Morgunblaðið - 15.04.1966, Blaðsíða 11
KMuðagur 15. apríl 1966
MOR&U NBLAÐIÐ
II
Jl
Ólafur Ólafsson Kristnibodi:
Það er eitthvað að á taugunum
MANNI einum í Ameriku er
®ú furðulega gáfa og þekking
gefin, að hann telur sig kunna
örugg ráð við þeim kvilla, sem
lengi hefur — eftir tali fólks að
dæma — verið algengastur allra
mannlegra meina hér á landi:
„Það er eitthvað að á taugun-
Því er ekki að undra að „taug-
gar“ manna geri vart við sig i
löndum þar sem meira gengur á
en hér, svo að talað er um að
heilar þjóðir séu taugaveiklaðar.
Nú segir sá ágæti Ameríku
maður, dr. Norman Vincent Peai,
— sem hér verður greint frá lit-
illega: „Hættið öllu tali uim taug-
ar, það gerir aðeins illt verra.
Gerið ykkur grein fyrir hvað að
ykkur gengur og farið að mín-
um ráðum, þau hatfa engum
brugðist".
Þetta er ekki aiveg orðrétt
eftir honum haift, en þessi er
hans meining.
Kunni einhver að efast um að
„hans bjargráð bregðist eigi“, þá
Norman Vincent Peale
ekal þvi svarað til, að svo hafa
þau reynst í heimalandi hans, að
hann er af mörgum talinn vera
einn aif bjargvættum þjóðarinn-
ar.
Porn steinkirkja stendur á
borni 5. götu og 29. strætis í New
York, og er þannig miðsvæðis
eins og hefði heimsborgin byggst
út frá henni.
Ókunnur vegfarandi sér ekki
evo þessa kirkju að hann ekki
reki augun í auglýsingaspjald
með stóru letri. Þar stendur:
„MARBLE COLLEGIATE
CHURCH: Elzta kirkja mótmæl-
enda í Ameríku. í notkun síðan
1628”.
Síðan ég sá þá kirkju fyrst,
fyrir 45 árum, hefur hún verið
stækkuð. Líka hatfa nokkur hús
verið tekin í notkun í sambandi
við hana. Þar er geðlækninga og
sálgæzlu stofnun.
Þegar síra Norman Vincent
Peal, — framb. píl — var kallað-
ur til að þjóna söfnuði Marble-
kirkjunnar, en það var árið 1932,
þótti hann „ósköp venjulegur
prestur“, ekki skara fram úr í
neinu nema þá helzt aðlaðandi
framkomu. En hann óx í áliti
við nánari kynni. Hann vann á í
ítarfi sínu sem dugandi prestur.
Áheyrendum fjölgaði smám sam
an og síðar æ örar, svo að hús-
rými gömlu kirkjunnar nægði
hvergi nærri. Þá var farið að
byggja. Nú er þar einn fjölmenn-
asti söfnuður mótmælenda í
Ameríku. Síðast liðið ár var dr.
Peal kjörinn forseti sambands
1700 mótmælendasafnaða í New
York.
Dr. Peal er einn þeirra dýr-
mætfu manna, sem þjóðum heims
notast ótrúiega vel að, vegna fjöl
míðlunartækja nútímans. Hann
nær þannig til nokkurra miUj.
manna að staðaldri.með boðskap
sinn og hollráð.
Nokkur síðast liðin ár hafa
þrjár atf ræðum hans í Marbie-
kirkju verið prentaðar mánaðar-
lega og sendar nokkrum hundr-
uðum þúsunda manna víða um
heim. Bækur hans og bæklingar
hafa náð feiknmikilli úfcbreiðslu.
Fræg eru orðin smáspjöld hans,
„How Cards“. Þau eru hvert um
sig með spurningum og svörum
varðandi einhver ákveðin vanda
mál, sem menn eiga almennt við
að stríða svo sem áhyggjur og
kvíða, minnimáttarkennd, kvaia
fulla sektarvitund o.s.frv .
Sjálfur skrifar dr. Peal: „Ég
hetf í ritverkum mínum . . ., viku
legum dál'kum í nær því hundrað
dagblöðum, í útvarpserindum
um nálega 20 ára skeið, í tírna-
riti okkar Guideposts og fyrir-
lestrum í tugum borga, gert grein
fyrir einföldum, vísindalegum og
þrautreyndum lífsreglum ....
Fjöldi manna hatfá lesið, h'lustað
á og prófað, og árangur hefur
undantekningarlaust verið hinn
sami: Nýtt líf, nýr þróttur, aukin
athatfnasemi, djúpstæð hamingju
kennd."
í síðasta bindi — V. — hins
mikla og víðfræga verks síns,
„Kristnisaga 19. og 20. aldar“,
skrifar K. S. Latourette um dr.
