Morgunblaðið - 16.06.1966, Síða 24
24
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 16. júni 1966
Þjoðhatíðin
í Reykjavík
17. júní 1966
DAGSKRÁIN HEFST:
KL. 10.00 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík.
KL. 10.15 Frú Auður Auðuns, forseti borgarstjórn-
ar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum,
á leiði Jóns Sigurðssonar. Karlakórinn
Fóstbræður syngur: „Sjá roðann á hnjúk-
unum háu“. Stjórnandi: Jón Þórarinsson.
KL. 10.30 Lúðrasveit barna og unglinga leika við
Elliheimilið Grund og Dvalarheimili
aldraðra sjómanna.
Stjórnendur: Karl O. Runólfsson og Páll
Pampichler Pálsson.
SKRÚÐGÖN GUR:
KL. 13.15 Safnast saman við Melaskóla, Skóla-
vörðutorg og Hlemm. Frá Melaskólanum
verður gengið um Furumel, Hringbraut,
.Skothúsveg, Tjarnargötu og Kirkju-
stræti. Lúðrasveit Reykjavíkur og lúðra-
sveit barna- og unglingaskóla Reykja-
víkur leika. Stjórnandi: Páll Pampichler
Pálsson. — Frá Skólavörðutorgi verður
gengið um Njarðargötu, Laufásveg, Skot-
húsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og
Skólabrú. Lúðrasveitin Svanur og lúðra-
sveit barna- og unglingaskóla Reykja-
víkur leika. Stjórnendur: KarL O. Run-
óifsson og Jón Sigurðsson, trompetleik-
ari. — Frá Hlemm verður gengið um
Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og
X Pósthússtræti. Lúðrasveit verkalýðsins
leikur. Stjórnandi: Ólafur L. Kristjáns-
. son. —
Fánaborgir skáta ganga fyrir skrúðgöng-
unum.
HÁTÍÐAHÖLDIN VIÐ AUSTURVÖLL:
KU 13.40 Hátíðin sett af formanni Þjóðhátíðar-
nefndar, Valgarð Briem. Gengið í kirkju.
KT. 13.45 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédik-
un: Síra Þorsteinn L. Jónsson. Einsöng-
ur: Magnús Jónsson, óperusöngvari. —
Organleikari: Máni Sigurjónsson. Dóm-
kórinn syngur. Þessir sálmar verða
sungnir: Nr. 672 Göngum vér fram,
1.—4. vers. — Nr. 52 Ó hvað þú Guð ert
góður. — Nr. 678 Himneski faðir hvar
sem hfað er.
KL. 14.15 Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
leggur blómsveig frá íslenzku þjóðinni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Lúðra-
sveitirnar leika þjóðsönginn. Stjórnandi:
Jón Sigurðsson, trompetleikarL
KL. 14.25 Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benedikts-
son, flytur ræðu af svölum Alþingis-
hússins. Lúðrasveitirnar leika „ísland
ögrum skorið.“ Stjórnandi: Páll Pam-
pichler Pálsson.
KL. 14.40 Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþing-
ishússins. Lúðrasveitirnar leika „Yfir
voru ættarlandi“. Stjórnandi: Ólafur L.
Kristjánsson.
BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓLI:
KL. 15.00 Kynnir og stjórnandi: Gísli Alfreðsson.
Lúðrasveit drengja leikur. Stjórnandi:
Karl O. R«nólfsson.
Leikhúskvartettinn syngur lög úr Járn-
hausnum eftir Jónas og Jón Múla Árna-
syni. Söngvarar: Hjálmtýr Hjálmtýsson,
Einar Þorsteinsson, ívar Helgason og
Jón Kjartansson. — Undirleik annast
Magnús Pétursson.
Leikþáttur: Einkunnarbókin. Leikendur:
Borgar Garðarsson og Róbert Arn-
finnsson.
Barnakór: Börn úr Melaskólanum syngja
undir stjórn Magnúsar Péturssonar.
