Morgunblaðið - 22.05.1966, Side 31
Sunnuðagur 22. maí 1966
MORGU N BLADIÐ
31
Úr skólagörðunum.
Skólagarðar Reykjavíkur:
Innritun barna fyrir hvítasunnu
MORGUNBLAÐIÐ hafði tal
af Hafliða Jónssyni, garðyrkju
stjóra, og spurði frétta af
Skólag-örðum Reykjavíkur,
hvort þeir myndu ekki bráð-
lega hef ja starfsemi sína.
—• Jú. sagði Hafliði, það
líður óðum að því. Að vi.su
er frost enn í jörðu og stutt
í klakann og horfur því ekki
eins góðar og undanfarin ár,
en allt um það ætlum við að
reyna að byrja um svipað
leyti og venjulega, eða um
mánaðamótin maí—júní. Að
líkindum mun innritun fara
fram dagana 25. og 26. maí
n.k., miðvikudag og fimmtu-
dag fyrir hvítasunnu og þá
eiga þau börn að koma og
láta innrita sig sem hug hafa
á þátttöku í skólagörðunum
í sumar.
— Skólagarðarnir starfa á
tveimur stöðum í borginni, í
Laugardalnum við Holtaveg,
þar sem hægt er að taka á
móti 260—270 börnum. í>ar
verður til forstöðu Ragna Jóns
dóttir. Hinn staðurinn er í
Aldamótagörðunum, austan
Umferðarmiðstöðvarinnar og
þar geta 250 börn fengið inni
með sín garðlönd. f>ar verður
Sigurður Runólfsson kennari
börnunum til leiðbeiningar.
— Svo eru auðvitað, auk
forstöðumanna garðanna,
stúlkur börnunum til aðstoðgr
og leiðbeiningar, sjö í Alda-
mótagörðunum, nokkru fleiri
inni í Laugardal og loks eru
svo „afarnir“ ómissandi, sinn
í hvorum garðinum, sjá um
verkefni og áhöld og annað
efni sem börnin þurfa og hafa
eftirlit með umgangi þeirra
um garðana.
— Að venju stendur starf-
semin fram til hausts eða
þangað til börnin geta tekið
upp úr görðunum. Og það er
hreint ekki lítið sem þau fá
í sinn hlut eftir sumarið ef
þau hafa verið iðin og hlúð
vel að garðinum sinum þenn-
an tíma. Okkur taldist svo til
í fyrra, sagði Hafliði, að meðal
uppskera úr garði hvers barns
næmi um 1200 krónum ef mið
að var við smásöluverð, en
þátttökugjald verður að líkind
um óbreytt frá því í fyrra
kr. 300,00 á barn, og fer til
að greiða hluta af útsæðis-
kostnaði í garðana, en það sem
á vantar leggur borgin til, og
sömuleiðis starfslið og áhöld
öll.
Auk garðvinnunnar er svo
farið með börnin í kynnisferð
ir um borgina og nágrenni
hennar, eins konar kennslu-
stundir í átthagafræði, sagði
Hafliði, og sitthvað fleira
mætti til tína, sem gert er í
skólagörðunum, en eigum við
ekki að láta þetta duga að
sinni?
Sjálístæðismenn skrifa
FRÁ
HAFNAR-
KOSNINGABARÁTTAN hefur
mjög harðnað nú síðustu daga og
við því er ekkert að segja á með-
an ekki er farið langt út fyrir
takmörk alls velsæmis.
Hafnfirðingum brá því illa í
brún, er þeir sáu síðasta biað
„Borgarans og árás Árna Gunn-
laugssonar á hinn valinkunna
heiðursmann, Bjarna Snæbjörns-
son lækni.
Árni gengur svo langd í ósæmi-
legu orðbragði, að hann telur
Bjarna Snæbjörnsson einn
þeirra manna sem „kunni að
ljúga á réttum tíma“ og að hann
ætti „að biðjast opinberlega af-
sökunar“.
Það sem olli þessum ofsa Árna
var ekki annað en það, að Bjarui
skrifaði grein í Hamar þar, s«m
hann deildi á sóun fjármuna í
búskaparbröltið í Krisuvík á
sinum tima. Árni þoldi ekki að
þessu fyrrverandi og núverandi
ástfóstri hans væri hallmælt.
Bjarni Snæbjörnsson er búinn
að eiga nær hálfrar aldar starfs
dag á meðal Hafnfirðinga. Hann
hefur ávallt reynst sannur mað-
ur í orði og verki og alltaf verið
reiðubúinn til að hjálpa og
likna. Enginn Hafnfirðingur ber
Bjarna annað orð — nema einn,
Árni Gunnlaugsson, frambjóð-
andi óháðra. Hafnfirðingar sem
einn maður mótmæla hinum
rakalausa og ósanna óhróðri
Árna Gunnlaugssonar um Bjarna
Snæbjörnsson og munu láta Árna
verða einangraðan um skoðanir
sínar á mönnum og málefnum.
★
Æskulý&sheimili
opnai í Kópavogi
' Á uppstigningardag var opnað
nýtt æskulýðsheimili í Kópavogi.
Er það til húsa í 200 ferm. hæð
á Álfhólsvegi 32. Er heimilið út
t>úið leiktækjum og þar er stór
•alur til skemmtanahalds. Er
þetta fyrsta æskulýðsheimilið,
sem komið er upp í Kópavogi.
í fjárhagsáætlun Kópavogskaups
staðar í ár er ætluð hálf milljón
króna til æskulýðsstarfsemi.
Opnunarathöfnin hófst með
því að sóknarpresturinn sr.
Gunnar Árnason, vígði heimilið.
