Morgunblaðið - 24.05.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.05.1966, Blaðsíða 3
Priöjuaagur z-i. max rauo ltlUNUUnDLM(M0 o Búost ú síldveiðar Akranesi, 23. maí. VÉLBÁTURINN Ver fer í kvöld út á humarveiðar. Sól- fari fer á síldveiðar á Austur- miðum n.k. laugardag. Einn bát- ur er þegar farinn, Ólafur Sig- urðsson. Margir stórir bátar voru teknir upp I dráttarbraut- ina í dag til botnhreinsunar og málunar. Allt bendir að sjó- menn hér muni ætla að nota þessa viku til hvíldar og til að nýja sig upp fyrir sumarsíld- veiðarnar. — Oddur. Trillubútoi o/la vel Akranesi, 23. maí. SJÖ trillubátar voru á sjó hér í gær eða á kosningadag- inn. Aflinn var frá 500-900 kg. é hvert einstakt færi af ágæt- um fiski. Aflahæstur var Bensi, tveir á, með 1860 kg. Þorskurinn var ærslafullur eins og fleiri á kosningadaginn og freistaði sjó- mannanna. Þeir voru því síðbún- ir ttl að hafa upp færin, en ekki voru þeir fyrr lentir en þeir bundu bátana og þrömmuðu stórum skrefum í sjógallanum á kjörstað til að kjósa. — Oddur. Forustumenn minnihlutaflokk- anna ræða kosningaúrslitin EFSTU menn á listum minni hlutaflokkanna í borgarstjórn ræddu í fréttaauka í gær- kvöldi úrslit borgarstjórnar- kosninganna og fer hér á eft- ir stuttur útdráttur úr ræð- um þeirra: Óskar Hallgrímsson <A) sagði, að úrslit sveitarstjórn- arkosninganna hefðu leitt í ljós; að Alþýðuflokkurinn hefði unnið mikinn sigur. í 14 kaupstöðum landsins hef- einn mesti sigur sem flokkur- inn hefur unnið hér síðan á vaxtarárum hans fyrir stríð. Einar Ágústsson (F): Ég er ánægður með fylgisaukningu Framsóknarflokksins í Reykja vík. Aukningin frá 19'62 er 42,6 af hundraði. Flokknum Fylgisaukning Alþýðubanda- lagsins nemur ur flokkurixm aukið fylgi sitt úr 18 af hundraði í 16,2 af hundraði og fjölgað bæjarfull trúum úr 16 í 22. Þetta er mesta aukning, sem nokkur flokkanna hlaut í koeningun- um. Sigurinn í Reykjavík var tókst ekki að bæta við borg- arfulltrúa í Reykjavík en Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihluta eingöngu vegna þess hversu atkvæðaskipting milli hinna flokkanna varð honum hagstæð. Kosningabar áttan fór vel og prúðmann- lega fram og þeir sem tóku þátt í henni komu ósárir úr leik. Guðmundur Vigfússon (K): 2,9 af hundraði. Eg tel Alþýðu bandalagið mega vel við una þessi úrslit. Þótt Framsóknar flokkurinn fái 4,3 af hundraði hærri atkvæðatölu en 1962 er augljóst að sókn þess flokks er nú stöðvuð í Reykjavík. Hann fær nú aðeins lítið eitt hærri atkv.tölu en 1963. Fram sókn ætlaði sér áreiðanlega stærri hlut, en augljóst er, að Framsóknarflokkurinn hefur í þessum kosningum tapað glímunni við Alþýðubandalag ið um forustu fyrir andstöð- unni gegn Sjálfstæðisflokkn- um í Reykjavík. Norðurlandamótið i Bridge: Norðmenn ná forystunni NORÐURLANDAMÓTIÐ í bridge hófst sl. sunnudag, en mótið fer fram að Hótel Sögu. Forseti Bridgesambands íslands, Sigurjón Guðmundsson, ávarpaði mótsgesti og síðan var mótið sett af Geir Hallgrimssyni borgar- stjóra. Á sunnudag fóru fram tvær umferðir í opna flokknum og urðu úrslit þessi: I. umferð: Finnl. II — Danm. I 