Morgunblaðið - 16.06.1966, Blaðsíða 31
! Fimmtudagur 16. jtinf 1966
MORC U N B LAÐÍD
31
Valtýr Pétursson sýnir 50 myndir í Unuhúsi
KLUKKAN 4 í dag verður opnuð
málverkasýning í Helgafelli,
Unuhúsi við Veghúsastíg. Það er
hinn kunni listamaður Valtýr
Pétursson sem þaina sýnir 50
myndir. Er um að raeða olíumál-
verk, mósaikmyndir, kvarsmynd-
ir, klippmyndir og vatnslitamynd
ir. Er þetta þriðja sýningin í
Hejgafelli, en fyrir skömmu
sýndu þar saman listmálararnir
Kristján Davíðsson og Steinþór
Sigurðsson.
Fréttamaður Morgunblaðsins
■hitti Valtý að máli í gær og sagði
hann að elzta mynd sýningarinn-
ar væri frá 1949, en sú yngsta
væri frá' því í ár. Allmargar
myndir sem nú væru sýndar,
hefðu verið á sýningum áður, þar
af nokkrar fyrir 14—15 árum.
Valtýr sagðist hafa haldið sína
fyrstu einkasýningu 1949 í París,
en þá hefði hann verið þar við
nám. Þetta væri 9. einkasýning
sín, og væri hún nokkuð annars
eðlis en fyrri sýningar, þar sem
á þessari væri leitazt við að fram
kæmi nokkurt sýnishornaf vinnu
brögðum hans.
Auk einkasýninganna hefur
— Tveir bátar
Framhald af bls. 32.
kost. Hélt báturinn þó floti og
dólaði í áttina til Jóns Stefáns-
sonar sem þeir sáu að kom á
vettvang. í þann mund, er Jón
Stefánsson kom að bátnum,
hvolfdi honum og allir mennirn-
ir lentu i sjónum. Einn þeirra
var ósyndur. öllum tókst að
bjarga og bátnum líka, þar sem
hann maraði í kafi. Hinn bátur-
inn var þá enn á floti, en sökk
í þann mund er reynt var að
bjarga honum.
Óskar skipstjóri sagði að hér
hefði verið um hrausta menn að
ræða og enginn þeirra beðið um
að koma fyrstur um borð. Tæp-
lega hefðu þeir þó getað synt til
lands, þótt um vart meira en
mílu hefði verið að ræða.
Vaitýr tekið þátt i mörgum sam
sýningum listamánna og nú síð-
ast í fyrra héldu hann og Jó-
hannes Jóhannesson listmálari,
samsýningu í Listamannaskálan
um. Þá hafa myndir hans verið
sýndar víða erlendis t.d. í flest-
um Evrópulöndunum.
Aðspurður um hvaða tjáningar
form hann héldi mest upp á,
sagði Valtýr að segja mætti að
hann héldi mikið upp á gerð
mósaikmynda. Hann ætti hins-
vegar aðeins fáar eftir núna og
væri óvíst um hvað hann mundi
fást við þær í náinni framtíð.
Valtýr hefur nú nýlega lokið
við tvær mjög stórar mósaik-
myndir í Kennaraskólanum, sú
stærri þeirra er 19 ferm.
Allar myndir sem á sýning-
unni eru eru til sölu og er verði
þeirra mjög stillt í hóf. Kosta
þær yfirleitt frá 4000—10.000 kr.
Er tekin upp sú nýbreytni að
selja myndirnar með afborgun-
um, þannig að kaupendum gefst
kostur á að kaupa myndimar
með því að greiða fjórðu.ng verðs
ins út. en síðan eftirstöðvarnar á
12 mánuðum. Sagði Ragnar Jóns
son að sami háttur hefði verið
hafður á þegar þeir Steinþór og
Kristján hefðu sýnt og hefði fólk
verið mjög ánægt með það og
mikið hefði selzt af myndum.
Eins og áður segir verður sýn-
ingin opnuð kl. 4 í dag og verð-
ur þá öllum heimilaður aðgang-
ur. Sýningin verður annars opin
næsta hálfa mánuð frá kl. 1—6
og verður þá aðgangur ókeypis.
Verður sýningin einnig opin á
kvöidin um helgar og tvö næstu
kvöld. Verður þá aðgangur seld
ur. Þá verður gefin út mjög fal-
leg sýningarskrá, þar sem Gunn-
laugur Scheving ritar um lista-
manninn og í er eftirprentuð
mynd af einu málverki sýningar
innar.
