Morgunblaðið - 15.04.1966, Síða 19
Föstuðagur 15. april 1966
MORCUNBLADIÐ
19
Verzl. Herjólfur opnar að Skipholti 70
FYRIR skömmu var ný verzlun
opnuð að Skipholti 20 hér í borg.
Ber hún nafnið Herjólfur og er
eign Kristjáns Sigfússonar, sem
um langt árabil hefir rekið verzl
un með sama nafni á Grenimel
12. Kristján hefir selt hina
gömlu verzlun sína syni sínum
Braga, sem rekur hana undir
nafninu Bragabúð. Er það eftir
sem áður nýlenduvöruverzlun.
Verzlunin Herjólfur í Skip-
holti 70 er nýlenduvöruverzlun
með sjálfsafgreiðslufyrirkomu-
lagi. Er hún rúmir 100 fermetr-
ar að stærð með kælikistum í
búðinni og kæliklefum bak við
verzlunina. Öllu er haganlega
og skemmtilega fyrir komið. Við
hlið verzlunarinnar Herjólfur er
kjötverzlun. Þá mun einnig í
framtíðinni koma mjólkurbúð
þarna skammt frá, en fyrst um
sinn verður einnig mjólk til sölu
í Herjólfi auk nýlenduvaranna.
Mynd sú, er hér fylgir með, er
tekin í hinni nýju verzlun og
fólkið, sem þar sést er, talið frá
vinstri: Dúddý Guðmunds, eigin-
kona eigandans, sem um langt
árabil hefir staðið við hlið manns
síns við afgreiðslustörfin. Þá er
Kristján Sigfússon eigandi og
verzlunarstjóri, Guðfinna Karls-
dóttir afgreiðslustúlka og Sig-
urður Einarsson afgreiðslumað-
ur.
(Ljósm. Sv. Þ.)
Hugleiðingar um frú Olafiu
Ölafsdóttur að Fellsmúla
ÉG var 7 ára gömul, þegar ég
eignaðist hina fyrstu kynningu
mína um frú Ólafíu. Síðan er
liðinn langur tími, en samt er
hún mér næsta ljós. Ég var að
bíða eftir að faðir minn kæmi
heim og flytti fréttir af sr. Ófeigi
Vigfússyni, Ólafíu, konu hans og
tveim sonum þeirra á 5, ári, sem
einmitt þá voru að flytjast að
Fellsmúla á Landi frá Guttorms-
haga í Holtum. Ég hlakkaði til
að sjá hina ungu syni þeirra, og
bjóst jafnvel við, að þar kynni
ég að eignast nýja leikbræður,
því skammt var á milli heimilis
míns og prestssetursins. Það skal
tekið fram, að þessi tilhlökkun
mín varð mér engin vonbrigði,
því að þeir reyndust mér síðar
góðir og tryggir félagar og hin-
ir ágætustu og mætustu vinir,
er árin liðu. Á kynningu við þá
hefir aldrei borið skugga, en um
þá ágœtu menn verður ekki nán-
ar rætt í þessari grein.
Faðir minn brosti góðlátlega,
er við spurðum hann um prests-
hjónin. Hann gat þess, að sér lit-
ist vel á þau og drengina þeirra.
„En ekki veit ég á hverju prest-
urinn ætlar að lifa.“ Sagði hann:
„Með fimm klyfjar af bókum og
þrennar klyfjar af innanstokks-
munum." Efni þeirra hjóna hafa
víst verið lítil í þá daga, og
faðir minn taldi bækurnar ekk-
ert búsílag, þótt hann væri fróð
leiksfús og hefði áhuga á sögu
og menningu erlendra þjóða, og
fýsti að fræðast um fjarlæg
lönd.
Nú eru þessi mætu prestshjón
fyrir löngu horfin af sjónarsvið-
inu, eh skipuðu sinn sess með
mikilli sæmd, og gerðu Fellsmúla
að höifðingjasetri, þótt efnahag-
ur þeirra væri aldrei rúmur.
Tvisvar hefur séra Ófeigs verið
minnzt, síðan hann lézt, í síð-
ara sinnið á 100 ára afmæli hans,
er Landmenn héldu ágæta minn-
ingarhátíð um hann. Þann heið-
ur verðskuldaði séra Ófeigur
fyllilega. — En minna hefur ver
ið hirt um að minnast frú Ólafíu,
þeirrar ágætu og stórmerku
konu.
