Morgunblaðið - 24.05.1966, Page 3
Priöjuaagur z-i. max rauo
ltlUNUUnDLM(M0
o
Búost ú
síldveiðar
Akranesi, 23. maí.
VÉLBÁTURINN Ver fer í
kvöld út á humarveiðar. Sól-
fari fer á síldveiðar á Austur-
miðum n.k. laugardag. Einn bát-
ur er þegar farinn, Ólafur Sig-
urðsson. Margir stórir bátar
voru teknir upp I dráttarbraut-
ina í dag til botnhreinsunar og
málunar. Allt bendir að sjó-
menn hér muni ætla að nota
þessa viku til hvíldar og til að
nýja sig upp fyrir sumarsíld-
veiðarnar.
— Oddur.
Trillubútoi
o/la vel
Akranesi, 23. maí.
SJÖ trillubátar voru á sjó
hér í gær eða á kosningadag-
inn. Aflinn var frá 500-900 kg.
é hvert einstakt færi af ágæt-
um fiski. Aflahæstur var Bensi,
tveir á, með 1860 kg. Þorskurinn
var ærslafullur eins og fleiri á
kosningadaginn og freistaði sjó-
mannanna. Þeir voru því síðbún-
ir ttl að hafa upp færin, en ekki
voru þeir fyrr lentir en þeir
bundu bátana og þrömmuðu
stórum skrefum í sjógallanum
á kjörstað til að kjósa.
— Oddur.
Forustumenn minnihlutaflokk-
anna ræða kosningaúrslitin
EFSTU menn á listum minni
hlutaflokkanna í borgarstjórn
ræddu í fréttaauka í gær-
kvöldi úrslit borgarstjórnar-
kosninganna og fer hér á eft-
ir stuttur útdráttur úr ræð-
um þeirra:
Óskar Hallgrímsson <A)
sagði, að úrslit sveitarstjórn-
arkosninganna hefðu leitt í
ljós; að Alþýðuflokkurinn
hefði unnið mikinn sigur. í
14 kaupstöðum landsins hef-
einn mesti sigur sem flokkur-
inn hefur unnið hér síðan á
vaxtarárum hans fyrir stríð.
Einar Ágústsson (F): Ég er
ánægður með fylgisaukningu
Framsóknarflokksins í Reykja
vík. Aukningin frá 19'62 er
42,6 af hundraði. Flokknum
Fylgisaukning Alþýðubanda-
lagsins nemur
ur flokkurixm aukið fylgi sitt
úr 18 af hundraði í 16,2 af
hundraði og fjölgað bæjarfull
trúum úr 16 í 22. Þetta er
mesta aukning, sem nokkur
flokkanna hlaut í koeningun-
um. Sigurinn í Reykjavík var
tókst ekki að bæta við borg-
arfulltrúa í Reykjavík en
Sjálfstæðisflokkurinn heldur
meirihluta eingöngu vegna
þess hversu atkvæðaskipting
milli hinna flokkanna varð
honum hagstæð. Kosningabar
áttan fór vel og prúðmann-
lega fram og þeir sem tóku
þátt í henni komu ósárir úr
leik.
Guðmundur Vigfússon (K):
2,9 af hundraði. Eg tel Alþýðu
bandalagið mega vel við una
þessi úrslit. Þótt Framsóknar
flokkurinn fái 4,3 af hundraði
hærri atkvæðatölu en 1962 er
augljóst að sókn þess flokks
er nú stöðvuð í Reykjavík.
Hann fær nú aðeins lítið eitt
hærri atkv.tölu en 1963. Fram
sókn ætlaði sér áreiðanlega
stærri hlut, en augljóst er, að
Framsóknarflokkurinn hefur
í þessum kosningum tapað
glímunni við Alþýðubandalag
ið um forustu fyrir andstöð-
unni gegn Sjálfstæðisflokkn-
um í Reykjavík.
Norðurlandamótið i Bridge:
Norðmenn ná forystunni
NORÐURLANDAMÓTIÐ í
bridge hófst sl. sunnudag, en
mótið fer fram að Hótel Sögu.
Forseti Bridgesambands íslands,
Sigurjón Guðmundsson, ávarpaði
mótsgesti og síðan var mótið sett
af Geir Hallgrimssyni borgar-
stjóra.