125:95 6-0 Noregur I — Finnl. I 103:65 6-0 ísland I — Danmörk II 97:83 5-1 Noregur II — Svíþjóð I 76:50 6-1 Svíþjóð II — ísland II 84:82 3-3 H. umferð: Noregur I — Finnl. II 109:55 6-0 Danmörk I — ísland I 100:69 6-0 Finnland I — Svíþjóð I 94:82 5-1 Svíþjóð II — Danm. II 90:64 6-0 Noregur II — ísland II 103:51 6-0 Árangur sveitanna frá hverju landi er lagður saman og að loknum þessum tveimur umferð- um er staða landanna þessi: Noregur Finnland Svíþjóð ísland Danmörk 24 stig 11 — 10 — 8 — 7 — Þriðja umfer'ð í opna flokkn- um var spiluð í gærkvöldi og mættu þá íslenzku sveitirnar sveitunum frá Finnlandi. Úrslit voru ekki kunn þegar blaðið fór í prentun. Éinni umferð er lokið í kvenna flokki og hafa úrslit orðið þessi: fsland — Finnland 97:93 3-3 Svíþjóð — Noregur 136:115 5-1 f gærkvöldi fór fram hluti if annari umferð í kvennaflokki. Keppnin heldur áfram í dag og hefst kl. 10 f.h. og fer þá fram fjórða umferð í opna flokknum og keppni lýkur í annarri umferð í kvennaflokki. Keppnin heldur áfram kl. áfram kl. 13,15 og í kvöld fer fram 5. umfer'ð í opna flokknum og keppir þá ísland I við Noreg II og ísland II við Svíþjóð I. Aðstaða til kepppninnar er mjög góð og er sýningartjald í notkun á kvöldin og ennfremur hefur verið komið upp töflum, þar sem áhorfendur geta séð stöðu landanna í keppninni. — Bruni Framhald af bls. 32 grunna á skammri stundu. Hús- ið var eign Skógræktar Ríkisins og var því vátryggt, svo og inn- anstokksmunir. Samt sem áður hefir ísleifur og fjölskylda hans orðið fyrir mjög tilfinnanlegu tjóni. ísleifur Sumarliðason og kona hans, Sigurlaug Jónsdótt- ir, hafa beðið Mbl. að flytja Fnjóskdælingum og öðrum inni- legar þakkir fyrir drengilega hjálp og aðstoð í erfiðleikum þeirra. Er brunann bar að höndum var veður kyrrt og úrkomulaust. ISTUTTII MALI ERHARD f LONDON London, 23. maí (NTB). LUDWIG Erhard, kanzlari Vestur-Þýzkalands, er nú í opinberri heimsókn í Bret- landi. Ræddi hann í dag við Harold Wilson, forsætisráð- herra Bretlands, og snerust umræðurnar að miklu leyti um framtíðarhorfur Atlants- hafsbandalagsins. MURINN OPNAÐUR Berlín, 23. maí (NTB). YFIRVÖLD Austur- og Vest- ur-Berlínar hafa enn einu sinni komizt að samkomulagi um opnun Berlínarmúrsins. Verður íbúum Vestur-Berlín- ar heimilað að heimsækja ætt ingja sína austan járntjalds yfir hvítasunnuna, og hafa 585,240 manns þegar sótt um leyfi til að fara austur fyrir tjaldið. Neyiarástand vegna verk- falls sjómanna London, 23. maí (AP-NTB). i herra Bretlands, lýsti í dag yfir HAROLD WILSON, forsætisráð"' neyðarástandi í landinu vegna Nú er íokið við að malbika svæðið kringum nýju íþróttahöl lina í Laugardal. Skapast nú þarna bílastæði fyrir fjölda bifreiða, auk þess sem umferðin verður nú mun greiðari, bæði að og frá höllinni. — verkfalls sjómanna á farskipum. Með þessari yfirlýsingu tryggir Wilson sér völd til að ákvarða hámarksverð á matvælum, hafa eftirlit með allri hafnarumferð og innlendum flutningum, og til að sjá um að ekki verði skort- ur á nauðsynjavörum. Sjómannaverkfallið hefur nú staðið í átta daga, og er ekki vitað til