Morgunblaðið - 15.04.1966, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fostudagur 15. apríl 1966
ÆMsærm
Miklar umræður um verð-
tryggingu fjárskuldbindinga
I gær voru þrjú stjórnarfrumvorp afgreidd sem lög
ÞRJU stjórnarfrumvörp voru af-
greidd sem lög frá Allþingi í
gær. Voru það frumvörpin um
atvinnuleysistryggingar og Iðn-
lánasjóð, er afgreidd voru frá
efri-deild og frumvarpið um
fuglaveiðar og fuglafriðun, er
afgreitt var frá neðri-deild. Þá
var frumvarpi Jóns Skaftasonar
og fl. um réttindi og skyldur
starfsmanrva ríkisins vfísað til
ríkisstjórnainnar að tillögu alls-
herjamefndar neðri-deildar. Matt
hías Bjarnason mælti fyrir áliti
nefndarinnar og sagði það vera
álit hennar að rétt væri að setja
í þessu máli ákveðnar reglur og
þyrfti að fara fram rannsókn á
hlið«tæðum reglum í nágranna-
löndum okkar. Væri því málinu
vísað til ríkisstjórnarinnar í
trausti þess, að hún gengist fyrir
rannsókn málsins og legði það
fyrir næsta þing.
í neðri-deild lauk einnig 2.
umræðu um stofnlánadeild verzl
unarfyrirtáekja og um frumvarp-
ið um lánasjóð sveitarfélaga. At-
kvæðagreiðslu um þau var frest-
að.
í efri-deild mælti Friðjón
Skarp/héðinsson (A) fyrir áliti
heiibrigðis- og félagsmálanefnd-
ar deildarinnar um frumvarpið
um iögfestingu 1. maí sem frí-
dags. Var nefndin sammála að
mæla með samþykkt frumvarps-
ins og var því að ræðu fram-
sögumanns lokinni vísað tiil 3.
umræðu.
Búnaðartnálsjóður.
Gunnar Gislason mælti fyrir
frumvarpi um breytingu á lög-
um um stofnun búnaðarmála-
sjóðs. Er frumvarpið flutt af
landbúnaðarnefnd eftir beiðni
land'búnaðarráðuneytisins. Er á-
kvæði frumvarpsins það að á ár-
unum 1966—'1969, að bóðurn ár-
um meðtöldum skuli greiða 14%
viðbótargjald af söluvörum land-
búnaðarins, og rennur það gjaid
til Búnaðarfélags íslands og
Stéttarsambands bænda til hús-
byggingar félaganna við Haga-
torg í Reykjavik.
Gat framsögumaður þess að
landbúnaðarráðuneytinu hefði
borizt bréf frá Búnaðarfélagi
íslands, þar sem ráðuneytinu
væri send ályktun búnaðarþings
1966 um erindi stjórna Búnað-
arfiélags íslands og Stéttarsam-
bands bænda um framlengingu
á búnaðarmálasjóðsgjaldi til
Bændahallarinnar, með eindreg-
inni ósk um ,að ráðuneytið hlut-
ist til um, að málið verði tekið
fyrir til afgreiðslu á Al/þingi
því, er nú sæti. Væri þvá frum-
varpið flutt nú, samkvæmt þess-
um óskum. Málinu var síðan
vísað til 2. umræðu.
Taka sætí
á þincpi
ÞRÍR varaþingmenn tóku sæti á
Allþingi í gær. Voru það Sigfús
J. Johnsen kennari í Vestmanna-
eyjum er tekur sæti Guðlaugs
Gíslasonar 3. þingmanns Sunn-
lendinga, Jón Kjartansson er
tekur sæti Skúla Guðmundsson-
ar 1. þingmanns Norðurlands-
kjördæmis vestra og Vilihjálmur
Hjálmarsson er tekur sæti Hall-
dórs Ásgrímssonar 2. þingmanns
Austfirðinga. Allir þessir vara-
þingmenn hafa setið áður á Al-
þingi.