Hreinsun í Æsku-
lýisfylkingunni
Peking, 15. júní — AP-NTB
• Hreinsanirnar í Kína hafa nú
tekið til Æskulýðssamtaka
kommúnistaflokksins. Kvöld-
blað eitt í Peking segir í dag. að
skipt hafi verið um menn í fram
kvæmdanefnd Peking-deildarinn
ar. Fylgir fregninni, að þúsund-
ir ungmenna hafi tekið þessum
tiðindum með miklum fögnuði.
Æskulýðssamtök kommúnista-
flokksins eru, að sagt er, sýnu
fjölmennari en flokkurinn sjálf-
ur, sem telur 22 milljónir íéiaga.
Eru félagar þar yfirleitt á aldrin
um 15—30 ára en einstöku isið-
togar eldri.
I GÆR var hæg A-átt og
sólarlaust um allt land. Bezta
veðrið var á austanverðu N-
landi yfir 15 st. hiti. Þoku-
loft var á SA-landi, Aust-
fjörðum og á annesjum norð-
an lands, en yfirelitt þurrt
og gott skyggni á V-landi.
Sunnan lands var úrkoma á
stöku stað.
Mjög hlýtt og gott veður
var í nálægari Evrópulönd-
um, nema á Bretlandseyjum,
þar var sólarlítið og skúra-
veður og víðast 15-20 st. hiti.
Þá heyrast þær fréttir frá
Peking, að Mao Tse tung hafi
nokkrum sinum komið fram op-
inberlega að undanförnu. Frétta
stofan „Nýja Kína“ segir í dag,
að hann sé við beztu heiisu og
hafi nýlega setið opinberan íund
í Peking.
— Tvær AB bækur
Framhald af bls. 2
Mannslíkaminn, Könnun geims-
ins og Mannshugurinn.
Bókin Vísindamaðurinn fjallar
um heim vísindanna. Greinir
bókin ýtarlega frá því hvernig
vísindamenn starfa, skiptingu
vísindagreinanna frá höfuðstofn-
um í einstakar sérgreinar. Sagt
er frá ýmsum kunnum vísinda-
stofnunum, og hve miklu fé er
aflað til þeirra og á hvern hátt.
Bókin gefur einnig yfirlit yfir
hina undraverðu og hrö'ðu þró-
un vísindanna, og skýrir á hvern
hátt þau koma öllum almenningi
að gagni og geta valdið hagsæld
og framförum sé rétt með farið.
í bókarlok er yfirlit yfir alla
þá, sem hafa hlotið Nóbesverð-
laun í raunvísindum og hver af-
rek þeir hafa unnið.
Bókina islenzkaði Hjörtur Hall
dórsson, menntaskólakennari, en
formála hennar hefur Guðmund-
ur Arnlaugsson, rektor, ritað. Er
bókin, eins og hinar fyrri, 200
bls. að stærð. Atriðisorðaskrá
fylgir.
Bókin var sett í Prentsmiðj-
unni Odda hf., filmur af texta
gerðár í Litbrá hf., en bókin
prentuð og bundin í HollandL
Fyrirlestur um
Asswan stífluna
HARALDUR Ómar yilhelmsson,
kennari, sem verið hefur á fyrir
lestrarferð um Egyptaland og
sýnt þar kvikmyndir frá íslandi,
m.a. við háskólinn í Kairó og í
arabíska sjónvarpinu, sýndi
blaðamönnum fagra litkvik-
mynd með enskum skýringum
um smíði - Assúan-stíflunar
miklu.. Haraldur sýnir þessa
mynd og heldur fyrirlestur nk.
laugardag, 18. júní, kl. 3 síðdeg-
is, í Háskólabíói, og rennur ágóð
inn til „Herferðar gegn hungri".
— Vietnam
Framh. af bls. 1
ir kylfuhöggúm annars lögreglu
manns. Varð að flytja frétta-
manninn í læknishendur, alvar-
lega meiddann á höfði.
Frá borginni Hue í Norður-
Saigon berast þær fregnir að
hundruð Búddatrúarmanna hafi
safnazt umhverfis ölturu, sem
þeir hafa komið upp á götum
borgarinnar. Héldu þeir þar
minningarathafnir um Búdda-
trúarmenn, er féllu í átökunúm
við stjórnarhermenn í síðasta
mánuði. Búddatrúarmenn hyggja
á sólarhrings föstu til áréttingar
kröfum' sínum um brottvikningu
Kys hershöfðingja. Leiðtogi
þeirra, Thich Tri Quang fastar
enn og er mjög af honum dregið.
Á hann, að sögn vina hans orð
ið erfitt með að sitja uppréitur
og er tregt um mál.
