Morgunblaðið - 09.06.1966, Page 3

Morgunblaðið - 09.06.1966, Page 3
Fimmtudagur 9. júní 1966 MORGUNBLAÐIÐ 3 EINS og frá var skýrt í frétt blaðsins í gær var mjög fjöl- mennur fundur haldinn á Selfossi í fyrrakvöld, þar sem bændur ræddu um innvigtun- argjald það, sem sett hefir verið á mjólk bænda, sem lögð er inn í Mjólkurbú Flóa- manna. A fundinum var deilt hart á Framleiðsluráð land- búnaðarins fyrir framkvæmd ir þess. Fundinn sat formaður Stéttar sambands bænda, Gunnar Guð- bjartsson, og flutti hann langa skýringarræðu um verðlagsmál- Við setningu fundarins á Sslfossi. Lárus Ág. Gíslason í ræðustóli. Fundarstjórar t.v. Guð- mundur Guðmundsson Evri-Brú og Jóhannes Sigmundsson, Syðra-Langholti. Að baki ræðu- manns: Stefán Jasonarson, Gunnar Guðbjartsson og Pétur M. Sigurðsson. Mótmæla ráistöfunum Framleiðsluráis in og þróun þeirra á undan- förnum árum. Þá töluðu fundarboðendur, Lárus Ág. Gíslason, Stefán Jas- onarson, Guðmundur Eyjólfsson og Pétur M. Sigurðsson. Auk þeirra töluðu svo Sigurjón Páls- eon, Ölver Karlsson, Sigurgrím- ur Jónsson, Páll Diðriksson, Gisli Hannesson, Erlendur Árna- son, Elís Sveinsson, Kjartan Jóns son, Sigurgrimur Jónsson; aftur, Kristinn Helgason, Vigfús Ein- arsson og Gunnar Stefénsson. Gunnar Guðbjartsson talaði á ný og svaraði fyrirspurnum og gerði nokkrar athugasemdir. Þa talaði Björn Einarsson og ioks Pétur M. Sigurðsson, Stefán Jas- onarson og Lérus Ág. Gislason. Nýr bæjorstjóri ó Húsovík Húsavík, 8. júní. FYRSTI fundur hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar Húsavíkur var Kaldinn í dag. Samstaða hefur náðst um stjórn bæjarmála næsta kjörtímabil milli Alþýðuflokks- ins, Sjálfstæðisflokksins og ó- háðra kjósenda. Bæjarstjóri var kjörinn Bjöm Friðfinnsson lög- fræðingur hjá borgardómara í Beykjavík, og tekur hann við starfinu í haust. Forseti bæjar- Stjórnar var kjörinn Guðmundur Hákonarson (A), fyrsti varafor- seti Ingvar Þórarinsson (S) og annar varaforseti (óh.). í bæjar ráð voru kjörnir Ásgeir Krist- jánsson (Óh), Ingvar Þórarins- son (S) og Karl Kristjánsson (F) — Fréttaritari. Brutust inn n þremur stöðum I FYRRINÓTT um kl. 3 var brotizt inn í veitingahúsið Múla kaffi og var farið inn í fyrir- tækið um bakdyr. Farið var í peningakassa fyrirtækisins og þar stolið 9000 krónum, sem gleymzt hafði að taka úr hon- nm kvöldið áður. Þá var sömu nóttina, en skömmu síðar brotizt inn í fyr- irtækið Mót og stansar við Suð- urlandsbraut skammt neðan við Múlakaffi en ekkert tekið þar af verðmæti. Brotin var síðan rúða í þriðja fyrirtækinu skammt frá og voru nátthrafnarnir tekn ir höndum við iðju sína. Höfðu tveir vegfarendur orðið varir við hávaða' og gert lögreglunni aðvart. Hér var um tvo unglinga aö ræða. sem af hálfu fundarboðenda þökkuðu mikla fundarsókn. Fundinum hafði borizt skeyti frá héraðsnefnd Eyfirðinga og var það í bundnu máli og var svarað á sama hátt. Franskt eftir- litsskip væntan- legt hingað EINS og undanfarin ár mun franska fiskveiðaeftirlitsskipið „COMMANDANT BOURDAIS" heimsækja Reykjavíkurborg dag ana 11. til 14. júní n.k. Skip þetta hefir fengið það hefðbundna hlutverk að aðstoða fiskiskip við veiðar á fjarlægum miðum. Umsjónarsvæði Comm- andant Bourdais er helzt fiski- miðin við Nýfundnaland, Græn- land og í Berentshafi. Commandant Bourdais er bú- inn fullkomnum uppskurðar- tækjum, tannlæknastofu og sjúkrastofum fyrir fiskimenn. Lengd skipsins er 103 metrar og breidd 11,50 m. Það er 2000 smálestir og hraði þess 26 hnút- ar. Almenningi verður leyft að skoða skipið sunnudaginn 12. júní milli kl. 14 til 17. Aden, 8. júní — NTB — Fjórir Arabar og einn Breti hafa farizt og fimmtán særzt af öldum skemmdarverka í Aden síðustu daga, að því er hernaðaryfirvöld í Aden upp- lýstu í dag. Loks skilaði fundurinn frá sér samhljóða áiyktun svohljóðandi: „Almennur fundur bænda á Suðurlandi haldinn á Selfossi þann 7. júní 1966 mótmælir narð lega þeirri kjaraskerðingu, sem ákvörðun Framleiðsluráðs land- búnaðarins kemur til með að valda mjólkurframleiðendum, ef ekkert verður að gert. Fyrir því skorar fundurinn á Framleiðsluráð og ríkisstjórnina að semja um lausn, sem bændur geta við unað.