Það er að sjálfsögðu lofsvert,
að menn láti að sér kveða, á opin
berum vettvangi. Hins vegar
geta þau störf, sem unnin eru í
kyrrþey innan vébanda heimilis-
ins engu síður lofsverð og mikil-
væg. Það er afrek, að temja sér
slíkt andlegt jafnvægi, að hlýleik
inn og ljúfmennskan stýri orð-
um og gerðum, jafn vel í stríðu
sem blíðu, taka hverjum vanda
með kjarki og geðró, og leysa
hann með alúð og drengskap. En
slík afrek vann frú Ólafía. Þess
vegna urðu störf hennar svo
heilladrjúg og minningarnar um
hana svo bjartar og geðfelldar,
sem raun ber vitni. Samt átti frú
Ólafía eldheitt og viðkvæmt
skap, en jafnframt óvenjulega
hjartahlýju og góðvilja.
Á verklega sviðinu var hún
óvenjuleguip kostum búin. Hún
hafði fágaðán smekk og snyrti-
mennsku, sem heimili hennar
bar órækt vitni um. Þessir eigin-
leikar hennar ásamt iðni og at-
orku ollu því, að heimili þeirra
hjóna var frábærlega hlýlegt og
aðlaðandi. Kyrrð, friður, smekk-
vísi og hreinlæti voru meginein-
kenni þess.
Frú Ólafía gerði sófa, stóla og
ýmsa smærri hluti að verulegu
leyti með eigin höndum. Þessi
húsgögn stoppaði hún með ýms-
um hætti. Elti síðan kindagærur,
klippti þær til ,setti mislitt inn
í þær með því að sauma í mynst
Framhald á bls. 22
Óskum eftir að ráða
trésmiði
og laghenta menn til starfa í verksmiðju
okkar.
Timburverzlunin Völundur hf
Klapparstíg 1. — Sími 18-430.
Einbýlishús
á góðum stað við Miðborgina til sölu. — Húsið er
110 ferm., kjallari og 2 hæðir. — Tilboð, merkt:
„Einbýlishús — 9638“ sendist afgr. Mbl. fyrir 19.
þessa mánaðar.
Heildsölufyrirtæki
óskar eftir ungum manni eða stúlku til bókhalds- og
gjaldkerastarfa. — Umsókn með upplýsingum um
menntun eða fyrri störf, sendist afgr. Mbl., merkt:
„Reglusemi — 9049“.
Lítil efnalaug
til sölu. Tilboð merkt: „Góður staður — 9092“ legg-
ist inn á afgr. Mbl. fyrir 28. þ.m.
Til leigu
Verzlunar- eða iðnaðarhúsnæði í Austurborginni,
80 ferm. — Upplýsingar í síma 15166.
Hestamenn
Óskum eftir að kaupa góða hesta til útflutnings.
Upplýsingar í síma 17180 daglega milli kl. 3 og 5 e.h.
„Ford Zephyr“ árg. 55
til sölu. — Til sýnis að Lynghaga 12.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Laugav. frá 33 - 80 Laugarteig
Hverfisg. 1 frá 4 - 62. ‘Freyjugata
Þingholtsstræti Bergstaðastræti
fMurgíWuMaMfo
STMI 22-4- 80
Sjómenn, takið eftir
Vegna forfalla vantar nú þegar tvo vana sjómenn
á góðan 100 lesta netabát í Þorlákshöfn. Upplýs-
ingar í síma 1-79-25 frá kl. 9—18 og í síma 3-73-59,
einnig í síma 30 í Þorlákshöfn.
Stúlka
Rösk stúlka óskast í bókaverzlun. Góð enskukunn-
átta nauðsynleg. — Umsóknir er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 124.
Atvinna
Stúlka óskast í úra- og skartgripaverzlun frá 1. maí
eða síðar. Umsóknir ásamt mynd og upplýsingum
um menntun, aldur og fyrri störf, sendist fyrir 21.
þ. m. í pósthólf 812, merkt: „Afgreiðslustúlka“.