Morgunblaðið - 09.06.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.06.1966, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 9. júní 1966 MORGUNBLAÐID 15 að geta komið þessum málum í framkvæmd? — Eftir að ég fékk þetta til- boð frá Rolls-Royce um þessa hreyfla, sem eru ekki dýrari en raun beri vitni, eygi ég nú loks möguleika á að koma þessu í framkvæmd. Kunningi minn, vélvirki, segir mér, að unnt sé að smíða grindina að vélinni á viku til hálfum mán- uði, þannig að fengi ég styrk nú, gæti ég farið a’ð reyna vélina eftir 2—3 mánuði. Ekki mega menn halda að unnt sé að fljúga af stað strax og vél- in er smíðuð. Það verður að reyna hana til hins ítrasta áður, t.d. með því að binda hana við jörðu. — Hefurðu ekki smíðað lítið líkan, sem hefur flogið? — Jú, þegar ég var hjá Sikorsky-verksmiðjunum sýndi ég flugvélasérfræðing- um þar líkan af vélinni. Ég setti hana á skrifborð, sem þar var og setti í gang. Vélin hóf sig á loft og flaug út í stofuna. f>að var þá, sem þeir fóru að sýna þessari hugmynd áhuga og bjóða í hana. Einar sýnir okkur nú möppu með umsögnum ým- issa mætra manna. í einu meðmælabréfinu, sem ritað er af Gunnari D. Lárussyni, flug vélaverkfræðingi, segir m.a.: Islenzk flugvélauppfinning Rætt við Einar Einarsson, sem fundið hef- ur upp flugvél, sem hefur sig ióðrétt til flugs skýrði fyrir okkur hug- myndir sínar og áttum við í því sambandi við hann viðtal. — Hvenær fórst þú að brjóta heilann um þessi mál? — í>að var um 1955. Ég fór þá til Bandaríkjanna eftir að ég hafði sýnt ýmsum flugvéla- sérfræðingum á Keflavíkur- flugvelli hugmyndir mínar. Ég var þá að gera flugvél, sem var allmiklu öðruvísi, en þessi flugvél mín, sem ég er nú að vinna að. Ég vann síðan hjá Sikorsky Aircraft í Connecti- cut í um eitt ár, en fór þaðan til Republic Aviation Corpora- tion í New York og vann þar í um 4 ár. Þar starfa'ði ég að teikningum og útreikningum á þeirra eigin vélum, en ég sá að langur tími myndi líða þar til þeir hefðu tíma til að fást við mínar hugmyndir, svo að ég hætti og fór heim. Þær flugvélar, sem þá voru í smíðum voru t.d. F-105, sú, sem mest er nú notuð í Víet- nam. — Buðu þessi félög aldrei í hugmyndir þínar? — Jú, Sikorsky fór að bjóða mér, fyrst 100 dollara, en þegar ég neitaði hækkuðu þeir sig smám saman, unz þeir voru komnir upp í 1800 dollara, þá hættu þeir, hafa líklega haldið að ég vildi ekki selja. — Hefurðu fengið styrk til þessara rannsókna? — Já, ég fékk styrk hér um árið til þess að smfða flug- bílinn sem ég minntist á áðan. Ég smíðaði hann, fékk í hann tvo gamla hreyfla, sem voru hvor um sig 250 hestöfl. Sá vagn lyfti um 760 kg. — En hvenær fékkstu hug- myndina að þessari vél? — Það eru nú ekki nema nokkrir mánuðir síðan. Ég hef sent teikningar af henni til Englands, til Rolls-Royce- verksmiðjanna og þeir segjast geta útvegað tvo hreyfla, 100 hestafla hvorn, og segja þeir að nægi til lóðrétts flugtaks, þegar tveir menn séu í vél- inni. Þessir hreyflar kosta hvor um sig um 85 þúsund krónur, svo að unnt myndi verða að smíða vélina fyrir um hálfa milljón króna. Það er mér bráðnaúðsynlegt að geta smíðað eina slíka vél, svo að unnt sé að endurbæta hana, því að þótt hugmyndin sé góð er ekki þar með sagt, að ekki sé unnt að endurbæta hana og gallar hennar koma ekki í ljós fyrr en í reynd. — Hvernig er bygging þess- ?rar vélar frábrugðin venju- legum flugvélum? — Venjulegar flugvélar byggja á því kerfi, að skrúf- an kýr flugvélina áfram, sem síðan svífur á loftmótstöðunni. Þessi vél hins vegar myndar með hreyflum sínum mikinn loftstraum, sem fer aftur með vélinni og kemur í stað hraða hinna venjulegu véla. Skrúfuspaðarnir eru mjög stórir og ná yfir allan flöt vængjanna, þannig að mjög mikil orka nýtist. Aftast á vél- inni er svo mótstaða, sem ger- ir vélina stöðugri í loftinu við flugtak og lendingu. Þá mætti hugsa vélina þannig, að unnt sé að taka af henni væng ina og stélið. Er þá komin all- myndarlegasta bifreið. — Hvenær hefur þú von um „Ég hef fyigzt með teikn- ingum, sem Einar Einarsson hefur gert að undanförnu, og mér finnst þær mjög skemmti legar og frumlegar. Einar hef- ur með þessu sýnt hæfileika til að nota þekkingu sína á . flugvélasmíði á þann hátt. að ég er viss um, að nokkúð af hugmyndum hans myndi hat’a framtið fyrir sér eftir að þær hafa verið reyndar“. Annar verkfræðingur, Sig- urður Magnússon, vélaverk- fræðingur, segir m.a.: Framhald á bls. 18 EINAR Einarsson heitir ungur vélstjóri, sem vakið hefur á sér athygli fyrir skemmtilegar hugmyndir um flugvél, sem hefur þá eiginleika að geta hafið sig lóðrétt til flugs. Hefur hann dvalizt í Bandaríkj- unum um fimm ára skeið og kynnt sér ýmislegt í sambandi við flugtækni og flugvélagerð. Við hittum Einar nú fyrir skömmu og sýndi hann okkur teikn- ingar af vél sinni og út- r Likan, sem Einar gerði fyrir nokkrum mánuðum, og sýnir útlit vélarinnar. Á þessum myndum sýnir Ein- ar, hvernig unnt er að útbúa flugvélina sem flugbíl. Unnt væri að koma því svo fyrir að taka mætti vængi og stél a1 og er þá kominn allmyndarleg bif- reið. Þá kemur hann með þá skemmtilegu hugmynd, að ef til vill gæti eitthvert fyrirtæki átt stél og vængi og leigt út, þannig að menn þyrftu ekki að eig'a nema bifreiðina sjálfa. Á efri myndinni sýnir hann einnig hvernig kraftarnir verka, og stöðu vélarinnar við flugtak. R er lokakraftur, a er togkraftur skrúfanna, b er kraftur undir væng og e er togkraftur vélar- innar sjálfrar. Þetta er vélin, sem Rolls-Royce telur, að þurfi ekki flugvöll. Hér sést vélin frá öllum hliðum. Xakið eftir hve skrúfur hreyfl- anna na yfir mikinn hluta vænghafsins (mynd séð beint framan á vélina efst til hægri). Á myndinni í hægra horni að neð- an ma glogglega sja loftstrauminn. hvernig hann leikur um skrokk vélarinnar. Myndin séð ofan á flugvélina sýnir, hve væng- hafið er stutt, en flötur vængsins hins vegar stór. Loftmótstaðan aftan í flugvélinni er einungis nötuð við flugtak og lendingú eða þegar vélin stendur kyrr í loftinu. Hún dregst inn í vélina, þegar hún er á flugi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.