Morgunblaðið - 16.06.1966, Síða 23
’ Fimmtudagur 16. JtírM 1966
— MJnníng
Framhald af bls. 19
var búin a'ð sjá þessa torfæru og
hugsa um hvernig bezt væri að
yfirstíga hana. „Við verðum að
ráða bót á þeim vanda með því
að koma saman hjá þeim kon-
um, sem rýmst rúsplássið hafa,
þangað til að aðrar leiðir opn-
ast fyrir okkur,“ sagði Sigríður.
Þessi hugmynd fannst konum,
sem þarna voru ‘góð úrlausn á
sínu fyrsta vandamáli. Þær voru
ekki að setja það fyrir sig þó
nokkuð langt yr'ði á milli fundar-
staða, þar sem einn fundarstað-
urinn skyldi vera á Vatnsenda,
annar á Þóroddsstöðum, þriðji á
Brimnesi og fjórði í húsi frú
Maríu Torfadóttur, sem nú er
Strandgata 7 hér í bæ, en milli
þessara staða er margra km.
vegalengd.
Það ræður að líkum hvort
þessi ungi og fámenni félags-
skapur hafði ekki oft átt við ýmsa
örðugleika að stríða á sínum
fyrstu starfsárum, eins og hög-
um var þá háttað hér. En það
sannaðist þá, sem oftar að sigur-
sæll er góður vilji.
Konur hér fundu fljótt að
þarna var gott mál á ferðinni,
sem vert var að veita lið sitt,
enda fjölgaði konum í félaginu
úr 16 í 30 á fyrsta starfsári þess.
Ég, sem þessar línur skrifa, minn
ist þess með gleði hve ánægju-
legt var að starfa í þessum fé-
lagsskap á meðan Sigríðar naut
við og hversu konur voru fúsar
til starfa. Ég minnist þess ekki
að ég heyrði konur nokkurn tíma
bera við tíma- eða getuleysi, er
þær voru kvaddar til starfa, enda
þótt við marga erfiðleika væri að
etja. En forystan var líka traust
og til fyrirmyndar þar, sem Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir var. Hún
var foringinn, sem gott var áð
fylgja. henni kom aldrei til hug-
«r að draga sig í hlé, heldur
studdi með ráðum og dáð öll þau
mál, sem fram komu og máttu
verða félaginu til framgangs og
heilla.
Við getum hugsað okkur, hvort
aldrei' hafi verið erfiðleikum
bundið fyrir Sigríði að sinna
störfum fyrir félagið hér niðri
I Ólafsfjarðarhorni, sem þá var
nefnt svo, framan úr Vatnsenda,
sem er yfir 5 km. leið og veg-
leysa á þeim tima. En Sigríður
lét ekki vegalengdina hefta störf
sín, enda var hún svo lánsöm
að eiga þann lífsförunaut, sem
aldrei latti hana til starfa, en
ætíð stóð við hlið hennar í hvers
konar erfiðleikum, sem að hönd-
um bar. Oft mátti sjá þau hjón-
in Sigurð Jónsson og Sigríði Vil-
hjálms, koma leiðandi hönd í
hönd á skíðum framan Ólafs-
fjarðarvatn, í misjöfnu veðri og
færi og það hygg ég að aldrei
hafi Sigurði komið til hugar að
skilja konu sína eina eftir ef
veður var ekki tryggt, heldur
bíða hennar á meðan hún lauk
þeim störfum, sem kölluðu að í
það og það sinn. Margur mað-
urinn, sem ekki þekkti heimili
þeirra hjóna, gæti hugsað sem
svo að ekki hefði verið mörgum
störfum að sina á heimili þeirra,
þar sem húsmóðurin gat alltaf
gefið sér nægan tíma til starfa
utan síns heimilis. En allir, sem
bezt þekktu til vissu að það var
öðru nær. Ég hygg að hvergi hér
í sveit hafi verið meiri gesta-
gangur en á Vatnsenda þau ár,
sem Sigurður og Sigríður réðu
þar húsum, jafnvel þó heimili
þeirra væri fjarri þjóðbraut. En
það hefur ætíð verið svo að öll-
um mun finnast gott að koma
þar ,sem gestrisni og gleðin skipa
öndvegi. Einnig var það svo með
Sigríði að hún neitaði aldrei bón
náungans, sæi hún sér fært að
uppfylla hana, þar af leiðandi
hlóðust verkefni á heimili henn-
ar, sem hún svo oft varð að
vinna við um nætur þegar dag-
ur ekki éntist til.
Ekki iagðj hún þessa auka-
vinu á sig til að auðga sjálfa
sig efnalega, heldur miklu frem-
ur til áð þjóna einum sterkasta
þættinum í sinni eigin skap-
gerð, sem var að rétta þeim þurf-
andi hjálparhönd.