Þá afhenti Hjálmar Ólafsson,
bæjarstjóri, æskulýðsráði þetta
nýja heimili með stuttri ræðu.
Æskulýðsfulltrúinn, Sigurjón
Hillaríusson tók við því og sagði
m.a. að með þessu stæðist æsku-
lýðsstarfsemin í Kópavogi sam-
anburð við slíka starfsemi hvar
sem værL
ÆFRAM
I GÆRMORGUN var logn eða
NA-gola á landinu. Víða norð
vestan til var léttskýjað og
yfirleitt þurrt í öðrum lands-
hlutum, nerua austan til á
Rangárvöllum og í Vestur-
Skaftafellssýslu, þar voru
skúrir. Hiti var víðast 2—6 st.
á láglendi.
f dag má búast við ágætu
kosningaveðri um aLlt land,
víðast stillt veður og bjart, þó
senniléga skúraleiðingar síð-
degis á Suðurlandi.
Kiörhverfaskipt-
ing í Reykjavík
MANNTALSSKRIFSTOFAN vill
vekja athygli kjósenda á því, að
kjörhverfaskipting í Reykjavík
er< nokkuð breytt frá því, sem
var í síðustu kosningum.
Aðalbreytingin er í því fólgin,
að tekin er upp nýr kjörstaður,
Álftamýrarskóli, og er kjörsvæði
hans sem hér segir:
Álftamýri, Ármúli, Fellsmúli,
Háaleitisbraut, Háaleitisvegur,
Hvassaleiti, Kringlumýrarvegur,
SafamýrL Seljalandsvegur, Síðu-
múli, Starmýri, Suðurlandsbraut
(vestan Elliðaárbrúar).
Ennfremur hefur litillega ver-
ið breytt frá síðustu kosningum
mörkum kjörsvæða að öðru leytL
þannig að kjósendur, sem bjuggu
1. des. sl. við eftirtaldar götur,
eiga nú kjörstað sem hér segir:
Gata: Núverandi kjörstaður:
Bjarnarstígur — Miðbæjarskóli
Breiðholtsvegur — Laugarnes-
skóli
Dalbraut — Langholtsskóli
Engjavegur — Laugarnesskóli
Hringbraut — Melaskóli
Marargata — Melaskóli
Múlavegur — Laugarnesskóli
Reykjanesbraut — Austurbæjar-
skóli
Selvogsgrunn — Langholtsskóli
Smiðjustígur — Austurbæjar-
skóli
Sporðagrunn — Langholtsskóli
Sölvhólsgata— Austurbæjar-
skóli
Traðarkotssund — Austurbæjar-
skóli
Vegamótastígur — Austurbæjar-
skóli
Að öðru leyti er kjósendum
bent á áð kynna sér auglýsingu
frá skrifstofu borgarstjóra um
kjörhverfaskiptingu í heild og
skiptingu kjörhverfa í kjördeild-
ir. —
STÓRAUKIN GATNAGERB. Á
þessu kjörtímabili voru 2200 m.
af götum lugðar varanlegn sltt-
lagi. Á öllum kjörtimabilum AI-
þýðuflokksins og kommúnista
▼ar varanlegt slitlag aðeins sett
á 1624 metra. Hafnfiröingar vilja
áfranxhaldandi stórátök í varan-
legri gatnagerð og kjósa þvi D-
listann.
★
SJÁI.FSTÆÐISMENN hetta á
Hafnfirðinga, eldri og yngrt att
tryggja það, að einn flokkur —
Sjáilfstæðisflokkurinn — hfjóti
hreinan meirihluta i bæjar-
stjórn. Þeir hjóða hinn fjöl-
menna hóp, sem flutt hefur
til bæjarins á kjörtimabilinu vel
kominn til þátttöku i uppbygg-
ingarstarfinu. En fyrst og fremst
heitir Sjálfstæðisflokkurinn á
liafnfirzka æsku, að hún nú,
svo sem í undanförnum kosn-
ingum fylki sér um Sjálfstæðis-
flokkinn og geri sigur hans sem
mestan.
Sjálfstæðisflokkurinn miðar,
nú sem fyrr, stefnu sína og störf
við það, að Hafnarfjörður megi
vera fagur bær þróttmikils at-
hafnalifs og blómlegs menning-
arlífs. ALLIR E I T T
Alþjóðaþing um
blóðstreymi
fræði í Rvík.
FYRSTA alþjóðaþing um blóð-
streymisfræði (hemorheology),
verður haldið í Háskóla íslands
dagana 10.—16. júlí í sumar. Þing
þetta munu sitja milli 60 og 70
erlendir vísindamenn frá mörg-
um þjóðlöndum, ásamt nokkrum
íslenzkum vísindamönnum. Á
þinginu verður fluttur mikill
fjöldi fræðiiegra fyrirlestra á
sviði læknisfræðL lífeðlisfræði,
lífefnafræði og eðlisfræði. For-
seti þingsins mun verða dr. A.L.
Copley, prófessor við læknahá-
skóLa New Yorkborgar.
(Fréttatilkynning frá
Manntalsskrifstofunni).
X D
Nefnd geri tillögur um
sumarstarf unglinga
BORGARSTJÓRI skýrði frá
því á síðasta fundi borgarráðs,
að hann hefði falið þeim Stefáni
Kristjánssyni, fulltrúa, Ragnari
Júlíussyni, skólastjóra og Reyni
Karlssyni, framkvæmdastjóra að
gera tillöeu til borgarráðs um
það, hverjar ráðstafanar sé unnt
að gera af borgarinnar hálfu til
að sjá fyrir heppilegu sumar-
starfi fyrir þá aldursflokka, sem
ekki komast að í vinnuskólanum,
en eru hins vegar eidri en svo að
beir sæki skólaearðana.