Stjórn Kys s-kýrði í dag nán-
ar frá skipan og starfsviði hins
nýja ráðs, sem stofnað hefur ver
ið og á að vera einskonar ráð-
gjafarsamkunda fyrir stjórmna.
Verður það skipað fulltrúum
hersins og borgaralegra sam-
taka. Að sögn NTB má ráða af
tilkynningum stjórnarinnar, að
ráði þessu sé ætlað minna vald
en gert hafði verið ráð fyrir —
það verði aðeins ráðgefandi 5
stjórnmála-, efnahags- og þjóð-
félagsmálum hafi ekkert vald yf-
ir athöfnum stjórnarinnar og
hún geti leyst það upp, þegar
henni hentar. Þá sé ráðinu að-
eins ætlað að koma saman einu
sinni í mánuði og skuli það ekki
sitja á fundum lengur en sex
daga í senn.
Þá segir AP fréttastofan, að
stjórnin hafi tilkynnt að hún
muni takmarka vald stjórnar-
skrárinnar, — og þannig verði
komið í veg fyrir, að þing það,
sem kjósa eigi 11. september
n.k. verði fullkomið löggjafar-
þing og geti skipað borgaralega
stjórn.
i
— Bændur
Framhald af bls. 32.
bónda í Auðbrekku, út af fyrir-
huguðum landsfundi um þessi
mál. Hefðu Eyfirðingar, fyrir
hönd Norðlendinga og Austfirð-
inga, óskað eftií landsfundi um
málið, en Sunnlendingar hafnað
honum. Hinsvegar sagði Lárus að
Stefán hefði sagt sér í samtalinu
að kosnar hefðu verið nefndir i
sýslum norðanlands og austan.
Væru fulltrúar nefndanna þessir:
Tobías Tobíasson, Geldingaholti i
SkagafirðL Pétur Hafsteinsson,
Gunnsteinsstöðum, A-Húnavatns
sýslu, Sigurður Líndal, Lækja-
móti, V-Húnavatnssýslu, Hermóð
ur Guðmundsson, Árnesi, S-Þing
eyjarsýslu og annaðhvort Sveinn
Jónsson, Egilsstöðum, eða Þor-
steinn Sigfússon, Sandbrekku fyr
ir Austfirðinga.
Lárus sagði, að eftir að hann
hefði skýrt frá því að Sunnlend-
ingar vildu ekki landsfund um
málið, hefði Stefán Valgeirsson
óskáð eftir því að fulltrúar
norðan- og austanmanna fengju
að mæta til samræðna við sunn-
anmenn í Reykjavík næstkom-
andi sunnudag og hefði það verið
samþykkt. Er gert ráð fyrir að
svo verði. Síðan mun ákveðið að
Framleiðsluráð haldi fund kl. 10
á mánudagsmorgun, en síðan
mundi fulltrúar Norðlendinga og
austanmanna mæta með Sunn-
lendingum á fundi Framlei'ðslu-
ráðs kl. 14.00.
Lárus kvað það ósk bænda,
sem mjólkurframleiðslu stunda,
að fá dregið úr þeim ómildu á-
hrifum sem aðgerðir Framleiðslu
ráðs hafa á búrekstur þeirra og
að það væri gert með friðsömum
hættj og án allra pólitískra
deilna.
Blaðið hafði eftir fulltrúa sín-
um á Norðurlandi, sem samband
hafði haft við Stefán Valgeirsson,
að ætlun þeirra norðanmanna
væri engan veginn sú, að stofqat
neitt samband gegn Stéttarsam-
bandinu eða Framleiðsluráði,
heldur einmitt að styrkja þau
samtök og hafa við þau fullt sam
band og samráð um þær aðgerð-
ir sem bændur hefðu um óskir,
að framkvæmdar yrðu.
— Samþykkt
Framhald af bls. 32
hafa forystu um aðgerðir af
hálfu verkalýðsfélaganna, er
nauðsynlegar kunna að reynast
til þess að samningar takist. Skor
ar fundurinn á verkalýðsfélögin
að vera viðbúin þeim átökurn,
sem framundan kunna að vera“.
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins mun nú óska
eftir viðræðum við atvinnurek-
endur um samningana án tafar.
(Frá Verkamannasam-
bandi íslands).
hvert sem þér farið # ferðatrygging ALMENNAR TRYGGINGAR U 1 1 PÓSTHÚSSTRÆTI 9 *****
Augtýs — athi Þeir, sem hafa hug á i blaðinu sunnudaginn um að koma handritu stofu blaðsins fyrir k fftfrpMií endur jgið ið auglýsa í Morgun- 19. júní eru beðnir m á auglýsingaskrif- I. 17 í kvöld.