Verðtrygging fjárskuldbindinga
Frumvarpið um verðtryggingu
fjárskuldbindinga kom til 3. um-
ræðu á ný í gær. Tók þá fyrst-
ur til máls Einar Ágústsson (F)
Gerði hann enn að umtalsefni
einstök atriði frumvarpsins og
undirstrikaði þá skoðun sína, að
nú hefði átt að vísa málinu frá
og láta milliþinganefnd fjalla
um það og rannsaka í samráði
við Seðlabankann og viðskipta-
bankanum í því skyni að gera
ákvæði þess fyllri og ýtarlegri.
Síðan hefði átt að leggja það
fyrir næsta þing.
Gylfi Þ. Gíslason viðskipta-
málaráðherra, gerði að umtals-
efni atriði er fram höfðu komið
í ræðu Einars Ágústssonar. Sagði
ráðherra að fjárfestingarlána-
stofnanirnar sjálfar réðu því
hvort þær tækju upp verðtrygg-
ingu eða ekki. í frumvarpinu
væri viðmiðunargrundvöllurinn
lagður, sem væri
vísitaLa íram-
færslukostnaðar,
þó nota mætti
aðra Viðmiðun
ef hún væri tal-
in gefa réttari
mynd. Þá bæri
að taka fram,
að þessi ákvæði
mundu ekki breyta möguleikum
á að taka lán hjá lífeyrisjóðum og
Húsnæðismálastofnuninni. Ráð-
herra taldi að nauðsynlegt væri
að hefja framkvæmdir þessa
máls sem fyrst og bæri því ekki
að fresta afgreiðslu þess.
Lúðvík Jósefsson (K) sagði
ráðstafanir þessar ekki vænlegar
til þess að sporna gegn verð-
bólguvextinum. Aðrar aðgerðir
þyrftu að koma til, — aðgerðir
er ríkisstjómin sýndi lítinn lit
á að taka upp. Verðbólgan mundi
halda áifram að vaxa meðan verzl
unin hefði lausa tauma á verð-
lagningunni og bæri þvi að snúa
sér að því vandamáli.
Þórarinn Þórarinsson (F) gerði
verðbólguna að umtalsefni og
mælti síðan fyrir breytingartil-
lögum er hann flytur við frum-
varpið ásamt Sigurvin Einars-
synL Eru tillögur þeirra á þá
leið, að aftan við frumvarpið
bætist 3 ákvæði til bráðabirgða.
1. Meðan ekki hefur verið kom-
ið á verðtryggingu innlánsfjár í
bönkum og öðrum lánastofnun-
um, skulu lög þessi ekki ná til
lífeyrissjóða einstakra stétta,
nema að fengnu samþykki við-
komandi stéttarfélaga. 2. Meðan
ekki hefur verið komið á verð-
tryggingu innlánsfjár í bönkum
og öðrum lánastofnunum, skulu
lög þessi ekki ná til fjárfesting-
arsjóða, sem njóta framlaga frá
atvinnuvegunum, nema að
fengnu samþykki viðkomandi
stéttarsamfcaka og 3. Meðan ekki
hefur verið komið á verðtrygg-
ingu innlánsfjár í bönkum og
öðrum lánastofnunum, skulu
falla niður visitöluhækkanir á
lánum Húsnæðismálastofnun
ríkisins.
Sigurvin Einarsson (F) gerði
húsbyggjendamál einkum að um-
talsefni og sagði að sú reynsla
sem fengizt hefði með verðtrygg
ingu Húsnæðismálastjórnarlán-
um hefði verið mjög alvarleg.
Óhjákvæmilegt væri að leið-
rétta það ranglæti sem þessi visi-
tölubinding hefði í för með sér.