Gög og Gokke skemmtiþáttur. Flytjend-
ur: Alli Rúts og Karl Einarsson.
Skátar syngja og leika.
Gamanvísur Alli Rúts.
Gamanþáttur: Rúrik Haraldsson.
Heimir og Jónas leika og syngja (Heimir
Sindrason og Jónas Tómasson).
Gísli Alfreðsson og Klemenz Jónsson
völdu efnið og önnuðust undirbúning
dagskrárinnar.
DANS BARNA OG UNGLINGA í
LÆKJARGÖTU:
KL. 16.00 Stjórnandi: Herm. Ragnar Stefánsson.
Hljómsveit: Toxic.
HLJÓMLEIKAR í HALLARGARÐINUM:
KL. 17.00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Stjórn-
andi: Páll Pampichler Pálsson.
Á LAUGARDALSVELLINUM:
KL. 16.30 Lúðrasveitin Svanur leikur: Stjórnandi:
Jón Sigurðsson, trompetleikari.
KL. 17.00 Ávarp: Baldur Möller, form. íþrótta-
bandalags Reykjavíkur.
Glímusýning undir stjórn Rögnvaldar
Gunnlaugssonar. Glímumenn úr KR og
Ungmennafél. Víkverja sýna.
Piltar úr KR og Ármanni sýna áhalda-
leikfimi undir stjórn Jónasar Jónssonar.
Drengjaflokkur Ármanns sýnir glímu
undir stjórn Harðar Gunnarssonar.
Vítaspyrnukeppni milli Reykjavíkur-
meistaranna Þróttar og Knattspyrnufél.
Vals. —
Boðhlaup drengja og stúlkna frá íþrótta-
námskeiðum Reykjavíkurborgar.
Keppni í frjálsum íþróttum: 100 m., 400
m. og 1500 m. hlaupi, kúluvarpi, há-
stökki, langstökki og stangarstökki. 100
m. grindahlaupi, 4x100 m boðhlaupi, 100
m. hlaupi kvenna og 100 m hlaupi
sveina.
Keppt er um bikar, sem forseti íslands
gaf 17. júní 1954.
Leikstjóri: Sveinn Björnsson.
Aðstoðarleikstjóri: Reynir Sigurðsson.
KVÖLDVAKA Á ARNARHÓLI:
KL. 20.30 Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi:
Jón Sigurðsson, trompetleikari.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, flytur
ræðu.
Lúðrasveitin Svanur leikur Reykjavík-
urmars eftir Karl O. Runólfsson. Höf-
undur stjórnar.
Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórn-
andi Jón Þórarinsson.
Þorsteinn Ö. Stephensen, leikari, flytur
Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson.
Stuttur gamanþáttur eftir Bjarna Guð-
mundsson og Guðmund Sigurðsson. Karl
Guðmundsson, leikari, flytur.
Óperusöngvararnir Svala Nielsen og
Guðmundur Jónsson syngja. Undirleik
annast Ólafur Vignir Albertsson.
DANS TIL KL. 1 EFTIR MIÐNÆTTI:
Að kvöldvökunni lokinni verður dansað
á eftirtöldum stöðum: Á Lækjartorgi:
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Söngv-
ari: Ragnar Bjarnason. — í Aðalstræti:
Dátar. — Á Lækjargötu: Hljómsveit Ás-
geirs Sverrissonar. Söngvari: Sigríður
Magnúsdóttir.
Kynnir á Lækjartorgi: Svavar Gests.
KL.01.00 Dagskrárlok. Hátíðahöldunum slitið frá
Lækjartorgi.
— Minning
Framhald af bls. 23
sinn máli sínu til stuðnings:
„Þegar við getum ekki öðlazt
það bezta, hljótum við að taka
það næst bezta.“ Það hygg ég að
þessi fáu orð hafi ráðið miklu
um hve þetta mál fékk góð enda-
lok.