Á sunnudag fóru fram tvær
umferðir í opna flokknum og
urðu úrslit þessi:
I. umferð:
Finnl. II — Danm. I 125:95 6-0
Noregur I — Finnl. I 103:65 6-0
ísland I — Danmörk II 97:83 5-1
Noregur II — Svíþjóð I 76:50 6-1
Svíþjóð II — ísland II 84:82 3-3
H. umferð:
Noregur I — Finnl. II 109:55 6-0
Danmörk I — ísland I 100:69 6-0
Finnland I — Svíþjóð I 94:82 5-1
Svíþjóð II — Danm. II 90:64 6-0
Noregur II — ísland II 103:51 6-0
Árangur sveitanna frá hverju
landi er lagður saman og að
loknum þessum tveimur umferð-
um er staða landanna þessi:
Noregur
Finnland
Svíþjóð
ísland
Danmörk
24 stig
11 —
10 —
8 —
7 —
Þriðja umfer'ð í opna flokkn-
um var spiluð í gærkvöldi og
mættu þá íslenzku sveitirnar
sveitunum frá Finnlandi. Úrslit
voru ekki kunn þegar blaðið fór
í prentun.
Éinni umferð er lokið í kvenna
flokki og hafa úrslit orðið þessi:
fsland — Finnland 97:93 3-3
Svíþjóð — Noregur 136:115 5-1
f gærkvöldi fór fram hluti if
annari umferð í kvennaflokki.
Keppnin heldur áfram í dag og
hefst kl. 10 f.h. og fer þá fram
fjórða umferð í opna flokknum
og keppni lýkur í annarri umferð
í kvennaflokki. Keppnin heldur
áfram kl. áfram kl. 13,15 og í
kvöld fer fram 5. umfer'ð í opna
flokknum og keppir þá ísland I
við Noreg II og ísland II við
Svíþjóð I.
Aðstaða til kepppninnar er
mjög góð og er sýningartjald í
notkun á kvöldin og ennfremur
hefur verið komið upp töflum,
þar sem áhorfendur geta séð
stöðu landanna í keppninni.
— Bruni
Framhald af bls. 32
grunna á skammri stundu. Hús-
ið var eign Skógræktar Ríkisins
og var því vátryggt, svo og inn-
anstokksmunir. Samt sem áður
hefir ísleifur og fjölskylda hans
orðið fyrir mjög tilfinnanlegu
tjóni. ísleifur Sumarliðason og
kona hans, Sigurlaug Jónsdótt-
ir, hafa beðið Mbl. að flytja
Fnjóskdælingum og öðrum inni-
legar þakkir fyrir drengilega
hjálp og aðstoð í erfiðleikum
þeirra.
Er brunann bar að höndum
var veður kyrrt og úrkomulaust.
ISTUTTII MALI
ERHARD f LONDON
London, 23. maí (NTB).
LUDWIG Erhard, kanzlari
Vestur-Þýzkalands, er nú í
opinberri heimsókn í Bret-
landi. Ræddi hann í dag við
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, og snerust
umræðurnar að miklu leyti
um framtíðarhorfur Atlants-
hafsbandalagsins.
MURINN OPNAÐUR
Berlín, 23. maí (NTB).
YFIRVÖLD Austur- og Vest-
ur-Berlínar hafa enn einu
sinni komizt að samkomulagi
um opnun Berlínarmúrsins.
Verður íbúum Vestur-Berlín-
ar heimilað að heimsækja ætt
ingja sína austan járntjalds
yfir hvítasunnuna, og hafa
585,240 manns þegar sótt um
leyfi til að fara austur fyrir
tjaldið.
Neyiarástand vegna verk-
falls sjómanna
London, 23. maí (AP-NTB). i herra Bretlands, lýsti í dag yfir
HAROLD WILSON, forsætisráð"' neyðarástandi í landinu vegna
Nú er íokið við að malbika svæðið kringum nýju íþróttahöl lina í Laugardal. Skapast nú
þarna bílastæði fyrir fjölda bifreiða, auk þess sem umferðin verður nú mun greiðari, bæði að og
frá höllinni. —
verkfalls sjómanna á farskipum.
Með þessari yfirlýsingu tryggir
Wilson sér völd til að ákvarða
hámarksverð á matvælum, hafa
eftirlit með allri hafnarumferð
og innlendum flutningum, og til
að sjá um að ekki verði skort-
ur á nauðsynjavörum.
