um.
En á morgun verður ef til vill
málaralistinni varpað fyrir
borð. Eða hvert stefna hinir
nýju menn? Mun þeim tak-
ast að ganga af málaralistinni
dauðri? Gott og vel. En þá
viljum við fá eitthvað annað
í staðinn.
Við langa, mjóa og gamla
götu stendur Picassosafnið í
Barcelona. Rétt þar hjá er
Franska jránbrautarstöðin. —
Það er hægt að fara með lest-
inni klukkan tuttugu mínútur
yfir fjögur til Parísar, og
koma snemma morguns þang-
að sem Picasso vinnur. En
ekki kemur Picasso með lest-
inni til Barcelona. Spænsk
stjórnarvöld hafa boðið hon-
um að koma. Þrjóski ungling-
urinn neitar. Man hann enn
Guernica? Heyrir hann enn
gný flugvélanna, sem vörp-
uðu sprengjunum á þorpið
Guernica? Mun hann mála
nýja mynd af Guernica? Eða
heldur hann áfram að sýna
yndisþokka kvenandlitanna?
Picasso vill ekki fara heim til
Barcelona, en borgin býður
eftir honum.
Þegar ég var á leið í Picasso
safnið, spurði ég fólk úr ná-
grenninu til vegar. Það hristi
höfuðið. Picassosafnið? Hver
er Picasso? Úr sölum safns-
ins má virða fyrir sér lif borg
arinnar fyrir utan. Forgömul
kona gægist fram undan mis-
litum þvotti og hjá henni eru
tvö fuglabúr. Alls staðar hang
ir þvottur til þerris. Fólk hrað
ar sér með matinn og veit
ekki að fáeina metra frá því
er safn Picassos, þar sem
saga aldarinnar hefur verið
fest á striga og hvítan pappír.
Gamlá konan hrýtur. Picasso
er einhvers staðar í Frakk-
landi og neitar enn að hverfa
heim.