hverra bragða brezka stjórnin hyggst grípa. En Wilsön tók það fram í ræðu sinni í Neðri málstofu þingsins í dag að þótt lýst væri yfir neyðár- ástandi, þýddi það ekki að hann eða stjórn hans ætluðu að beita valdi til að binda enda á verk- fallið. Sagði ráðherrann að skip- uð yrði óháð þingnefnd til að kanna kjör sjómanna og vinnu- skilyrði. Um 500 skip hafa stöðv- azt vegna verkfallsins, og talið er að um fimm þúsund mill- jón króna verðmæti af útflutn- ingsvörum bíði nú flutnings frá bezkum höfnum. Sjómenn krefjast um 17% kauphækkunar og styttingu vinnuvikunnar úr 56 í 40 tíma. STAKSTHI\IAR Að kosningum loknum Kosningunum er lokið og stjórnmálamennirnir meta niður stöður þeirra og velta fyrir sér hvað hafi verið gert rétt og rangt í kosningabaráttunni. Það sem einkum einkenndi kosninga- baráttuna var það, að hún var styttri og rólegri en íslendingar eiga að venjast. Oft hefur kosn- ingahríðin staðið svo vikum og jafnvel mánuðum skipti, og les- endur dagblaða hafa verið orðnir þreyttir á sifelldum stjórn málaskrifum dagblaðanna. Það er merki um aukinn stjórnmála- þroska, að kosningabaráttan var að þessu sinni tiltölulega stutt og róleg. Flest dagblaðanna reyndu að hafa hæfilegt jaln- vægi milli almennra frétta og greina, og svo stjórnmálaskrifa og hefur það væntanlega mælzt vel fyrir hjá lesendum þeirra. Mdlin lögð fyrir kjósendur Sjálfstæðismenn lögðu áherslu á það í þessari kosningabaráttu að leggja verk sín skýrlega fyrir kjósendur, skýra frá því sem gert hefur verið á vegum Reykja víkurborgar sl. kjörtimabil «g hvað fyrirhugað væri að ger* á næsta kjörtimabili. Þannig hafa kjósendur í Reykjavik haft góða aðstöðn til þess að vega og meta verk borgarstjórnarmeirihlut- ans, og þannig á það einnig að vera í lýðræðisþjóðfélagi. Þeir, sem kjörnir ern til forustu verða að skýra fyrir umbjóðendum sínum hvernig þeir hafa ráðstaf að málum þeirra, til hvers þvi fé hefur verið varið, sem inn- heimt hefur verið af skattgreið- endum, ©g svo framvegis. Úrslitin Sjálfstæðismenn höfðu góða málefnalega aðstöðu í þessum borgarstjórnarkosingum, ef til vill betri málefnastöðu en í nokkrum kosningum hingað til. Framkvæmdir borgarinnar hafa verið meiri en nokkru sinni áður. Þjónusta við borgarbúa aukizt og vaxið, og borgin orðið fegurri með hverju árinu sem líður. Stórátak hefur verið gert í gatnagerð og hitaveitu og aðal- skipulag markar ramma fyrir uppbyggingu borgarinnar næstu tvo áratugi. Af þessum sökum voru borgarbúar almennt bjart- sýnir á, að meirihluti Sjálfstæð ismanna í höfuðborginni væri tryggur. Nú er komið í ljós að bjartsýnin hefur verið of mikil um sigur Sjálfstæðismanna í kosningunum. Atkvæðamagn flokksins varð ekki eins mikið og búizt var við, en eftir stendur sú staðreynd, sem mestu máli skiptir, að meirililuti Sjálfstæð- ismanna, styrkur og samhentur, mun áfram stjórna Reykjavíkur- borg næstu fjögur ár. Það mun vafalaust verða borgarbúum fagnaðarefni og úrslitin nú hvatniug til þess að tefla ekki aftur á tæpasta vaöið í borgar- stjórnarkosningum í Reykja- vik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.