Morgunblaðið - 16.06.1966, Síða 2
2
MORCUNBLADID
Fimmíudagur 16. júní 196fl
40 ÁRA STIJDEIMTAR
Mynd þessa tók Ólafur K. Magn-
ússon við Káðherrabústaðinn í
gær af 40 ára stúdentum, sem
þar komu saman til að halda
upp á dagínn. í upphafi útskrif-
uðust 43 stúdentar, þar af 3 stúlk
ur. Á lífi eru nú 37 og var þorri
þeirra mættur, en einhverjir for
fallaðir. Rifjuðu menn upp end-
urminningar frá skólaarunum
og var glatt á hjalla.
Á myndinni sjást talið að neðan: Axel Blöndal Fríða Proppé, Bjarni Benediktsson, Hallgrím-
nr Björnsson, Vilborg Ámundadóttir, Ólafur Halldórsson, Ragnar Ólafsson Július Sigurjóns-
son, Alfreð Gíslason, Jakob Benediktsson, Óskar Erlendsson, Jón Sigurðsson Óskar Þorláks-
son, Freymóður Þorsteinsson, Gísli Gestsson, Einar Guttormsson, Halldór P. Dungal Valgarð
Thoroddsen, Björgvin Finnsson, Bergur Björnsson, Ólafur Þorsteinsson Einar Bjarnason,
Björn Bjarnason, Eiríkur Sigurbergsson, Sveinn Benediktsson og Ingólfur Gíslason.
miklum breytingum á
síldar næstu vikur
Horfur á
göngu
BLAÐINU barst í gær eftirfar-
andi frétt frá Hafrannsóknar-
stofnuninni um síldarrannsóknir
í vor:
Lokið er fundi rússneskra,
norskra og íslenzkra haf- og fiski
fraeðinga, sem haldinn var á
Akureyri dagana 12.—14. þ.m. —
Skip frá þessum þjóðum hafa í
vor kannað svæðið norður og
austur af íslandi og hafsvæðið
miili Noregs og íslands frá Fær-
eyjum norður að Jan Mayen.
Helztu niðurstöður rannsókn-
anna eru þessar:
ísröndin nú í vor var fjaer
landinu en oft áður. eða 75 sjó-
mílur norð-norðvestur af Kögri
Oig um 15 sjómílur norðvestur af
dagsins á ísafirði hefjast kl.
13:30 með því að Lúðrasveit
Isafjarðar leikur á Silfurtorgi
undir stjórn Vilbergs Vil-
bergssonar.
Frá Silfurtorgi verður síðan
farin skrúðganga að hátíða-
svæðinu við sjúkrahúsið, og
munu ljósálfar, ylfingar og
yngstu aldursflokkar íþrótta-
félaganna mynda kjarna
göngunnar.
Við sjúkrahúsið verður hátíð-
ia sett af Jökli Guðmundssyni,
formanni þjóðhátíðarnefndar og
síðan mun Sunnukórinn syngja.
Þá flytur Sigurður Bjarnason,
forseti Nd. Alþingis, aðalræðu
dagsins, en síðan flytur Fjail-
Jan Mayen.
Fyrri hluta júnímánaðar var
sjávarhiti á hinu kannaða svæði
talsvert undir meðallagi. Yfir-
horðslög norðanlands og austan
voru nú hlýrri en í fyrra, en
djúplög kaldari. Atlantiski hlý-
særinn við Norðurland var kom-
inn austur á móts við Skagatá,
en austar var enn kalt í sjónum.
Eins var hlýsærinn í Noregshafi
kaldari nú en í meðalári. Sjórinn
djúpt út af Norðausturlandi, þ.e.
Austur-íslandsstraumurinn. var
kaldari nú en athuganir eru til
um, að undanskildu vorinu í
fyrra. Mörkin milli kalda sjávar-
ins við Austurland og hlýsævar-
ins að sunnan voru á um 65 gr.
konan ávarp sitt. Verður Fjall-
konan að þessi sinni Snjólaug
Gúðmundsdóttir. Að ávarpi
hennar loknu verður sýnd íslenzk
glíma og verða það glímumenn
frá Glímusambandj íslands sem
sýna. Að lokum verða fluttir
nokkrir gamanþættir og sungnar
gamanvísur.