“ Auk þessa kaus fundurinn og samhljóða fimm menn úr hverri þeirra sýslna, sem hlut eiga að Mjólkurbúi Flóamanna sem hér- aðsnefndir til viðræðna við opin bera aðila um þessi mál. Af hálfu Skaftfellinga voru kosnir: Siggeir Björnsson, Holti; Jón Helgason, Seglbúðum, Ás- geir Pálsson, Framinesi, Einar Þorsteinsson, Sólheimahjáleigu, Páll Pálsson, Litlu-Heiði. Af hálfu Árnesinga: Pétur M. Sigurðsson, Austurkoti; Stefán Jasonarson, Vorsabæ; Sigmundur Sigurðsson, Syðra-Langholti; Jón Jvarsson Skipum; Guðmundur Guðmundsson, Efri-Brú. Af hálfu Rangæinga: Lárus Ágúst Gíslason, Miðhúsum; Ölver Karlsson Þjórsártúni; Sigurður Haukdal, Bergþórshvoli; Sigur- jón Pálsson, Galtalæk; Magnús Guðmundsson, Mykjunesi. Fundi þessum lauk kiukkan rúmlega 3 í fyrrinótt og höfðu umræður verið fjörugar og all- hart deilt á ráðstafanir Fram- leiðsluráðs, en almennri verð- bólguþróun í landinu kennt um hvernig komið væri. Lengri og skemmri ferðir Farfugia í sumar FARFUGLINN tímarit Banda- lags íslenzkra Farfugla, 1. tbl. 10. árgangs, er nýlega komið út. Meðal efnis í ritinu má nefna ferðaáætlunina fyrir sumarið. Áætlaðar eru 25 einsdags- og helgarferðir, og tvær lengri sumarleyfisferðir. Önnur sumarleyfisferðin verð ur á Fjallabaksvegi Syðri og nyrðri, í ferðinni verður einmg komið að Langasjó og gengið á Sveinstind. Lengri ferðin verður í Arnarfell hið mikla. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á þeirri ferð, þangað var ekki farið síðastliðið sumar, en sú ferð hefur ávallt notið mikilla vinsælda, og er nú tekin upp Halldór Jónsson hæst ur Ólaisvíkurbáta Ólafsvík, 8. júní. SÍÐUSTU netabátar hættu veið- um 20. maí s.I. og var þá heildar- aflinn á vertíðinni 1966 orðinn 9487 lestir í 953 róðrum, en var í vertíðarlok 1965 9197 lestir i 902 róðrum. Aflahæstu bátar á vertiðinni voru: Hglldór Jónsson 1001 tonn í 75 róðrum, skipstjóri Leifur Halldórsson. — Valafell 902 tonn í 79 róðrum. Jón Jónsson 864 tonn í 72 róðrum. Steinunn 813 tonn í 72 róðrum. Sveinbjörn Jakobsson 812 tonn í 65 róðrum. Stapafell 808 tonn í 61 róðri. Jón á Stapa 624 tonn i 58 róðrum. Héðan munu 5 bátar fara til síldveiða sunnanlands og austan og eru það færri bátar en í fyrra. Sjómenn eru nú að útbúa báta sína á dragnótaveiðar, sem munu hefjast um miðjan júní. Einn bátur er byrjaður á hum- arveiðum, en afli verið tregur það sem af er. Tveir bátar munu sennilega verða gerðir út á troll í sumar og munu byrja á næst- unm. Margar trillur hafa verið á handfæraveiðum í vor og með iangflesta móti. Hefur afli verið mjög góður það sem af er, allt að tonni á færi yfir daginn. Hrognkelsaveiði hefur verið nokkur hér 1 vor og jafnvel með bezta móti og hafa sennilega all flestir Ólafsvikurbúar fengið að bragða á hinum gómsæta fiski, aldrei þessu vant. Skipakomur hafa verið alltíð- ar að undanförnu, að lesta fisk og fiskafurðir svo sem fiskimjöl, frystan fisk. skreið og saltaða gotu o.fl. I í ferðaáætlunina að nýju. f Arnarfellsferðinni verður auk j þess farið í Vonarskarð og gengið á Bárðarbungu i Vatna í jökli, ef veður og ástæður leyfa. í helgarferðunum er helzta ný- mælið ferð á Hattfell og Enstrur j og 17 .júní ferðin í Ljósufjöll og Drápuhlíðarf j all. Ólafur Björn Guðmundsson skrifar aðra grein sína um ís- lenzkar jurtir, fjallar hann að þessu sinni um hnoðrana. í blaðinu ræðir Óttar Kjart- ansson við Sigurjón Rist, vatna- mælingamann, um vetrarferða- lög. Snýst talið meðal annars um farartæki og ferðabúnað, og ýmis atriði, sem varast ber í slíkum