Sjómannaverkfallið hefur nú
staðið í átta daga, og er ekki
vitað til hverra bragða brezka
stjórnin hyggst grípa. En Wilsön
tók það fram í ræðu sinni í
Neðri málstofu þingsins í dag
að þótt lýst væri yfir neyðár-
ástandi, þýddi það ekki að hann
eða stjórn hans ætluðu að beita
valdi til að binda enda á verk-
fallið. Sagði ráðherrann að skip-
uð yrði óháð þingnefnd til að
kanna kjör sjómanna og vinnu-
skilyrði. Um 500 skip hafa stöðv-
azt vegna verkfallsins, og talið
er að um fimm þúsund mill-
jón króna verðmæti af útflutn-
ingsvörum bíði nú flutnings frá
bezkum höfnum.
Sjómenn krefjast um 17%
kauphækkunar og styttingu
vinnuvikunnar úr 56 í 40 tíma.
STAKSTHI\IAR
Að kosningum
loknum
Kosningunum er lokið og
stjórnmálamennirnir meta niður
stöður þeirra og velta fyrir sér
hvað hafi verið gert rétt og
rangt í kosningabaráttunni. Það
sem einkum einkenndi kosninga-
baráttuna var það, að hún var
styttri og rólegri en íslendingar
eiga að venjast. Oft hefur kosn-
ingahríðin staðið svo vikum og
jafnvel mánuðum skipti, og les-
endur dagblaða hafa verið
orðnir þreyttir á sifelldum stjórn
málaskrifum dagblaðanna. Það
er merki um aukinn stjórnmála-
þroska, að kosningabaráttan var
að þessu sinni tiltölulega stutt
og róleg. Flest dagblaðanna
reyndu að hafa hæfilegt jaln-
vægi milli almennra frétta og
greina, og svo stjórnmálaskrifa
og hefur það væntanlega mælzt
vel fyrir hjá lesendum þeirra.
Mdlin lögð fyrir
kjósendur
Sjálfstæðismenn lögðu áherslu
á það í þessari kosningabaráttu
að leggja verk sín skýrlega fyrir
kjósendur, skýra frá því sem
gert hefur verið á vegum Reykja
víkurborgar sl. kjörtimabil «g
hvað fyrirhugað væri að ger* á
næsta kjörtimabili. Þannig hafa
kjósendur í Reykjavik haft góða
aðstöðn til þess að vega og meta
verk borgarstjórnarmeirihlut-
ans, og þannig á það einnig að
vera í lýðræðisþjóðfélagi. Þeir,
sem kjörnir ern til forustu verða
að skýra fyrir umbjóðendum
sínum hvernig þeir hafa ráðstaf
að málum þeirra, til hvers þvi
fé hefur verið varið, sem inn-
heimt hefur verið af skattgreið-
endum, ©g svo framvegis.
Úrslitin
Sjálfstæðismenn höfðu góða
málefnalega aðstöðu í þessum
borgarstjórnarkosingum, ef til
vill betri málefnastöðu en í
nokkrum kosningum hingað til.
Framkvæmdir borgarinnar hafa
verið meiri en nokkru sinni
áður. Þjónusta við borgarbúa
aukizt og vaxið, og borgin orðið
fegurri með hverju árinu sem
líður. Stórátak hefur verið gert
í gatnagerð og hitaveitu og aðal-
skipulag markar ramma fyrir
uppbyggingu borgarinnar næstu
tvo áratugi. Af þessum sökum
voru borgarbúar almennt bjart-
sýnir á, að meirihluti Sjálfstæð
ismanna í höfuðborginni væri
tryggur. Nú er komið í ljós að
bjartsýnin hefur verið of mikil
um sigur Sjálfstæðismanna í
kosningunum. Atkvæðamagn
flokksins varð ekki eins mikið
og búizt var við, en eftir stendur
sú staðreynd, sem mestu máli
skiptir, að meirililuti Sjálfstæð-
ismanna, styrkur og samhentur,
mun áfram stjórna Reykjavíkur-
borg næstu fjögur ár. Það mun
vafalaust verða borgarbúum
fagnaðarefni og úrslitin nú
hvatniug til þess að tefla ekki
aftur á tæpasta vaöið í borgar-
stjórnarkosningum í Reykja-
vik.