Þá verður unglingadansleikur
í Sjálfstæðishúsinu kl. 5—7 um
daginn og skemmta þar B. G. og
Árni. Um kvöldið verða svo dans
leikir í Sjálfstæðishúsinu þar
sem V. V. og Barði leika fyrir
dansi og í Alþýðuhúsinu, þar
sem B. G. og Árni leika.
Þjóðhátíðarnefnd á ísafirði
skipa eftirtaldir menn: Jökull
Guðmundsson, formaður; Magn-
ús Reynir, gjaldkeri; Fylkir
Ágústsson, ritari, og Sigurður
Oddssoa og Úifar Ágústsson,
norður breiddar, en að austan
voru þau á urh 8 gráðum vestur
lengdar eða 160 sjómílur austur
af Langanesi. Bkki er sennilegt,
að djúsærinn norðanlands hlýni
í sumar, en yfirborðslög munu
að sjálfsögðu hlýna allt niður á
a.m.k. . 50 metra dýpi.
Á hafsvæðinu norðan- og aust-
anlands er þörungamagn yfirleitt
mikið gagnstætt því, sem var á
sama tíma í fyrra. Hið sama
virðist giida um svæðið austur
Framhald á bls. 30
Komu með síld
frá Jan lllayen
Akranesi, 15. júní.
f DAG hitti ég Sigvalda Gunn-
arsson,' ungan háseta á Jörundi
III. Hann er í 12 daga fríi, 15
menn eru á bátnum og alltaf
tveir í fríi. Síðast komu þeir með
fullfermi af síld frá Jan Mayen,
36 klst. sigling hvora leið. Ekki
sáu þeir Normenn á miðunum
þar, nokkra Færeyinga, en enga
Rússa. — Oddur.
84 hvolir
komnir d land
Akranesi, 15. júní: —■
NÚ hafa verið veiddir 84
hvalir á hvalbátana fjóra á
slaginu kl. 14 í dag, 78 hvalir
komnir á land, 6 eru í togi
og verða komnir að landi kl.
22 í kvöld. Þetta er 9 hvöl-
um meira, en veiðst hafði á
sama tíma í fyrra. Gott veð-
ur er nú á hvalamiðum. 140
manns vinna við hvalveiðina
80 í landi og 60 á sjónum.
— Oddur.
Fjölbreytt Þjóðhótíðar-
höld á ísaiirði
— Sigurður Bjarnason, alþingismaður,
ílytur aðalræðu dagsins
HÁTÍÐAHÖLD þjóðhátíðar-
Wilson ræðir við leið-
toga farmanna
— Hafnir hreinsaðar með að-
stoð herskipa, Ijúki ekki verk-
fallinu fljotlega
London 15. júní — NTB
• Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, átti í dag fund
með leiðtogum brezka farmanm
sambandsins — í fyrsta sinn frá
því verkfallið hófst. Tjáði hann
leiðtogunum, að stjórnin muni
ekki undir neinum kringumstæð
um fallast á, að samið verði um
meiri kauphækkun en þegar hef
ur verið boðin samkvæmt mála-
miðlunartillögu stjórnarinnar.
Málamiðlunartillagan fól í ssr
9.5% kauphækkun á tveimur ár-
um og styttingu vinnutímans úr
56 klst. i 48 á þessu ári og nið-
ur í 40 klst. á næsta ári. Þessu
boði höfnuðu farmenn. Þeir
krefjast 40 klst. vinnuviku þeg-
ar í stað.
Stjóm farmannasambandsins,
sem telur 48 menn, heldur fund
um málið í kvöld og á morgun
en síðan er fyrirhugaður annar
fundur með forsætisráðhsrran-
um. Framkvæmdastjóri far-
mannasambandsins William
Hoggarth tjáði fréttamönnum í
kvöld, að fundurinn með Wil-
son hefði verið árangurslaus.