ferðalögum. Sigurjón leggur mikla áherzlu á hættu þá, sem stafað getur af vatni sem safnast oft í djúpa polla á hraunasvæðunum, þar sem af- rennsli vatnar á yfirborð lands- ins. Er mjög erfitt að varast þessa pitti, þegar þeir eru huld- ir ís- og snjólagi. Hann segir þetta svo algengt fyrirbæri á há- lendinu, að merkilegt megi teljast, að þetta skuli ekki hafa valdið alvarlegum slysum. í blaðinu er skemmtilegt dag- bókarbrot eftir Björgvin Ólafs- son, veðurathugunarmann á Hveravöllum. Segir hann þar frá lífi þeirra einbúanna inni á hálendinu, sem ekki reynist eins einmanalegt og margur gæti haldið. Annað ef ni í blaðinu, eru fréttir frá aðalfundum Farfugla deildar Reykjavíkur og Banda- lags íslenzkra Farfugla, og smá- letursdálkurinn „Úr malpokan- um“. ST.USTimii Tímiim, Þjóöviljinn og Vietnam Fyrir nokkrum dögum var í þessum dálki vakin athygli á skrifum eins ritstjóra Þjóðviljans um Vietnam-málið, þar sem hann hélt því fram að ekkert dagblað á ísiandi ræddi Vietnam-málin á „heiðarlegan“ og „frjálslegan" liátt, nema Þjóðviljinn. En þessi ritstjóri er ekki einn um það að hrífast af eigin verkum. í Tím- anum í gær er fjaliað um þetta mál, og þar segir: „Sannleikurinn er sá, að ekk- ert blað hefur birt meira af fræð- andi efni um styrjöldina í Viet- nam og hlutlegt mat á ástand- inu þar en Tíminn. Undanfarna mánuði hafa birzt tvær til þrjár valdar greinar á viku í blaðinu, þar sem styrjaldarrekstur Banda rikjamanna hefur verið gagn- rýndur, og tekið undir þau öfl í Bandaríkjunum sem vinna að því að knýja fram stefnubreyt- ingu Bandaríkjastjórnar. Hins vegar ætlar Timinn sér ekki þá dul að skrif blaðsins muni leysa þetta erfiða vandamál Hér eru sem sé hafnar hinar hörðustu deilur milli þessara tveggja blaða um það, hvort þeirra skrifi af meiri vizku um Vietnam, og verður gaman að fylgjast með áframhaldi þeirra. Um þetta má vissulega segja, að sæll er hver í sinni trú. „Nýr kafli“ Kommúnistar hér á landi hafa jafnan verið bjartsýnir menn, þótt fylgi þeirra og áhrif hafi farið þverrandi og dvínandi með hverju árinu sem liðið hefur. En a.m.k. einu sinni á ári byrjar Þjóðviljinn að skrifa um það að „nýr kafli“ sé að hefjast í ís- lenzkri stjórnmálasögu, „ný sókn“ róttækrar verkalýðshreyf- ingar sé hafin og svo framvegis. í fyrrasumar hófust þessi skrif, þegar síldarflotinn sigldi að landi, og nú er kommúnistum mikið í mun að túlka kosninga- úrslitin á þennan hátt, enda segir Þjóðviljinn í gær: „Kosningasig- urinn getur boðað, að nýr kafli í íslenzkri stjórnmálasögu sé að i hefjast, ný sókn róttækrar verka- lýðshreyfingar gegn vinnuþrælk- I un, arðráni og okri, sókn þjóð- I ræknismanna, sem ekki ætla að una smán herstöðva og dátasjón- varps, sókn þeirra þjóðfélagsafla, sem heimta jsland frjálst af arð- I ránsokri erlendra auðhringa. I | stórsókn er alltaf liðsvannt, «g í Alþýðubandalaginu er verkefni fyrir hvern þann, sem ekki vill standa kyrr og tvíráður, heldur skilur nýjum skilningi, að einnig hann á verki ólokið". í sjálfu sér er engin ástæða til þess að amast við því þó að kommúnistar hér á landi, sem vissulega hafa orðið fyrir marg- víslegum vonbrigðum á lífsleið- inni, enda ekki til annars stofnað, séu nú haldnir árlegri óskhyggju sinni um „nýja sókn“. En ósköp er nú hætt við, að raunveruleik- inn sé svolítið annar — ekki sá sem kommúnistar reyna að halda fram.í blaði sínu, heldur hinn, að sundrungin í Alþýðubanda- laginu hefur blossað upp á ný, og hefur líklega aldrei verið eins harðskeytt og hún verður á því ári, sem er til þingkosn- inga, þvi að nú er um líf og dauða að tefla fyrir klikurnar i Alþýðubandalaginu, hverja um sig. Þetta er sá kaldi raunveru- leiki, sem kommúnistar standa frammi fyrir, og þeir eru alls ófærir um að hefja „nýja sókn“ af þeim sökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.