Þetta stóra framtak félaganna
varð til mikils menningarauka
fyrir Ólafsfjörð: Nú var hægt
að fara að vinna að ýmsum þeim
málum, sem ekki var tiltækilegt
á meðan ekkert samkomuhús var
til. Það voru höfð vefnaðar-,
sauma og matarnámskeið fyrir
konur og leikstarfsemi fékk þá
byr undir báða vængi, en að
henni störfuðu félögin í samein-
ingu, og ætíð var samstarf þeirra
með ágætum og átti Sigríður
sinn góða þátt í því.
En því miður urðu þau ár of
fá, sem hún gat veitt kvenfélag-
inu forstöðu, því tiltölulega ung
að árum missti hún heilsuna og
varð að draga sig að miklu leyti
í hlé frá störfum félagsins. Þótt
hún ætíð reyndi eftir beztu getu
að styrkja það með gjöfum og
góðum ráðum fram til hinztu
stundar.
Líf Sigríðar var ekki ætíð dans
á rósum, því margir erfiðleikar
sóttu hana heim, en þá sýndi
hún bezt sinn mikla sáiarstyrk.
Það var fjarri henar skapi að
kvarta um kjör sín við nokk-
urn mann. Hún var ætíð glöð og
kát heim að sækja hvernig, sem
högum hennar var háttað. Hún
bar í hjarta sinu sömu hugsun
eins og sá, sem orti þessa vísu
sjálfum sér til hugarhægðar:
Enginn maður á mér sér,
ýms þó blæði sárin.
Hef ég lært að harka af mér
og hlæja í gegnum tárin.
En þrátt fyrir veikindí, sem
og aðra lífsreynslu, var Sigríður
þó að mörgu leyti gæfumann-
eskja. Guð hafði gefið henni
sterka sál, til að standa af sér
storma lífsins. Hún átti góðan
eiginmann, sem ætíð stóð traust-
ur og rólegur við hlið hennar
og reyndi af fremsta megni að
létta henni lífsbaráttuna á með-
an hans naut við. Hún fékk að
lifa mitt á meðal ástvina sinna
og þurfti aldrei að hrekjast burt
af heimili sínu þrátt fyrir sín
miklu veikindi. Dæturnar voru
henni ávallt góðar og tengdason-
urinn reyndist henni sem bezti
sonur, enda unni hún honum eigi
minna en dætrum sínum. Dætra-
böm hennar elskuðu og virtu
ömmu sína. Þrjú þeirra ólust
upp á heimili þeirra hjóna og
reyndust þau þeim ætíð sem
beztu foreldrar. Litlu langömmu-
börnin voru henni hjartakær.
Ölium þessum ástvinahópi var
hún þakklát, og reyndi fram á
hinztu stund að miðla þeim af
gjafmildi sinni og kærleika.
Nú er þessi góða kærleiksríka
kona horfin ástvinum sinum og
öðrum samferðamönnum — til
meiri starfa Guðs um geim.
Sigríður mín! Hafi eitthvað
atvik i lífi okkar orðið þess vald-
andi að lei'ðir skildu að mestu á
seinni árum, þá mun hvorug hafa
um það rætt, en báðar tekið
þann kostinn, sem vænztur var
• að láta Drottinn dæma.
En ætíð mun ég minnast þín
er ég heyri góðrar konu getið.
Það er von mín og trú, að
þegar ég flyt yfir móðuna miklu
þá standir þú á ströndinni hinu
megin og réttir mér hönd þína,
hlýja og mjúka, eins og við okk-
ar fyrstu kynni.
Blessuð sé þín minning.
Dana Jóhannesdóttir. 1
Guðjón Styrkársson
hæstaréttarlögmaður
Hafnarstræti 22. — Simi 18354,
ION EYSTLINSSON
lögfræðingur
Laugavegi 11. — Simi 21516.
GDSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8. Simi 11171.