Morgunblaðið - 16.06.1966, Síða 1
32 síður
©FSARIGNINGAR hafa
valdið flóðum og skriðuföll-
um í Hong Kong að undan-
förnu og vaidið miklu tjónL
í, NTB-frétt í gær var sagt,
að líklega hefðu a.m.k. 80
manns farizt af völdum ó-
veð'ursins, — 55 lik hafa
fundizt 70 manns hafa særzt
og um 100 manns er saknað.
í gærmorgun jókst úrkoman
enn og varð þá að engu það
starf, er unnið hafði verið við
að greiða úr öngþveitinu frá
því um siðustu helgi, er ham
farirnar náðu hámarki. £r
efnalegt tjón nú metið á miilj
ónir doliara. Öllum skólum
hefur verið lokað um sinn
Meðfylgjandi mynd, sem tek-
in var s.L sunnudag gefur
nokkra hugmynd um öng-
þveitið sem þar ríkir.
Utanríkisráðherrar A-Evrópu
ræðast við með leynd í Moskvu
Úkyrrð í Amsterdam
þingið ræðir oeirðimar
svðusfu daga
Amsterdam, 15. júní NTB. .
Holienzka þingið kom
saman til aukafundar í dag til
þess að ræða um óeirðimar,
sem verið hafa í Amsterdam
siðustu þrjá daga. Lýsti forsæt-
isráðherrann, Joseph Cals, því
yfir, að stjómin hefði gert sér-
stakar ráðstafanir til þess að
hindra að þeim yrði áfram
haldið.
Enn kom til óeirða í Amster-
dam í kvóld þótt öflugur lög-
regluvörður væri hvarvetna. 1
dag hafði lögreglan leitað þeirra,
sem taidir eru hafa
staðið fyrir óeirðunum að und-
anförnu. í gærkvöldi náðu óeirð
ir þessar hámarki, með mót-
mælaaðgerðum nærri höll Júlí-
önu drottningar. Meiddust um
60 manns, þar af 28 lögreglu-
menn.
Orsök þessara alvarlegu átaka
síðustu daga er sú, að verka-
menn staðhsefa, að lögreglan
hafd orðið að bana manni úr
þeirra hópi. Lögreglan segir
hins vegar líkskoðun hafa ieitt
í ljós, að maðurinn hafi dáið af
völdum hjartabilunar.
Verkamenn hafa að undan-
förnu mótmælt 2% lækkun á
orlofi, sem stjórnin hafðd fyr-
irskipað vegna aukins kostnaðar
við atvinnurekstur. í óeirðunum
'hafa einnig tekið þótt margjr
unglingar — síðhærðir og klædd
ir leðurjökkum — sem vanir
eru að gera sér mat úr því, ef
til slagsmála kemur í Amster-
dam höfðu þeir sig mest frammi
í kvöld, brutu rúður og rifu
niður umferðarspjöld og stöðu-
mæla. Tjónið, sem orðið hefur
í óeirðunum er metið á aðra
miiljón króna (ísl.).
Sukarno býður
páfa í heimsokn
Rómaborg, 15. júní — AP: —■
SLKARNO, forseti Indónesíu,
hefur boðið Páli páfa VI að
heimsækja Indónesíu, að því er
semdiráð landsins i Rómaborg,
skýrði frá í dag. Var sagt, að
iandbúnaðarmálaráðherra Indó-
nesíu, Franz Seda, hefði fært
páfa heimboðið, er hann hítti
hann að máli sl. mánudag.
Ekki er vitað, hvort páfi þigg-
ur heimboðið. Hann hefur í
mörg horn að líta á næstunni, á
fyrirlig.gjandi heimboð til
margra landa, allt austur tii
Filippseyja.
Breytingar á liði Rússa
Helzta vandamólið: Someiginleg aístaða um málefni Eviópu
í A-Þýzkalandi ?
Moskvu, Ii6. júni — NTB-AP
• Utanríkisráðherrar Austur-
Evrópuríkjanna hafa síðustu dag
Kekkonen
tll Neregs
Osló, 15. júní NTB: —
Urho Kekkonen, forseti
í'innlands, fer 20. júní n.k. í
tveggja daga einkaheimsókn til
Noregs og mun þá ræða við ráð-
herra þar.
Talið er, að Kekkonen muni
að einhverju leyti skýra norsku
stjórninni frá viðræðum sínum
við Aléxei Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, sem fer frá
Finniandi 18. júní. Meðal þess,
sem þeir ræða þessa daga eru
ejónarmið Kekkonens varðandi
landamærasamninga Finnlands
og Noregs.
Að sögn fréttaimanms NTB í
Tlelsinki, hefur heimsókn Kosy-
gins verið með fádæma óform-
legu yfirbragði. Öryggisráðstaf-
Framh. á bls. 2
ana setið á sleitulausum fundum,
til þess að reyna að koma sér
saman um sameiginlega afstöðu
í viðræðunum við de Gauile
forseta Frakklands, er hann kem
ur til Sovétríkjanna.
• Mikil leynd hefur hvílt yfir
þessum fundum, — þeir hafa
farið fram fyrir iuktum dyrum
og fáar fregrtir þaðan borizt.
Starfsmenn sendiráða A-Evrópu
ríkjanna hafa jafnvel ekkert
fengið að vita um gang viðræðn-
anna. Talið er þó að viðræðun-
um 1 júki í kvöld, en ólíklegt, að
gefin verið út opinber tiikynn-
ing.