Gylfi Þ. Gíslason viðsikipta-
málaráðherra sagði að það væri
ekki tilgangurinn með þessu frum
varpi að draga úr lánum til fjár-
festinga. Tilgangurinn væri að
stuðla að sparifj'ármyndun og
bæta úr því félagslega óréttlæti
er rikt hefði, það að sparifjár-
eigendur hefðu tapað á verð-
bólgunni, en skuldaramir hefðu
hagnast. Ráðherra sagði að í
raun og veru væru tillögur Fram
óknarmanna óþarfar þar sem vit
anlega hefði það alltaf verið
ætlunin að ákvæði um verð-
tryggingu lána og sparifé kæmu
til framkvæmda samtímis.
Að lokinni ræðu ráðherra var
umræðu um málið frestað.
Jarðvegsskipti
Tökum að okkur jarðvegs-
skipti og fjarlægingu á mold-
arhaugum.
Matbikun hf.
Suðurlandsbraut 6, 3. hæð.
Sími 36454.
Ung reglusöm
stúlko
óskar eftir atvinnu. Er vön
afgreiðslustörfum. Uppl. í
síma 11951.
Tveir ungir menn óska eftir
góðri fjárjörð, helzt með
áhöfn. Þarf að hafa góða
ræktunarmöguleika. Þeir, sem
hafa áhuga á þessu, leggi
tilboð ásamt upplýsingum inn
á afgr. MbL fyrir 25. apríl,
merkt: „850 — 9096“.
Ung konn
óskar eftir vel laimaðri at-
vinnu í 3 mánuði (júní-ágúst).
Margt kemur til greina. —
Tillboð óskast send til afgr.
Mbl. fyrir 20. þ. m., merkt:
„Áhugasöm — 9639“.
Glugga-
þjónustan
Hótúni 27
Hringið i sima
12880
Þar fást al'lar þykktir af rúðu-
gleri, ennfremur tvöfalt gler.
Vanir menn sjá um ísetningu
á gleri. Allt í gluggann á
einum stað.
Sandblástur og málmhúðun
Tökum að okkur sandblástur og málmhúðun. —
Sækjum og sendum. — Stuttur afgreiðslutími.
Stormur hf
Garðavegi 13. — Hafnarfirði. — Sími 51887.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum í sölu á götuljósastólpum
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. — Útboðslýsing
ar eru afhentar í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykj avíkurborgar.
Stúlka óskast
til vélritunarstarfa, enskukunnátta
nauðsynleg.
SölumiÖstöÖ HraÖfrystihúsanna
Gluggaþjúnustan
Hátúni 27.
Sími 12880.
toOidirt
Laugavegi 31. — Sími 12815.
Til
fermingagjufa
Undirfatnaður í miklu úrvalL
Vatteraðir nælonsloppar.
Leðurjakkar, verð aðeins kr.
2338.
m
toCiöirk
Laugavegi 31. — Sími 12815.
I
Til sölu
Þriggja herbergja ibúð, ásamt
góðu geymslurisi, við Hverf
isgötu.
Nánari upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar
Aðalstræti 6.
S.: 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
Til sölu
3ja herb. íbúð í Hlíðunuim,
lau,s strax.
3ja herb. íbúð við Álfliólsveg
og SeltjarnarnesL
lra og 5 herb. hæðir í Kópa-
vogL
5 herb. nýtt raðhús í Kópa-
vogi.
190 ferm. einbýlishús í smíð-
um í KópavogL Hagkvæm
lán áhvílandi til 25 ára.
íbúðir í Ytri-Njarðvík og
Þorlákshöfn.
Ffl5TEI6l\lflSfll.fl
SKJOLBRAUT 1 -SÍMI 41250
KVOLDSIMI 40647
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílaleigun
Ingólfsstræti II.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
mfílF/BIR
Volkswagen 1965 og ’66.
•—IBÍLALEIGAN
'ALUR F
át'
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 22022 J
6IFREIÐALEIGAH
VECFERÐ
Grettisgötu 10.
Sími 14113.