Morgunblaðið - 16.06.1966, Qupperneq 12
12
MORCU MBLAÐIÐ
Fimmtudagur 16. júní 196t
Úr blaðamarmaför til Sovétrikjanna:
TASS og NOVOSTY
• HÖFUÐVÍGI sovézkrar
„pressu“, er fréttastofan
TASS, sem sér um útbreiðslu
frétta erlendis frá til allra
blaða innan Sovétríkjanna og
sovézkra frétta til annarra
landa. Er starfsemi TASS í
stórum dráttum svipuð í snið
um og sarfsemi annarra stórra
fréttastofa, svo sem AP, Reut
er og UPI. Hinsvegar er
verulegur eðlismunur á vali
frétta og meðferð.
Einn liður í dvöl okkar i
Moskvu var að heimsækja
TASS. Er fréttastofan til
húsa í gömlu húsi við Tver-
skoi Boulevard, sem er eins-
konar „Fleet Street“
Moskvu. Eru þar í grennd
skrifstofur NOVOSTY frétta
stofunnar, dagblaðsins „IZ-
vestija“, og ýmissa annarra
blaða og tímarita.
Að sögn forráðamanna
TASS er fréttastofan löngu
vaxin upp úr húsnæði sínu og
er nú fyrirhugað að reisa yfir
hana stórhýsi við þessa sömu
götu.
Við höfðum ekki langa við
dvöl í skrifstofum TASS,
skoðuðum fyrst og fremst
tæknideildina, þar sem hundr
uð fjarritara höfðu uppi ær-
andi hávaða. Fréttir að koma
og fara á mörgum tungumál-
um til landa víðsvegar um
heim, þar sem við þeim taka
blaðamenn er lesa þær ásamt
öðrum fréttum og skrifa á
eigin tungu: „TASS frétta-
stofan Skýrði svo frá 1
dag......“ o.s.frv.
Til þess að spara okkar dýr
mæta tíma afhentu forráða-
menn TASS okkur upplýsinga
bækling, sem þeir sögðu að
við gætum lesið, er heim
kæmi — þar væri að finna
allar upplýsingar, er við þyrft
um á að halda.
1 þessum bæklingi er tekið
skýrt fram, að TASS líti á
það sem eitt helzta
markmið sitt á heimavett-
vangi að stuðla að uppbygg-
ingu kommúnismans í Sovét-
ríkjunum, auka kommúniska
uppfræðslu þjóðarinnar og
efla þar með kommúnískt
uppeldi komandi kynslóða.
Það er s'koðun TASS, að fólk
ið þarfnist margvíslegra
frétta — „hinsvegar er það
sannfæring okkar, að fólkið
þarfnist ekki aðeins frétta —
heldur frétta, sem eru þjóð
félagslega mikilvægar, hafa
ákveðinn tilgang — frétta,
sem komið er til skila fljótt
og vel og á þann . hátt, að
fól'kið geti skilið þær“ eins
og þar stendur.
Á alþjóða vettvangi telur
TASS það tilgang sinn að
efla frið og vináttu þjóða,
tryggja almennt öryggi,
stuðla að friðsamlegri sam-
búð ríkja, sem búa við mis-
munandi þjóðskipulag, veita
þjóðum stuðning í stjórn-
mála- og sjálfstæðisbaráttu,
efla skilning þjóða í ihilli og
stuðla að auknum samskipt-
um, m.a. á sviði efnahags-
mála, vísinda tækni og
menntamála — og greiða fyrir
því, að Sovétríkin o£ önnur
kommúnísk ríki geti mið’að
hvert öðru af reynslu sinni
af uppbyggingu kommúnism-
ans.
TASS leggur á það áherzlú,
að fréttastofan eigi enn margt
ógert á sviði tækninnar tii
þess að verða samkeppnisfær
við stærstu vestrænu frétta-
stofurnar. Á hinn bóginn hafi
TASS það umfram þessar
fréttastofur, að „við segjurn
frá staðreyndum — ekki slúð
ursögum". Ekki gerir TASS
nánari grein fyrir því hvað
átt er við með „slúðursögum“
— en þeir, sem kynnzt hafa
fréttameðferð TASS og ann-
arra fréttastofa, hljóta að
telja þetta harla umdeilanleg
ar staðhæfingar, sem hefði
verið fróðlegt að ræða nán-
ar við blaðamennina sovézku,
— en því miður varð ekki af
því.
TASS fréttastofan var
formlega stofnuð 10. júlí ár-
ið 1925. Þá höfðu fréttastofur
verið starfandi <í Rússlandi
fréttastofu, sem samtök verka
manna, bænda og hermanna
ráku og varð úr fréttastofan
ROSTA — síðar TASS. eina
fréttastofan í öllum Sovét-
ríkjunum, sem miðlar dag-
lega fréttum frá öðrum löftd-
um.
★ ★ ★ ,
Skammt frá TASS — við
Puskhin torgið — hefur önn-
ur svipuð stofnun aðsetur. Er
það NOVOSTY PRESS
AG-ENCY — APN —, sem á
íslenzku er oftast nefnd
NOVOSTY fréttastofan, enda
þótt hún miðli alls ekki dag-
legum fréttum heldur ein-
Húa NOVOSTY við Puskhin-torg.
rá því 1894, er RTA — Russi-
an Telegraph Agency — var
stofnuð í Petersburg. Önnur
fréttastofa .TTA — TRADE
Telegraph Agency — var
sett á laggirnar 1902 og fjall-
aði f-yrst og fremst um efna-
hagsmál. Árið 1904 var Frétta
stofa Pétursborgar — PTA —
stofnuð á grundvelli RTA og
í desember 1917 fyrirskipaði
Lenin, að PTA skyldi verða
helzta upplýsingamið.stöð
flokksstjórnarinnar. Arið
1918 var PTA sameinuð
Nikolai Danilov — yfirmaður Evrópudeildar NOVOSTY.
göngu greinum og myndum.