Talið er að óánægja yfir verk
fallinu fari vaxandi meðai far-
manna og vilji margir þeirra
ganga að málamiðlunrtillögunni,
sem að ofan greinir. Talsmenn
stjórnar farmannasambandsins
segja hinsvegar að meira en 90%
farmanna vilji halda verkfallimi
áfram og séu staðráðnir að berj-
ast til þrautar.
Heimildir innan ríkisstjórnar-
innar hermdu í dag, að yrði ekki
brátt bundinn endi á verkfaUiS
mundi stjórnin gera róttækar'
ráðstafanir — og þá fyrst og
fremst láta hreinsa mikilvæg-
ustu hafnir, með aðstoð her-
skipa. 825 skip, u.þ.b. þriðjung-
ur verzlunarflota landsins liggur
nú bundinn í höfnum. Er ástand
ið orðið verst í Londorí og Liver
pool. Erlend skip eiga æ erfið-
ara með að sigla þar inn og út.
Enn hefur verkfallið ekki kumið
niður á iðnaði landsins, svo
nokkru nemi, að sögn ráðherra.
Að vísu hefur verið skortur á
ýmsum vörutegundum til iðnað-
arframleiðslunnar, en ekki svo
mikill áð tjóni valdi.
— Kekkonen
Framh. af bls. 1
anir hafa verið lítt merkjanleg-
ar og fréttamönnum hefur gef-
izt betri kostur en nokkru sinni
fyrr á því að fylgjast með ferð-
um forsætisráðherrans. Meðal
almennings vekur heimsókn
hans enga athygli.
Tvær nýjar AB bækur:
Ljósið góða og
Vísindamaðurinn
Kail Bjarnhoí gefur starfsemi blindra
á íslandi höfundarlaun sín
ALMENNA bókafélagið sendir
utn þessar mundir frá sér tvær
nýjar bækur. Er það Ljósið góða
eftir danska skáldið Karl Bjarn-
hof og fimmta bókin í Alfræða-
safni AB, Vísindamaðurinn, í
þýðingu Hjartar Halldórssonar,
menntaskólakennara.
Ljósið góða er stílíærðar end-
urminningar Karls Bjarnhof, sem
mun mörgum íslendingum að
góðu kunnur. Segja þær frá
unglings- og mánndómsárum
hans í Danmörku, og eru sjálf-
stætt framhald af fyrri. endur-
minningabók hans, Fölna stjörn-
ur, sem Almenna bókafélagið gaf
út árið 1960. Karl Bjarnhof er
einn af kunnustu núlifandi rit-
höfundum Dana, fæddur í Vejle
í Danmörku 28. janúar 1898. Allt
frá bernsku hefur hann verið
blindur og hefur það að sjálf-
sögðu mótað allt hans líf og
skáldskap. Hann stundaði hljóm-
listarnám við blindrastofnun í
Kaupmannahöfn og síðar í París.
Eftir heimkomuna ger’ðist hann
organisti í Kaupmannahöfn,
stundaði síðan blaðamennsku um
langt skeið, en hefur síðan 1947
starfað við danska útvarpið.
Hann er félagi í dönsku akademí-
unni frá árinu 1960 og er ritari
hennar. Á síðastliðnu ári var
hann formaður úthlutunarnefnd-
ar bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs, og kom hingað á sl.
vetri, er úthlutunarnefndin tók
ákvörðun sína um þau verðlaun
hér.
Karl Bjarnhof.
Karl Bjarnhof hefur skrifað
fjölda bóka, en mesta frægð
hefur hann geti'ð sér fyrir Ljósið
góða og Fölna stjörnur. Höfund-
arlaun sin fyrir þessa útgáfu bók
arinnar hefur Karl Bjarnhof get-
ið tii starfsemi blindra á íslandi.
Ljósið góða er 277 bls. að stærð,
prentuð og bundin í Prentsmiðju
Hafnarfjarðar hf. Kápu og titil-
síðu hefur Kristín Þorkelsdóttir
teiknað.
Vístndamaðurinn er fimmta
bókin í Alfræðasafni AB, en áður
eru komnar bækurnar Fruman,
\ Framhald á bls 31