Ég hef heyrt spaka menn mæla
svo, að tíminn væri tæki manns-
MORGUNBLAÐIÐ
sálarinnar til að gleyma ýmsu,
sem hrjáir okkar mannanna börn
hér megin grafar. Það er vissu-
lega satt. Tíminn er mildur græð
ir sáranna og annarra mannlegrá
meina. En við megum aldrei láta
tímann breiða blæju gleymskunn
ar yfir minningar þeirra manna,
sem meðal okkar hafa lifað og
starfað og sýnt hafa það í verki,
að þeir lifðu ekki einungis fyr-
ir sig, heldur miklu fremur til
að fórna sér fyrir þá, sem ver
eru á veginum staddir og örðugra
eiga í lífsbaráttunni. En því mið-
ur vilja góðverkin oft gleymast.
Mér er óhætt að fullykða það,
að þær konur, sem störfuðu í
kvenfélaginu á þeim árum er
Sigríður Vilhjálmsdóttir veitti
því forstöðu — en þeim fækkar
nú óðum — eiga margar hugljúf-
ar endurminningar um hana og
hennar störf.
Það var ánægjulegt og þrosk-
andi að sitja á fundum með
henni. Hún stjórnaði þeim ætíð
með festu og myndugleik, en
aldrei með einræði. Hún var
jafnan þakklát hverri þeirri
konu, sem bar fram eitthvert það
málefni, sem horfði til heilla og
framgangs fyrir félagið og
studdi það þá jafnan með ráðum
og dáð ef þurfa þótti. Sjálf var
hún hugkvæm í að finna ýmsar
leiðir til fjáröflunar fyrir félags-
starfsemina og dró sig þá aldrei
í hlé, hún var ætíð i fararbroddi.
Já, þær voru margar leiðirnar,
sem farnar voru, en ekki allar
greiðfærar, og vel má það vera
að flestum fyndist þær ófærar
nú. En Sigríður átti fullkomið
traust og virðingu samverka-
kvenna sina, og nr.^rgra annara
góðra manna, sem studdu félag-
ið á ýmsan hátt, svo ekki leið
á löngu þar til hægt var að
sinna því máli, sem félagið hafði
á stefnuskrá sinni, sem var að
líkna sjúkum og fátækum. Það
vekur hjá mér undrun, er ég
hugsa um þáð nú, hve félagskon-
ur voru fúsar þá til að fara inn á
þau heimili, sem þörfnuðust
hjálpar og vinna þar ýms verk,
sem húsmóðurin gat ekki unnið
sjálf, vegna veikinda eða ann-
arra erfiðra ástæðna. Einnig
minnist ég þess að konur gáfu
þá til félagsstarfseminnar oft af
litlum efnum, því þá var meiri
fátækt hér en nú er.
Það reyndist oft vandasamt
verk að úthluta þeim litlu efn-
um, sem' félagið hafði yfir að
ráða til glaðningar þeim fátæku,
en það var altlaf gert fyrir jól-
in. Það er ekki ætíð auðvelt fyr-
ir þá, sem ekki þekkja ástæður
fólks til hlítar að finna þann
fátækasta. Ég starfaði venjulega
með Sigríði ásamt fleiri konum í
þessari svokallaðri úthlutunar-
nefnd og var oft öðrum fremur
kunnugt um hvernig hún brást
við vandanum, þegar efni félags-
ins ekki nægðu til. Hún gaf þá
ætíð frá sjálfri sér þeim, sem
henni fannst verða útundan og
lét þá venjulega þessi orð fylgja
gjöfinni: „Ég ætlast ekki til að
þú segir frá þessu.“ Hún gaf ekki
til að sýnast fyrir heiminum. —
Hún gaf af kærleika.
Aldrei voru þau hjónin rík á
veraldarvísu en þó virtist sem
þau hefðu ætíð næg efni til að
gefa, og gleðja þá, sem hjálpar
þörfnuðust. Það var sameiginleg
trú þeirra að efnin blessuðust
þeim betur ef þau réttu líknar-
hönd þeim sem verr voru á veg-
inum staddir. Þessi heiðurshjón
settu sitt svipmót á þetta byggð-
arlag meðan þau lifðu og störf-
uðu hér. En nú eru þau horfin
sjónum okkar, en eftir lifir minn-
ingin um góða samferðamenn.
Með Sigríði Vilhjálmsdóttur er
horfin' ein mikilhæfasta kona
sinnar samtíðar. Hún mun hafa
af flestum verið talin skapheit
kona, en hafi svo verið, tel ég
það einn af hennar mörgu kost-
um hversu hún stillti ætíð skapi
sínu í hóf þegar mest reyndi á
og gaeti ég sagt mörg dæmi um
það frá okkar kynnum og sam-
starfi, en læt hér nægja að
nefna aðeins tvö.
Þegar það mál var borið fram
á kvenfélagsfundi, að breyta um
nafn á félaginu, kom fljótlega í
ljós að þetta ætlaði að verða
meira hitamál en búast mátti við.