Leiðsögumaður ok-kar, Lev
Gobulev, sem starfar við
NOVOSTY fór með okkur til
fundar við yfirmann Evrópu-
deildar NOVOSTY Nikolai
Danilov, snerpulegan mið-
aldra mann, sem virtist
stjórna sínu fólki með fjör-
legri festu.
Danilov er maður víðreist-
ur — hefur heimsótt 30 lönd.
Áður en hann tók við starf-
inu hjá NOVOSTY var hann
aðstoðar menntamálaráð-
herra. Hann sagði, að sér
hefði leiðst skrifstofustarfið
og langað aftur í blaða-
mennskuna, sem verið hafði
hans starf áður í áratugi.
Hann var á árunum 1930-40
ritstjóri dagblaðs fyrir böra
og unglinga sem gefið er út
í 8 milljónum eintaka; í byrj
un heimstyrjaldarinnar síðari
tók hann við ritstjórn „Komso
molka Pravda“ blaðs æsku-
lýðsfylkingarinnar, sem gefið
er út í 3.5 milljónum eintaka.
Þá tók hann við ritstjórn
menningarrits, sem mennta-
málaráðuneytið gefur út. Nú
er Danilov formaður ríkis-
nefndar þeirrar sem hefur
yfirumsjón með allri bókaút-
gáfu í Sovétríkjunum.
NOVOSTY — APN — er
aðeins fimm ára. Hún dreifir
sem fyrr sagði eingöngu grein
um um alls konar efni og hef
ur víðtæka ljósmyndaþjón-
ustu. Þá er sá munur á
NOVOSTY og TASS, að sú
síðarnefnda er undir stjórn
og eftirliti ríkisstjórnarinnar,
en að NOVOSTY standa —
og stjórna-samtök rithöfunda,
samtök blaðamanna, samtök
vísindafélaga (sem sjá um fyr
irlestrahald vísindamanna
innan sem utan Sovétríkj-
anna) — og samtök félaga
þeirra er fjalla um menn-
ingarsamskipti við erlend
ríki.
Þessi samtök lögðu I upp-
hafi fram fé til stofnunar
NOVOSTY en eftir því, sem
fjárhagur fréttastofunnar
kemst á legg, er henni ætl-
að að endurgreiða stofnféð.
Hjá NOVOSTY starfa um
600 manns fyrir utan fjöl-
mennt lið þýðenda. Enn
fleiri sjá þó fréttastofunni
fyrir greinum — hafa
samtals um 6000 manns
lagt til efni frá því
starfsemin hófst. NOVOSTY
hefur 60 skrifstofur erlendis
og fjarritunar-samband við
hundrað lönd. Þá hefur NO-
VOSTY sérstaka______samninga
við helztu fréttastofur á Vest
urlöndum, svo sem Reuter og
AP — um gagnkvæma að-
stoð við upplýsingaöflun.
Einnig við mörg helztu tíma-
rit Vesturlanda svo sem
LIFE, LOOK, TIME og NEWS
WEEK í Bandaríkjunum,
STERN, BUNTE ILLUSTRI-
ERTE og REVIEW í V-Þýzka
landi EPOKA á ítaliu og
PARIS MATOH í Frakklandi
og er um þessar mundir að
senda ljósmyndara til náms-
dvalar hjá PARIS MATCH.
Veitir NOVOSTY þessum að-
ilum, svo og erlendum blaða-
mönnum, rithöfundum og
fleirum aðstoð við að útbúa
efni um Sovétrí’kin, bæði með
því að útvega samtöl við
ýmsa aðila, veita upplýsingar
og taka ljósmyndir. Forráða-
menn NOVOSTY fara þó eft-
ir þeirri reglu að veita ekki
aðstoð nema þeir megi vænta
tiltölulega hlutlausra skrifa
um Sovétrí'kin „við viljum
hjálpa heiðarlegum blaða-
mönnum, sem eru að reyna
að afla sér skilnings á lifi
Sovétmanna", sagði Danilov
og bætti við: „Við væntum
þess ekki, að þeir séu komm-
únistar eða hefji hér allt upp
til skýjanna, síður en svo, en
við ætlumst til hlutlægni“.
Greiðsla fyrir þessa þjónustu
NOVOSTY er, eins og hia
öðrum fréttastofum, afar mis
munandi eftir því hver á í
hlut. Stórblöðin eru krafin
um hærri greiðslur en smá-
blöð og í vissum tilfellum
geta einstaklingar fehgið
þessa aðstoð endurgjalds-
laust.
Jafnframt greina- og mynda
þjónustu, gefur NOVOSTY
út 36 blöð og tímarit, öll er-
lendis. Innan lands er ekkert
gefið út en sovézkum blöðum
og tímaritum séð fyrir margs
konar efni.
Danilov sagði, að NOV-
OSTY hefði oft verið gagn-
rýnd — enda rétt búin að
slíta barnaskónum — en for-
ráðamennirnir reyndu að
bregðast við gagnrýninni með
því að bæta þjónustuna á all-
an hátt „við hlökkum til þess
dags, þegar efni okkar, bæði
greinar og ljósmyndi-, ná
þeim gæðum sem bezt þekkj
ast á Vesturlöndum — og til
þess að ná þessu marki sem
skjótast viljum við hafa sem
mesta og bezta samvinnu við
öll beztu tímarit heims.“
Mbj.
í einum fjarritarasal TASS.