Peal á þessa leið:
„Hann hafði etftir mikla pers-
ónulega baráttu og hugarstríð
sanntfærzt um sannleiksgildi
fagnaðarerindisins, sem hann
átti að boða, og reynt á áþreifan-
legan hátt það, sem hann ráðlagði
öðrum: Gleyma sjáMum sér en
fela hag sinn Guði. Hann var
laus við að miklast atf menntun
sinni. Hann hafði öðlast einlæga
og barnslega trú á Guð, eins og
hann hefur opinberað sig í
Kristi, og fölskvalaust traust til
Biblíunnar. Hann elskaði menn-
ina og hafði einlæga samúð með
þeim . . , Boðskap sinn flutti
hann á þann hátt að allir skildu.
Hann dró ekki fjöður yfir al-
vöru syndarinnar né heldur kröf
ur Krists. En jafntframt lagði
hann áherzlu á fúsleika Guðs og
mátt til að fyringetfa iðrandi
manni og endurreisa þann, sem
falinn er og niðurbeygður . . .
Hann lagði mikla stund á
persónulegar leiðbeiningar og
hótf snemma náið samstartf við
geðlækna og sálfræðinga, sem
eins og hann trúðu mætti bænar-
innar. Úr því var farið að reisa
hæli fyrir geðsjúklinga í sam-
bandi við kirkjuna. Fastir starfs
menn voru 24, prestar, geðlækn-
ar, sáltfræðingar og hjúkrunar-
lið“.
Samstarfi lækna og presta lýs-
ir dr. Peal á þessa leið:
„Eftir að geðlæknir hefur
hjálpað sjúkling til þess að gera
sér grein fyrir vanheilsu sinni,
tekur prestur við honum og geng
ur til verks í bæn, trú og kær-
leika . . . Geðlæknir og prestur
forðast að grípa hvor inn í ann-
ars verkefni. Hvor þeirra beitir
sinni aðferð, og það er hin sam-
virka aðtferð sem gefur árangur-
inn . . . Sá kristindómur, sem hér
er iðkaður, er kenning Jesú
sjáltfs . . . Eins og við beitum
fagnaðarboðskapnum, hetfur hann
reynst vera bókstafleg uppfyll-
ing á — orðum Páls í I. Kór.
2,9 — Það sem auga sá ekki og
eyra heyrði ekki og ekki kom
upp í huga nokkurs manns, allt
það sem Guð fyrirbjó þeim, er
elska hann.“
„Hver er það, sem ákveður
hvort þú verður hamingjusamur
eða óhamingjusamur?“ spyr dr.
Peal, og svarar: „Þú sjáltfur“.
Meginmál allra rita hans er leið-
beiningar til sjálfsbjargar — með
Guðs hjálp. Hann varð um skeið
fyrir áköfum árásum, einkum
lærðra guðfræðinga, sem sökuðu
hann um að rangtúlka boðskap
Biblíunnar, boða trú á mann-
inn en smækka Guð í vikadreng
fyrir eigingjarna menn, sem vilja
komast áfram í heiminum.
Það var ekki vonum fyrr að
hér var gefin út, undir árslok í
fyrra, frægasta bók dr. Peals, —
Vörðuð leið til lífshamingju
Fyrsta útgáfa hennar var í
nokkra mánuði metsölubók í
Amerí'ku — að skáldsögum
undanskildum — og segir Lato-
urette að atf henni hatfi selst 4
millj. eintaka.
Tilgangur bókarinnar segir
hötfundurinn að sé sá, að kynna
Það slys varð aðfaranótt páska dags á Keflavíkurvegi, að bifreið
valt á sléttum veginum, vegna þess að ökumaður missti vald á
henni (talið sökum bilunar á stýrisbúnaði). 1 bifreiðinni voru
4 og tveir hlutu meiðsl. Ljósm.: Sv. Þ.
lesendum hennar eintfaldar og
þrautreyndar Mtfsreglur. „Ég
þarf ekki að taka það fram“,
skritfar hann í formálsorðum bók
arinnar, „að þær þýðingarmiklu
reglur, sem hér eru getfnar, eru
ekki uppfundnar atf mér, heldur
þegnar af þeim mesta fræðara,
sem nokkru sinni hetfur verið til
og mun verða til. Þessi bók kenn
ir hagnýtan kristindóm, fjölda
eintfaldTa en eigi að síður vísinda
legra ráðlegginga um það, hvern
ig vér fáum ratað raunhætfa leið
til lítfshamingjú*.
Baldvin Þ. Kristjánsson á mikl
ar þakkir skilið fyrir bókina.
Þýðing hans er einstaklega lipur
og gerð af næmri innlitfun.
Bf að líkum lætur fer naumast
hjá því að fleiri ritum dr. Peal
verði biúðlega snúið á íslenzku.
Ólafur Ólafsson.