Sigríður dró sig þá í hlé frá
umræðum og lét konur ræða
málið um stund, þar næst greiða
atkvæði. Kom þá í ljós að fleiri
voru með nafnbreytingunni. —
Mörg nöfn höfðu verið nefnd,
en nú brá svo við eftir atkvæða-
greiðslu að dauðaþögn varð á
fundarstað. Sigríður reis þá úr
sæti sínu virðuleg að vanda og
sagði: „Það er mín tillaga að
elzta konan, sem situr hér á
þessum fundi, gefi félaginu
nafn,“ en sú kona hafði setið
hljóð og aðeins hlustað, en það
var Sigríður Júlíusdóttir, Kálfs-
árkoti. „Nú ber mér vanda að
höndum, sem ég vil þó reyna að
leysa,“ mælti hún „og gef ég fé-
laginu nafnið „Æskan‘.‘“ Þetta
nafn hafði ekki verið áður nefnt,
en var þó samþykkt með meiri
hluta. Þar með lauk þessari um-
deildu skírnarathöfn. Ekki þurftu
þeir, sem til þekktu að fara í
neinar grafgötur til að vita að
Sigríði Vilhjálmsd. var þessi
nafnbreyting á félaginu við-
kvæmt mál. Hún hafði sjálf gefið
því sitt fyrra nafn og með því
nafni og undir henar stjórn hafði
þetta óskabarn hennar dafnað og
þroskazt um mörg ár. En hún
vissi vel að eitthvað var á
sveimi, sem ekki væri félags-
starfseminni æskilegt. En svo
fór Sigri’ður vel með skap sitt í
þetta sinn sem oftar, að engin sá
hvort henni þótt betur eða ver.
Það hafði lengi staðið kvenfé-
laginu fyrir þrifum að ekkert
samkomuhús var hér á staðnum,
en svo var einnig með ung-
mennafélagið, sem þá var starf-
andi hér. Oft höfðu stjórnir þess-
ara félaga komið saman og rætt
þetta vandamál sitt, þótt ekkert
hefði orðið úr framkvæmdum,
enda við marga erfi'ðleika að
etja.
Peningastofnanir stóðu þá ekki
opnar fyrir hverjum, sem þurfa
þótti, og engir voru hjálparsjóð-
ir. Virtist því aðeins vera eitt
ráð til að ráða bót á þessu stóra
vandamáli félaganna, og það var
að taka saman höndum og ráð-
ast í samkomuhússbyggingu. —
Engum duldist að þarna þurfti
bæði stórhug og sterkan vilja til
framkvæmdanna.
En sínum augum lítur hver á
silfrið. Þegar þetta mál kom inn
á kvenfélagsfund voru konur
ekki á eitt sáttar um þetta mál,
vildu margar heldur bíða þar til
félagið hefði bolmagn til að vera
eitt um þetta verk. Sigríður var
eindreginn stuðningsma'ður þessa
máls og fylgdi því eftir með viti
og vilja, en oft þurfti hún að
stilla skapi sínu í hóf til pess að
vinna bug á þessari mótstöðu.
En Sigríður hafði sérstakt lag á
að slá á þá strengi, sem lægðu
öldurnar er oft risu kringum
hana. Og vel eru mér í minni
þau orð er hún lét falla í þetta
Framhald á bls. 24
tweed
jakki
TWEED, OFIÐ ÚR ÍSLENZKRI ULL,
ER ENDINGARBETRA EN NOKKUÐ
ANNAÐ ULLAREFNI, ÁRATUGA REYNSLA
OKKAR SANNAR ÞAD.
GEFJUNARJAKKAR ÚR ÍSLENZKU TWEED, FÁST
f FALLEGUM LITASAMSETNlNGUM, í ÖLLUM STÆRÐUM
OG FARA ÞYÍ ÖLLUM YEL.
TWEEDJAKKI OG BUXUR ÚR TERYLENE FRÁ GEFJUN
ER SÍGILDUR KLÆONAÐUR.
GEFJUN
GEFJUN KIRKJUSTRÆTI,
REYKJAVÍK, SÍMI 12838.
Glæsileg sending aí
sumarkápum tekin
upp í dag
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.
Qlimmn VOR OG SUMAR TÍZKAN ER KOMIN Qlimmn
iilllllllm BEINT FRÁ illllllllm
UIIIIIIIIU LONDON UIIIIIIIIU
1 Fyrir ótrúlega lágt verð getið þér eignast full- kominn klæðnað fyrir sumarið. SLIMMA — Buxur SLIMMA — Pils SLIMMA — Jakkavesti SLIMMA — Blússur l''
í helgarferðirnar í sumarbústaðinn í sumarfríið. SLIMMA fatnaður er fyrir allar. SLIMMA slær í gegn