• Meðal ráðherranna, sem setið
hafa fundinn, er Andrei Gromy
ko, utanrikisráðherra Sovétríkj-
anna. Hætti hann við að fara
með Alexei Kosygin forsætisráð
herra Sovétríkjanna til Finn-
lands, til þess að geta tekið þátt
í þessum viðræðum, og er talið,
að af því megi marka, að þær
hafi verið hinar mikilvægustu.
Eitt helzta vandamál ráðherr-
anna mun hafa verið að koma
Átök í Saigon
- mlBEí stúdeiita, fréttairiainiia
©g Hjjósmyndara - og lögreglu
Saigon, 15. júní — NTB
• Enn kom til óeirða í Saigon
í dag er studentar og Búdda-
trúarmenn fóru í hópgöngur til
að lýsa andúð sinni á stjórn
landsins. Um hundrað stúdentar
voru handteknir.
Ljósmyndarar, sem reyndu að
taka myndir af átökunum, voru
neyddir til að láta af hendi film
ur sinar við lögregluna. Braut
lögreglumaður einn ijósmynda-
vél bandarisks sjönvarpsmanns
og ástralskur fréttamaður, sem
reyndi að taka myndir varð fyr-
Framihald á bls. 31
Ágreiningui sagðui um kostnað
sér saman um afstöðu til mála
Evrópu. Hefur rikt mikill ágrein
ingur um þau mái og umræður
um ýmis atriði tekið langtúm
lengri tíma en ætlað var.
Sú mun ætlan franska forset-
ans að kanna í Moskvu mögu-
leikana á friðsamlegri lausn
Þýzkalandsmálanna. Sagði
franski sendiherrann í Washing
ton, Charles Lucet við blaða-
menn í dag, að de Gaulle væri
þeirrar skoðunar, að ekki væri
von varanlegs friðar í Evrópu
fyrr en málefni þýzku ríkjanna
hefðu verið endanlega leyst.
Rússlandsferð de Gaulle hefst
næstkomandi mánudag.
af dvöl
Bonn, 15 júní — NTB
♦ HIÐ óháða blað „Die
Welt“ í Hamborg skýrir
svo frá í dag, að Sovétstjórn-
in hafi ákveðið að kalla heim
fimm herdeildir af tuttugu,
sem staðsettar eru í Austur-
Þýzkalandi, en fjölga í þess
stað flugskeytum.
Blaðið kveðst hafa eftir áreið-
anlegum heimildum, að ástæðan
til þessara breytinga sé sú, að
liðsins
stjórnir Sovétríkjanna og Austur-
Þýzkalands séu ekki á einu máii
um það, hversu mikið Austur-
Þjóðverjum beri að greiða fyrir
að hafa sovézkt lið á austur-
þýzku landsvæði. Þá segir blað-
ið, að Ulbricht hafi hug á því, að
Rússar staðsetji í A-Þýzkalandi
eldflaugar, er borið geti kjarn-
orkuvopn, en ekkert bendi til
þess, að Sovétstjórnin ætli a'ð
verða við þeim tilmælum. Opin-
ber staðfesting hefur ekki feng-
izt á þessum skrifum vestur-
þýzka blaðsins.
Framboð og eftirspurn
- franitíðarlögmá! sovéskra viðskiptahátta
Moskvu, 15. júní — NTB
t Sovétstjórnin hefur op-
inberað fyrirætlanir sín-
ar um breytingar á við-
skiptaháttum þjóðarinnar,
sem eiga í framtíðinni að
byggjast að verulegu leyti
á lögmálinu um framboð
og eftirspurn.
Aleksander Strutjev, við-
skiptamálaráðherra Sovétrikj
anna, skýrði frá þessum fyrir-
ætlunum á ráðstefnu, sem nú
stendur yfir í Kreml. Eru þátt
takendur þar helztu forystu-
menn og starfsmenn í við-
skiptalífi Sovétríkjanna. —
Meðal viðstaddra við setningu
ráðstefnunnar var Leonid
Breshnev, aðalritari kommún-
istaflokksins.
Aleksander Strutjev skýrði
meðal annars frá því, að í
framtíðinni yrði að því
stefnt að framleiða vandaðar
vörur í stað lélegs varnings,
sem enginn vildi kaupa og
lægi því rykfallinn í hillum
sovézkra verzlana. Dró hann
upp glæsilega mynd af stór-
verzlunum framtíðarinnar,
þar sem húsmæður gætu
keypt allt, sem þær þyrftu í
matinn á einum stað. Einnig
gerði hann ráð fyrir, að lit-
rikar auglýsingar héldu inn-
reið sína í sovézkt viðskipta-
líf, kominn væri tími til að
binda enda á núverandi aug-
lýsingahætti — sovézkar aug-
lýsingar væru á lágu stigi og
lítt sannfærandi.
Þá fjallaði Strutjev um þær
breytingar, sem gerðar hefðu
verið í ýmsum fyrirtækjum
landsins, með það fyrir augurrt
að innleiða gróðasjónarmið í
meiri mæli. Hefði starfshátt-
um verið breytt í 70.080 fyrir-
tækjum frá því í júlí sl. og
virtist ætia að gefa góða raun.
Verzlun og framleiðsla hefði
aukizt og þjónusta batnað.
Loks sagði Strutjev að kanna
þyrfti eftir vísindalegum leið-
um eftirspurn og kröfur neyt-
enda — slíkt hefði til þessa
alveg gleymzt í Sovétríkjun-
um. —