Klæðagerðin Ultíma 25 ára
KLÆÐAGERÐIN IJltíma var
stofnuð í marz 1941, og á hún
því um þessar mundir 25 ára af-
mæli Nú fyrir skömmu gafst
fréttamönnum kostur á að skoða
fyrirtækið undir leiðsögn Krist-
jáns Friðrikssonar, forstjóra. Var
fréttamönnum fyrst boðið að
skoða verksmiðju fyrirtækisins
við Nýbýlaveg í Kópavogi, en
þar eru efni í fðt, áklæði, og
gluggatjöld ofin. Þá var starf-
semi fyrirtækisins í Kjörgarði
kynnt, en þar rekur fyrirtækið
verzlun, og ennfremur klæða-
verkstæði. Síðan gerði Kristján
nokkra grein fyrir stofnun og
starfsemi fyrirtækisins gegnum
árin.
Tilgangurinn með stofnun Últ-
ímu var í upphafi sá að Ieitast
við að framleiða karlamanna-
fatnað á lægra verði en hér hef-
ur áður tíðkazt, að því er Krist-
ján tjáði fréttamönnum, með því
að beita nýjum vinnuaðferðum,
koma á hinum svonefnda hring-
saum, sem er fólgin í ákveðinni
verkaskiptingu og skipulagningu
á starfi. Þessi tilhögun komst þó
ekki á fyrr en nokkrum árum
eftir að starfsemin hófst, og
kvaðst Kristján telja að vel
hefði tekizt að ná þeim tilgangi
að lækka verð þessarar vöruteg-
undar.
Kristján sagði, að aðalstarf-
semi Últímu hefði lengst af ver-
ið að framleiða karlmannaföt á
lager, en einnig hefði ætíð verið
sumað eftir máli, og væri Ú'ltíma
þar fyllilega samkeppnisfær við
erlend klæðskeraverkstæði.
Hefði sá þáttur starfseminnar
farið vaxandi á seinni árum.
Kristján gat þess, að um 1950
hefði vefnaðardeild Últímu ver-
ið stofnuð. Hefði á þeim árum
oft verið erfitt að fá gjaldeyri
til fataefnakaupa, og hefði hug-
myndin að nokkru leyti verið sú
spara gjaideyri með þvi að kaupa
garnið og vefa dúkana hér, — en
þessari ákvörðun réði einnig al-
mennur áhugi fyrir að byggja
upp iðnað, sagði Kristján. Hefði
verið stofnað til þessa af van-
efnum í fyrstu, bæði hvað varð-
aði lán og gjaldeyri til véla og
efniskaupa. Hefði vefnaðardeild-
in lengi verið á hrakhólum með
húsnæði, en að síðustu hefði
fyrirtækið fengið lóð við Ný-
býlaveg í Kópavogi, þar sem
verksmiðja þess er nú. Hefði
þetta orðið til þess að fyrirtækið
gat nú fengið sér vélar, sem
Einn vefstólanna í verksmiðju Ultima
bættu efnaframleiðsluna til
muna.
Kristján sagði, að í fyrstu
'hefði fyrirtækið framleitt nokk-
uð af fataefnum, en nú hefði sú
framleiðsla að mestu lagzt niður,
og væru aðalframleiðsluvörur
fyrirtækisins nú áklæði og
gluggatjöld, aðallega úr íslenzku
ullargarni, sem framleitt væri á
Álafossi. Sagði Kristján að lengi
hefði verið gott samstarf með
Últímu og Álafossi. Garnið, sem
nú fengist frá Álafossi væri góð
vara á samkeppnisfæru verði —
sem bezt mætti sjá af því, að
Álafoss seldi nú mikið af garni
til útlanda. Kristján taldi að
garnsala Álafoss og talsverð saia
Últímu á gluggatjöldum til út-
landa væri nokkur bending um
framtíðarmöguleika íslenzks iðn
aðar — ef hann fengi þann efna-
hagslega aðbúnað, sem vert væri.
Lagði Kristján mikla áherzlu
á þá skoðun sína, að ísl. smá-
iðnaður í ýmsum greinum gæti
og þyrfti að renna stoðum undir
gjaldeyrisöflun þjóðarinnar.
Lagerhúsnæði
Innflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að
taka á leigu sem fyrst ca. 200—300 ferm. lagerhús-
næði á jarðhæð með góðum innkeyrsludyrum. Þeir,
sem kynnu að hafa slíkt húsnæði til ráðstöfunar eru
beðnir að senda nöfn sín og nánari upplýsingar í
pósthólf 345, Reykjavík, hið fyrsta.
Afgreiðslustarf
Ungur, reglusamur maður óskast til starfa við vöru
afgreiðslu og akstur hjá innflutningsfyrirtæki í borg
inni. — Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt: „Afgreiðsla —
Akstur — 9051“.